Dagur - 21.07.1993, Side 2

Dagur - 21.07.1993, Side 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 21. júlí 1993 Fréttir Fiskveiðiárinu lýkur hinn 31. ágúst nk.: Iitið feflur niður en tölu- vert af kvóta flyst mifli ára - nýtt fiskveiðiár hefst 1. september Lítið virðist vera um að fisk- veiðiheimildir útgerðarmanna falli niður enda er lögum sam- kvæmt heimilt að flytja allt að 20% þess kvóta, sem ekki er nýttur, á milli fiskveiðiára en nýtt fiskveiðiár hefst 1. septem- ber ár hvert. „Vió reiknum ekki með að fiskveiðiheimildirnar klárist held- ur að þær færist á milli fiskveiói- tímabila og þá aðallega þorskur, sem hefur veiðst voóalega lítið af,“ sagói Valdimar Bragason, út- geróarstjóri Utgerðarfélags Dal- víkinga, í samtali við Dag. „Það er nú eftir einn og hálfur mánuður. Þetta er svolítió mis- jafnt eftir tegundum; við erum komnir umfram í grálúðu og vió reiknum með að þaó verði ein- hver geymsla á öðrum tegundum,“ sagði Valdimar. „Heimilt er að flytja allt að 20% af aflamarki hverrar botn- fisktegundar og aflamarki úthafs- rækju frá einu fiskveióiári yfir á það næsta,“ segir í lögum um stjóm fiskveiða. „Hvað það verður mikió - hvort það eru tvö eóa þrjú hundr- uð tonn - það veit maður ekki fyrr en nálgast 1. september," sagöi Valdimar um þorskkvóta sem geymist milli ára hjá Utgerðarfé- lagi Dalvíkinga. „Ég reikna ekki meó að neitt af þessu falli niður,“ sagði Valdimar en sá kvóti sem er umfram 20% fellur nióur í lok ágúst. Fiskveiðiheimildir Útgerðarfé- lags Dalvikinga á þessu ári nema 3800 tonnum í þorskígildum talið HKTt ÞAKULL Stórt stökk í steinull Steinullarplötur með áfastri vindvörn ► ÞAKULL: ® Úrvals hitaeinangrun • Frábær hljödeinangrun ® Ein besta brunavörnin • Audveldari uppsetning ® Minna ryk • Allt að 30% sparnaður Húá 90% hynningarafslxtti BYGGINGAVORUR LONSBAKKA • 601 AKUREYRI S 96-30325 & 96-30323 en tæplega 4800 tonnum af bol- fiski. Að sögn Kristjáns Asgeirsson- ar, forstjóra hjá Höfða og Ishafi, fer mjög nærri að kvóti þessa fisk- veióiárs klárist hjá þeim útgerð- um. „Ja, maður sér það ekki al- veg; þetta er svo fljótt að breyt- ast,“ sagði Kristján. „Okkur er nú alveg sama þótt eitthvaö verði nú eftir því það skerðist svo mikið,“ sagði Kristján um þorskkvóta þessa fiskveiöiárs enda væri ágætt að geyma ein hundrað tonn til að bæta upp mikla skerðingu fiskveiðiheim- ilda fyrir næsta fiskveiðiár. Kristján sagði aó þar sem Höfði og Ishaf væru með þrjú skip á rækjuveiðum væri ágætt að skipta á rækjukvóta og kvóta fyrir öðrum tegundum. „Mér sýnist þetta ætla að ganga, sem betur fer,“ sagði Kristján um útlitið í lok fiskveiói- árs. GT Sigurður Finnsson á nýja staðnum opnaður í gær. Kolagrillinu í Strandgötu - sem var Mynd: Pjctur. KolagriMð opnað Skyndibitastaðurinn Kolagrillið, að Strandgötu 37, var opnaður síðdegis í gær og verður framveg- is opinn alla daga frá l i :00-22:00 enda er starfsleyfið bundið því skilyrði. Sýslumaóurinn á Akur- eyri veitti leyfi til starfseminnar í hádeginu í gær og er það veitt til fjögurra ára til að byrja meö. „Við bjóðum fólk velkomið,“ sagói Sigurður Finnsson, eigandi Kola- grillsins, í samtali vió Dag. „Við erum með allt eldað á kolum - nema náttúrlega djúpsteiktan fisk,“ sagði Sigurður og nefndi sem dæmi nautakjöt, steikur og hamborgara. „Það veitir rosaleg gæði aó elda matinn á kolum eins og fólk veit sem grillar heima. Svo höfum við gæðin á hráefninu sem best.“ GT Sjávarútvegsráðuneytið: Hólf lokuð til þess að vemda smáfiskinn Sjávarútvegsráðuneytið gaf í gær út reglugerðir er ætlað er að miða að því að minnka hlut- fall smáfisks í afla fiskiskipa. í tilkynningu frá sjávarútvegs- ráðuneytinu kemur fram að á yfirstandandi fiskveióiári hafi mikið borið á smáfiski í afla. Þannig hafi frá upphafi þessa fiskveiðiárs 108 sinnum komið til skyndilokana af þessum sökum. I tilkynningu ráðuneytisins seg- ir m.a.: „Enda þótt mörg þeirra svæða sem nú eru friðuð hafi áður verið lokuð fyrir veiðum stækkar nokkuð flatarmál svæða þar sem veiðar eru bannaðar við þessa að- gerð. Engu að síður er Ijóst að ut- an friðunarsvæðanna eru veiði- svæði þar sem oft hefur þurft að grípa til skyndilokana á liönum árum. Því verður áfram að fylgjast vel með hlutfalli smáfisks í afla og taka ákvarðanir um lok- anir gefist tilefni til.“ Meðal svæða sem sjávarút- vegsráðuneytið hefur ákveðið að loka eru svæði á Sporðagrunni, norður af Haganesvík, svæði fyrir Noróausturlandi og svæði á Langanesgrunni. Fram kemur í tilkynningu sjáv- arútvegsráðuneytisins að þessar svæðalokanir beinist einkum aó verndun smáþorsks. Því séu t.d. rækju-, humar-, síld- og loðnu- veiðar meó flotvörpu heimilar á áóurgreindum bannsvæðum. Þá tekur ráðuneytið fram að með þessum reglugerðum sé ekki hróflað við reglugerðum um bann við rækjuveiöum á svæðum fyrir Norðurlandi. I lok tilkynningar sjávarútvegs- ráðuneytsins segir: „Að þessu sinni voru ekki teknar ákvarðanir um lokanir veiðisvæða á grunn- slóð enda hefur komið í ljós aó aflasamsetning einstakra hand- færabáta sem stunda veiðar á svipuðum slóóum er mjög mis- jöfn. Virðist sem sumir útgerðar- menn sæki meira í smáfisk en aðrir eða hirði ekki um að sleppa Iífvænlegum smáfiski í hafið í samræmi vió gildandi reglur. Mun eftirliti því á næstunni fyrst og fremst veróa beint að þessum að- ilum og gripið til Ieyfissviptinga verði ekki breyting á. Jafnframt verður áfram unnið að því að kanna hvort unnt sé að afmarka til lokunar svæði á grunnslóð þar sem smáfiskur heldur sig á.“ óþh Sameining hreppa í Vestur-Húnavatnssýslu: íbúaflöldi yrði nálægt 400 manns Eins og fram hefur komið kjósa íbúar í þremur hreppum í V- Hún., Staðarhreppi og Fremri- og Ytri Torfustaðahreppum, um sameiningu þessara hreppa þann 28. júlí n.k. Alls eru íbúar þessara hreppa um 390 talsins, sem m.a. þýðir aukið framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Menn telja einnig að stærri ein- ing verði skilvirkari. Eggert Pálsson, oddviti Fremri- Torfustaóahrepps, sagói í samtali við blaðið að hann telji að stærri eining verói skilvirkari. Hann sagði jafnframt að slík eining fái meira úr Jöfnunarsjóöi. „Það sýn- ist sitt hverjum sem betur fer. Það kemur svo í ljós á miðvikudaginn hvað gerist“, sagði Eggert. Hann segir hreppinn standa þokkalega fjárhagslega, skuldir vegna bygg- ingar íþróttahúss að Laugarbakka og vegna jarðakaupa eru að vísu nokkrar. I Fremri-Torfustaða- hreppi búa rúmlcga 70 manns og eru 42 á kjörskrá. I Staðarhreppi eru um 110 íbú- ar og á kjörskrá eru 75. Hreppur- inn stendur vel fjárhagslega og skuldar lítió, að sögn Þórarins Þorvaldssonar, oddvita. Hann tel- ur hreppana heldur litla til að ráða við þau verkefni sem ríkió úthlut- ar sveitarfélögunum. „Það má auóvitaó segja aó stærri eining geti frekar valdió því að fara út í t.d. atvinnuskapandi verkefni,“ sagði Þórarinn, en lagói þó á það áherslu aö í þessu máli eigi vilji íbúanna aö fá að koma fram og kvaðst ekki vilja vera með neinn kosningaáróður. í Staðarhreppi búa 209 manns og eru nálægt í 40 manns á kjör- skrá. Ekki náðist í sveitarstjóra eða oddvita hreppsins til að ræða málefni hreppsins nánar. sþ Hvammstangi: Skemmdir unnar á löggubíl Helgin var róleg að sögn lög- reglu á Blönduósi. Þó voru ein- hverjir óprúttnir náungar sem ekki gátu séð bíl lögreglunnar í friði og unnu á honum skennnd- ir um miðja nótt. Enginn söku- dólgur hefur fundist enn. Atburðurinn átti sér staó að- faranótt laugardags á Hvamms- tanga. Stolið var tveimur hjól- koppum og hleypt úr tveimur dekkjum á lögreglubíl sem lagt var við hús lögreglumannsins. Engar upplýsingar liggja fyrir um hver var þar að verki, aö sögn lög- reglu. Að öðru leyti var helgin tíð- indalítil að sögn. sþ

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.