Dagur - 15.06.1993, Page 9
Þriðjudagur 15. júní 1993 - DAGUR - 9
Iþróttir
Halldór Arinbjarnarson
Golf:
Góð þátttaka á öldimgamótunum
- Jónsmessumót á morgun
Um helgina voru haldin 2 öld-
ungagolfmót á vegum GA. Þátt-
taka var góð og þóttust mótin
takast vel. Annars vegar var
hér um að ræða Jóhannesar-
bikarinn og hins vegar LEK
mót sem gildir til landsliðs.
LEK mótið í flokki 55 ára og
eldri var hið síðasta sem gildir
til landsliðs og einn Akureyr-
ingur, Guðjón E. Jónsson,
tryggði sér sæti í landsliði með
forgjöf:
A morgun 16. júní heldur GA
svokallað Jónsmessumót og hefst
þaó kl. 20.00. Leiknar veröa 9.
holur og eru allir hvattir til að
mæta og skemmta sér. En þá eru
það úrslit hclgarinnar.
Jóhannesarbikarinn, 50 ára o.e.:
Urslit m. forgjöf:
1. Sveinn Gíslason, GR 68
2. Ásgeir Nikulásson, NK 70
Landsleikir í knattspyrnu:
Ísland-Ungverj aland
ísland og Ungverjaland eigast
við í Evrópukeppni landsliða í
dag og á morgun. I dag leika U-
21 árs liðin og A-landsliðin á
morgun kl. 20.
Þórsararnir Lárus Orri Sigurðs-
son og Ásmundur Arnarsson
halda báðir sæti sínu í U-21 árs
liðinu og leikurinn hefst kl. 20 í
Keflavík. A-landsliðin mætast á
Laugardalsvelli kl. 20.00 á morg-
un. Eftir jafntefli viö Rússa eru
strákarnir til alls líklegir ekki síst
ef tekið er mið af því að síðast
unnum við Ungyerja 2:1.
Knattspyrna:
Laughton væntanlega
löglegur á móti Fylki
Flest bendir til að Velsverjinn
Richard Laughton verði orðinn
löglegur með Þór á móti Fylki
nk. sunnudag. Hjá KSÍ fengust
þær upplýsingar að Þórsarar
hefðu skilað inn tilskildum
pappírum varðandi félagaskipti
fyrir tilskilinn tíma.
Mcð þcssu hafa Þórsarar viljaö
hafa vaðið fyrir neðan sig og
tryggja að Laughton geti spilað
með ef ákvörðun verður tekin um
að halda kappanum. Hvort hann
dvelur í herbúðum Akureyrarliðs-
ins til hausts kemur væntanlega
ekki í ljós fyrr en hann hefur leik-
ið með aðalliðinu.
Þýska knattspyrnan:
Leverkusen bikarmeistari
Síðasti lcikur þýsku knattspyrn-
unnar á þessu keppnistímabili fór
fram sl. laugardag þegar áhuga-
mannalið Hertha Berlin og Bayer
Leverkuscn mættust í úrslitum
bikarkeppninnar. Atvinnumenn-
irnir frá Leverkusen áttu í hinum
mestu erflóleikum með áhuga-
mennina sem voru dyggilega
studdir af 76.000 áhorfendum á
Olympíuleikvanginum í Berlín.
Þaó var ekki fyrr en á 77. mín. að
Ulf Kirstcn náði að skora fyrir Le-
verkusen. Fleiri urðu mörkin ekki
og sanngjarn sigur Leverkusen því
staðreynd. Þessi úrslit hafa það í
för með sér að Karlsruhe spilar í
Evrópukcppni félagsliöa í haust, í
stað Leverkusen sem fer í keppni
bikarhafa.
Ámi Hermannsson, Þýskalandj.
Andreas Thom og félagar hans í Le-
verkusen fdgnuðu þýska bikar-
meistaratitlinum um hclgina.
Knattspyrna, 2. deild kvenna:
Dalvík lagði Völsung
Á Iaugardaginn fór fram einn
leikur í Norðurlandsriðli 2.
deildar kvenna. Þar áttust við
Dalvík og Völsungar á heinia-
velli þeirra fyrrnefndu. Þetta
var fyrsti leikur beggja liða á
sumrinu og það voru Dalvíking-
ar sem stóðu uppi sem sigur-
vegarar, skoruðu eina mark
leiksins.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik og skiptust þau um
að sækja, án þess þó að hafa ár-
angur sem erfiði og staðan í leik-
hléi var 0:0. í þeim síðari komu
heimastúlkur mun grimmari til
leiks og stóttu þá lengstum hart
að marki Húsvíkinga. Sköpuðu
þær sér þó nokkur færi sem ekki
nýttust uns Áslaug Þorsteinsdóttir
náði að skora þegar um 20 mínút-
ur voru tfl leiksloka. Reyndist þaö
vera sigurmark leiksins.
Þórunn Sigurðardóttir þjálfari
Dalvíkinga kvaðst nokkuó ánægð
með lcik liðsins, ekki síst ef tckið
væri tillit til þess að hér væri um
fyrsta leik sumarsins að ræða.
3. Birgir Marinósson, GA 71
Úrslit án forgjafar:
1. Karl Hólm, GK 81
2. Siguróur Albertsson, GS 82
3. Skúli Ágústsson, GA 82
LEK mót:
50-54 ára m. forgj.:
1. Hreióar Gíslason, GA 68
2. Skúli Ágústsson, GA 74
3. Hörður Þorleifsson, GA 75
50-54 ára án forgj.:
1. Skúli Ágústsson, GA 79
2. Hreiðar Gíslason, GA 85
3. Gísli Bragi Hjartarson, GA 88
55 ára o.e., m. forgj.:
1. Knútur Bjömsson, GK 78
2. Þorbjöm Kjærbo, GS 79
3. Siguróur Albertsson, GS 80
55 ára o.e., án forgj.;
1. Ólafur Á Ólafsson, GR 68
2. Knútur Bjömsson, GK 70
3. Rúnar Guðmundsson, GR 71
Konur 50 ára o.e., m forgj:
1. Patricia Ann Jónsson, GA 74
2. Jónína Pálsdóttir, GA 76
3. Hulda Vilhjálmsdóttir, GA 78
Konur 50 ára o.e., án forgj.:
1. Jónína Pálsdóttir, GA 89
2. Patricia Ann Jónsson, GA 98
3. Hulda Vilhjálmsdóttir, GA 100
Eðvarð Þór Eðvarðsson, sundmaðurinn snjalli, var mcðal leiðbcinenda á
fyrsta námskciðinu á Sumarbúðum í Hamri, scm íþróttafclagið Þór stcnd-
ur fyrir. Annað námskcið hófst í gær og þá eru 3 eftir. Sem sjá má var mik-
ið fjör þegar Ijósmyndari Dags leit við í sundlaug Glcrárskóla sl. föstudag.
Mynd: Robin
Kvennahlaup á Akureyri
laugardaginn 19. júní 1993
Nú er verið að undirbúa
Kvennahlaup á Akureyri laug-
ardaginn 19. júní næstkomandi.
Eins og undanfarin ár fer
hlaupið fram í Kjarnaskógi og
hefst skráning kl. 13.30. Síðan
verður sameiginleg upphitun
með léttum æfingum undir
Ijúfri tónlist áður en lagt er af
stað. Eftir að hlaupinu lýkur
verður boðið upp á hressingu og
séð til þess að teygt sé á vöðvun-
um sem reynt var á, og loks er
slakað á. Þátttökugjald er kr.
500 og eru bolur, verðlaunapen-
ingur og hressing innifalin í því.
Kvennahlaup á vegum Iþrótta-
sambands Islands hefur undanfar-
in ár farið fram í tengslum við
kvennadaginn 19. júní. Það hefur
að markmiði að hvetja konur á
öllum aldri til íþróttaiðkunar og
hollra lífshátta, sem konur öðlast
með aukinni þátttöku í íþróttum
ásamt skemmtilegum félagsskap
og samveru.
Sýnt hefur verið fram á að fólki
líóur mun betur á sál og líkama ef
það hreyfir sig reglulega, og vel-
líðan eykst enn meira ef hreyfing-
in fer fram utan húss. Þess vegna
eru ærnar ástæður til þess að
leggja áherslu á holla hreyfingu
utan dyra fyrir konur á öllum
aldri, og þaö er aldrei of seint að
byrja.
Þátttakendur í hlaupinu á Akur-
eyri hafa hingað til verið á öllum
aldri, og þaö er rétt að hafa í huga
að Kvennahlaup er ekki einungis
fyrir konur sem hlaupa. Fullgild
þátttaka fæst einnig út á að ganga,
og miklu máli skiptir að hver kona
velji þá aðferð og þann hraóa sem
hentar henni best. Minnstu kon-
urnar geta setið á öxlunum á
mömmu, í vögnum eða kerrum og
látið mæðrum sínum crfiðið eftir.
Fyrirhugað er að fara einn hring
eftir trimmbrautinni, sem er rúm-
lega 2 km aó lengd, og einnig er
lcngri vcgalengd í boði fyrir þær
sem þess óska.
íslcnskar konur hafa haslað sér
aukinn völl í íþróttum á undan-
förnum árum, en alnrcnn þátttaka
kvenna í íþróttunr sér til ánægju
og heilsubótar á sér ekki langa
sögu. Það hefur komið í Ijós að
mjög hallar á konur innan íþrótta-
hrcyfingarinnar og í umfjöllun
fjölmiðla af íþróttum. Þcss vegna
stóð ISI í fyrra fyrir íþróttaviku
kvcnna á þessum tíma árs og ekki
stóó á árangrinum. Þá var
Kvennahlaup á 17 stöðum á land-
inu og mun flciri konur tóku þátt í
hlaupinu cn áður. í ár er þcss
vænst að enn verði aukning og að
hlaupið verði á sem allra flestum
stöðum. Samtökin „Iþróttir fyrir
alla“ sjá um skipulagningu og
yfirumsjón Kvennahlaupsins um
land allt.
Við scm crum í undirbúnings-
hópnum fyrir Kvcnnahlaup 1993 á
Akurcyri viljum cindregiö hvetja
allar konur, stórar og smáar til aó
vcra meó í ár. Þctta er fyrir allar
konur, ckki bara cinhverjar út-
valdar íþróttakonur. Það væri ekki
síst ánægjulcgt að sjá konur sem
ckki hafa komió áður, og svo þær
scm eru gestkomandi á Akurcyri
eða búsettar í nágrannasveitarfé-
lögunum koma og taka þátt í
þessu með okkur. Þetta er svo
ótrúlega gaman, bæói aó njóta
hreyfingarinnar og hreina loftsins,
og svo ekki síóur aó finna til sam-
kenndarinnar sem það gefur aó
njóta samvista við aðrar konur.
Það væri nú aldeilis frábært ef
tækist að gera Kvennahlaupió að
stærsta hlaupaviðburði ársins, eins
og stcfnt er að.
Fréttatilkynning
Markmið kvcnnahlaupsins er að hvetja konur á öllum aldri til íþróttaiðkun-
ar og hollra lífshátta, sem konur öðlast með aukinni þátttöku í íþróttum,
ásarnt skcmmtilegum fclagsskap og samveru. Ástæða er til að hvetja konur
til að fjölmenna í Kjarnaskóg nk. laugardag.