Dagur - 06.08.1993, Side 7

Dagur - 06.08.1993, Side 7
Föstudagur 6. ágúst 1993 - DAGUR - 7 Heilsugæslustöðin á Raufarhöfn: Nóg að gera þrátt fyrir mannfæð „Okkur flnnst vera mikið að gera hérna þrátt fyrir að fólki á staðnum fækki stöðugt. Þegar ég kom hingað voru t.d. 160 börn í skólanum en núna eru þau um 60 talsins,“ segir Þórdís Kristjánsdóttir, hjúkrunar- fræðingur á Raufarhöfn, um er- ilinn á heilsugæslustöð staðar- ins. Fyrir tíu árum var byrjað að endurnýja það húsnæði sem heilsugæslustöðin er í, en áóur voru þar bæói hreppsskrifstofur og bókasafn auk heilsugæslunnar. Að sögn Þórdísar er því verki ekki lokið enn. Fjárveitingar hafa - segir Þórdís Kristjánsdóttir, hjúkrunar- fræðingur komið í smáskömmtum og endur- bætur gengið í samræmi við það, en heilsugæslan er nú komin komið meó allt húsið. Þar eru starfandi tveir hjúkrunarfræðing- ar, í hálfu starfi hvor og einn læknir. „Heilsugæslustöðin er opin alla virka daga nema þriðjudaga, en þá crum við í ýmsum frágangi og sinnum bara útköllum. A lækna- dögum byrjunt við svo klukkan níu og erum allt fram til sjö á kvöldin. Vió höfum því nóg að gcra, en auk þess erum vió með nokkurs konar útibú frá apótekinu á Húsavík,“ segir Þórdís, en hún kom til Raufarhafnar árið 1974 og þá ætluóu þau hjónin einungis að vera þar í tvö ár. Lítið um slys Síðustu tvö árin hefur setið læknir á Raufarhöfn. Hann ásamt lækn- unum á Kópaskeri og Þórshöfn, sinnir læknisstörfum á heilsu- gæslustöðinni, en þessir þrír læknar skiptast á. Að sögn Þórdís- ar hefur því orðið töluverð breyt- ing á þjónustunni frá því hún kom til starfa, en þá kom læknir frá Þórshöfn tvisvar í viku. Eitt af því sem hjúkrunarfræð- ingarnir sinna er ungbarnaskoðun og mæóracftirlit og segir Þórdís að fæðingum á Raufarhöfn hafi fjölgað undanfarin ár frekar en hitt. Hún segir að íbúarnir séu því ekki áberandi gamlir miðað vió marga aðra svipaða staði, enda hafi flest það fólk sem í dag er orðið aldrað, farið frá Raufarhöfn strax eftir að síldarævintýrinu lauk. Þjónusta við aldraða er engu að síður drjúgur þáttur í heilsu- gæslunni, en ööru máli gegnir um slys. „Við erum mjög heppin með að það er ekki mikið um slys hér. Engu að síður er annasamt hér þegar læknirinn er við og eins leitar fólk mikið til okkar hjúkr- unarfræðinganna. Fólk hringir iðulega fyrst í okkur eða kemur og spyr hvort okkur þyki ástæða til að lcitaö sé til læknis. Ég vil samt ekki meina að íbúar hér eigi vió mikil veikindi að stríða, held- ur vill fólk bara hafa allt á hreinu gagnvart hcilsunni,“ segir Þórdís Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðing- urá Raufarhöfn. SBG HOTEL KEA Laugardagskvöldið 7. ágúst Hljómsveitin Herramenn leikur fyrir dansi. Helgartilboð. Humar- og laxapaté. Svína- og nautasteik „Black and white". ítölsk ostaterta. Kr. 2.500,- Súlnaberg, opiö til kl. 22.00. Veiðikló Laxá á Ásum: Veiðinni í fyrra náð - kippur í veiðinni þegar hlýnaði Samkvæmt upplýsingum veiði- varða í Laxá á Asum er veiðin nú komin yfir 900 fiska en mið- að við upplýsingar frá Veiði- málastofnun er það meiri veiði en allt tímabilið í fyrra. Vel hef- ur gengið í ánni að undanförnu þó allra síðustu daga hafi veiðin verið róleg en skýringin á því er einfaldlega sú að erlendir veiðimenn eru í ánni og þeir láta sér fátt um magngleði Islend- inga finnast. Þórunn Alfreðsdóttir í veiði- heimilinu Vökuholti í Aðaldal sagói veiðina á svæði Laxárfé- lagsins nú komna yfir 1000 laxa og heildarveiðin er komin á fjórt- ánda hundrað. Miðað við þær töl- ur stefnir áin hraðbyri yfir 2000 laxa á veiðitímabilinu en á síðasta ári fengust 2295 laxar úr ánni og það skilaði henni í annað sætið yfir aflahæstu laxveiðiár landsins. Vcitt verður í Laxá í Aðaldal til 10. septembcr. Friðrik Friöriksson, sparisjóðs- stjóri á Dalvík, segir að veiðin sé mjög að glæðast í Mýrarkvísl en hún er leigð Dalvíkingum. „Síó- ustu hollin hafa verið að gera það ágætt, þ.e. eftir að fór aó hlýna. Áin cr góð síðsumars og kcmur því til á þessum tíma,“ sagði Friðrik. „Þeir sjá fisk í öllum hylj- um og það er tilfcllið að þarna er fiskur upp um alla á og þetta er engin lygi þó oft sé farið frjáls- lega mcó hlutina þegar veiði er annars vegar,“ bætti hann við. Aðspurður um Svarfaðardals- ána sagði Friðrik góða veiði hafa verið þar síðustu dagana. Einn veiðimaður fékk t.d. yfir 20 bleikjur á 1. svæði og það gleði- lega segir Friðrik að bleikjan sé vænni cn oft hafi sést áður í ánni. JÓH j^Abu Garcia Veiölvörur fyrir alla Silungsveiðistaður vikunnar: Húsexjarkvísl í Skagaflrði Þeir eru margir silungsveiði- möguleikarnir á Norður- landi. I síðustu tveimur Veiðiklóm hafa verið birtar upplýsingar um tvö vötn en í þetta sinn snúum við okkur að silungasvæði Húseyjar- kvíslar í Skagafirði. Húseyjarkvíls er lygn og nokuð vatnsmikil á sem rennur vestan Hólmsins og fellur í Héraðsvötn. Silungasvæðið er 12 km og er að mestu fyrir neðan Varmahlíó. Hámarks- fjöldi leyfðra stanga á dag eru 5, þó eru aldrei fleiri en 21 stöng leyfðar á viku. Algengasti fiskurinn er urriði en líka veiðist nokkuð af bleikju. Um vatnasvæðið gengur lax sem veióist aðallega á laxasvæði ofar í ánni en alltaf veiðast nokkrir laxar á sil- ungasvæðinu á hverju sumri. Að meðaltali veiðast 500 fiskar á sumri á silungasvæði Hús- eyjarkvíslar og dreifist veiðin nokkuð jafnt. Miðað við seldan stangafjölda veiðast 2-3 fiskar að meðaltali á stöng á dag. Fiskurinn er 1/2 til 2 pund að stærð en oft veióast talsvert stærri fiskar. JÓH Daiwa Allt til veiðanna á einum stað IgJEYFJÖBÐ SHK símar 22275 og 25222 opið á laugardögum frá kl. 9-12

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.