Dagur - 19.05.1993, Blaðsíða 1
Vel klæddur
í fötum frá
BERNHARDT
Thc Taiktr-l.iM>k
HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
Akureyri:
Innbrot í Glerárskóla upplýst
Lögreglan á Akureyri handtók í
gær 19 ára gamlan mann, sem
viðurkenndi að hafa brotist inn í
Glerárskóla nóttina áður. Mað-
ur þessi hefur oft komið við
sögu lögreglunnar og féll grun-
ur á hann strax eftir að innbrot-
ið uppgvötvaðist í gærmorgun.
Innbrotsþjófurinn hafi lítið upp
úr krafsinu - aðeins nokkra smá-
mynt og einn hljóðnema. Hljóð-
neminn er kominn til skila. Lög-
reglan telur að peningavon hafi
valdið innbrotinu því kunningi
innbrotsþjófsins hafi náð að stela
nokkurri fjárupphæð í Glerárskóla
fyrr í vetur. Þótt litlu væri að stela
voru tölverðar skemmdir unnar á
húsnæði skólans, einkum á hurð-
um og dyraumbúnaði þar sem
þjófurinn braut sér leið. „Við töld-
um okkur þekkja verksummerkin
og grunur okkar reyndist réttur,“
voru orð lögreglumanna á Akur-
eyri í samtali við Dag síðdegis í
gær. ÞI.
Kennaradeild Háskólans á Akureyri:
Dr. Guðmundur Heiðar
ráðinn forstöðumaður
Háskólanefnd
Háskólans á
Akureyri sam-
þykkti á fundi
sínum sl.
mánudag að
mæla með
ráðningu dr.
Guðmundar
Heiðars Frí-
mannssonar, heimspekings, í
stöðu forstöðumanns kennara-
deildar skólans.
Haraldur Bessason, rektor,
ræður endanlcga í stöðuna og
sagði hann í samtali við Dag í gær
að hann myndi staðfesta ráðningu
Guðmundar Heiðars.
Guómundur Heiðar cr ráóinn
forstöðumaður frá og með 1. júní
nk. til þriggja ára. Hann var einn
sjö umsækjenda um starfið.
Dr. Guðmundur Heiðar Frí-
mansson er Akureyringur, fæddur
1952. Hann brautskráðist stúdent
frá Menntaskólanum á Akureyri
árió 1972. Prófi í heimspeki og
sálfræði lauk hann frá Háskóla Is-
lands árið 1976. Næsta árið var
hann við kennslu við Mennta-
skólann á Akureyri en hélt síðan
til framhaldsnáms í London og
lauk þaðan prófi í heimspekilegri
merkingarfræði árið 1979. Þá lá
leiðin aftur heim til Akureyrar og
allt til ársins 1986 kenndi Guð-
mundur Heiðar við MA. Það ár
fór hann í doktorsnám í heim-
speki í St. Andrews í Skotlandi og
varði doktorsritgerð árið 1991.
Frá því á síðasta ári hefur Guð-
mundur Heiðar unnió að undir-
búningi stofnunar kennarardeildar
viö Háskólann á Akureyri, en
kennsla hefst vió hana í haust.
Innritun nemenda stendur yfir, en
ef marka má áhuga fólks fyrir
þcssari nýju deild má ætla aó
margir tugir umsókna bcrist. óþh
Mecklenburger Hochseefísherei:
Gunnar Ragnars
stjómarformaður
Stjórn Utgerð-
arfélags Akur-
eyringa hf.
leggur til að
Gunnar Ragn-
ars, fram-
kvæmdastjóri
ÚA, verði for-
maður stjórn-
ar þýska út-
gerðarfyrirtækisins Mecklen-
burger Hochseefisherei. Haiidór
Jónsson, stjórnarformaður ÚA,
staðfesti þetta í gær.
Aðalfundur Mecklenburger
Hochseefisherei verður haldinn í
Þýskalandi nk. mánudag. Sex
mcnn verða í stjórn fyrirtækisins,
þrír frá UA og þrír fulltrúar
þýskra eignaraðila Mecklenbur-
ger. Útgerðarfélag Akureyringa
hf. á sem kunnugt er meirihluta í
Mecklenburger og í samræmi við
það kcmur stjórnarformennska í
hlut cins þriggja fulltrúa ÚA í
stjórn fyrirtækisins. I atkvæða-
grciðslu hefur atkvæói stjórnarfor-
manns tvöfalt vægi á við atkvæði
annarra stjórnarmanna.
Auk Gunnars Ragnars sitja
Björgólfur Jóhannsson, fjármála-
stjóri ÚA, og Erlingur Siguröar-
son, stjórnarmaður í ÚA, í stjóm
Mecklenburger Hochseefisherei
af hálfu Útgerðarfélags Akureyr-
inga. ■ óþh
Ncmcndur Mcnntaskólans á Akureyri fögnuðu upplestrarfríi með hcfðbundnum hætti í gær.
vantaði ckki.
Landbúnaðartækin
Mynd: Robyn
Arctic Open golfmótið trekkir:
Full vél af Frökkum og
fleiri gestir væntanlegir
Miðnæturgolfmótið Arctic Op-
en verður haldið á Jaðarsvellin-
um á Akureyri 23.-26. júní nk.
og gera forsvarsmenn Golf-
klúbbs Akureyrar sér vonir um
góða þátttöku. Gísli Bragi
Hjartarson, framkvæmdastjóri
GA, segir þó of snemmt að
nefna einhverjar tölur því bók-
að er með mánaðar fyrirvara.
Þó er ljóst að allmargir Frakkar
ætla að berja miðnætursólina
augum og grípa í kylfu.
Ferðaþjónusta Akureyrar aug-
lýsti nýverið þriggja daga ferð til
Parísar 23.-25. júní í beinu flugi
frá Akureyri. Boðið verður upp á
50 sæti og sagði Reynir Adólfs-
son, framkvæmdastjóri Ferðaþjón-
ustu Akurcyrar, aó þcgar væri
byrjað að bóka í ferðina og niarg-
ar fyrirspurnir heföu borist.
„Aðdragandinn að þessari ferð
er sá að Heimsferðir hf. í Reykja-
vík hafa í samvinnu viö ferða-
skrifstofu og flugfélag í Frakk-
landi skipulagt ferð til Akureyrar í
tengslum við Arctic Open goif-
mótið og við sjáum um fram-
kvæmdina hérna. Þetta er 150
sæta þota en við vitum ekki á
þessari stundu hvað farþegamir
verða margir,“ sagði Reynir.
Hann sagói að hluti af l'erða-
mönnunum frá Frakklandi ætlaði
að koma gagngert til að spila golf
í miðnætursólinni en einnig yrói
þarna fólk sem vildi skoða sig
um. Farið verður í skoðunarfcrðir
austur að Dcttifossi og í Mý-
vatnssveit en miönætursólarinnar
veróur notið í Grímsey.
Gísli Bragi Hjartarson sagði aó
það myndi skýrast fljótlega hve
margir kæmu erlendis frá til að
taka þátt í Arctic Open og hann
var bjartsýnn á góða þátttöku.
Mótið hefur fengið mikla umfjöll-
un í erlcndum golftímaritum og
vakió athygli.
„Þátttakan hefur verið nokkuó
sveiflukennd en margir koma ár
eftir ár og við vonumst til að auk-
in umfjöllun skili sér. Það er hins
vegar ljóst að hingað kemur að-
eins fólk sem er vel stætt og hefur
Hugsanleg kísilgúrvinnsla undir Eldhrauni:
Kristjáni Sæmundssyni falin ráðgjöf
Dr. Kristján Sæmundsson,
deildarstjóri á Orkustofnun,
verður ráðgjafi iðnaðarráðu-
neytisins við athugun á því
hvort kísilgúr er að finna undir
Eldhrauni við Mývatn.
Jón Sigurðsson, iðnaðarráð-
hcrra, greindi frá því á fundi með
fréttamönnum 7. apríl sl. að hann
hefði ákveóið að beita sér fyrir
rannsóknum á hugsanlegri nýt-
ingu kísilgúrs sem fór undir svo-
kallað Eldhraun í Mývatnseldum
á 18. öld.
Iðnaðarráðuneytið tilkynnti
forsvarsmönnum Kísiliðjunnar
hf. sl. föstudag að óskað hafi verið
eftir því við dr. Kristján Sæ-
mundsson að hann verði ráðgjafi
viö athugun á nefndri kísilgúr-
vinnslu. Einnig hafi verið óskað
eftir því að hann geri tillögur um
hvar í hraunið skuli boraðar til-
raunaholur.
Gert er ráð fyrir aó dr. Kristján
og dr. Bjarni Bjamason, tækni-
stjóri Jarðborana, komi norður í
Mývatnssveit fljótlega til þcss að
kynna sér aðstæður, en ekki er
gert ráð fyrir að boranir hcfjist
fyrr en hraunið veróur komið und-
ir snjóa í haust, m.a. til að þær
valdi ekki röskun á fuglalífi við
Mývatn.
Umrætt Eldhraun rann í Mý-
vatnseklum á árunum 1724-1729.
í bók Ólafs Jónssonar um Ódáða-
hraun scgir að ósköpin hafi hafist
með snörpum jarðhræringum að-
faranótt 17. maí 1724, fyrirréttum
269 árum. Þær höfðu í för með sér
töluverðar breytingar á botni Mý-
vatns, hann lyftist og allur aústur-
hluti vatnsins þornaði um tíma.
Afram héldu eldsumbrotin með
tiltölulega litlum hléum og segir
Ólafur í bók sinni að miklar breyt-
ingar hafi orðið á landinu við
austanvert Mývatn. Einnig segir
Ólafur að hraunió hafi fyllt upp
töluveröan hluta af norðanverð-
umYtri-Flóa. óþh
efni á að búa á Islandi í heila
viku,“ sagði Gísli Bragi.
Hann nefndi að tveir sjón-
varpsmenn frá Bandaríkjunum
ætluðu að koma og taka mótið
upp og einnig hópur sem hyggst
gera mynd um Arctic Open fyrir
CBS-sjónvarpsstöóina. Það er því
ljóst að athyglin hefur ekki
minnkaó. SS
Eyjaíjörður:
Sameining
á borði
vinnuhóps
Sjö manna vinnuhópur um sam-
einingu sveitarfélaga á Eyja-
fjarðarsvæðinu kom saman til
fyrsta fundar sl. föstudag, en
honum er ætlað að móta tillögur
um sameiningu sveitarfélaga á
svæðinu og leggja þær fyrir
Héraðsnefnd Eyjaijarðar.
I vinnuhópnum eru Siguróur J.
Sigurðsson og Úlfhildur Rögn-
valdsdóttir, bæjarfulltrúar á Akur-
eyri, Ari Jósavinsson, oddviti á
Auðnum í Öxnadal, Hálfdán
Kristjánsson, bæjarstjóri í Ólafs-
firði, Trausti Þorsteinsson, forseti
bæjarstjórnar Dalvíkur, Ámi
Konráö Bjarnason, sveitarstjóri
Svalbarðsstrandarhrepps, og Pétur
Þór Jónasson, sveitarstjóri Eyja-
fjarðarsveitar.
Sigurður J. Sigurósson sagði í
samtali vió Dag að þessi fyrsti
fundur hafi fyrst og fremst verið
einskonar kynningarfundur, en
málió verði áfram rætt á fundi nk.
þriðjudag. Sigurður sagði ljóst að
starfshópurinn myndi vinna í nán-
um tengslum við væntanlega um-
dæmanefnd, sem stjóm Eyþings -
samtaka sveitarfélaga á Norður-
landi eystra - mun kjósa til þess
gera tillögur að nýrri skiptingu
kjördæmisins í sveitarfélög. óþh
76. árg.
Akureyri, miðvikudagur 19. maí
€ÍSW>
93. tölublað