Dagur - 05.05.1993, Síða 6

Dagur - 05.05.1993, Síða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 5. maí 1993 Minning Hjónaminning Brynhildiu’ Sigurðardóttir Fædd 9. apríl 1918 - Dáin 25. júní 1976 Bergsveiim S. Long Fæddur 9. ágúst 1909 - Dáinn 27. apríl 1993 Deyr fé, deyjafrœndur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Hávamál) Vió ætlum hér að minnast ágætra foreldra og tengdaforeldra okkar með nokkrum minningarbrotum sem vió eigum í huganum. Brynhildur Sigurðardóttir var fædd á Gnýstöðum í Vopnafirði 9. apríl 1918. Foreldrar hennar voru Kristrún Guðjónsdóttir og Sigurð- ur Amason og var hún þeirra eina barn. Bergsveinn Sigmundur Long Stefánsson var fæddur á Norðfirói 9. ágúst 1909, sonur hjónanna Guðbjargar Matthíasdóttur og Stefáns Bjamasonar og var hann yngstur sinna systkina af mjög stórum systkinahópi. Guðbjörg Matthíasdóttir var afkomandi Richard Long hins ensk ættaða, þess er var ættfaðir Long ættar- innar er fyrst kom til Austurlands. Þau hjónin giftu sig á Norðfirói 15. nóvember 1941 og bjuggu þar til vorsins 1945, þá höfðu þau eignast tvö börn, þau Einar Long og Kristrúnu. Er þau flytja í Hnef- ilsdal á Jökuldal eignast þau yngta barnið, dótturina Guðbjörgu Stef- aníu. Þar búa þau í fimm ár í tví- býli við móðurbróóur Brynhildar, Valdimar Guójónsson, og konu hans Unni Sigfúsdóttur. Árið 1950 hætta þau að búa í Hnefilsdal og flytja búferlum suð- ur að Heyklifi á Kambanesi við Stöðvarfjörð, þar sem Bergsveinn tekur að sér vitavörsluna á Kambanesi. Sjálfsagt hafa þetta verið erfiðar ákvarðanir, að flytja sig oft búferlum til dæmis við þær aðstæður er fólk bjó þá við, samgöngur og fleira. Ekki var ak- vegur út á nesið sjálft meðan þau bjuggu þar, einnig var þarna erfið heyskapartíð vegna þokunnar og rakans sem svo oft gera sig heimakomin á þessum slóóum. Þess hefur verið minnst hversu vel þau skildu við þennan stað enda voru þau snyrtimenni og geröu því góö skil sem þau áttu og höfðu í sinni umsjá. Eftir átta ára búsetu á Kamba- nesi flytja þau hjónin upp á Fljóts- dalshéraó og kaupa jörðina Hreið- arsstaði í Fellum af Haraldi Gunn- laugssyni, sem þá hafði misst konu sína og hætt búskap. Jörðin Hreiðarsstaðir liggur að Lagar- fljóti og er þaðan mjög fagurt út- sýni eins og svo víða við Löginn, Héraósprýóina okkar. Nú varð þessi fjölskylda sveitungar mínir, sem seinna varð tengdadóttir þeirra, og búendur á Hreiðarsstöð- um, en þangað liggur ætt föður míns. Vorið 1962 þann 11. júní var messað í Áskirkju. Þá var ég að láta skíra elsku dóttur mína, sem ég eignaðist áður en ég giftist Ein- ari. Við þessa messu voru þau hjónin Bergsveinn og Brynhildur að kveðja sveitunga sína því þá hættu þau sveitabúskap. Þau dvödu eftir þetta um nokkurra mánaða skeið á Eskifirði. I janúar 1963 eru ég og Bryn- hildur, tilvonandi tengdamóðir mín, samferða í flugvél norður til Akureyrar, ég var aó fara til Reykjavíkur en hún hingaó til Ak- ureyrar. Þar höfðu þau ákveðið að setjast að og áttu heima hér það sem eftir var ævinnar. Fyrstu árin leigóu þau sér íbúð en keyptu sér seinna litla notalega íbúð í gömlu húsi, Hríseyjargötu 1. Þau fengu sér bæði vinnu hjá verksmiðjunni Gefjuni og unnu þar meóan heilsa leyfði. I byrjun nóvember haustið 1966 ber óvænta gesti að garði í Hríseyjargötu 1. Þar er kominn sonurinn og mælti: „Hér er ég kominn með konu og bam“. For- eldramir vissu ekki að slíkt stæði til, en annaó kom í ljós, því viö opinberuðum nokkrum dögum seinna. Ári seinna flytjum við hingað til Akureyrar og höfum átt heima hér síðan. Dæturnar hafa einnig gifst hér á Akureyri, eignast sín heimili og fjölskyldur og eru búsettar hér. Barnabörnin eru ellefu og lang- ömmu- og langafabömin orðin fjögur, að auki fósturdóttir Einars er hefur eignast tvö böm. Haustið 1975 þann 26. septem- ber á tíu ára afmæli Brynhildar, elsta bamabamsins þeirra, bankar dauðinn á dyr hjá okkur fyrirvara- laust. Við áttum lítinn son, tæp- lega sjö mánaða gamlan, hraustan og eðlilegan, sem ekki var lengur hjá okkur áður en þessi dagur var allur liðinn. Frekar hefði okkur grunað að dauðinn gerði vart við sig annars staðar í fjölskyldunni, því heilsu Brynhildar fór þverr- andi. Hún var farin að heyja sitt dauðastríð þessi síðustu ár og and- aóist í júní á næsta ári 1976. Eftir lát Brynhildar fór Berg- sveinn oft að taka sér ferð á hend- ur og fara í heimsóknir suður á land til Stokkseyrar. Þar átti hann náinn frænda, Pál Hörð Pálsson, sem hann einnig hafði alið upp frá bamæsku til 16 ára aldurs. Hörður lést 59 ára vorið 1990. Þegar hann dvaldist á Stokks- eyri fór hann að aðstoða og annast gamla konu sem var tólf árum eldri en hann og bjó hún ein ör- stutt frá heimili Harðar. Þessi kona hét Marta Kjartansdóttir. Heimsóknir þessar voru ýmist í styttri eða lengri tíma til byrjun ársins 1986 að hann flytur til Mörtu. Hann býr hjá henni til haustsins 1991, þá gat Marta ekki lengur verið á heimili sínu, hún orðin blind og heilsan farin. Hún andaðist á sjúkrahúsinu á Selfossi í febrúar 1992. Ekki sátu þessar öldruðu mann- eskjur auðum höndum því meðan Marta hafði sjónina saumaði hún mikið út í fínar krosssaumshann- yrðir en hann hafði áður verið bú- inn að tileinka sér ýmsa þætti í tómstundaióju. Til dæmis saumaði hann alls konar stykki með gróf- um krosssaum, hnýtti blómahengi og fleira og fleira. Ef allt þetta sem hann gcrði væri komið saman á einn stað væri það ásjálegur stafli, enda mundu það vera fleiri hundruð munir sem nú eru í eigu annarra dreifðir víða um land og erlendis. Bergsveinn hafði gaman af að sýna hvað hann var að vinna og fengu margir stykkin hans að gjöf. Eftir dvöl hans á Stokkseyri haustið 1991 kemur hann alkom- inn heim í Hríseyjargötuna og bjó þar einn og sá alfarið um sig sjálf- ur, hann var alvanur að elda mat. Hann tók þátt í tómstundaiðju aldraðra í Víóilundi og þar byrjaði hann aó mála á tau, sem svo vel tókst til hjá honum, til dæmis litlar fallegar bamasvuntur, sem yngstu langafabörnin fengu og fleiri. Þann 4. apríl síðast liðinn var fermdur Heiðar Valur, yngsta bamabamið, og naut hann þess að vera með hópnum sínum þennan dag. Margar ferðir höfum við Einar farið austur á Hérað til æsku- stöðva minna með bömin okkar er þau voru yngri. Fórum við þá gjaman yfír brúna á Jökulsá hjá Hjarðarhaga. Sögðum við þá bömunum að Bergsveinn afi þeirra hefði verið í kláf undir brúnni og málað hana aó neðan þegar hann átti heima í Hnefilsdal. Eftir þetta hafa þau jafnan minnst á brúna sem afí málaði er þau eiga leió þar um. Þann 9. apríl síðast liðinn kom- um við í heimsókn niður í Hrís- eyjargötu að heimsækja gamla manninn, þann sama dag hefði Brynhildur oróið 75 ára. Næsti dagur var skipulagður, því pabbi var aó fara suður til Reykjavíkur og átti að leggjast inn á Landspít- alann, hann átti við erfiðleika að stríða vegna sjúkdóms í hálsi en var lítið búinn að dveljast á sjúkrahúsum. Á Landspítalanum átti hann að gangast undir með- ferð sem vart var hafin þegar kall- ið kom. Við þökkum guðlegri for- sjá að ekki var lögð löng og erfið banalega á hann. Nú á þessu vori með hækkandi sól og þegar náttúran er öll að lifna við hvílið þið í jöröu hlið við hlið en sameinuð í anda í landinu bjarta. Við minnumst þess með kær- leika og þökk að hafa átt ykkur meó fjölskyldu okkar. Anna og Einar Long. 'ij* Bergsveinn S. Long Fyrir liðlega hálfum mánuði síðan tók ég mér far með strætisvagnin- um mínum, leið 111 ofan úr Breiðholti, eins og svo oft áður. Oft er ferðinni heitið í Kringluna til að útrétta eitt og annað eða á góðviórisdögum nióur í miðbæ að tjörninni til að spóka sig með barnavagninn, en Oðinn litli sonur minn er jafnan með í för. En þennan tiltekna dag var stigið úr vagninum við Landspítalann til aó heimsækja hann Bergsvein afa minn sem þangað var kominn í meðferó vegna veikinda sinna. Það var notaleg stund sem við áttum saman þennan eftirmiðdag og ég vildi aó þær hefðu getað orðið fleiri slíkar. Hann afi var farinn að láta á sjá, því er ekki aó leyna. En hann var samt svo líkur sjálfum sér þar sem hann sat í stól með eitthvað á milli handanna. Hann var að sauma út mynd sem hann sýndi mér og Oóinn litli var duglegur að fálma í þessa litríku spotta hjá langafa. Eg sagði við afa að ég myndi koma með prjón- ana með mér næst og við gætum setið saman við hannyrðimar þá. Nokkrum dögum seinna var hann ekki lengur rólfær og var lagstur í rúmið, gat ekki tjáð sig nema með því að hripa niður línur á blað til okkar. Engu að síður náðum við góðu sambandi því sama ákveðnin og kímnin var til staðar í augunum. Hann var með hugann við handavinnuna sína eins og fyrri daginn og Oðinn naut þess að horfa á litina í stykkjunum hans. Þarna áttu þeir samskipti á sinn hátt, gamli maðurinn sem ekki gat lengur notað röddina sína og litli kútur sem enn hefur ekki náð aldri til að tala. Þetta var síðasta heim- sóknin því tveimur dögum síöar var hann allur. Þó afi hafi verið orðinn aldrað- ur og heilsan farin aó bila, þá kom kallið fyrr en maður kannski bjóst við. Eftir standa minningar sem mér eru kærar um hann afa. Ennþá man ég þegar ég kom fjögurra ára fyrst í Hríseyjargöt- una með mömmu minni og fóstur- pabba til þeirra Bergsveins og Brynhildar, sem ég ætíð síðan kallaði afa og ömmu. Hjá þeim átti ég vísan stað eins og hin barnabörnin. Frá bernsku- og unglingsárum bregður fyrir mörgum svipmynd- um úr Hríseyjargötunni og Hafn- arstræti, sem ekki verða taldar hér. Um tvítugt flyt ég frá Akureyri og sjáumst við þá sjaldnar. En eftir að afi fór að dvelja á Stokkseyri höfðum við meira samband, þar sem ég bjó í Reykja- vík. Við Siggi brugðum okkur stundum austur fyrir fjall og heim- sóttum hann og Mörtu í litla hús- ið, Setberg. Þar var gott að koma og þiggja veitingar hjá þeim hjú- unum og spjalla um daginn og veginn. Sérstaklega er mér minnisstæð- ur einn sólríkur og fallegur dagur í júní sumarið 1990 er við Valdís systir mín, sem þá var stödd hjá mér, og vinkona hennar fórum í heimsókn til þeirra, ásamt Einari litla systursyni okkar. Þessa stund- ina var glatt á hjalla hjá okkur í Setbergi og ég sé afa fyrir mér þar sem hann stendur glaður og reifur á litla túnblettinum við húsið og tók á móti okkur. Leið mín lá einnig í Setberg einn vordag í apríl 1991, þegar við Siggi gerðum okkur sérstaka ferð þangað, til að þakka veittan stuðn- ing vegna fráfalls Ymis, lítils son- ar okkar, sem við misstum þá um veturinn. Þá bjuggum við í Sví- þjóð og komum heim til Islands vegna þessa atburöar. Við þessar aðstæður sýnd afi eins og svo oft áður hvaða mann hann hafði að geyma. I mars síðastliönum kom ég í heimsókn til Akureyrar og heim- sótti afa í Hríseyjargötuna. Það var góð upplifun eftir öll þessi ár aö vera komin í stofuna þar, sitja og spjalla við hann og skoða myndir frá lióinni tíð. Vér deyjum ei - og getum eigi gleymt, vér erum eilífs eðlis, liðin tíð sem framtíð er oss nútíð. Byron (Matthías Jochumsson) Guðbjörg Guðmundsdóttir. \1Iborg Andrea Guðmundsdóttir Fædd 11. júní 1937 - Dáin 26. apríl 1993 Með örfáum oróum langar okkur að minnast hennar Villu okkar, sem nýlega lést eftir harða baráttu við sjúkdóm þann sem svo hafði betur. Já hún baróist, hún ætlaói ekki að gefa sig og hafði á orði á sjúkrahúsinu að næst gæfi hún gestum kaffi heima. En þegar nær dró endalokunum var hún æðru- laus og hélt reisn sinni til hinstu stundar. Frá því við kynntumst Villu hefur hús hennar alltaf staðið okk- ur opið. Og ekki skorti veitingarn- ar. Álltaf til nóg af heimabökuðu bakkelsi og alltaf boðið í mat og gistingu. Síðla sumars átti hún ætíð ber og rjóma enda hafði hún yndi af því að rölta upp í fjall og tína ber. Hún var ein af þeim sem hafði nóg rými í hjarta sínu fyrir aðra, alltaf tilbúin aó hlusta og gefa ráð. Þá sá hún mjög gjaman spaugilegu hliðarnar á mannlífinu og var þess vegna skemmtileg viðræðu. Það var aldrei lognmolla í kringum Villu og ávallt tilhlökk- unarefni að heimsækja hana í litla notalega húsið hennar og Jóns manns hennar á Dalvík. Hún gift- ist sem fyrr segir Jóni Stefánssyni frá Miðbæ í Svarfaðardal en sjálf var Villa frá Raufarhöfn. Þau eignuðust þrjár dætur, Fanneyju, gifta Kristni Gylfasyni og eiga þau tvo syni, Sigurlínu, gifta Ingi- mar Árnasyni, eiga þau tvö börn og Þórunni, gifta Jóni M. Ragn- arssyni og eiga þau tvær dætur. Þeirra er missirinn mestur. Við viljum að lokum þakka Villu fyrir allar stundirnar í gegn- um árin og biðjum henni Guðs blessunar. Innilegar samúðar- kveðjur til fjölskyldunnar. Siggi og Lauga.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.