Dagur - 29.07.1993, Blaðsíða 3

Dagur - 29.07.1993, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 29. júlí 1993 - DAGUR - 3 Fréttir Tívolí frá tvö til tólf á Akureyri: Aðaltækin með í fór - segir Jörundur Guðmundsson Eitt af því sem Eyfirðingar og þeirra gestir geta skemmt sér við næstu daga, er að fara í tí- volí sem staðsett verður á Ak- ureyri. Um er að ræða stóran hluta þeirra tækja og tóla sem verið hafa á hafnarbakkanum í Reykjavík undanfarnar vikur. „Við komum með fjögur stór tæki sem eru aðaltækin í þessu tí- volíi fyrir utan parísarhjólið. Síð- an verðum við með skotbakka og eitthvað af minna dóti,“ segir Jör- undur Guðmundsson, forsvars- maður tívolísins. Aö sögn Jörundar er um tilraun að ræða og ef hún tekst vel og að- sókn verður góð, þá er meiningin að koma með tívolíið til Akureyr- ar á sama tíma næstu þrjú sumur og vera þá með flest tækin með- ferðis. „Miðaverð er það sama og í fyrra; 100 krónur miðinn, en í tækin kostar einn til þrjá miða. Sumir hafa haft orð á að þetta sé heldur í hærri kantinum og það er kannski að einhverju Ieyti rétt. Hinsvegar verður fólk að gera sér grein fyrir að ríkið tekur 45 krón- ur af hverjum miða; 24,5% í virð- isauka og 20% í skemmtanaskatt. Þá er eftir að greiða fyrir flutninga til og frá landinu sem kosta 5,6 milljónir króna og síðan þarf fólkið auðvitað að halda sér uppi í eina 20 daga, auk ýmiskonar að- keyptrar þjónustu. Það er því mikill misskilningur að þessir út- lendingar hirði hér peninga og fari með burt úr landinu, því langstærsti hlutinn verður eftir hér,“ segir Jörundur. Tívolíið verður staðsett á gras- flötinni fyrir neóan Samkomu- húsið á Akureyri og verður væntanlega opnað annað kvöld. Jörundur segist búast við að opið verði frá tvö til tólf og ákveðið hafi verið að vera á Akureyri fram á mánudag, en ef aósókn verði góð bætist jafnvel tveir dag- ar vió. SBG Nýr sendiherra Breta heimsækir Akureyri Nýr sendiherra Breta á íslandi, Mr. Michael Stuart Hone, mun heimsækja Akureyri á morgun. Hann tók fyrr í sumar við sendi- herrastöðunni hérlendis og er þetta fyrsta heimsókn hans til Akureyrar í hinu nýja embætti. Mr. Michael Stuart Hone hefur starfað í utanríkisþjónustu Breta um langan tíma. Hann hefur meó- al annars starfað í Nairobi, Beirút og Bagdad. Hann er 56 ára aó aldri, giftur Elizabeth Ann Balmer og eiga þau fimm börn. I heimsókninni til Akureyrar á morgun mun hann hitta Halldór Jónsson, bæjarstjóra, fara í Út- gerðarfélag Akureyringa, í Lysti- garðinn og að gröfum breskra hermanna. Með í för með honum á Akureyri verður Aðalsteinn Jónsson, sem er breskur konsúll á Akureyri. Sendiherrann mun síðan hafa móttöku á heimili Aðalsteins að Birkilundi 14. JÓH Fjölbreytt dagskrá fyrir Qölskyldur í Jökulsárgljúfrum og Mývatns- sveit um verslunarmannahelgina: Fræðandi gönguferðir og bamastundir - áhersla lögð á ró og næði Um verslunarmannahelgina býður Náttúruverndarráð upp á gönguferðir við allra hæfi undir leiðsögn landvarða. í Ás- byrgi verður barnastund kl. 13 á laugardag og kl. 11 á sunnu- dag í Ásbyrgi og Vesturdal. Farið verður í Ieiki, sagðar sög- ur og náttúran skoðuð eins og segir í fréttatilkynningu frá Náttúruverndarráði. Barna- stundir verða einnig á tjald- svæðinu í Reykjahlíð kl. 11 á laugardag og sunnudag. I dag kL 13 verður gengiö á Áshöfða í Ásbyrgi en þaðan er gott útsýni yfir gljúfrin og Jök- ulsá. Fjallað verður um sögu, gróðurfar og jarófræði svæðisins. I kvöld kl. 20 verður gengið um Eyjuna og hugaó að gróðri en þaðan er einnig einkar gott útsýni yfir. Ásbyrgi. Á morgun kl. 17 veróur önnur gönguferð um Eyjuna þar sem rætt verður um sögu svæðisins og hinar stórkostlegu jarðfræðilegu atburði sem þarna áttu sér stað og skópu undraheim gljúfranna. Ann- að kvöld kl. 20 verður verður létt kvöldrölt í Vesturdal og m.a. gengið á Eyjuna þar og hugað að lífríki tjarna og fuglalífi. Á laugardag kl. 14 verður gengið úr Vesturdal fram á Svínadal en þaðan verður gengið aó Kallbjargi og til baka meðfram gljúfrunum,. framhjá Karli og Kerlingu. Á leiðinni verður hug- að að sögu og jarðfræói svæðis- ins. Kl. 15 verður síðan aftur gengið meðfram Eyjunni og inn í botn Ásbyrgis. Rýnt veröur í klettarúnir og hugað að gróðurfari. Á sunnudag kl. 14 verður einnig gengið um botn Ásbyrgis. Þá verður ganga úr Vesturdal á Kastalann kl. 17 en þaóan er gott útsýni yfir Hljóðakletta og víðar. Rætt verður um myndun gljúfr- anna. Gönguferð verður með norður- strönd Mývatns frá Hótel Reyni- hlíð kl. 13 á laugardag og kl. 20 veróur gengið á Dagmálahlíð frá tjaldsvæðinu í Reykjahlíð sem og kvöldrölt frá tjaldsvæðinu Bjargi. Á sunnudag kl. 13 veróur göngu- ferð um Dimmuborgir frá bíla- stæðinu þar. Gönguferð verður um Skútustaðagíga kl. 20 á sunnu- dagskvöld frá fræðslustofunni á Skútustöðum og kl. 21 verður rölt frá Hótel Reynihlíð. GT I Félagar í skátafélaginu Birkibeini á Eyrarbakka, gista í tjaldi á Landsmóti skáta í Kjarnaskógi, sem þeir smíðuðu sjálfír. Eins og sést á myndinni er um að ræða trégrind með plasti. Alls gista 11 félagar í tjaldinu og cr sofíð á þrcmur hæðum. Á innfelldu myndinni er Gunnar Atlason, fararstjóri hópsins, i tjaldinu góða. Myndir: Pjetur Mr. Micahel Stuart Hone. Iiílai* til sölu Peugeot 309 árgerð ’91, ekinn aðeins 10 þús. km. Skoda Favorit LS árgerð ’92, ekinn 20 þús. km. Skálafell sf. Draupnisgötu 4. Akureyri Sími 22255. HRÍSALUNDUR ÚR KJÖTBORÐI Tilboð í útileguna: Lam bakóti 1 ett u r tilbúnar á grillið 699 kr. kg ÚR ÁVAXTABORÐI Tilboð í útileguna: Plómur 98 kr. boxið Ferskjur 165 kr. boxið Nektarínur 129 kr. boxið UR BRAUÐBORÐI Tilboð í útileguna: Heilsubrauð 124 kr. stk. Maarud flögur m/papriku 1OO g — 129 kr. Stixi saltstangir 250 g - 99 kr. • 6 fl. Coca cola 'Á lítrl á verði 5 Opið föstudag til kl. 19 • Laugardag ki. 10-14 SL atvc; rslij w m mm VtSA 'iV 2V ,P wi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.