Dagur - 08.05.1993, Síða 5

Dagur - 08.05.1993, Síða 5
Laugardagur 8. maí 1993 - DAGUR - 5 Fréttir Sveitarstjórn Öxarfjarðarhrepps sendir Vegagerðinni opið bréf: Vill rökstutt svar við ákvörðun um þungatakmarkanir í sýslunni Vegamál og framkvæmd þeirra brenna mjög á íbúum Norður- Þingeyjarsýslu og ekki síst framkvæmd þungatakmarkana en þar gildir nú 7 tonna öxul- þungi á flestum vegum og aðrir jafnvel lokaðir eins og vegurinn um Öxarfjarðarheiði. Á fundi sveitarstjórnar Öxarfjarðar- hrepps í sl. viku var samþykkt að senda opið bréf til Vegagerð- ar ríkisins sem fjallar um þungatakmarkanir og þar segir m.a.: „Á liðnum öldum var gjarnan talaó um að þreyja þorrann og góuna. Þótti sæmilega horfa ef menn og skepnur héldu holdum og kröftum út þann árstíma. Þótt Islendingar standi ekki lengur frammi fyrir slíkum hremmingum er við ýmis önnur vandamál að stríða. Eitt þeirra eru þungatak- markanir á vegum, sem er árvisst fyrirbæri í Norður-Þingeyjarsýslu. Það er í apríl og maí sem vænta má þessara takmarkana, sem geta varaða í 4 til 8 vikur vor hvert. Starfsmenn Vcgagerðar ríkisins ákveða hvenær þær hefjast og hvenær þcim lýkur, en miðað er við öxulþungann 7 tonn á aðal- vegum. Meðan þetta ástand varir fer atvinnustarfsemi í sýslunni úr skoröum. I N.-Þing. byggja menn afkomu sína ööru fremur á fram- leiðslu matvæla og það krefst stöðugra flutninga, en eftir að siglingar Ríkisskipa lögðust af er ekki annarra kosta völ en land- flutninga. Þess er tæpast að vænta að dregið sé að ráði úr flutning- um þennan tíma enda gætu þá áunnir markaðir verið í hættu. Því taka flcstir þann kostinn að fjölga ferðum í hlutfalli við skertan öx- ulþunga þó af því leiði aukinn kostnað, sem rýrir að sjálfsögðu möguleika á sölu í samkeppni við aðra sem betur cru í sveit settir, enda ekki margir landshlutar sem mega þola slíkar hömlur á sínum cina möguleika til flutninga í jafn- langan tíma ár hvert. Erlendir að- ilar virðast engan skilning hafa á því fyrirbæri scm þungatakmark- anir eru cnda þess tæpast að vænta. Víða er hafður sá háttur á aó öxulþungi er ekki takmarkaður cn veikustu vegakaflarnir lagfærðir cftir þörfum. Þannig hefur öxul- þungi t.d. ekki verið takmarkaður á veginum Borgarnes-Staðarsveit sl. tvö vor. Einhverra hluta vegna henta slík vinnubrögð ekki í N,- Þing.“ I bréllnu cr síðan fjallað um þunga á flatarciningu, sem vcriö cr að forðast, en ekki fjölda öku- tækja og að baki ákvarðananna um þungatakmarkanir hljóti aó liggja verkfræðilegir útreikningar og markvissar tilraunir enda væri starfsmönnum Vegageróarinnar ekki annað sæmandi. I niðurlagi bréfsins segir svo: „í landbúnaöi er akstur þungra tækja um viðkvæmt land alþekkt fyrirbæri. Viðbrögð bænda við þeim vanda eru gjarnan þau að nota breiðari og belgmeiri hjól- barða og gefst vel. Allt önnur lög- mál virðast gilda um malarveg- ina. Lítið tillit er tekið til hjól- barðastærðar bifreiða þegar öxul- þungi er takmarkaður. Spyrja inætti t.d. hvort vörubifreið, sem búin er 1300 x 20“ hjólbörðum, hafi meiri þunga á flatareiningu með 8 tonna öxulþunga en hún hefði með 7 tonna öxulþunga og 1100x20“ hjólbörðum? Sveitarstjórn Oxarfjarðarhrepps telur brýnt aö Vegagerð ríkisins taki starfsreglur sínar hvað þetta varðar til endurskoðunar eða setji þær a.m.k. fram með þeim hætti að allir megi skilja. Fyrir hönd Norður-Þingeyinga skorar sveitar- stjórnin á Vegagerðina að gera það. Á Norðurlandi eystra hefur Vegagerðin þá stefnu að koma í veg fyrir að vegirnir eyðileggist á vorin og ef vegaáætlun segir að Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co á Akureyri mun í kringum næstu mánaðamót opna brauð- búð á jarðhæð verslanamið- stöðvarinnar Sunnuhlíðar. Frá því að Sunnuhlíð opnaði, hefur Kristjánsbakarí rekið veitinga- og brauðsölu á 2. hæð en eftir næstu mánaðamót leggst veit- ingareksturinn af. I brauðbúðinni verður boöið uppá brauð og kökur, mjólk og mjólkurvörur og álegg. Búðin verður opin alla daga vikunnar og einnig á hclgidögum. Eigendur Kristjánsbakarís keyptu 100 ferm. húsnæði á jarð- hæð af eiganda Vídeo Evu í byggja eigi upp einhvern ákveö- inn veg á árinu eða því næsta þá kemur það fyrir að ákveðið er að „keyra út úr“ veginum og sleppa öllum þungatakmörkunum. Þann- ig fara engin verðmæti forgörðum því þaó stendur hvort sem er til aö leggja nýjan veg. I sumar eru áætlaðar lagfæring- ar á vegarkafla í Kelduhverfi, sem aðeins er lítill hluti vegarins frá Húsavík austur á Kópasker. GG Sunnuhlíð. Brauðbúó.in verður í helmingi þess húsnæðið og Vídeó Eva verður áfram í hinum helm- ingnum. Síðustu daga hefur verið unnið við breytingar á eigninni og er m.a. búió aó saga þrjú ný glugga- stykki á norðurvegg hússins. Hægt verður að ganga inn í brauðbúð- ina bæði að utanveróu og eins innan úr sjálfri verslanamiðstöð- inni. Brauðbúðin í Sunnuhlíð er þriðja búðin sem Kristjánsbakarí rekur á Akureyri, fyrir eru búðir í Hafnarstræti og Hrísalundi og þá rekur fyrirtækið brauðbúð í Hag- kaup í samvinnu við þá Hag- kaupsmenn. KK SUNNiimin fcHb WWfí® émtt ÍSgaOi R fT:-' Mm. ' Um næstu mánaðamót opnar Kristjánsbakarí nýja brauðbúð á jarðhæð í verslanamiðstöðinni Sunnuhlíð á Akureyri. Mynd:KK AKUREYRARBÆR ÚTBOÐ Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri, fyrir hönd bæjarsjóðs Akureyrar óskar hér með eftir tilboð- um í jarðvegsskipti, frárennslislagnir og lögn heimæðar hitaveitu í verkið, Miðbær-suðurhluti, bifreiðastæði, áfangi I. Tilboðið nær til jarðvegsskipta í 4500 m2 bifreiða- stæði, lagnar 325 lengdarmetra af frárennslis- rörum auk heimæða og niðurfalla og 100 lengd- armetra af hitaveitulögn. Skilafrestur verksins er til 26. júní 1993. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Tækni- deildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri frá og með þriðjudeginum 11. maí 1993 gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða fer fram á sama stað þriðjudaginn 18. maí kl. 11.00 fyrir hádegi. Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri. Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co: Nýbrauðbúðájarð- hæð í Sunnuhlíð FRÁ HÚSNÆÐISNEFND AKUREYRAR. íbúðir óskast til kaups Húsnæðisnefnd Akureyrarbæjar óskar eftir not- uðum íbúðum til kaups. Einkum er óskað eftir 2ja- 5 herbergja íbúðum í fjölbýlishúsum og 3ja-5 her- bergja íbúðum í raðhúsum. Tilboðunum skal skilað inn af starfandi fasteignasölum. í tilboðinu skal vera lýsing á ástandi eignar, stærð íbúðar í fermetrum, stærð sameignar í fermetrum, fjöldi herbergja, stað- setning í húsi, húsagerð og grunnmynd íbúðar. Verð skal miðað við staðgreiðslu á afhendingardegi íbúð- ar. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Húsnæðisnefnd óskar einnig eftir tilboðum í byggingu félagslegra íbúða. Útboð þetta er gert með fyrirvara um fjárveitingu til félagslegra íbúða frá Húsnæðisstofnun ríkisins á árinu 1993. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Öll gögn liggja frammi hjá Húsnæðisskrifstof- unni á Akureyri, Skipagötu 12, sími 25311. Tilboðum skal skila inn til Húsnæðisskrifstof- unnar á Akureyri, Skipagötu 12, sími 25311, fyrir 1. júní 1993. Einingarfélagar Eyjafirði! Almennir félagsfundir verða haldnir í öllum deildum Verkalýðsfélagsins Einingar á eftirtöld- um stöðum: Grenivík, í kaffistofu frystihússins. Mánudaginn 10. maí kl. 17.00. Dalvík, í kaffistofu frystihússins. Mánudaginn 10. maí kl. 20.30. Ólafsfirði, í Tjarnarborg. Þriðjudaginn 11. maí kl. 20.00. Akureyri, í Alþýðuhúsinu, 4. hæð. Miðvikudaginn 12. maí kl. 20.00. Hrísey, í kaffistofu frystihússins. Fimmtudaginn 13. maí kl. 20.00. Dagskrá fundanna: 1. Staða samningamála. 2. Öflun verkfallsheimildar. 3. Önnur mál. Félagar fjölmennið. Stjórnin. — AKUREYRARB/CR Akureyrarbær auglýsir eftirtaldar deiliskipulagstillögur: Deiliskipulag Strandgötu: Deiliskipulagstillag- an sýnir legu nýrrar tengibrautar sunnan Strand- götu milli Glerárgötu og Hjalteyrargötu sbr. aðal- skipulag Akureyrar 1990-2010. Einnig er gerð grein fyrir frágangi núverandi götu sem húsagötu, bílastæðum við hana svo og frágangi svæðisins og gönguleiðar við Pollinn. Deiliskipulag v/kirkjugarðsbyggingar: Deili- skipulagstillagan sýnir tillögu að staðsetningu kirkjugarðshúss og umhverfi þess við norðurjaðar kirkjugarðs Akureyrar. Tillagan er í megindráttum í samræmi við samþykkt skipulagsnefndar Akur- eyrar frá 9. apríl 1992. Deiliskipulagstillögur þessar, uppdrættir og grein- argerðir, liggja frammi almenningi til sýnis á Skipu- lagsdeild Akureyreyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð, næstu 4 vikur frá birtingu þessarar augiýs- ingar, þ.e. til mánudagsins 7. júní 1993, þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillögurnar og gert við þær athugasemdir sbr. grein 4.4. í skipulagsreglugerð. Þeir sem telja sig verða fyrir bótaskyldu tjóni vegna skipulagsgerðarinnar er bent á að gera athugasemdir innan tilgreinds frests, ella teljast þeir samþykkir tillögunum. Skipulagsstjóri Akureyrar.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.