Dagur - 08.05.1993, Síða 24
Akureyri, laugardagur 8. maí 1993
Kylfingar á Akureyri og víðar hafa dregið fram goifsettin og eru farnir að æfa sig af fullum krafti fyrir komandi
golfvertíð. Konurnar iáta ekki sitt eftir liggja og þessar tvær voru að æfa að Jaðri þegar Ijósmyndari Dags leit þar
við í vikunni. Mynd: Robyn
Akureyri:
Fjögur ný kafFihús með vínveitinga-
leyfl opnuð á næstu vikum?
Tökur hefjast í júlí á nýjustu kvikmynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar:
Um helmingur Bíódaga kvik-
myndaður á Höföaströnd
- stærsta verkefnið til þessa, segir Friðrik Þór
Kafflhúsum og veitingastöðum
mun fjölga verulega á Akureyri
nú fyrrihluta sumars ef þeir sem
hyggja á rekstur slíkra staða fá
til þess tilskilin leyfi. Nýlega
voru hér á ferðinni eftirlitsmenn
með vínveitingahúsum til að
skoða og gera úttekt hjá við-
komandi aðilum og er að vænta
skýrslu frá nefndinni um út-
tektina innan tíðar. Þessi kaffl-
hús verða til staðar í Kaup-
vangsstræti 23 (Gilinu), Versl-
unarmiðstöðinni Sunnhlíð,
Gránufélagshúsunum og í
Blómahúsinu, sem er að rísa í
Innbænum.
Vignir Þormóósson veitir kaffi-
húsinu i Gilinu forstöðu, en hann
Ieigir húsnæðió af Gísla Boga Jó-
hannessyni (GIBO). Kaffihúsió
Starfsmenn Verkalýðsfélags
Húsavíkur hafa ákveðið að gera
könnun í næstu viku meðal
framhaldsskólanema hvernig
þeim gangi að fá vinnu í sumar.
Húsavíkurbær mun reka vinnu-
skóla með svipuðu sniði og verið
O HELGARVEÐRIÐ
Norðlendingar fá þokkaleg-
asta vorveður um helgina.
Spáð er suðvestan átt og
allt aö 15 stiga hita norð-
austanlands. Vindur verður
reyndar allhvass fram á
suhnudag en á mánudag er
gert ráð fyrir fremur hægri
suðvestlægri eða breyti-
legri átt. Þurrt og léttskýjað
verður fyrir riorðan og hiti
10-14 stig. Á þriðjudag er
búist við norðlægri átt.
mun rúma um 60 manns og veró-
ur það tvískipt, þ.e. kaffíhús á
neðri hæðinni og bar á efri hæð-
inni og verður staðurinn opnaður
í þessum mánuöi, en reynt veröur
að skapa þar kaffihúsa- og bar-
stemmningu eins og hún þekkist
best en á kaffihúsinu verður hægt
að kaupa brauð og tertur með
kaffinu og gcra andrúmsloftið
heimilislegt. Innangengt verður í
„tilraunasal“ bæjarins, sem Gilfé-
lagið hefur verið með, sem verið
er að standsetja og verður væntan-
lega vígður formlega í júnímán-
uði.
„Hér verður opnað kaffihús á
efri hæð Verslunarmiðstöðvarinn-
ar í Sunnuhlíð og verður sótt um
vínveitingaleyfi fyrir staðinn en á
kaffistofunni verður hægt að fá
hefur undanfarin sumur. Börn
fædd 19’78 fá vinnu í júní, júlí og
ágúst, fjóra tíma á dag og 218,40
kr. á tímann. Börn fædd 19’79 fá
vinnu í júní og júlí og 189,80 á
tímann. Börn fædd 1980 fá vinnu í
júní og 163,80 á tímann. Þeir sem
ekki hafa fasta búsetu á Húsavík
eiga ekki aðgang að vinnuskólan-
um.
Aðalsteinn Baldursson, starfs-
maður Verkalýðsfélagsins, sagði
að ekki hefði enn vcrið kannað
hvernig framhaldsskólanemum-
gengi að fá vinnu. „Eg hef trú á aó
staðan verði erfið hjá þessum
krökkum. Um mánaðamótin voru
55-60 atvinnulausir á skrá hér á
Húsavík og alls 144 í sýslunni,
það er heldur meira en á sama
tíma í fyrra. Þetta er viss þrösk-
uldur fyrir þá sem eru aö koma út
á vinnumarkaðinn núna og útlitið
er ekkert of gott,“ sagði Aðal-
steinn. IM
auk kaffimeðlætis pizzur og ham-
borgara og jafnvel steikur ef
mögulegt verður. Þetta er á þeim
stað sem Brauðgerð K. Jónssonar
er nú og verður gengið inn á kaffi-
húsið innan frá á daginn en utan
af svölum eftir kl. 8 á daginn,“
sagói Bernharð Steingrímsson,
sem jafnframt mun halda áfram
rekstri myndbandaleigu á neðri
hæð hússins.
Blómahúsið mun opna í nýju
húsi um næstu mánaðamót og í
miðju hússins og tumi verður
staðsett kaffihús og hefur einnig
verið sótt um vínveitingaleyfi fyr-
ir staðinn. Kaffíhúsið mun taka
um 100 manns í sæti og fær sér-
stakt nafn, sem ekki hefur enn
verió gert opnbert. Á neðri hæö-
inni verður einnig ísbúð (ísbar).
I Gránufélagshúsinu við
Strandgötu verður opnað kaffihús
og minjagripasala í næsta mánuði,
sem þeir Alfreó Gíslason og Sig-
urður Sigurðsson hafa veg og
vanda af og verður sá staður einnig
með vínveitingaleyfi eins og
hinir þrír staðimir ef öllum skil-
yrðum verður fullnægt.
Kaffíhúsum og „pöbbum“ mun
því fjölga allnokkuð á Akureyri á
næstunni. GG
Viðræður um
kaup á við-
byggingu við
Dynheima
Bæjarráð Akureyrar samþykkti
sl. fimmtudag að heimila bæjar-
lögmanni að taka upp viðræður
við íslandsbanka um hugsanleg
kaup bæjarins á viðbyggingu
við Dynheima.
íþrótta- og tómstundaráð sam-
þykkti á fundi sínum 28. apríl sl.
að skora á bæjarstjóm að kaupa
þessa viðbyggingu, enda sé ljóst
að hún sé „mjög þýðingarmikil
fyrir þá starfsemi sem er í Dyn-
heimum." óþh
Tökur hefjast á nýjustu kvik-
mynd Friðriks Þórs Friðriks-
sonar, Bíódögum, í júlíbyrjun
og verður tökulið til að byrja
með í að minnsta kosti þrjár
vikur í Skagafirði, nánar tiltek-
ið á Höfða á Höfðaströnd og
nágrenni.
Þeir Friðrik Þór og Einar Már
Guðmundsson, rithöfundur, skrif-
uóu handritið að Bíódögum. Sag-
an er Iauslega byggð á endur-
minningum Friðriks Þórs, en
hann var í sveit á Höfða í fimm
sumur. „Þetta er einskonar
„kontrast“ á milli Kanasjónvarps-
ins og hinnar þjóðlegu sagnahefð-
ar. Myndin á að gerast árið 1964,
þ.e.a.s. áður en íslenskt sjónvarp
hóf útsendingar. Bíódagar vísar
til bíóheimsins, bæði gegnum
Kanasjónvarpiö og „þrjú bíóin“,“
sagði Friðrik Þór. Myndin verður
að hans sögn á léttum nótum og
veröa böm í aðalhlutverkum. Ekki
hefur verið gengió frá ráðningum
aðalleikara, en að því er unnið
þessa dagana.
Friðrik Þór sagði að um helm-
ingur myndarinnar verði tekinn á
Höfða og í nágrenni og annar
tökustaður hafi vart komið til
greina. „Við notum gamla húsið á
Höfða, sem reyndar er sama húsið
og við notuðum í Börnum náttúr-
unnar. Frændi minn er bóndi á
Höfða og faðir minn bjó þar í
gamla daga, allt til ársins 1939,“
sagði Friðrik Þór.
Fjármögnun Bíódaga gekk vel.
Friórik Þór leggur sjálfur fram 18
milljónir, 26 milljónir koma úr
Kvikmyndasjóði, 12 milljónir frá
Dönsku kvikmyndastofnunni, 19
milljónir frá Kvikmyndasjóði
Evrópu, 21 milljón frá Norræna
kvikmyndasjóðnum og þýskir að-
ilar leggja fram 34 milljónir
króna.
Síðasta mynd Friðriks Þórs,
Böm náttúrunnar, sló eftirminni-
lega í gegn. Hann segir að Bíó-
dagar sé allt öðru vísi mynd.
„Hún verður vonandi gaman-
mynd, það er ekki farið alvarlega
með staðreyndir. Þetta er stærsta
verkefni mitt til þessa, helmingi
stærra en Böm náttúrunnar. Það
kemur m.a. til af því að í þessari
mynd eru margar stórar hópsenur,
en í Börnum náttúrunnar voru
yfirleitt bara tveir leikendur,“
sagði Friðrik Þór.
„Eg vil hvetja fólk á þessu
svæði, sem kynni að eiga ýmsa
innanstokksmuni eldri en frá árinu
1964, að hafa samband við Is-
lensku kvikmyndasamsteypuna í
síma 91-621850. Okkur vantar
líka bíla, traktora og heyvinnslu-
tæki frá þessum árum og einnig
erum við að leita að gamalli rútu.
I myndinni eru atriði þar sem
margir bílar koma fyrir, t.d. réttir
og jarðarför,“ sagði Friðrik Þór.
Gert er ráð fyrir að tökum á
myndinni ljúki í október og
vinnslu hennar veröi lokið snemma
næsta árs. Ovíst er hins vegar
hvenær á næsta ári Bíódagar
verður frumsýnd. óþh
Úrval af stórglœsilegum ítölskum
leðursófasettum
og hornsófum
Frábœrt verð • Margar tegundir og litir
^5 raðgreiðslur
Sófasett 3+1+1 • Módel 865 • Kr. 148.410 stgr.
Tryggvabraut B4
EOB Ahureyrl
khúsgagnaverslun sími as-Bi4ia
U jí q o yfþ •
Útlitið ekkert of gott
- segir Aðalsteinn Baldursson, hjá VH,
varðandi sumarvinnu framhaldsskólanema