Dagur - 17.08.1993, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 17. ágúst 1993
ÍÞRÓTTIR
Halldór Arinbjarnarson
Urslit
1. deild kvenna:
Bikarkeppni 2. flokks:
KA-strákar komnir í úrslitaleikimi
Stjarnan-ÍBA 2:1
UBK-ÍA 3:0
KR-Valur (í gærkvöldi)
KR 8 6 2021 8 20
UBK 9 5 2 2 2113 17
Stjarnan 10 4 3 3 25 20 15
Valur 94 14 15 12 13
ÍA 9 2 34 12 20 9
Þróttur N 92251123 8
ÍBA 102 17 1221 7
2. deild karla:
Stjarnan-UBK 1:0
Tindastóll-KA 0:2
Þróttur N-Þróttur R 3.1
BÍ-Grindavík 1:5
IR-Leiftur 1:1
Stjarnan 13 8 3 2 23 12 27
UBK 13 8 2 3 24 9 26
Leiftur 13 7 3 3 23 18 24
Grindavík 13544 18 15 19
KA 13 6 1 6 19 19 19
ÞróN 13 5 2 6 18 25 17
ÞróR 13 4 3 6 20 24 15
ÍR 13 4 2 7 17 21 14
Tindastóll 13 3 3 7 18 26 12
BÍ 132 38 15 26 9
2. deild kvenna:
Dalvík-Tindastóll 3:1
Völsungur-Leiftur 1:0
Dalvík 6 5 0 1 214 15
Tindastól! 5302127 9
Völsungur 53025 5 9
Leiftur 60063 25 0
3. deild karla:
Magni-Selfoss 1:1
HK-Haukar 5:2
Dalvík-Víðir 1:5
Grótta-Völsungur 1:2 Reynir-Skallagrímur 1:1
Selfoss 13 9 2 2 23 13 29
Völsungur 13 8 3 2 29 20 27
HK 13 8 2 3 38 20 26
Víðir 13 5 4 4 19 14 19
Ilaukar 13 6 1 6 23 24 19
Dalvík 13 6 1 6 19 23 19
Skallagr. 13 3 3 7 22 32 12
Grótta 13328 1924 11
Reynir 133 28 2331 11
Magni 13 24 7 1125 10
4. deild karla:
HSÞ-b-KS 1:1
Hvöt 1192053 8 29
KS 1163 2 31 13 21
Neisti 1146 128 15 18
HSÞ-b 115 24 3130 17
Þrymur 12 3 4 5 23 27 13
SM 11 3 1 7 24 25 10
Dagsbrún 110 0 11 7 79 0
Þýska
knattspynian:
Kaiserslautern-Gladbach 4:2
Frankfurt-W. Bremen 2:2
Leverkusen-B. Miinchen 2:1
Freiburg-Wattenscheild 4:1
Karlsruhe-HSV 2:0
Kaiserslautern er eina liðið
sem sigrað hefur í báðum
sínum leikjum og er efst með
4 stig, B. Miinchen og W.
Bremen hafa 3. Stuttgart lék
ekki vegna HM í frjálsum
sem þar fer fram.
- eftir frækinn sigur á Valsmönnum, 3:2
,Jú, ég verð að viðurkenna að
ég var orðinn nokkuð spenntur
undir lokin,“ sagði Gunnar
Gunnarsson, þjálfari 2. flokks
KA, sem á laugardaginn vann
það frækilega afrek að komast í
úrslit í bikarkeppni 2. flokks í
knattspyrnu. Mótherjarnir á
laugardaginn voru Valsmenn,
sem leika í B-riðli. Sigur KA var
sanngjarn. Liðið barðist vel
lengst af og þó Valsmenn hafi
sótt heldur meira, sérstaklega
síðasta hluta leiksins, náðu þeir
ekki að skapa sér færi í sam-
ræmi við það.
Valsmenn léku undan vindi í
fyrri hálfleik. Leikurinn byrjaói
fjörlega og áttu bæði lió ágætis
sóknir. A 22. mínútu var dæmt
víti á KA eftir þvögu inn í víta-
teignum og úr því skoraði Sævar
Pétursson fyrsta mark leiksins fyr-
ir Val. KA sótti meira fyrst eftir
markið en síðan jafnaðist Ieikur-
inn og má segja að hann hafi verið
í járnum allt til leikhlés þó svo að
Valsmenn hafi verið verið meira
með boltann.
KA hóf síóari hálfleik af mikl-
um krafti og átti stórsókn strax á
2. mínútu. Mínútu síðar átti Her-
mann Karlsscpn skot að marki sem
var varið en ívar Bjarklind var vel
staðsettur og jafnaði metin. KA
hélt áfram að sækja og á 56. mín-
útu kom Þórhallur Hinriksson lið-
inu yfir með glæsilegu marki. Tók
boltann viðstöðulaust á lofti eftir
fyrirgjöf og sendi hann af öryggi í
netið.
Valur komst nú meira inn í
leikinn og átti nokkrar skarpar
sóknir. En KA menn voru vel vak-
andi og á 81. mínútu skoraði Þór-
hallur sitt annað mark með
þrumuskoti af ríflega 20 metra
færi. Staðan var nú oróin 3:1 fyrir
KA og á brattan að sækja fyrir
Valsmenn sem ekki gáfust upp og
reyndu hvað þeir gátu að jafna
metin. Guðmundur Brynjólfsson
náði að minnka muninn á 43. mín-
útu en lengra komust Valsmenn
ekki og fögnuðu KA-menn 3:2
sigri sínum vel.
„Þetta var svipaó og ég bjóst
við. Valsmenn eru með gott lió en
strákarnir börðust vel. Það er ljóst
aö við eigum erfiöan úrslitaleik
fyrir höndum við Framara, sem aö
mínu mati eru með besta liðið,“
sagði ánægður þjálfari KA, Gunn-
ar Gunnarsson.
Bikarkeppni 2. flokks, undanúrslit:
Framarar höfðu betur
- lögðu Þórsara að vefli 3:1
Þórhallur Hinriksson skoraði tvö glæsimörk gegn Valsmönnum og tryggði
liði sínu farseðiiinn í úrslitaleik bikarkeppninnar, sem Icikinn verður á hlut-
Iausum velli í byrjun september. Mynd: Robyn
Knattspyrna, 2. flokkur:
Þórsarar enn í toppbaráttu
eftir sigur á Haukum, 3:1
Þórsarar máttu sætta sig við að
falla út úr bikarkeppni 2. flokks
þegar liðið mætti Fram í undan-
úrslitum sl. laugardag. Glæsileg
byrjun Akureyringa dugði ekki
til og Framarar höfðu sigur 3:1.
Arangur Þórs er engu að síður
mjög góður en liðið er einnig í
toppbaráttu B-deiIdar 2. flokks.
Þórsarar fengu óskabyrjun á
laugardaginn og skoruóu mark
strax á 1. mínútu. Þeir fengu auka-
spyrnu og Páll Pálsson skaut að
marki. Markvörðurinn náði ekki
að halda boltanum, Brynjar Ott-
arsson var rétt staðsettur og þrum-
aði knettinum í netið. Framarar
sóttu meira í Ieiknum en Þórsarar
beittu skyndisóknum. Eftir um
hálftíma leik náðu Framarar að
jafna eftir að Þórsurum hafði mis-
tekist að hreinsa frá marki. Annað
mark Fram kom skömmu fyrir
leikhlé, aftur eftir varnarmistök
Þórsara.
Þegar um 15 mínútur voru liðn-
ar af síðari hálfleik fengu Framar-
ar dæmda vítaspyrnu og skoruðu
úr henni sitt 3. mark. Þórsarar
komu meira inn í leikinn þegar á
leið og fengu 2 góð tækifæri til að
skora en allt kom fyrir ekki og
Framarar leika því til úrslita við
KA í byrjun september.
„Strákarnir börðust af miklum
krafti og gerðu sitt besta en ein-
beitingarleysi í vörninni kostaði 2
mörk,“ sagði Kristján Kristjáns-
son, þjálfari Þórs.
Þórsarar gefa hvergi eftir í bar-
áttunni um sæti í A-deiId 2.
flokks að ári. Keflvíkingar hafa
nokkra yfirburði í B-deild og
mega heita öruggir upp en um
2. sæti deildarinnar berjast Þór,
FH, Valur og Þróttur. Þórsarar
færðust nær þessu takmarki á
sunnudaginn er þeir lögðu
Hauka á gerfigrasinu í Hafnar-
firði 3:1.
Þórsarar voru mun ákveðnari
en Haukar í fyrri hálfleik en náðu
ekki að koma boltanum rétta leið
lengi vel. Það voru hins vegar
Haukar sem fundu leiðina aó
Þórsmarkinu og komust yfir þcgar
um 20 mínútur voru liðnar af
leiknum. Arnar Bill Gunnarsson
náði síðan að svara fyrir Þór áður
en flautað var til leikhlés og stað-
an í hálfleik því 1:1.
Elmar Eiríksson var á ferðinni
þegar 10 mínútur voru liðnar af
síðari hálfleik og kom Þór yfir
með glæsilegu skallamarki eftir
hornspyrnu. Það var síðan Brynjar
Ottarsson sem innsiglaði sigurinn
með marki af stuttu færi eftir góða
sendingu frá Elmari. Þór á nú 4
leiki eftir, 2 úti og 2 hcima.
Glmar Eiríksson skoraði glæsilegt
skallamark gegn Haukum.
Knattspyrna, 2. deild kvenna:
Glæsilegt hjá Dalvíkurstelpum
- hafa þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni
Annarar deildar lið Dalvíkur í
kvennaknattspyrnu tryggði
sér um helgina þátttökurétt í
úrslitakeppni deildarinnar
með því að sigra Tindastól og
tryggja sér þar með efsta sæti
Norðurlandsriðils. Leikar fóru
3:1 fyrir Dalvík og á sama
tíma sigruðu Völsungsstelpur
stöllur sínar i Leiftri 1:0.
Dalvík og Tindastóll léku á
Dalvík. Jafnræói var með liðun-
um í fyrri hálfleik og Tindastóls-
stelpur voru fyrri til að skora,
glæsilegt mark beint úr auka-
spymu og var Valgeróur Er-
lingsdóttir þar á ferð. Aðeins 5
mínútum síóar endurtók sagan
sig en nú var þaó Áslaug Stef-
ánsdótir sem skoraði fyrir Dal-
vík beint úr aukaspymu. Hún
var síðan aftur á ferðinni fyrir
leikhlé og breytti stöóunni í 2:1
Dalvíkurstelpum í vil.
í síðari hálfleik voru heima-
stúlkur sterkari aðilinn og Jóna
Raguels tryggði Dalvíkingum
3:1 sigur og þar meó sæti í úr-
slitakeppninni. Þórunn Sigurðar-
dóttir þjálfari þeirra var mjög
ánægð með þcnnan árangur.
„Þetta er það sem við höfum
stefnt á og auðvitað er ég ánægð
að það tókst.“ Ekki er aó fullu
ljóst hvenær úrslitakeppnin hefst
en það verður um næstu mán-
aðamót.
Völsungsstelpur náðu öllum
stigunum gegn Leiftri meó
marki Hrefnu Gunnarsdóttur.
Síóasti leikur riðilsins er viður-
eign Tindastóls og Völsungs og
þar veröur tekist á um 2. sæti
riðilsins, en aðeins eitt lið kemst
þó í úrslit.
Dalvikurstelpur lcika nú í úrslitakeppni 2. deildar í fyrsta skipti