Dagur - 29.07.1993, Síða 16

Dagur - 29.07.1993, Síða 16
Akureyri, fimmtudagur 29. júlí 1993 ■ ■■■'■ BTT !■■■■■■ REGNBOCA FRAMKOLLUN Hafnarstræti 106 • Sími 27422 fiítriíi Uðir Þingmenn frœddir um skógrœkt Þingmenn Noróurlandskjördæmis eystra voru í vikunni á ferð í Eyjafirði og S-Þingeyjarsýslu að kynna sér skógræktarmál. Með í förinni var skógræktarstjóri og skógarvörður á Vöglum en myndin hér að ofan var tekin í heimsókn hópsins í Skógræktarstöðina á Vöglum þar sem Þröstur Eysteinsson, doktor í lerkirækt, útskýrir lerkirækt. Mynd: pjetur Heræfingarnar hafnar hér á landi: Fjarskiptabúnaður reyndur í Eyjaínði og aðstæður skoðaðar á Akureyri - risaþyrla flytur eyfírsku heyrúllurnar á svæðið inn af Dimmuborgum í dag Heræfíngar Atlantshafsbanda lagsins eru hafnar hér á landi. Æfíngar með þessu formi eru haldnar annað hvert ár. Að þessu sinni koma æfíngarnar til með að verða víða á landinu, þar á meðal á Akureyri en Skagaprður: Árleg messa í Ábæjarkirkju - sunnudaginn 1. ágúst Árleg messa í Ábæjarkirkju í Austurdal verður haldin sunnu- daginn 1. ágúst. Einn bær er í byggð í sókninni og þar er að- eins eitt sóknarbarn, Ilelgi Jóns- son á Merkigili. Hann mun að venju bjóða kirkjugestum í kaffí. Vænta má fjölmargra kirkju- gesta, en þeim hefur farið fjölg- andi ár frá ári, að sögn Ólafs Hall- grímssonar sóknarprests. í fyrra var haldió upp á 70 ára afmæli kirkjunnar og voru á annað hundr- að manns við messuna. Þrátt fyrir þennan mikla fjölda kirkjugesta er aðeins eitt sóknarbarn í Ábæjar- sókn, Helgi Jónsson bóndi á Merkigili. Hann hefur það fyrir sið að bjóða gcstum í kirkjukaffi, sama hversu margir þeir eru. Messan á sunnudaginn verður kl. 14 og mun sr. Olafur Hall- grímsspn predika og þjóna fyrir altari. Óskar Pétursson tenór syng- ur einsöng og organisti er Sveinn Árnason. Að sögn sr. Ólafs er vegurinn í Austurdal í þokkalegu ástandi fyrir vel búna bíla og ný göngubrú er komin á Ábæjará. Hann sagði alla velkomna í messu í Ábæjarkirkju. sþ vegna æfínganna kemur hópur manna norður yfír heiðar í dag og á morgun. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, segir að almenningur á Akureyri og í Eyjafirði kom til með að verða lítið var við þessar æfíngar þar sem aðeins sé um að ræða út- tekt á mikilvægum stöðum á Akureyri en einnig verður próf- aður færanlegur fjarskiptabún- aður sem settur verður niður á Eyjafjarðarsvæðinu. Markmið með æfingunum á Is- landi er að æfa liðs- og birgða- flutninga á hættutímum en einnig framkvæmd vamaráætlunar fyrir Island. „Þaö koma menn með þyrlu til Akureyrar og koma til með að búa á Laugalandi í Eyjafjarðar- sveit. Þeir munu skoða aðstæður á Akureyri en þeir koma ekki til með að veróa með neina stríðs- leiki eða neitt í þeim dúr. Síðan kemur fjarskiptabúnaður sem þyrla flytur líka og hann verður settur upp einhvers staðar við Eyjafjörð,“ sagði Friðþór og bætti við að æfíngarnar á Eyjafjaróar- svæðinu séu í samstarfi við Al- mannavarnir á svæðinu. Hann segir að þessi mannskapur komi til með aó verða norðan heiða fram yfír helgi. Risaþyrlur í eigu þjóðvarnar- liðs Pensylvaníufylkis eru þýð- ingarmiklar í æfíngunum hér á landi en tvær slíkar eru hér vegna æfínganna. Önnur þeirra kom til Mývatnssveitar í gærkvöld en hún mun í dag hefja flutning á hey- rúllum inn fyrir Dimmuborgir en eins og blaðió sagði frá sl. vor stóð umhverfisnefnd Eyjafjarðar- sveitar, í samvinnu við Land- græðslu ríkisins og bændur í Mý- vatnssveit, fyrir flutningum á ónýtum heyrúllum til Mývatns- sveitar þar sem ætlunin er að nota þær til að hefta sandfok á svæóinu inn af Dimmuborgum. Þyrlan mun sinna þessu verkefni í dag og ljúka því á morgun en sem kunnugt er verða fluttar nokkur hundruð heyrúllur á landgræðslu- svæðið inn af Dimmuborgum. Þyrlurnar hafa verið fengnar til fleiri áþekkra verkefna meóan þær eru hér á landi því ætlunin er að á laugardag verði fluttur skáli fyrir Ferðafélag Akureyrar og einnig mun ráðgert að flytja skála fyrir vélsleðamenn. JÓH Sauðárkrókur: Vænlegra að ljúka núverandi íþróttahúsi - en að byggja stálgrindahús bærinn þá setiö uppi meó tvö stór íþróttamannvirki. Það er því, að sögn bæjarstjóra, samstaóa um það innan bæjarkerfísins að ljúka fremur við núverandi hús. sþ Það er mat íþróttaráðs og bæj- arráðs Sauðárkróksbæjar að það sé vænlegri leið að Ijúka við byggingu núverandi íþróttahúss en að ráðast í gerð nýs íþrótta- mannvirkis, en nú í vor var bænum gert tilboð um byggingu stálgrindahúss. Bæjarstjórn Sauðárkróks kom saman á ný á þriójudag, að loknu sumarleyfí. Eitt þeirra mála sem um var fjallað var frágangur íþróttavallar og umræður um hugsanlega byggingu stálgrinda- húss. Þetta kom til tals snemma í vor þegar umboðsaöili Butler-stál- grindahúsa gerði bænum tilboð um byggingu slíks húss. Kom fram í máli bæjarfulltrúa að full ástæða hefði þótt til að athuga þetta tilboð, en nióurstaðan varð sú að hafna tilboðinu og einbeita kröftunum að því að ljúka bygg- ingu núverandi íþróttahúss. Að sögn Snorra Björns Sig- urðssonar, bæjarstjóra, fól tilboöið í sér ákveðið verð á fermetra og varla hefði verió ráðist í byggingu minna en 3000 fermetra húss, sem hefði sennilega þýtt á annað hundraö milljónir króna í heildar byggingarkostnað. Slíkt hús hefði getað orðið stærra en núverandi hús verður, en hins vegar hefði Vegagerð norðan Dalvíkur: Kominá eftir áætlun - áætlað að leggja bundið slitlag í haust I sumar hafa staðið yfír endur- bætur á veginum milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar, þ.e. þeim veg- arkafla sem ekki hafði verið bundinn slitlagi. Verkinu átti að skila 15. ágúst en fyrirsjáanlega verður það á eftir áætlun. Að sögn Guðmundar Svafars- sonar hjá Vegagerð ríkisins á Ak- ureyri er eftir að leggja á þennan vegarkafla cfri buröarklæðingu. Stefnan var sú að þaó verk yrði unnió í haust og er stefnt að því þrátt fyrir að verkið sé á eftir áætl- un. „Það verður hægt að lcggja á meginhlutann cf ekki á allt í haust,“ sagði Guðmundur. JÓH Laxós í Ólafsfirði: Lélegar heimtur úr hafbeitinni „Heimturnar eru lélegar og mun lélegri hér en í stöðvunum fyrir sunnan, hvað sem veldur,“ sagði Þorsteinn Ásgeirsson, hjá hafbeitarstöðinni Laxósi hf. í Ólafsfírði. Þorsteinn segir að nú hafi tæpir Akureyri: Stöðuverðir til starfa - sautján sóttu um tvö hálfsdagsstörf Tveir stöðuverðir taka að öllum líkindum til starfa á Akureyri eftir helgi. Munu þeir fylgjast með bílastæðum og Iagningu bíla í miðbænum. Að sögn Karls Jörundssonar, starfsmannastjóra Akureyrarbæj- ar, sóttu 17 manns um stöður stöðuvaróanna. „Þetta er í raun eitt starf sem við komum til með að skipta á milli tveggja starfs- manna. Þau skarast þó, því á tímabili koma báðir stöðuverðirn- ir til með að vera í vinnu í einu.“ Ekki cr búið að ráða í störfin en verið er að ræða við umsækjend- ur. Reikna má með að þeir sem fyrir valinu verða hefji störf í næstu viku. Helstu verkefnin veröa eftirlit með stöðumælum og stöðubrot- um. KR Sameining hreppa í V-Húnavatnssýslu: Felld á jöfnum atkvæðum Tillaga um sameiningu hrepp- anna þriggja í Vestur-Húna- vatnssýslu: Staðarhrepps og Ytri- og Fremri Torfustaða- hrepps, var felld á jöfnum at- kvæðum í gær. Ibúar hreppanna þriggja gengu til kosninga í gær og grciddu at- kvæði um sameiningu þeirra í eitt sveitarfélag. 150 manns voru á kjörskrá, en íbúar hrcppanna cru samtals 390 talsins. Þátttaka í kosningunni var góó eða um 78,7 af hundraði. Af þeim 118 sem at- kvæði greiddu voru 57 meðmæltir sameiningu hreppanna, en jaln- margir greiddu atkvæói á móti sameiningunni. Auðir seðlar voru fjórir. Tillagan var því fclld á jöfnum atkvæóum. SBG 2000 laxar gengið úr hafbcit í stöðina í sumar, sem eru helmingi minni heimtur en í fyrra. Það vekur athygli að þessar heimtur eru mun lélegri en í stöðvum á suðvesturhorninu en þar hefur gengið nokkuð vel það sem af er sumri. Þorsteinn er samt ekki von- laus um aö úr gcti ræst þegar líð- ur á sumarið. „Nci, besti tíminn cr ekki gcng- inn yfir. Fiskifræóingar sem við höfum talað við telja að laxinn eigi eftir að koma til okkar. Fisk- urinn er seinna á ferðinni og einnig er vatn mjög kalt í ósnum og ánni vegna þcss hve mikill snjór hefur verió í fjöllum fram eftir sumri. Við teljum að þar kunni að vera orsökin, fiskurinn gangi ekki upp vegna þessa kulda en við vonum að það lagist,“ sagði Þorsteinn. JÓH VEÐRIÐ Veðurguðirnir virðast seint ætla að sættast við Norðlend- inga þetta sumarið og spáin fyrir daginn í dag er svipuð og verið hefur síðustu vikur. Bú- ast má við norðankalda eða stinningskalda og rigningu eða súld fram eftir degi, en þá gæti stytt upp í innsveitum. Hiti verður í lágmarki norðan- lands líkt og venjulega, en heldur hærri sunnan til.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.