Dagur - 29.07.1993, Síða 11
Fimmtudagur 29. júlí 1993 - DAGUR - 11
HÉR OG ÞAR__________
Cher í hjálpar-
starfi í Armeníu
Iðjufélagar Akureyri
og nágrenni
Farin verður í eins dags skemmtiferð með
eldri Iðjufélaga sunnudaginn 8. ágúst.
Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu kl. 9
árdegis.
Farið verður um Suður-Þingeyjarsýslu með
viðkomu á ýmsum stöðum.
Tilkynning um þátttöku þarf að hafa bor-
ist til skrifstofu Iðju sími 23621 fyrir 5.
ágúst.
Ferðanefnd.
Leik- og söngkonan 'Cher flutti nú
í vor mikið magn af lyfjum og
leikföngum til veikra barna í Ar-
meníu. Faðir hcnnar er frá Ar-
meníu og með þessu fannst henni
að hún væri að sinna skyldum
Chcr flutti nýlega lyf og lcikfdng
fyrir 2,5 milljónir Bandaríkjadala
til Armeníu.
Chcr kveikir á kertum samkvæmt
þjóðarhefðinni í Armeníu.
Sönglög
á góðra
vinafundi
Út er kominn geisladiskurinn og
snældan „...góðra vina fundur...“
Þar er að finna 20 vinsælar ís-
lenskar söngpcrlur sem flestar eru
í söngbókinni „Hvað er svo gott“
sem gefin var út í tilefni af Ari
söngsins.
Lögin cru valin úr hópi þeirra
fjölmörgu sönglaga sem Islend-
ingar hafa tekió ástfóstri við. Sum
þeirra hafa vcrið vinsæl með þjóð-
inni lcngur cn elstu menn muna,
cn þau yngstu eru samin á síóustu
áratugum. Hér eru lögin gefin út
sem undirleikur við söng og henta
vel jafnt í skólum sem heimahús-
um, á feróalögum og hvar sem
menn koma saman á góðra vina
fundi. Söngtextar fylgja bæði
diskinum og snældunni ásamt
upplýsingum um lögin á ensku.
Útsetningar, sem eru mjög fjöl-
breytilcgar, njóta sín einnig prýði-
lega til hlustunar cinar sér. Meðal
laganna sem þarna er að finna má
nefna: Fyrr var oft í koti kátt,
Maístjörnuna, Á Sprengisandi,
Einu sinni á ágústkvöldi, Hvert
örstutt spor, Blítt cr undir björk-
unum og Kvæðið um fuglana.
Tuttugu hljóðfæraleikarar koma
við sögu í flutningi laganna.
Framkvæmdanefnd um Ár
söngsins hefur unniö að útgáfu
þessari, en sem kunnugt er var Ár
söngsins haldið skólaárið 1991 -
1992, til að efla söngáhuga meóal
Islendinga. Útsetningar annaðist
Elías Davíðsson, Jón Stefánsson
stjórnaði fiutningnum í níu af lög-
unum en upptökur annaðist Sig-
urður Rúnar Jónasson í Studio
Stemmu. Útgelandi er Tónlistar-
bandalag Islands og dreifingu
annast Japis.
sínum gagnvart fólki sínu i Ar-
meníu. Cher, sem hcitir að skím-
arnafni Cherilyn Sarkisian, hefur
um nokkurra ára skeið aðstoðað
alþjóða hjálparstarf í fyrrum
Sovétlýðveldinu Armeníu en til
að sjá ástandið með eigin augum
ákvað hún að heimsækja landið
nú í vor. Eftir að hafa séð hið öm-
urlega ástand sem margir búa við
og þær hörmungar sem mörg börn
þurrfa að ganga í gegnum lét hún
flytja lyf og leikföng fyrir 2,5
milljónir bandaríkjadala til lands-
ins.
En Cher lét ekki þar við sitja
heldur tók hún að sér litla stúlku
sem hún flutti með sér til Banda-
ríkjanna til læknismeðferðar.
Cher segist hafa viljaó sjá hvernig
3,5 milljónir íbúa lifa í Armeníu
við slæmar aðstæður. Hún fékk að
kynnast því á hótelinu sem hún
bjó á að rafmagn, rennandi vatn
og hreinlæti er ekki sjálfgefið að
fá, jafnvel fyrir stórstjörnur. Og
eftir heimsóknina lýsti hún því
yfir að hún væri aldeilis ekki hætt
Komin til Armeníu. „Hér eru börn-
in mín.“
að sinna hrjáðum íbúum Armen-
íu. „Þetta var hræðilegra en ég
nokkru sinni ímyndaói mér. En ég
er ekki hætt að hjálpa þessum
ættingjum mínum. Eg kem aftur.“
Það er þetta með
billð milli bíla...
yUMFERÐAR
RÁO