Dagur - 08.05.1993, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 8. maí 1993
Opnum nýja
verslun!
laugardaginn 8. mas,
kl. 9.00-16.00.
Málning - Rafmagnsverkfæri
- Vinnufatnaður
ásamt 10.000 öðrum vörunúmerum.
í tilefni dagsins verður tilboðsverð á:
Hitachi rafmagnshandverkfærum.
Fristads fóðruðum samfestingum.
Hempel þakmálningu, 20 I fötur.
Vitratex utanhússmálningu, 12 I fötur.
Bett 10 innanhússmálningu, 12 I fötur.
OPPI HF
V E R S L U N
Fréttir
Leikfélag Akureyrar:
Fleiri Ieikarar verða fastráðnir
- áherslubreytingar hjá nýjum leikhússtjóra
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
ÁskriftarlS' 96-24222
Leikfélag Akureyrar auglýsir
nú eftir fastráðnum og laus-
ráðnum leikurum til starfa fyrir
næsta leikár og rennur um-
sóknarfrestur út 23. maí. Búast
má við fjölmörgum umsóknum
enda framboð á leikurum
meira en eftirspurn. Hinn nýi
leikhússtjóri LA, Viðar Egg-
ertsson, ætlar að víkja dálítið af
þeirri leið sem farin hefur verið
við mannaráðningar síðastliðin
ár.
„Það eru fimm fastráðnir leik-
arar hjá félaginu núna en við bú-
umst við aó geta stækkað þennan
hóp fyrir næsta leikár. Eg hef
áhuga á því að fastráða fleiri því
það gefur mér svigrúm til að nýta
fólkið betur og jafnvel fást við
fleiri verkefni en ella. Viðhorfið
til starfsins verður líka alltaf betra
þegar fólk er komið til að vera,“
sagði Viðar, en stefna LA undan-
farin leikár hefur verið sú að hafa
fáa fastráðna leikara en lausráða
fleiri.
Viðar sagði aó áfram yrði leit-
að til lausráðinna leikara og
gestaleikara fyrir einstök verk en
með stærri kjarna yrði hægt að
takast á við fjölskrúðugra verk-
efnaval. í því sambandi nefndi
hann að það væri hugsanlegt að
Leikfélagið gæti teygt arma sína
aðeins út fyrir Samkomuhúsið.
„Ég er að gæla við þá hugmynd
að færa út kvíamar. Við eigum
ekkert litla svið eða smíðaverk-
stæði eins og Þjóðleikhúsió en
það gæti verið gaman að fara
hliðstæða leið. Við setjum stefn-
una upp á vió,“ sagði Viðar.
Ekki verður nein róttæk breyt-
ing á stefnu Leikfélags Akureyr-
Munið kynningu
á Tefal pönnum og pottum og eldföstu leirvörunum frá
Emile Henry1 dag |aug»rdag, frá kl. 9-16.
Matreiðslumaður frá Hótel KEA
verður á staðnum og kynnir notkun á
vörunum og gefur að smakka.
20% afsláttur
af þessum frábæru vörum á meðan á
kynningu stendur.
Minnum á síðustu daga
vortilboðs á AEG rafmagnstækjum
KEA byggingavörur
ar, að sögn leikhússtjórans, og
söngleikir eða óperettur verða
t.a.m. áfram á verkefnaskrá. Við-
ar gat þó ekkert sagt um verkefni
næsta leikárs á þessu stigi nema
það að búið hefði verió að fast-
setja fyrsta verkefnið áður en hann
kom til starfa og leist honum
mjög vel á það. Hann sagði að
verkefnavalið myndi að öðru leyti
stjómast dálítið af þeim leikurum
sem ráðnir yróu til starfa.
„Mínar hugmyndir fara smátt
og smátt að líta dagsins Ijós þegar
líða fer á leikárið. En það verður
engin gjörbylting, frekar útvíkkun
á ánægjulegri starfsemi þannig að
hún verði enn fjölbreyttari og
skemmtilegri,“ sagði Viðar. SS
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna:
Hagnaður jókst um
100 milljómr milli ára
- mesta framleiðslan hjá ÚA
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
skilaði 279 milljónum króna í
hagnað á síðasta ári eða um 100
milljónum króna meiri hagnaði
en á árinu 1991. Þetta er sam-
anlagður hagnaður af rekstri
móðurfyrirtækisins og dóttur-
fyrirtækjanna. Mest var fram-
leitt hjá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa, eða rúm 10 þúsund
tonn, sem eru að verðmæti
rúmir 2 milljarðar króna miðaö
við útborgunarverð.
A aðalfundi SH á fimmtudag
kom fram aó verðþróun hafi
reynst innlendum framleiðendum
óhagstæð á flestum erlendum
mörkuðum aó Bandaríkjamarkaði
undanskildum. Þar hafi verð hald-
ist nokkuð stöðugt, auk þess sem
dollarinn hafi styrkst verulega
gagnvart öðrum vestrænum gjald-
miðlum. Hins vegar hafi verð hel-
stu botnfisktegunda lækkað um-
talsvert á Evrópumarkaði. Þorskur
lækkaði um allt að 16% og tals-
verð lækkun varð á hörpudiski og
humri.
Jón Ingvarsson, formaður SH,
benti á aðalfundinum á fimmtudag
á þá staðreynd að stórkaupendur
fisks vestra leituðu stöðugt að
ódýrari fisktegundum til að leysa
af hólmi dýrari tegundir eins og
þorsk. „Það er ekki lengur aðalat-
riði hvaó fisktegundin heitir, held-
ur að um svokallaðan hvítfisk sé
að ræða og að verðið sé ekki svo
hátt að þaó skaði samkeppnis-
stöðu þeirra gagnvart keppinaut-
um og öðrum matvælum. Enn-
fremur leita nú margir stórkaup-
endur með logandi ljósi um allan
heim að heppilegum og ódýrum
fiski, sem standist kröfur þeirra
um verð og nægt framboð," sagði
Jón.
A fyrsta ársfjórðungi þessa árs
jókst framleiðsla innan SH um
1600 tonn eða um 8% miðað við
sama tímabil í fyrra. Útflutningur
á sama tímabili reyndist 22.300
tonn að verðmæti 4,1 milljarður
króna, en það er 20% magn- og
14% í verðmætaaukningu milli
ára. JÓH
Hjólreiðadagur
áDalvík
Lögreglan á Dalvík og grunn-
skólinn á staðnum stóðu fyrir
umferðarfræðslu í vikunni.
Kennarar skólans fjölluðu um
umferðarreglur og lögreglu-
menn athuguðu reiðhjól skóla-
barna.
Að sögn lögreglunnar á Dalvík
reyndist ástand reiðhjóla ung-
mennanna misjafnt. Nokkuð var
um að ýmsum smáatriðum væri
ábótavant, lása og bjöllur vantaði
og einnig voru nokkur hjól vita
bremsulaus eins og lögreglumaður
komst að orði. Kiwanismenn á
Dalvík gáfu börnum í fyrsta bekk
grunnskólans reiðhjólahjálma og
voru þeir afhentir að fræðslu
lokinni. ÞI
Gistirekstur í Skútustaðaskóla leigður út:
Tjaldstæðið leigt út
af Birni Yngvasyni
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
hefur samþykkt að leigja Þráni
Þórissyni og Arngrími Geirssyni
gistirekstur í Skútustaðaskóla á
komandi sumri en undanfarin
ár hefur sveitarfélagið annast
þennan gistirekstur sjálft en
Þráinn Þórisson annast hann
fyrir sveitarfélagsins hönd.
Sjö tilboð bárust í gistirekst-
urinn og voru þrjú þeirra frá
aðilum úr Skútustaðahreppi.
Leigugreiðslur veróa 27% af
brúttótekjum. Engar breytingar
verða á rekstrinum innanhúss en
þar verður gistiaðstaða fyrir alls
24 og eru tveir og þrír í hverju
herbergi. Boðið er upp á eldunar-
aðstöðu og afnot af eldunaráhöld-
um í eldhúsi. Gistiaðstaðan verður
opin frá 1. júní nk. til ágústloka og
aó sögn Margrétar Lárusdóttur
hafa þó nokkrar fyrirspumir borist
og virðist aðsókn útlendinga ætla
að verða svipuð og á sl. sumri. Þó
hefur borist afpöntun frá austur-
rískum hópi sem kemur ekki
vegna peningaskorts en aðrir fastir
hópar eins og veiöimenn í Laxá
hafa þegar boðað komu sína.
Gistiaðstöðunni hefur fylgt
tjaldstæði í eigu bænda en það
verður nú leigt út af Bimi Yngva-
syni, bónda á Skútustöðum, sem
rekur bændagistingu.í eigin íbúð-
arhúsnæði. GG