Dagur - 19.05.1993, Síða 11
Miðvikudagur 19. maí 1993 - DAGUR - 11
Afmæliskveðja_______________________
Ámi Friðgeirsson áttræður
Árni Friðgeirsson, fyrrum ráðs-
maóur Ménntaskólans á Akureyri,
er áttræður í dag. Trúmennska og
hógværð hafa einkennt Árna Frið-
geirsson alla tíð enda þótt hvorki
sé hann skaplaus maóur né skoð-
analaus, eins og fram getur komið
í hnitmiðuðum athugasemdum
hans um menn og málefni, oröum
sem ekki þurfa að vera ýkja mörg,
því að margmáll er Árni ekki. En
orö hans eru beinskeytt, enda er
Árni Friðgeirsson afsprengi ís-
lenska bændasamfélagsins, þar
sem orðsins list hefur verið í há-
vegum höfð og virt meira en aðrar
náðargáfur guðs.
Árni Friðgeirsson er fæddur að
Landamótaseli í Kaldakinn 19.
maí 1913, yngstur átta barna hjón-
anna Kristbjargar Einarsdóttur frá
Björgum Grímssonar og Friógeirs
Kristjánssonar frá Finnsstöðum
Kristjánssonar frá Hóli í Kinn, en
þau höfðu reist bú að Landamóta-
seli árió 1902, sem þá var talin lít-
il jörð og niðurnídd.
Systkini Árna Friðgeirssonar
voru elst Karitas (f. 1890), gift
Eið Arngrímssyni bónda á Þór-
oddsstað; Helga (f. 1893), kona
Jóns Sigurðssonar í Ystafelli;
Hildur (f. 1895), fyrri kona Bald-
urs Baldvinssonar á Ofeigsstöð-
um, sem dó 1923 af barnsförum;
Hólmfríður, sem dó á öðru ári úr
barnaveiki; Þórir (f. 1901), lcngi
gjaldkeri Kaupfélags Þingeyinga á
Húsavík og átti Arnfríði Karls-
dóttur frá Túnsbergi á Húsavík, en
Þórir er enn á Húsavík; Einar (f.
1903), bóndi í Engihlíð, nýbýli úr
landi Þóroddsstaðar, en kona hans
var Hulda Baldvinsdóttir frá
Ófeigsstöðum, og Ingimar (f.
1908), sem bóndi var á Þórodds-
stað, nú búsettur á Akureyri.
Árið 1916 fluttist Arni með
foreldrum sínum og systkinum frá
Landamótaseli að Þóroddsstað í
Kinn, en faðir hans tók staðinn á
leigu þegar Þóroddsstaður var nið-
ur lagður sem prestsetur, og bjó
Friðgeir þar til dauðadags. Árni
Friðgeirsson ólst upp hjá foreldr-
um sínum til ársins 1932 að hann
settist í Menntaskólann á Akureyri
og tók þaðan gagnfræðapróf árið
1935 með hárri fyrstu einkunn.
Um haustið settist Árni í stærð-
fræðideild skólans er hætti námi
og settist í Garðyrkjuskóla ríkisins
að Reykjum í Ölfusi og lauk það-
an prófi 1941. Eftir það vann hann
við garðyrkjustöð að Nesjavöllum
í Grafningi, stundaði unglinga-
kennslu á Svalbarðsströnd og var
bryti við Laugaskóla í Reykjadal
veturinn 1942 til 1943, en réðst
þaðan sem ráðsmaður við
Menntaskólann á Akureyri haust-
ið 1943, er Stefán Gunnbjöm Egils-
son frá Laxamýri lét af störfum.
Árið 1972 tók Árni við starfi
gjaldkera Menntaskólans á Akur-
eyri, og enn starfar hann í skrif-
stofu skólans og hefur því verió
starfsmaður skólans í 50 ár eða
lengur en nokkur annar og starfað
undir stjóm allra skólameistara,
sem setið hafa við skólann síöan
Menntaskólinn á Akureyri fékk
réttindi til að brautskrá st'údenta.
Árni hefur unnið skólanum bæði
vel og lengi og hefur tekið til
hendi þar sem þurfti og unnið flest
störf við skólann nema að kenna,
og má segja að Árni sé orðinn eitt
af sameiningartáknum norðan-
stúdenta, því að allir muna Áma
Friögeirsson.
Hinn 14. september 1950 gekk
Árni að eiga Kristínu Benedikts-
dóttur frá Vöglum í Hrafnagils-
hreppi. Kjörsonur þeirra er Ingi-
mar (f. 1961), kennari við Verk-
menntaskólann á Akureyri. Ingi-
mar Árnason er kvæntur Sigurlínu
Jónsdóttur frá Dalvík og eiga þau
tvö börn, Kristínu og Arna, sem
eru sólargeislar í lífi Árna Frið-
geirssonar. Kristín Benediktsdóttir
andaðist 24. júlí 1976 eftir haröa
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hefur verið samþykkt reglu-
gerð um sölutjöld í miðbæ Akur-
eyrar. Samkvæmt þeirri reglugerð
er fólki heimilt aó setja upp sölu-
tjöld á vissum afmörkuðum svæð-
um í miðbænum þeim að kostnað-
arlausu. Öllum er frjálst að koma
með ýmsan söluvarning alla daga
vikunnar. Junior Chamber Akur-
eyri hefur ákveðiö að flytja Bólu-
markaðinn í miðbæinn og mun
hann verða starfræktur úr sölu-
tjöldum á laugardögum frá kl. 11
til 15 í sumar. Bólumarkaðurinn
hefur starfað frá því í haust við
sjúkdómslegu. Gott var að koma á
heimili þeirra Stínu og Áma, þar
sem tekið var á móti fólki af ljúf-
mennsku, stundum af gustmikilli
glaðværð en ávallt af mannlegri
hlýju. Á þeim árum fannst mér ég
stundum sitja einhvers staðar á
bak við heiminn þegar ég sat í eld-
húsinu hjá þeim, svo undra nærri
hinu iðandi lífi en þó í skjóli þar
sem önnur lögmáll giltu en sá tími
setur, sem ávallt er að hlaupa frá
okkur.
Eftir að Stína dó, lagðist Árni í
ferðalög og hefur gert víðreist
bæói vestan hafs og austan og haft
mikla ánægju af, auk þess sem
hann hefur alla tíð lagt rækt við
söfnunareðli sitt í „frímerkjamafí-
unni“ á Akureyri, eins og hann
kallar þennan félagsskap nokkurra
norðlenskra sæmdarmanna sem
hittast á síðkvöldum allan vetur-
inn að skoða frímerki og mynt
sína.
Enn er Árni Friðgeirsson ung-
legur og em, þótt heymin sé örlít-
ið farin að dofna - enda heyrt
margt. Hann fylgist með fram-
vindu heimsmála og þróun lands-
mála af miklum áhuga sem fyrr og
hefur skoðun á málum. Sú skoðun
hefur mótast af langri sambúð við
land og lýð, og honum er í merg
borinn trúnaður við land sitt og
þjóð, sem vió bændur höfum
margir haft og haldið hefur lífinu í
þessari þjóð í þúsund ár. Sú ný-
tísku skoðun að íslendingar eigi
að lúta tilskipunum stjórnvalda
suður á Vallandi og kaupa smjör
frá Hollandi og kjöt frá Spáni er
honum því ekki að skapi.
Á þessum merku tímamótum
vil ég færa Árna ráðsmanni bestu
hamingjuóskir og þakkir fyrir allt
hið mikla og góða starf, sem hann
hefur unnið Menntaskólanum á
Akureyri í hálfa öld og fyrir vin-
áttu hans um áratuga skeið.
Tryggvi Gíslason.
miklar vinsældir bæjarbúa. Með
því að bjóða upp á sölutjöld og
borð til leigu gegn vægu verði
getum við aukið þjónustu við
söluaðila. Það er trú okkar að
skipulagður útimarkaður muni
auka og bæta mannlíf miðbæjarins
auk þess sem þjónusta við þá fjöl-
mörgu ferðamenn sem sækja okk-
ar fagra bæ heim muni aukast.
Þeir sem áhuga hafa á aó panta sér
borð og eða skjóltjald hafi vin-
samlegast samband vió Ásthildi í
síma 26869 á kvöldin.
(Fréttatilkynning).
Akureyri:
Bólumarkaðurinn í
miðbænum í sumar
Krakkar 7-10 ára
Enn eru laus pláss í Sumarbúðum kirkj-
unnar við Vestmannsvatn
í 1. flokki 8.-15. júní og 3. flokki 28. júní - 5. júlí.
Innritun í síma 96-27540
og í símum 96-26179, 96-61685, 96-43545.
Utboð
Húsfélagiö Borgarhlíö 1-3-5, Akureyri, óskar eftirtil-
boðum í steypuviðgerðir utanhúss á Borgarhlíð 1-3-5.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen hf., Glerárgötu 30. Tilboð verða opnuð
á sama stað þriðjudaginn 1. júní 1993 kl. 11.00.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf
GLERAHGATA 30 ■ 600 AKUREYRI • SlMI 96-22543 • FAX 96-11190
miðvikudagskvöld
Fimmtudagur lcL 15.00
Blúsmenn Andreu
Aðgangur ókeypis
brauð
ARBRAUB