Dagur - 05.05.1993, Page 12

Dagur - 05.05.1993, Page 12
Grenilundarmálið: Óvíst hvenær Hæstiréttur tekur málið f\TÍr Fremur ólíklegt er talið að Grenilundarmálið svokallaða verði tekið fyrir í Hæstarétti Skólanefnd Akureyrar: Framkvæmdir við gnmnskóla Á fundi skólanefndar Akureyr- ar 28. apríl sl. var ákveðið í hvaða framkvæmdir verði ráð- ist í grunnskólum bæjarins í sumar og var byggingadeild fal- inn undirbúningur og umsjón með þeim. Þessar framkvæmdir eru: I Barnaskóla Akureyrar á að ljúka lagfæringum á gangi á 2. hæð og setja upp vask í smíðastofu. I Oddeyrarskóla á að mála tréverk sunnan og austan á húsinu og end- urnýja bjöllukerfi. I Glerárskóla verður kyndiklefi lagfærður. I Lundarskóla verður frágangur á kennslustofu í kjallara í A-álmu. I Gagnfræðaskólanum á að lagfæra rafmagnstöflur og fleiri viðhalds- verkefni við rafkerfi. Einnig á að endurnýja handverkfæri í smíða- stofu. Þá var samþykkt að útbúa hlíf- ar vió rennibekki og borvélar í smíðastofum grunnskólanna og lagfæra öryggisstjórn á vélum. Einnig samþykkti skólanefnd eftirfarandi framkvæmdir við lóðir grunnskólanna og fól umhverfis- nefnd undirbúning og umsjón þeirra: Gangstígur milli Barna- skólans og Gagnfræðaskólans, framkvæmdir á norðurlóð Glerár- skóla - á milli bygginga skólans, hellulögn og lagfæringar á norður- lóð Lundarskóla og stígar á aust- ur- og norðurlóð Gagnfræðaskól- ans. óþh fyrr en eftir réttarhlé, en það hefst 24. júní og stendur til 14. september. Ef hins vegar báðir málsaðilar óska eftir flýtimeð- ferð málsins er ekki útilokað að Hæstiréttur taki það fyrir fyrir réttarhlé. Baldur Dýrfjörð, bæjarlögmað- ur, segir málið í eðlilegum far- vegi. Hann sagðist vonast til að áfrýjun málsins færi til Hæstarétt- ar í næstu viku og væntanlega myndi lögfræðingur húseigend- anna gagnáfrýja. Benedikt Olafsson, lögfræðing- ur húseigendanna við Grenilund, ritaði bréf til bæjaryfirvalda á Ak- ureyri dagsett 25. mars þar sem hann fór fram á, í ljósi dóms Hér- aðsdóms Norðurlands eystra í máli Braga Sigurðssonar gegn bæjarstjóranum á Akureyri fyrir hönd bæjarsjóðs, að bæjarsjóður greiddi þeim uppsetta bótakröfu „með fyrirvara um endurgreiðslu ef málið færi á annan veg í Hæsta- rétti. Með þessum hætti kemst bæjarsjóður hjá greiðslu dráttar- vaxta þann tíma sem þarf til að fá niðurstöðu og hlýtur slíkt að telj- ast skynsamlegt.“ I bréfi Benedikts segir einnig m.a.: „Menn kunna aó hafa á því skiptar skoðanir hvort æskilegt sé að vísa máli sem þessu til Hæsta- réttar. Forsendur dómsins byggja að mjög miklu leyti á áliti hinna sérfróðu meðdómsmanna og þykir mér líklegt aö Hæstiréttur komi einnig til með að ganga út frá þeirri sérþekkingu í dómi sínum, ef málið kemur til úrlausnar þar.“ Um þetta mál var fjallað á fundi bæjarráós Akureyrar 29. apríl sl. og var niðurstaðan að ekki væri hægt að verða við erindi Benedikts um greiðslu skaðabót- anna. Þetta álit bæjarráðs var stað- fest á fundi bæjarstjórnar Akur- eyrar í gær. óþh Akureyri: Apríl þurrviðrasamur - hiti yfírleitt yfír meðallagi Nýliðinn aprílmánuður var sér- lega þurrviðrasamur. Hann var einnig fremur sólríkur og hlýr, en nokkuð næðingssamur. Fyrri hluta mánaðarins var tíðarfarið mjög gott og hiti var yfirleitt yf- ir meðallagi. Samkvæmt upplýsingum veð- VEÐRIÐ í dag fer veður heldur kóln- andi á austanverðu land- inu en á Norðurlandi má búast við fremur léttskýj- uðu veðri. Vindur verður af suðri og suðvestri og getur orðið strekkings- hvass á vestanverðu Norðurlandi. Hlýindi eru samt ekki mikil í lofti því á stöku stað á Norðurlandi vestra má búast við éljum. urspárdeildar Veðurstofu íslands var úrkoman á Akureyri í apríl 17 millimetrar, þ.e. tæplega 3/5 hlut- ar þess sem venja er. Á Akureyri hefur ekki mælst svo lítil úrkoma í apríl síðan 1981. Meðalhitinn var 3,1 gráða, sem er 1 1/2 gráðu yfir meðallagi. Sólskinsstundir í höf- uðstað Norðurlands voru í liðnum mánuði 142. ój Starfsmenn Hagvirkis Kletts eru mættir á ný með sín tæki eftir vetrarfríið. Mynd: IM HÚsavík: Hafíiarframkvæmdir hefjast á ný Hagvirki Klettur hefur hafíð framkvæmdir í Húsavíkurhöfn á ný, en hlé var gert á yfir há- veturinn. Verið er að losa um jaröefni í botni hafnarinnar þar sem dýpka þarf höfnina, en botninn reyndist ógræfur. Borað er í hafnarbotninn frá pramma, og síðan er sprengt um kvöldmatarleytið, með tilheyr- andi skarkala og hristingi í bæn- um. Yngstu Húsvíkingamir munu orðnir svolítið þreyttir á skömm- um fyrir hávaða og læti sem þeir eiga enga sök á, en væntanlega fara foreldrar að átta sig á hvað er um að vera, svona hvað úr hverju. IM ÖxarQörður: Sauðburður hefst ahnennt ekki fyrr en um miðjan mánuðinn - þungatakmarkanir tefla áburðarflutninga Sauðburður er almennt ekki byrjaður enn í Norður- Þingeyj- arsýslu að undanskildum örfá- um snemmbærum, en sauð- burður byrjar almennt ekki fyrr en um miðjan maímánuð. Gunnar Einarsson, bóndi að Daðastöðum í Öxarfirði, er með um 550 ær sem bera í vor og segir hann að vorið leggist nokkuð vel í sig að þessu sinni. Vegna þungatakmarkana á veg- um hafa margir bændur ekki enn hafið flutning á áburði heim nema í mjög litlum mæli. Gunnar segir að nokkrir bænd- ur hafi verið fyrirhyggjusamir og lokið viö flutning á áburðinum heim meðan þjóðvegakerfið var ennþá frosið og Vegagerðin ekki búin að auglýsa 7 tonna öxul- þunga, en nokkir hafi verið að mjatla áburðinum heim í minna mæli. Flestir bændur í Oxarfirði sækja áburðinn á Kópasker en nokkrir til Húsavíkur. Tún virðast koma mjög vel undan vetri í Norður- Þingeyjar- sýslu enda hafa svell ekki staðið lengi á túnum nú seinna hluta vetrar, en í janúar og febrúar mátti víða sjá svellalög en það viróist hafa sloppið til víðast hvar. Bænd- ur eru því nokkuð bjartsýnir á hvað ástand túna varðar. Gunnar Einarsson á Daðastöð- um flutti inn tvo nýsjálenska fjár- hunda, hund og tík, í haust af kyni sem heitir „New-Zealand hunt- away“. Þetta eru fremur stórir hundar og snögghæróir. Gunnar kynntist þessari tegund þegar hann dvaldi á Nýja- Sjálandi og hreifst af hæfni þeirra sem fjár- hunda auk þess sem þeir lynda mjög vel við mannfólkið. Auk þess eru á Daðastöðum hundar af „Boarder collier“ kyni sem þar hafa verið í um 15 ár og telur Gunnar það kost að hafa þá með Akureyri: Þrír styrkir til jafiiréttisverkefna Fimm umsóknir bárust jafnrétt- isfulltrúa Akureyrarbæjar um styrk sem auglýstur var til jafn- réttisverkefna á Akureyri. Jafn- réttisnefnd samþykkti að veita þrjá styrki, hver þeirra að upp- hæð 100 þúsund krónur. Styrkþegar cru: Gagnfræðaskóli Akureyrar - til frekari úrvinnslu á könnunum sem gerðar voru á árunum 1990 og 1991 í tengslum við verkefnið „Kynjaskiptar deildir í Gagn- fræðaskóla Akureyrar.“ Dagheimilið Brekkukot fær styrk til verkefnisins „Strákar, stelpur og framtíðin“, en í því felst aó búa bæði kynin jafnt undir virka þátttöku í samfélaginu, fjöl- skyldulífi og atvinnulífi, sbr. jafn- réttislög. Einnig að auka skilning og þekkingu starfsfólks. I þriðja lagi fékk Dagvistar- deild Akureyrarbæjar styrk til verkefnis sem hefur fengió nafnið „Böm eru bæði strákar og stelp- ur“. Verkefnið er hugsað til að gera fóstrur og annaó starfsfólk leikskóla og skóladagheimila meira meðvitað um kynjamun og hvernig strákar og stelpur geta innan ramma leikskólans/skóla- dagheimilisins best dafnað og lært. óþh þeim nýsjálenska því hann geltir ekki en það gerir „Boarder collier- inn“ hins vegar. „Að undanförnu hef ég ekki getað uppfyllt allar pantanir á „Boarder colliernum“ og ég býst við að það verði töluverð ásókn í þann nýsjálenska þegar fram líða stundir, en tíkin er ekki nema árs- gömul og ég ætla ekki að láta hana eignast hvolpa strax. Eg hef þó ekki flutt inn þessa hunda til að stunda ræktunarstarf heldur til að fá hjálp við búskapinn, en bæði er ég með nokkuð margar ær og svo er sá afréttur sem féó sækir í á sumrin ansi víðfeðmur. Mitt áhugamál hefur verið að koma á fjárhundakeppnum, en ég hef kynnst þeim bæði í Skotlandi, Nýja-Sjálandi, Ástralíu og víðar og í vetur var stofnað smala- hundafélag, sem að stóðu nokkrir áhugasamir fjárbændur víða að af landinu. Það verður engin keppni í sumar, en við komum saman og verðum með sýningu fyrir al- menning. Tímasetning þeirrar sýningar hefur ekki verið ákveðin. Eg hef að undanförnu verið með námskeið í meðferð og tamn- ingu fjárhunda austur á Skriðu- klaustri, vestur á Hólum og suður á Hvanneyri og komust færri að en viídu en það verður endurtekið fljótlega. Það er hugsjónastarf að útbreiða þetta „fagnaðarerindi“ sem fjárhundaræktin er og ég vil að sem flestir bændur hafi bæði gagn og gaman af hundunum sín- um,“ sagði Gunnar Einarsson. GG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.