Dagur - 29.07.1993, Síða 1
76. árg. Akureyri, fimmtudagur 29. júlí 1993 141. tölubiað
á/rs
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
:
Sauðárkrókur:
Hafnarframkvæmdir
dýrari en æflað var
- þó undir kostnaðaráætlun
Framkvæmdum við höfnina á
Sauðárkróki miðar vel. Verið er
að reka niður 160 m langt stál-
þil við Syðraplan sem svo er
nefnt. Akveðið var að reka stál-
þilið dýpra en ætlað var í upp-
hafi og verður af því nokkur
viðbótarkostnaður. Heildar-
kostnaður er þó áfram langt
undir kostnaðaráætlun, að sögn
Snorra Björns Sigurðssonar,
bæjarstjóra.
Það er Hagvirki-Klettur sem
sér um framkvæmdirnar við höfn-
ina. Tilboð þeirra var 11 millj. kr.
undir kostnaðaráætlun, en hún
hljóðar upp á tæpar 39 milljónir.
Þilið átti að reka niður á 7 m dýpi,
en ákveóið var að fara með þaö
0,5 m dýpra, þ.e. á 7,5 m dýpi.
Ofan á þilið er steyptur kantur og
verður hann hækkaður um það
sem dýpkuninni nemur. Þetta þýð-
ir einhvern viðbótarkostnaó en
verktakinn gcrði í það hagstætt til-
boð að sögn Snorra Björns og
verður kostnaður því áfrarn vel
undir kostnaðaráætlun. Hann
sagói að það hefði alltaf verið inni
í myndinni að fara dýpra ef vel
gengi að reka þilið niður.
Sólin ekki á
leið norður
Því miður virðist sólarspá veð-
urfræðinga fyrir verslunar-
mannahelgina ekki ætla að ræt-
ast. Norðlendingar verða því að
sætta sig við það að sólgleraug-
un rykfalli uppi á hillu.
Samkvæmt upplýsingum veð-
urfræðings á spádeild Veðurstofu
Islands veróur væntanlega skúra-
veður á föstudaginn og norðanátt.
A laugardag og sunnudag verður
að öllum líkindum þurrt en norð-
an- og norðaustanátt ál'ram.
„Eins og staðan er núna virðist
sólskinið ekki vera á leið til ykk-
ar,“ sagði veðurfræðingurinn.
Norðlendingar verða því annað
hvort að sætta sig við spána eða
að vona að hún rætist ekki eins og
svo títt er um vcóurspár. KR
Þaó eina sem gæti sett strik í
reikninginn er harður 2 m kafli og
þar gæti reynst erfitt að reka þiliö
niður um þessa viðbótardýpt. Ef
ekki verður þilið að vera á 7 m
dýpi eins og upphaflega var áætl-
að, en það myndi kosta einhver
viðbótar peningaútlát. „Við teljum
það fullkomlega þess virði að
reyna þetta, við teljum það miklar
líkur á að það takist“, sagði Snorri
Björn. Hann sagói ástæðuna fyrir
dýpkuninni þá að hægt sé að kom-
ast að með skip sem rista dýpra.
sþ
Spáð í veðrið.
Mynd: Pjelur.
Lokatillögur nefndar um flutning ríkisstofnana:
Byggðastofnun, Veiðimálastofnun
og Skipulag ríkisins norður!
- en RARIK til Egilsstaða
Nefnd sem forsætisráðherra
skipaði til að gera tillögur um
flutning ríkisstofnana hefur lok-
ið störfum. Lagt er til að höfuð-
stöðvar sjö stofnana verði flutt-
ar út á land - Byggðastofnun og
Veiðimálastofnun til Akureyr-
ar, Skipulag ríkisins á Sauðár-
krók en Rafmagnsveitur ríkis-
ins (RARIK) til Egilsstaða.
Nefndin skilaði skýrslu til for-
sætisráðherra í gær og sagði hann
þá aó tillögurnar yrðu lagðar fyrir
ríkisstjórn, síðan kynntar þing-
flokkum og þá kæmi til kasta Al-
þingis.
Nefndarmenn hafa allir setið á
þingi en voru ekki tilnefndir af
þingflokkum. Þ. á m. voru tveir
þingmenn Norðurlandskjördæmis
eystra, Tómas Ingi Olrich (S) og
Valgerður Sverrisdóttir (F).
I samtali við Dag lýsti Valgerð-
ur sig sammála forsætisráðherra
um aó hér væru gerðar bein-
skeyttari tillögur en þegar sam-
bærileg nefnd lauk störfum árið
1975.
Engimýri - Bakkasel:
Nýr vegarkafli opnaður
- samgönguráðherra fer fyrstu ferð
I dag kl. 16.00 verður nýr veg-
arkaflj frá Engimýri að Bakka-
seli í Öxnadal, formlega opnað-
ur fyrir umferð. I»að er Halldór
Blöndal, landbúnaðar- og
samgönguráðherra, sem mun
fyrstur aka þessa leið og opna
veginn formlega.
Þessi nýi vegarkafli er 11,5 km
iangur og er lagður bundnu slit-
lagi. Vcrktaki við byggingu vegar-
ins og lagningu klæðingar var
Klæðning hf. í Garðabæ en verk-
taki vió útlögn svokallaðrar bik-
festu, var Festun hf. í Garðabæ.
Samkvæmt útboðsgögnum átti
verktaki að ljúka byggingu vegar-
ins 1. ágúst en hann lauk henni aó
mestu á síðastliðnu ári.
Fyrir skömmu kom fram í Degi
að hestamenn hefóu stórskemmt
þennan vegarkafla er þeir ráku
hross yfir hann og aó viðgerðar-
kostnaður vegna þessa hafi verið
á þriðju milljón króna. Nú er veg-
arkaflinn hins vegar tilbúinn til
notkunar og um leið batna
samgöngur á þessari Ieió til mik-
illa muna. KK
Valgerður sagði tillögurnar nú
raunhæfari. „Það sem við höfðum
í huga í sambandi við Akureyri
var llutningur cinhverrar vísinda-
stofnunar vegna háskólans,"
sagði hún um mögulegan flutning
Veiðimálastofnunar - auk
Byggðastofnunar - til Akureyrar.
Valgerður sagói að auðvelt
hefói verið að leggja til flutning
fleiri stofnana til Akureyrar sem
byði upp á margt enda væru óskir
starfsfólks stofnana mikilvægur
þáttur í slíkum flutningi - starfs-
fólk hefði ekki alls staóar brenn-
andi áhuga á flutningi vinnustaða.
„En það er varla hægt aö gera það
að aðalatriði málsins."
Meðal annarra tillagna er sú að
sett vcrði á laggirnar Skráningar-
stofnun ríkisins, sem hall höfuð-
stöðvar á Isafirði, cn auk þess að
Landhelgisgæzlan verði llutt til
Kellavíkur, Landmælingar Islands
til Selfoss og Vegageró ríkisins í
Borgarnes.
Auk llutnings höfuðstöðva og
útibúa er lögð til cfling miðstöðv-
ar rannsóknar- og fræðslustarf-
scmi á sviði sjávarútvegs við Há-
skólann á Akureyri með flutningi
verkcfna og nýjum viðfangscfn-
um.
„Þctta kont svolítið aftan að
okkur,“ sagói Valgerður unt hug-
myndir fyrrverandi iðnaóarráð-
herra um llutning RARIK til Ak-
ureyrar enda hcfði ncfndin litið
heildstætt á málið. „Þá hugsum
við fyrst og fremst um Akurcyri
sem skólabæ scm býður upp á svo
margt sem aðrir staðir gera ekki.
Það verður að velja stofnun m.t.t.
þess - en þaó cr ckki þar mcó sagt
að maður sé á móti því að RA-
RIK fari til Akurcyrar,“ sagöi
Valgerður. GT
Álagning opinberra gjalda 1992:
400 milljóna hækkun á einstaklinga
Fjármálaráðuneytið hefur lokið
við álagningu opinberra gjalda
vegna ársins 1992 og ákvörðun
bóta sem byggjast á framtali
fyrir það ár. Alagning á ein-
staklinga nemur 44,8 milljörð-
um króna og hefur sú tala
hækkað um 400 milljónir milli
ára. Skattatengdar bætur nema
7,4 milljörðum og hafa hækkað
um 260 milljónir króna frá í
fyrra.
Tekjuskattar voru lagðir á tæp-
lega 97 þús. einstaklinga eóa um
51% allra skattskyldra Islendinga.
Afdregin staðgreiðsla tekjuskatts á
árinu 1992 var 36 milljarðar
króna og þar af gengu 33,5 millj-
arðar upp í álagningu tekjuskatts
og útsvars, en afgangurinn, 2,5
milljarðar króna, berast hlutað-
eigandi á morgun. Ogreiddir
tekjuskattar nema sjö milljörðum
króna.
Eignarskattar einstaklinga voru
1,8 milljarður króna og er þar um
að ræða 4,5% hækkun milli ára,
þaraf eru 160 milljónir króna sér-
stakur cignarskattur sem rcnnur
til byggingar Þjóðarbókhlöðu o.fl.
Barnabætur og barnabótaauki
voru alls um 4,3 milljarðar króna
og hafa hækkað um 1% milli ára.
Vaxtabætur voru 2,5 milljarðar og
hækkuðu um tæpar 300 milljónir
króna. Húsnæðisbætur lækkuðu
hinsvegar urn 65 milljónir í um
550 milljónir króna. SBG
Bæjarráð Akureyrar:
Málefiii skimiaiðnaðarins
fyrir fund í dag
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar
hefur lokið skýrslu sem bæjar-
ráð Akureyrar fól því að gera
varðandi enduruppbyggingu
skinnaiðnaðarins á Akureyri
eftir gjaldþrot íslensks skinna-
iðnaðar hf. fyrr í sumar.
Skýrslan verður væntanlega
rædd í bæjarráði Akureyrar í
dag.
Eins og fram hefur komið hefur
ríkisvaldið lýst yfir vilja til að
styðja við bakið á endurreisn
skinnaiðnaðarins á Norðurlandi,
þ.e. endurrcisn eftir gjaldþrotiö á
Akurcyri og cndurskipulagningu á
rekstri Loóskinns hf. á Sauðár-
króki. Skilyrði fyrir slíkri aðstoð
var sú að fyrirtækin sýni fram á
rekstrargrundvöll. Ætlunin var að
um síðustu helgi yrði ljóst mcð
hvaða hætti aðstoð kæmi frá rík-
isvaldinu en nú er búist við að lín-
ur skýrist í þeim efnum nú um
helgina í kjölfar þeirrar undirbún-
ingsvinnu sem staðið hefur síó-
ustu daga varðandi fyrirtækin á
Akureyri og Sauðárkróki. JOH