Dagur - 08.05.1993, Page 4
I - DAGUR - Laugardagur 8. maí 1993
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI,
SfMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI • UUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBUÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
(íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavlk vs. 96-41585, fax 96-42285),
JÓHANN ÓUFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR
(Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRÐUR INGIMARSSON. LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSU: DAGSPRENT HF.
Verðstýríng
olíufélaganna
Fyrr í vikunni hækkuðu ís-
lensku olíufélögin verð á bens-
íni um 2-3 af hundraði. Það
kemur í sjálfu sér ekki á óvart
að bensínverð hér á landi þurfi
að hækka nú, því heimsmark-
aðsverð á bensíni færist jafnan
upp á við á vorin. Hitt vekur
óneitanlega athygli að olíufé-
lögin þrjú, Olíufélagið, Skelj-
ungur og Olís, hækkuðu verðið
samtímis og um því sem næst
sömu upphæð. Verðið er
sömuleiðis næstum hið sama
hjá þeim öllum, svo einungis
skeikar nokkrum aurum.
Þessar staðreyndir benda
ótvírætt til þess að forsvars-
menn olíufélaganna þriggja
hafi samráð sín á milli og stýri
verðlagningu á bensíni með
mjög óeðlilegum og jafnvel
ólögmætum hætti. Minna má á
að olíufélögin hafa um rúm-
lega eins árs skeið haft frelsi í
verðákvörðunum sínum. Þrátt
fyrir það hækkuðu þau öll
bensínverðið sama daginn í
maí í fyrra, um því sem næst
sömu upphæð. Þegar bensín-
verð á heimsmarkaði fór lækk-
andi í vetur tóku forsvars-
menn olíufélaganna þriggja sér
góðan umþóttunartíma áður en
þeir tóku ákvörðun um að
lækka verðið að nýju. Svo „ein-
kennilega" vildi til að þegar
þeir ákváðu loksins að lækka
verðið, ákváðu þeir það allir
þann 20. febrúar síðastliðinn!
Enn „merkilegra" var að öll fé-
lögin lækkuðu verðið um 70
aura - hvorki meira né minna!
Að hækkunin nú skuli bera upp
á sama daginn hjá þeim öllum
er enn ein „tilviljunin" og
raunar stórmerkileg „tilviljun".
Olíufélögin kaupa nefnilega
bensínfarma á mismunandi
verði og tíma. Ef allt væri með
felldu ættu þau því að lækka
eða hækka útsöluverðið á mis-
munandi tíma.
Þrátt fyrir allar þessar ein-
kennilegu og ótrúlegu „tilvilj-
anir“ neita forsvarsmenn olíu-
félaganna því statt og stöðugt
að félögin hafi samráð um
verðhækkanir hvað þá að þau
komi sér saman um verðlagn-
ingu á bensíni og olíu yfirleitt.
Á hinn bóginn trúir þeim eng-
inn, enda ástæðulaust.
Olíumarkaðurinn hér á landi
er svonefndur fákeppnismark-
aður. Þar ríkir ekki einokun í
orði kveðnu - en samkeppnin
er af skornum skammti. Olíufé-
lögin þrjú skipta kökunni
nokkuð bróðurlega á milli sín,
þar sem Olíufélagið er með um
42% markaðarins en Skeljung-
ur og Olís með sín 29% hvort.
Á fákeppnismarkaði er viðbúið
að lækki einn aðilinn verðið
svari hinn eða hinir í sömu
mynt nánast um leið. Olíufé-
lögunum kemur því augljós-
lega best að hafa samráð um
verðlagninguna. Ansi margt
bendir til þess að þau geri það.
Bensínverð hér á landi er nú
hærra en nokkru sinni fyrr.
Stjórnvöld, sem taka nú til sín
fleiri krónur af hverjum bensín-
lítra en nokkru sinni fyrr, ættu
að sjá sóma sinn í því að krefja
forsvarsmenn olíufélaganna
þriggja um skýringar á því hve
undarlega samstiga þeir eru í
verðákvörðunum sínum. Það er
stjórnvalda að hafa eftirlit með
því að samkeppni olíufélag-
anna komi fram í öðru en mis-
munandi þjónustu. Að öðrum
kosti er allt eins gott að setja
lög sem kveða á um ríkis-
einkasölu á þessu sviði við-
skipta. Með þeim hætti mætti
skapa nýjan tekjustofn, sem
væri galtómum ríkissjóði vafa-
laust kærkominn. BB
Kvennaráð
Sóley Rannveig Hallgrímsdóttir
vinur?
er
að
vera
skilningi að vera lífstíóarvinimir?
Þaó er bara alls ekki þannig sem
vináttan blómstrar. Þú getur ekki
keypt hana og það er erfitt að stela
sannri vináttu. Það tekur langan tíma
og þarf fullt af lærdómi, mistökum,
virðingu, skilningi, þolinmæði til að
byggja upp trausta og góða vináttu.
En hvers konar vinátta er það sem
endumýjast á hverjum virkum
morgni í lífi okkar og hvemig getum
við vitað að á bak við allan orða-
flauminn er sannur og hreinn andi
sem stendur við hliðina á þér, þótt
allt annað bregðist í baráttunni?
Sú manneskja sem er alltaf tilbúin
til aö hjálpa þér, hlusta á þig, vill
leiðbeina þér og gagnrýnir þig á já-
kvæóan hátt, hún trúir á þig þótt all-
ar niðrandi tungur heimsins baktali
þig og rægi. Þú getur hlegið meó
henni, hún gerir grín aó þér, þú græt-
ur í fangi hennar og þú treystir
henni. En umfram allt og allt annaó,
þú getur þagað við hlió hennar og
hún einfaldlega skilur og virðir það.
Á erfiðistu stundum lífs okkar eru
það sannir vinir sem bera okkur og
við þörfnumst þeirra til þess eins að
geta haldió hægangi hér á landinu
kalda.
Ég vona að þaó eigi allir sem líta
þetta pár mitt augum vini sem eru
hreinar og sannar sálir.
Hafió góðar stundir.
Hvað
Hvað er aö vera vinur? Að vera til
staóar. Alltaf.
Ég hitti hana aóeins um daginn og
þá höfðum vió ekki sést lengi. A
meðan hún var aó tala þá fór ég aó
rifja upp hvaó vió værum búnar aó
fara í gegnum saman. Ég horfói á
hana og hugsaði til þess sem stendur
í Biblíunni: Jafnvel þótt ég fari um
dimman dal óttast ég ekkert illt því
að þú ert hjá mér.
Við þurfum víst öll að fara gegn-
um bratta dali og dimma, en hún
hefur ekki alltaf verið til staóar og
haldið í höndina á mér og ég get
ekki leitt hana yfir allar hraðahindr-
anirnar og gangbrautimar, en þær
eru nokkrar á lífsleiðinni og ég er
búin aó vera aó velta því fyrir mér
hvers konar vinátta þaó er sem þrífst
í dag.
Er þaó blessaó klappió á axlimar
sem vió þurfum þegar himinninn
dregur sig saman í stórt grátt ský og
flestir skella hurðum sínum á nefió á
þér? Er það aódáunarbrosið sem fær-
ist yfir frosið andlit barþjónsins þeg-
ar bankabókin þykknaði og allir
drukku frítt og Levi’s búóimar sendu
þér ókeypis pöntunarlista heim? En
hvemig stendur þá á því þegar
„lookið“ dettur nióur þá hlaupa bara
blessaóir vinimir og neita að taka
þátt í uppbyggingunni og þú stendur
eftir meö sár í hjartanu, skilur ekki
neitt því þetta áttu samkvæmt þínum