Dagur - 05.05.1993, Page 7

Dagur - 05.05.1993, Page 7
Miðvikudagur 5. maí 1993 - DAGUR - 7 Starfið við Ástjöm Sumarbúðirnar við Ástjörn í Kelduhverfi verða starfræktar í 9 vikur í sumar frá 19. júní til 20. ágúst. Sumarheimilið Ástjöm er stað- sett á fallegum stað í þjóðgarðin- um, nálægt Ásbyrgi, og var stofn- að árið 1946 af Arthur Gook, kristniboða. Að jafnaói dvelja um 80 börn í sumarbúðunum. Fyrstu 4 vikurnar eru fyrir drengi, en næstu 4 vikur eru fyrir stúlkur og drengi. Hægt verður aó dvelja í sumarbúðunum frá tveim- ur upp í átta vikur, en börnin verða á aldrinum 6 til 12 ára. Síðasta vika sumarsins (14.-20. ágúst) verður unglingavika fyrir 13-17 ára. Hver vika kostar 11.300 krónur að viðbættu staðfestingar- og rútu- gjaldi. Akstur Ak.-Ástjöm-Ak. er innifalinn. Veittur er 10% afsláttur fyrir systkini. Hægt er að greiða á ýmsan hátt t.d. með jöfnu milli- bili, staðgreiða (5% afsl.) eöa með Visa, Euro eða Samkorti, sem er mjög þægilegur greiðslumáti. Flugleiðir bjóða sérstakan af- slátt af fargjaldinu Rvík-Ak-Rvík fyrir 6-12 ára börn á leið til Ástjarnar í sumardvöl. I samvinnu við Hestaleiguna á Hóli geta börnin farið á hestanám- skeið. Nánari upplýsingar fást hjá for- stöðumanni, Boga Péturssyni í síma 96-23238, Magnúsi Hilmars- syni síma 96-21585, Þorsteini Pét- urssyni síma 96-21509 eóa Jóg- vani Purkhús síma 96-22733. Fréttatilkynning Sumarbúðirnar við Hólavatn: Innritun stendur yfir Innritun stendur nú yfir í sum- arbúðir KFUM og KFUK að Ilólavatni í Eyjafirði. Gert er ráð fyrir að sex fiokkar verði í sumarbúðunum í sumar, þrír flokkar drengja og þrír flokkar stúlkna, en 24 börn geta verið í hverjum flokki. Skráning hófs 21. apríl síðastliðinn í Reykjavík og á Akureyri og er tekið á móti innritunum í Félagsheimili KFUM og KFUM í Sunnuhlíð, á mánudögum og miðvikudögum á milli kl. 17 og 18. Dvöl aó Hólavatni bíður upp á ýmsa möguleika, þar á meðal bátsferðir, stangveiði og sund á heitum dögum. Einnig gefur um- hverfiö kost á mikilli útiveru, gönguferðum leikjum og margvís- legum íþróttum. Þátttakendur í sumarbúðunum geta verið öll böm Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju kl. 10 - MÖMMU- MORGUNN: í dag ræðir Rósa Kristín Júlíusdóttir, myndlis- takona og kennari við Mynd- listaskólann á Akureyri, um gildi myndsköpunar fyrir ung börn. Akureyrarkirkja kl. 20.30 - HALLGRÍMUR: Síðari sýningin á dagskrá í tali og tónum um ævi- feril og skáldskap Hallgríms Pét- urssonar. Handrit og leikstjórn: Signý Pálsdóttir. Tónlistarval og tónlistarstjórn: Björn Steinar Sól- bergsson. Flytendur: Leikarar frá Leikfélagi Ákurcyrar, félagar úr Kór Akurcyrarkirkju og Jón Þor- steinsson, tenór. sem náð hafa átta ára aldri og mun fyrsti hópurinn koma þangað 8. júní en sá síðasti 29. júlí. Starfi sumarbúðanna mun síðan Ijúka með kaffisölu eins og á undan- förnum árum og verður hún sunnudaginn 8. ágúst. ÞI Kirkjulistavíka í Akureyrarkirkju Bridgefélag Siglufjarðar: Sveit Bjarkar sigraði í aðalsveitakeppniimi - vetrarstarfinu lýkur með verðlaunaafhendingu 19. maí nk. Sveit Bjarkar Jónsdóttur sigraði í aðalsveitakeppni Bridgefélags Siglufjarðar. Alls tóku 13 sveitir þátt í mótinu og hlaut sigur- sveitin 290 stig. I sveitinni voru auk Bjarkar, þeir Ólafur Jóns- son, Anton og Bogi Sigur- björnssynir. Svcit Islandsbanka varð í 2. sæti mcð 287 stig, sveit Þorsteins Jóhannssonar í 3.sæti með 245 stig, svcit Reynis Karlssonar í 4. sæti með 230 stig og sveit Níelsar Friðbjamarsonar í 5. sæti með 200 stig. Firmakeppni Spilaður var 2ja kvölda tvímenn- ingur og er þetta mót aðal tekju- lind félagsins. 21 par tók þátt í mótinu og varð röð efstu para þessi: 1. Rcynir Pálsson/Stefán Bene- diktsson 402 stig 2. Anton Sigurbjörnss./Bogi Sig- urbjörnss. 396 stig 3. Sigfús Steingrímss./Sigurður Haflióas./Ásgrímur Sigur- björnss. 376 stig. Alls greiddu 60 fyrirtæki fyrir þátttöku í mótið og varð röð efstu fyrirtækja þessi: 1. Ingimundur hf. (Jakobína/Krist- rún/Anton/Bogi) 392 stig. 2. Versl. Sigurðar Fanndal (Anton/Bogi/Ásgrímur/Sigfús) 383 stig. 3. Nýja bíó hf. (Björk/Jón/Reyn- ir/Þórleifur) 380 stig Siglfirsk fyrirtæki hafa staðið vel við bakið á bridgefélaginu. Þor- móður rammi hf. gefur alla veró- launagripi þetta árið en Sparisjóð- ur Siglufjarðar gaf verðlaunin í fyrra. Hraðsveitakeppni Nú stendur yfir 3ja kvölda hrað- sveitakeppni með þátttöku 12 sveita. Eftir fyrsta kvöldið er staða efstu sveita þessi: 1. Sigurður-Sigfús og Júlía og Sólrún 451 stig 2. Ásgrímur-Jón og Jakobína- Kristrún 423 stig 3. Rögnvaldur-Þorsteinn og Guð- mundur og Haraldur 421 stig Grunnskólamót Sex pör tóku þátt í grunnskóla- móti í tvímenningi og varð röð efstu para þessi: 1. Birkir/Ingvar/Ari 130 stig 2. Ásbjörn/Pálmi 103 stig 3. Hafliði/Sigríður 102 stig Uppskeruhátíð Vetrarstarfi Bridgefélags Siglu- fjarðar lýkur miðvikudaginn 19. maí, með verðlaunaafhendingu, kaffi og meðlæti. Þá verður spil- aður Mitchell-tvímenningur og spilarar dregnir saman. Aðalfund- ur félagsins er alltaf í byrjun október og mun stjómin sitja sem fastast fram að þeim degi. KK Sumarbúðirnar við Vestmannsvatn: Starfsemin hefst 8. jum Eins og undanfarin sumur verða starfræktar sumarbúðir á vegum kirkjunnar við Vest- mannsvatn í Aðaldal. Boðið verður upp á íjóra flokka fyrir börn, þar af einn sérstakan flokk fyrir stúlkur. Aðrir flokk- ar eru bæði með stúlkum og drengjum. Hver flokkur er i vikutíma og hefst starfið 8. júní. Auk fjölbreytts starfs úti og inni við vatniö og í fjölbreyttri náttúrunni verður í sumar boðið upp á þau nýmæli aó reiðtúrar veröa fyrir þau börn er vilja og verður þeim kennt um leið nokkur grunnatriði við að umgangast hesta. Unglingum verður boðið upp á dvöl í búðunum í fjóra daga og er það viðbót við starf sl. sum- ars. Einn opinn flokkur verður fyrir aldraða. Sumarbúðastjóri í sumar verður Amaldur Bárðarson, fræðslufulltrúi þjóðkirkjunnar, en annað starfsfólk hefur flest starfað áöur við búðimar. Innritun er hafin og fer hún fram virka daga frá kl. 16-18 í síma 96-27540. Á öðrum tímum er hægt að fá upplýsingar í símum 96-26971,96-61685 og 96-43545. Umsjónarmenn búðanna eru Jón Helgi Þórarinsson, sóknar- prestur á Dalvík og Þórir Jökull Þorsteinsson, sóknarprestur á Grenjaðarstaó. Miðstöð atvinnulausra: Rætt um horfur í landbúnaði í dag, miðvikudag, verður opið hús fyrir fólk í atvinnuleit í Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju. Þar ræðir Guðmundur Steindórsson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, um horfur í landbúnaði í hérað- inu og spjallar um almenn sveitastörf. Þá verður stutt skemmtidagskrá og kaffi á boróum. Allir eru vel- komnir og hefst samveran kl. 15. SS Vigtarmenn Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður haldið í Reykjavík dagana 18. og 19. maí nk., ef næg þátttaka fæst. Námskeiðinu lýkur með prófi. Skráning þátttakenda og nánari upplýsingar á Löggildingastofunni, sími 91-681122. Hús til sölu á Húsavík LITLAGERÐI 5 ER TIL SÖLU. Stærð íbúðar 140 m’, stærð bílg. 45 mJ. Fullfrágengin lóð og bílastæði. Getur verið laust í júlí. Tilboð óskast. Upplýsingar í síma 41663 eftir kl. 19, Stefán Örn. Grenivellir/íbúð til sölu Til sölu er góð 5 herbergja íbúð, efri hæð og ris, í fjórbýl- ishúsi. íbúðin sem er um 119 fm að stærð er til afhending- ar fljótlega. Mjög hagkvæm lán frá Húsnæðisstofnun ríkis- ins hvíla á íbúðinni. Upplýsingar gefnar á fasteignasölunni Eignakjör, Skipa- götu 16, sími 26441. FASTEIGNASALA Skipagötu 16 s. 26441 Akureyri

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.