Dagur - 21.07.1993, Qupperneq 11
Miðvikudagur 21. júlí 1993 - DAGUR - 11
tr
IÞRÓTTIR Halldór Arinbjarnarson
Frjálsar, íslandsmeistaramót 18 ára og yngri á Dalvík:
Stærsta mót sumarsins
Um næstu helgi verður haldið
á Dalvík íslandsmeistaramót
18 ára og yngri í frjálsum
íþróttum. Það er UMSE sem
heldur mótið á félagssvæði
UMF Svarfdæla og hér er um
að ræða stærsta frjálsíþrótta-
mót sumarsins. Keppendur
eru 645 en með starfsfólki og
fararstjórum munu um 900
manns koma að mótshaldinu
með einum eða öðrum hætti.
Þátttakendur koma víða að,
frá 20 félögum og héraðssam-
böndum. Margt starfsfólk verður
á mótinu en um 100 starfsmenn
verða á vellinum meðan á
keppni stendur.
Það er ekki ofsögum sagt að
frjálsíþróttafólk muni leggja
Dalvík undir sig um helgina.
Flestir keppendur gista í skólum
bæjarins, búist er við að tjald-
svæðin verði þétt skipuð og
mötuneyti verður í Víkurröst, en
mótið er haldið í góðri samvinnu
við Dalvíkurbæ og Víkurröst.
Undirbúningur hefur staðið af
krafti sl. 3 mánuði en meistara-
mótsnefndina skipa: Þuríður
Arnadóttir, fyrrum formaður
UMSE, Bjarnveig Ingvadóttir,
formaður frjálsíþróttanefndar, og
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, vara-
formaður UMSE. Undirbúning-
ur er nú á lokastigi en keppni
hefst kl. 10.00 á laugardag.
Henni verður síðan fram haldið
daginn eftir og mótslok eru áætl-
uð um kl. 18.00 á sunnudag.
Sandspyrna:
íslandsmetin fuku á Króknum
Um síðustu helgi fór fram á
Sauðárkróki sandspyrnu-
keppni. Mótið var 2. í röðinni af
5 sem gildir til íslandsmeistara-
titils í greininni og var haldið af
Bílaklúbb Skagafjarðar og
Kvartmíluklúbbnum. Góður ár-
angur náðist og alls voru 6 Is-
landsmet sett.
Keppendur á mótinu voru 24
talsins. I opnum flokki sigraði
Finnur Aðalbjörnsson en hann
keppt á vélsleða. Siguróur Olafs-
son sigraói í jeppaflokki og setti
nýtt íslandsmet, 7,529 sek. Páll
Sigurjónsson setti Islandsmet í
fólksbílaflokki og sigraói þar með
bestan tíma 7,627. I kross-
hjólaflokki sigraði Jón Kr. Jacobs-
sen og setti Islandsmet, 5,114. Það
sama gerói Ingólfur Jónsson í vél-
hjólaflokki á tímanum 4,445.
Hafliði Guðjónsson vann flokk
sérsmíðaðra bíla á tímanum
4,067sem var enn eitt Islandsmet-
ið og síðasta Islandsmetið leit
dagsins ljós í flokki sérútbúinna
bíla, þar sem Garðar Bragason
náði bestum tíma 4,714. Þar sigr-
aði hins vegar Einar Birgisson.
Þriója keppnin sem gildir til Is-
landsmeistaratitils fer fram á veg-
um Bílaklúbbs Akureyrar 22.
ágúst nk.
Knattspyrna:
Dóri ekki meira með
- úr leik í a.m.k. 8 mánuði
Halldór Áskelsson, einn af
burðarásum knattspyrnuliðs
Þórs undanfarin ár, er endan-
lega úr leik á þessu keppnis-
tímabili. Hann hefur átt við
þrálát meiðsl að stríða í sumar
og lítið sem ekkert getað leikið.
Sl. föstudagskvöld sleit hann
síðan hásin í hægri fæti en há-
sinin hefur verið að angra hann
í allt surnar.
Halldór sagði vægt til orða tek-
ið aó þetta væri búió að vera erfitt
tímabil. „Auðvitaó kemst allt upp
í vana en þctta hefur verið mjög
Æfingar eru nú að hefjast hjá
yngri flokkunt KA í handbolta.
Þær cru sameiginlegar hjá 3. og
4. flokki, kl. 17.00 á mánudögum
og fimmtudögum. Æfingar 5.
Halldór Áskelsson.
flokks eru einnig á mánudögum
og fimmtudögum en kl. 15.45. í
6. flokki er æft einu sinni í viku, á
mánudögum kl. 14.30-15.30.
erfitt, ekki síst andlega, því ég hef
verið viðloöandi allar æfingar en
lítið getað gert. Vanalega getur
maður fengið útrás inn á vellin-
um.“ Halldór fór í aðgerð sl.
laugardag og verður í gifsi næstu
8 vikurnar a.m.k. og frá æfingum
í 8 mánuði. Það er því ljóst að
næstu mánuðir verða erfiðir.
En ætlar Halldór Áskelsson að
byrja aftur?
„Eg spurði læknana mjög
vandlega hvort ég væri nokkuð
búinn að vera og þeir voru alls
ekki neikvæðir, ekki síst af því að
allt annað er í góóu lagi. En það
er í fyrsta lagi í mars og þá verður
ntaöur aó byrja rólega.“ Vonandi
fá áhorfendur aö sjá Halldór inni
á vellinum næsta sumar því skarð
hans í Þórsliðinu er vandfyllt. En
það sem eftir er sumars er ljóst að
stúkan verður samastaóur Hall-
dórs Áskelssonar á knattspyrnu-
leikjum.
Handbolti, KA:
Æfingar að hefjast
Pétur Björn Jónsson skoraði tvívegis gegn Keflvíkingum cn það dugði ekki
tit og þátttöku Lcifturs í Mjólkurbikarnum cr lokið að þcssu sinni.
Mynd: llalldór
Knattspyrna, Mjólkurbikarinn:
Leiftur úr leik
- mátti sætta sig við tap fyrir ÍBK
Leiftursmenn eru úr leik í
Mjólkurbikarnum eftir tap fyr-
ir ÍBK á mánudagskvöldið.
Óhætt er að segja að menn séu
ekki sáttir við frammistöðu
dómara leiksins sem brást á
mikilvægum augnablikum og
kom það ntjög niður á Leifturs-
mönnum. Þó ekki sé hægt að
segja að sigur ÍBK hafi verið
ósanngjarn miðað við gang
leiksins er vissulega sárt fyrir
Ólafsfírðinga að fá á sig a.m.k.
eitt ólöglegt mark og láta dæma
af sér annað sem var fullkom-
lega löglegt.
Leiftur var betri aðilinn í fyrri
hálfleik og strax á 4. mínútu skor-
aði Pétur Björn Jónsson eftir fyrir-
gjöf Gunnars Más Mássonar. Pét-
ur Björn var aftur á ferð skömmu
síðar og skoraði nú cl'tir sendingu
frá Mark Duffield. Á síðustu inín-
útu hálfleiksins minnkaði síðan
Marko Tanasic muninn með
skallamarki eftir aukaspyrnu.
IBK var mun betri aðilinn í síð-
ari hálfleik. Leiftursmenn gáfu
eftir miðjuna og Keflvíkingar
gengu á lagið. Tvívegis á upphafs-
mínútunum varð Þorvaldur Jóns-
son markvörður Leifturs að taka á
honum stóra sínum og á 63. mín-
útu jafnaði Kjartan Einarsson
leikinn eftir að Marko Tanasic
hafói lagt boltann fyrir hann með
hendinni. Skömmu síðar var
dæmd vítaspyrna á Leiftur og úr
henni skoraði Óli Þór Magnús-
son.
Staðan var nú orðin 3:2 fyrir
IBK og nauðsynlegt fyrir Leiftur
að sækja. Það geróu þeir líka og
Gunnar Már skoraði mark sem að
flestra mati var fullkomlega lög-
legt cn dómarinn dæmdi markið
af. Raunar var nokkuð greinilega
brotiö á Gunnari innan vítateigs
þegar hann skoraói markið. Undir
lokin innsiglaði síóan Gunnar
Oddsson sigur IBK og lokatölur
því 4:2. HA/VR
Undanúrslit Mjólkur-
bikarsins og bikar-
keppni 2. flokks
í gær var dregið í undanúrslitum
Mjólkurbikarkeppninnar í knatt-
spyrnu og bikarkeppni 2. flokks
karla. I Mjólkurbikarnum heim-
sækja Skagamenn KR og Kellvík-
ingar Val. Leikirnir verða 5. ág-
úst. KA fékk heimaleik á móti
Val í bikarkeppni 2. flokks en Þór
þarf að heimsækja Framara. Þeir
leikir halá verió settir á 14. ágúst
kl. 14.00.
Knattspyrna kvenna:
KA með sill'ur á Gull og silfurmótimi
Gull og silfurmótið í knatt-
spyrnu fór fram um síðustu
helgi. Mótið er fyrir 2.-5. flokk
kvenna og haldið af Breiða-
bliki í Kópavogi. Þetta var 9.
Gull og silfurmótið og var al-
menn ánægja með alla fram-
kvæmd þess auk þess sem veðr-
ið lék við keppendur. KA sendi
2 lið til keppni í 3. flokki og
vann A-liðið til silfurveðlauna.
B-Iið KA varð í 5. sæti og
Tindastóll, sem átti lið í 2.
flokki náði í brons.
A-lið KA í 3. fiokki tapaói að-
eins einum leik og gerði jafntefli
við Val sem varð meistari. Liðið
vann KR 5:3, Stjörnuna 6:0, Tý
3:1, Þór V 3:0, Grindavík 2:1,
gerói 0:0 jafntefli við Val og tap-
aði 2:6 fyrir UBK. Liðið hafnaði
því í 2. sæti sem er ffábær árang-
ur. Markaskorarar voru: María
Benediktsdóttir 6, Sólveig Rósa
Sigurðardóttir 5, Rósa M. Sig-
bjömsdóttir 4, Eva Moraies 3,
Rannveig Jóhannsdóttir 2 og
Helga María Hermannsdóttir 1.
Hjá B-liði KA uróu úrslit eft-
irfarandi: KA-UBK2 1:5, KA-
UMFG 1:0, KA-Valur 3:0, KA-
UBKl 0:6, KA- KR 1:2, KA-ÍA
0:2. Mörkin skoruðu: Stefanía
Steinarsdóttir 2, Sandra Sig-
mundsdóttir 2, Ásdís Lilja Guð-
mundsdóttir 1 og Hanna Lára
Ásgeirsdóttir 1. Aó sögn Ein-
varós Jóhannssonar, annars af
fararstjórum stclpnanna, voru
þær óheppnar að vinna ekki 2
leiki til viðbótar en 5. sætið cr
samt mjög góöur árangur.
Eins og venja er á slíkum mót-
um voru valin tvö lió, prcssulið
og landslið, scm léku sýningar-
lcik í mótslok. í þcssi lió voru
valdar þrjár KA-stelpur, Rósa
M. Sigbjömsdóttir, Rannveig Jó-
hannsdóttir og María Benedikts-
dóttir, sem skoraði annað af
mörkum landsliðsins í 2:1 sigri á
prcssuliðinu.
Pétur Oskarsson þjálfar stelp-
umar hjá KA og aó hans sögn er
áhuginn hjá þeim mikill og æf-
ingasókn góð. Það scm helst
skortir er meiri áhugi hjá yngri
stelpunum þannig að hægt sé aó
byggja upp sterka 4. og 5. flokka.
Foreldarar voru duglegir aó fara
með stelpunum og aðstoóa en
fararstjórar voru Einvarður Jó-
hannsson og Arndís Ólafsdóttir.
Tindastóll scndi 2. flokk til
keppni. Stelpurnar höfnuðu í 3.
sæti, unnu Ægi í úrslitum en töp-
uðu fyrir UBK og Stjömunni.
24. júlí
Skráning í síma 2721B
milii kl. 20.00-22.00
19.-22. júlí