Dagur - 10.07.1993, Síða 17
Vinna - Leiga.
Gólfsögun, veggsögun, malbiks-
sögun, kjarnaborun, múrhamrar,
höggborvélar, loftpressur, vatns-
sugur, vatnsdælur, ryksugur, loft-
sugur, háþrýstidælur, haugsuga,
stíflulosanir, rafstöðvar, mini-grafa,
dráttarvél 4x4, pallaleiga, jarðvegs-
þjöppur, steypuhrærivélar, hefti-
byssur, pússikubbar, flísaskerar,
keðjusagir o.fl.
Ný símanúmer:
96-11172, 96-11162, 985-23762,
984-55062, simboði.
STÖÐVUM BÍLINN
ef við þurfum að
tala í farsímann!
K, mIumferðar n
Kaþólska kirkjan.
Eyrarlandsvegi 26.
Messa sunnudag kl. 11.
Hríseyjarkirkja:
Helgistund verður við Hríseyjar-
kirkju á sunnudaginn kl. 14.00.
Sóknarprestur.
Laufásprestakall.
Guðsþjónusta í Sval-
barðskirkju nk. sunnu-
dagskvöld 11. júlí kl.
21.00.
Sóknarprestur.
Akureyrarprestakall.
Messað verður í Akur-
eyrarkirkju nk. sunnudag
kl. 11.00.
Sálmar 444, 224, 48 og 529.
Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur
Örn Pétursson leika á trompet og
Antonia Hevesi á orgel.
B.S.
HVÍTASUMIUKIRKJAn wskamshlíð
Laugardagur 10. júlí kl. 20.30 sam-
koma fyrir ungt fólk.
Sunnudagur 11. júlí kl. 20.00
almenn samkoma. Ræðumaður
Mike Fitzerald, samskot tekin til
innanlandstrúboðs.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðisherinn.
Sunnudaginn 11. júlí kl.
> 19.30 bæn, kl. 20.00
almenn samkoma.
Gestir frá Noregi og Reykjavík taka
þátt.
Minningarkort minningarsjóðs
Jakobs Jakobssonar fást í Bókabúð
Jónasar og Bókvali.
Laugardagur 10. júlí 1993 - DAGUR - 17
Úr safiii Markúsar
ívarssonar
- sýning í Listasafni íslands
Laugardaginn 26. júní sl. var opn-
uð sýning á verkum úr safni
Markúsar Ivarssonar í sal 2 í
Listasafni Islands.
Markús Ivarsson járnsmiður
gerðist velgjörðarmaður íslenskra
listamanna, er hann hóf að kaupa
verk þeirra laust eftir 1920. Það
var þó á fjórða áratugnum sem
hann hóf iistaverkasöfnun sína
fyrir alvöru og lagði sig ekki síst
eftir að kaupa verk af ungum lista-
mönnum sem þá voru nýkomnir
heim frá námi erlendis. Var Mark-
ús frumkvöðull á þessu sviði og
stórmerkur sporgöngumaöur. Er
Markús lést árið 1943 voru um
200 verk í safni hans. Var stærstur
hluti þeirra sýndur á minningar-
sýningu um hann, sem Félag ís-
lenskra listamanna stóö að, í
Listamannaskálanum árið 1944.
Skömmu fyrir andlát sitt ákvað
Markús aö gefa Listasafni íslands
56 verk úr safni sínu og voru þau
sýnd í tveim sýningarsölum þess
er Listasafnið var opnað almenn-
ingi árið 1951. Árið 1966 bættist
við eitt verk í viðbót eftir Kjarval.
Frá því aó safn Markúsar ívars-
sonar var fært Listasafninu að gjöf
hefur það verió sýnt í sölum
safnsins meó vissu millibili. Að
þessu sinni hafa um þrjátíu verk
úr safni Markúsar Ivarssonar verið
valin til sýningar. Meðal þeirra
eru margar merkar myndir í eigu
safnsins: Islenskir listamenn við
skilningstréð frá 1918 eftir Jó-
hannes Kjarval, Frá Reykjavíkur-
höfn frá 1931 eftir Þorvald Skúla-
son, Gömul kona frá 1934 eftir
Gunnlaug Scheving, Hvít hús og
blár himinn frá 1941 eftir Snorra
Arinbjarnar. Auk þess prýðir hin
stóra mynd cftir Jón Stefánsson af
Markúsi sjálfum sýninguna.
Sýningin stendur til ágústloka
og er hún opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 12-18. Kaffi-
stofa safnsins er opin á sama tíma.
„Síldarævintýri á Siglufirði“ haldin um verslunarmannahelgina í þriðja sinn:
Undirbúnmgur kominn vel á veg
- segir Theódór Júlíusson, framkvæmdastjóri útihátíðarinnar
Eins og tvær undanfarnar versl-
unarmannahelgar, verður efnt
til fjölskylduhátíðar í anda síld-
arævintýrisins á Siglufírði undir
nafninu „Síldarævintýri á
Siglufirði“. Þessi fjölskylduhátíð
hefur átt síauknum vinsældum
að fagna og í fyrra var hún ein
, fjölmennasta. hátíðin á landinu
um þessa mestu ferðahelgi árs-
ins, en kunnugir giskuðu á að
um tíu þúsund manns hafí verið
á Siglufírði þegar mest var á
útihátíðinni. Undirbúningur er
þegar kominn í fullan gang og
hefur Theódór Júlíusson, leik-
ari, verið ráðinn framkvæmda-
stjóri eins og undanfarin ár.
Hann segir undirbúning ganga
vel og að Siglfirðingar verði
klárir í slaginn þann 29. júlí
næstkomandi.
Hátíóin hefst á fimmtudeginum
og stendur í fjóra daga og hefur
viðamikil og fjölbreytt dagskrá
verið sett saman, þar sem þunga-
miðjan er síldarsöltun á sérstöku
söltunarplani sem byggt var á síð-
asta ári og er ætlunin að gefa sem
gleggsta mynd og rifja upp
stemmninguna frá því á síldarár-
unum á Siglufirði. Þá er verið að
reisa skemmtipall í miðbænum,
þar sem ýmsir skemmtikraftar
koma fram á meðan á útihátíðinni
stendur. Theódór segir þaó ekki
nákvæmlega vitað hversu margir
hafi komið á síðasta ári, en það sé
talað um að það hafi verið um 10
þúsund manns í bænum á laugar-
deginum og það megi búast við
miklum fjölda í sumar einnig.
„Við fínnum það núna á öllum
viðbrögöum og þeim sem hafa
samband við okkur vegna gisting-
ar og ýmissa annarra hluta, aó
þessi hátíö er enn vel inn á landa-
kortinu."
Vegna þess mikla fjölda sem
sótti bæinn heim á síðasta Síldar-
ævintýri hefur verið ákveðiö að
taka landssvæði íþróttamióstöðv-
arinnar að Hóli undir tjaldsvæði
auk þess sem salernisaðstaða hef-
ur verið bætt til muna. Á Hóli
verður einnig þjónustumiðstöð
fyrir ferðamenn. Ekki er selt inn á
útihátíðina sem slíka, en meóan á
henni stendur verða boöin til sölu
sérstök merki, sem einnig er
minjagripur og er ætlunin meó
sölunni að fá eitthvað upp í kostn-
aó við hátíðina, auk þess sem
ágóðinn rennur til síldarminja-
safnsins.
Eins og áður sagði er dagskráin
fjölbreytt. Dansleikir veróa öll
kvöldin, annað hvort á Hótel Læk,
á síldarplaninu eða við skemmti-
pallinn í miðbænum. Þá verður
síldarsöltun, leiksýningar, listvið-
burðir af ýmsu tagi og margskon-
ar uppákomur fyrir unga sem
aldna. Samið hefur verið sérstakt
kynningarlag hátíðarinnar sem
samið er og flutt af hljómsveitinni
Miðaldamönnum, sérstaklega fyrir
Síldarævintýrið.
Theódór segir það kannski vera
það sem heilli mest við þessa úti-
hátíð og dragi að, að fólk geti
komið án þess að það sé mikil
spenna í kringum hátíðina. Ann-
ars staöar sé reynt að troða upp
með vinsælustu og bestu
skemmtikröftum og hljómsveitum
landsins á meðan þeir á Siglufirði
byggi á þeim listamönnum sem
bærinn hefur að geyma og það sé
mun rólegra yfirbragð yfir þessari
útihátíð en öðrum sem boðið sé
upp á. „Fólk vill komast í þægi-
legt umhverfi, auk þess sem þessi
útihátíð er haldin inní kaupstað
sem gerir hana að öðruvísi útihá-
tíð. Þá má ekki gleyma sjarman-
um vegna þeirra gömlu góðu
daga, sem margir áttu hér meðan
á síldarævintýrinu stóð og vilja
gjarnan reyna að upplifa og sýna
vinum og vandamönnum með því
að koma hingað.“
Theódór sagði að þeir sem
standa að útihátíðinni hefðu ekki
gert sér grein hversu stór þessi
viðburður myndi eiga eftir að
reynast. „Fyrir tveimur árum átti
þetta að vera bara fyrir Siglfirð-
inga, burtflutta Siglfirðinga og
einhverja þá sem hefóu gaman af
því að koma hér við. Þetta var jú
einnig gert til að koma Siglufirði
meira inná landakortið, því eins
og lega bæjarins er þá verða
ferðamenn að taka á sig töluverð-
an krók til að komast hingað. Hins
vegar gátum vió aldrei látið okk-
ur dreyma um að fjöldinn yrði
eins og í fyrra.“ PS
Sumarbridds:
Haukur og
Hörður sigruðu
Metþátttaka var í síðasta sum-
arbridds Bridgefélags Akureyr-
ar. Átján pör mættu til leiks og
var spilað í tveimur riðlum. Úr-
slit urðu á þennan veg:
N/S
1. Haukur Harðarson-
Höróur Jóhannesson 2-3. Kolbrún Guóveigsdóttir- 279
Hjalti Bergmann 242
2-3. Jón-Helgi 242
4. Una Sveinsdóttir-Jónína Pálsdóttir 221 A/V 1. Skúli Skúlason- Sigurbjöm Þorgeirsson 252 2. Gissur Jónasson-
Ragnhildur Gunnarsdóttir 243
3. Sveinn Pálsson-Páll Jónsson 4. Anton Haraldsson- 241
Sigurbjörn Haraldsson 238
Næsti sumarbridds veröur spilaður
nk. þriðjudag kl. 19.30 íHamri.
Frá Síldarævintýri á Sigluflrði 1991. Aðstandcndur hátíðarinnar segja að-
sóknina þau tvö ár sem hún hefur verið haldin hafa farið fram úr björtustu
vonum.
Frá síldarárunum á Siglufirði. Þetta er stcmmningin sem Siglfirðingar
reyna að endurvckja og þúsundir manna strcyma að til að minnast.
Til sölu
Fiskveiðasjóður íslands auglýsir til sölu fast-
eignina Hafnarbraut 1 í Njarðvík ásamt tilheyr-
andi búnaði til meltuframleiðslu (áður eign Val-
fóðurs hf.)
Tilboð í eignina óskast send á skrifstofu sjóðsins fyr-
ir 28. júlí nk. merkt „Hafnarbraut 1“.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sjóðsins,
Suðurlandsbraut 4, Reykjavík í síma 679100 og hjá
Valdimar Einarssyni í síma 33954 eða 985-23355.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
FISKVEIÐASJÓÐUR ÍSLANDS.
Eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
SKARPHÉÐINN AÐALSTEINSSON,
Gilsá II, Eyjafjarðarsveit,
verður jarðsunginn frá Saurbæjarkirkju miðvikudaginn 14. júlf
kl. 13.30.
Anna Margrét Jóhannesdóttir,
Björn Garðarsson, Ágústa Sverrisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.