Dagur - 30.11.1993, Side 14

Dagur - 30.11.1993, Side 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 30. nóvember 1993 Rádhústorgi 5, 2. hæð Gengift inn frá Skipagötu Sími 11500 Langahlíð. 4ra herb. raðhús á einni hæð ásamt bllskúr samtals um 140 fm. Áhvílandí langtímalán um 5,2 millj. Skipti á minni eign hugsanleg. Múlasíða: Mjög lallegt 4ra herD. raðhús ásamt bíl- skúr samtals um 132 (m. Áhvílandi húsn.lán um 7 millj. Skarðshlíð: 4ra herb. endaíbúð á 2. hæð rúml. 96 fm. í ágætu lagi. Hagstæð langtímalán. Melastða: Gullfalleg 3ja herb. (búð á 3. hæð um 82 fm. Ahvllandi húsn.lán um 5 millj. (40 ára lán - greiðslubyrði um 24 þús. pr. mánuð). Ránargata: Mjög góð 4ra herb. neðri hæð I tvíbýli um 130 fm. Laus eftir samkomulagi. Móasíða: Mjög fallegt 4-5 herb. raðhús ásamt bíl- skúr samtals tæpl. 150 fm. Áhvllandi húsn.lán um 3,4 millj. Skipti á minni eign hugsanleg. Austurbyggð: Einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bllskúr samtals um 240 fm. Mikil áhvll- andi langtímalán. FASTEIGNA & fj SKIPASALA ‘SSsZ NORÐURLANDSÍI Ráöhústorgj 5, 2. hæö gengið inn frá Skipagötu Opið virka daga frá kl. 9.30-11.30 og 13.15-17. Sölustióri: Pétur Jósefsson Lögmaöur: Benedikt Ólafsson hdl. n MINNIN6 ií Steinuim Jónasdóttir, Akureyri Fædd 12. júlí 1901 - Dáin 20. nóvember 1993 Steinunn Jónasdóttir var fædd í Brekkukoti í Svarfaðardal 12. júlí 1901 og ólst þar upp til 9 ára ald- urs. Hún átti þrjár systur, en þær eru Jóhanna, fædd 22. maí 1904; hún er látin; Auður, fædd 31. júlí 1908 og hálfsystirin Sofíla Gunn- laugsdóttir, fædd 13. júní 1919. Foreldrar hennar voru hjónin Ingi- geróur Soffia Jóhannsdóttir og Jónas Jóhannsson, en Jónas lést þegar Steinunn var 9 ára gömul. Fluttist hún þá til Sigurjónu, móð- ursystur sinnar á Akureyri, en þegar Sigurjóna fluttist út í Svarf- aðardal stuttu seinna varó Stein- unn eftir. Fór hún þá til konu, Þóru aó nafni, og var þar fram yfir fermingu. Eftir þaó bjó hún hjá Elínu Líndal. Börnin hennar voru berklaveik og las Steinunn mikiö fyrir þau. Eftir tvítugt fór Stein- unn til Danmerkur og réói sig í vist. Var hún þar samtals í 5 ár. Vann hún sér þá inn peninga svo að hún gat fariö í húsmæðraskóla í Danmörku og var þaó mjög fátítt í þá daga. Þessi ár uróu henni mjög eftirminnileg og lærdómsrík og þar af leiðandi las hún og talaði dönsku, sem ekki var algengt meó konur á þessurn árum. Eftir að heim kom hóf hún störf á Hótel Gullfossi en síðar fór hún aó vinna hjá Kaupfélagi Ey- firóinga, fyrst í brauðbúð en síöar í Járn- og glervörudeildinni. 27. október 1945 giftist Stein- unn Þórói Karlssyni frá Veisu í Fnjóskadal. Bjuggu þau alla sína tíó að Helgamagrastræti 50 á Ak- ureyri. Þeim varð ekki barna auð- ió, en þóttu afar barngóó bæöi tvö og nutu barna annarra í staðinn. Þóróur lést 6. september 1965 og saknaói Steinunn hans mikiö og lengi. Steinunn var afar söngelsk kona og var hún bæöi í Kirkjukór Akureyrarkirkju og Kantötukórn- um. Einnig var hún lcngi í Kven- félagi Akurcyrarkirkju. Steinunni kynntist ég kringum 1970. Hún bjó í húsinu núrner 50 viö Helgamagrastræti, en tengda- foreldrar mínir, þau Kristín og Böðvar, í númer 49. Þarna á milli var mikill vinskapur, sérstaklega eftir aó Þórður dó. Þótti þeim kon- unum mjög vænt hvor um aðra og áttu margar góðar stundir saman. Einkum var þaó þó Kristín, sem sendi ýmislegt yfir um til Stein- unnar (eins og sagt var), svo sem alls lags bakstur og blóm. Það var ekki ósjaldan að ég var send með nokkrar rósir úr gróðurhúsinu hennar Kristínar um leiö og ég fór heim. Gleymi ég aldrei hve Stein- unn var þakklát og geislaói af gleói yfir rósasendingunum. Gróðurhúsiö þarna hinum megin var henni ótrúlega mikils virði. Kristín vann mikið í garöi sínum allt sumarió og hlúói af alúö að blómunum og Steinunn naut þcss aö fylgjast meó út um gluggann sinn. Já, þær fylgdust líka vel meö Ijósunum í gluggunum hvor hjá annarri, gömlu konumar. Þaö sagöi þeim alltaf hvaó var aö ger- ast hinum megin. Eg tala nú ekki um þegar aðventuljósin birtust í gluggunum, fyrsta sunnudaginn í aöventu. Þá var nú gleöi í sinni. Eftir aó tengdamamma dó, man ég aó tengdapabbi setti alltaf aó- ventuljósin í gluggann, en aóal- lega fyrir Steinunni. Hún hringdi þá líka gjarnan til að þakka hon- um fyrir. Já, og svo var líka hún Steinunn í númer 47. Þetta voru nágrannarnir í fjöldamörg ár og samkomulagió var hiö besta. Mér er minnisstætt fyrir nokkrum ár- um, þcgar ég keyrói upp Helga- magrastrætiö nieó bækur frá Amtsbókasafninu til gamla fólks- ins. Þá sátu þessi þrjú, scm eftir lifðu, öll úti í sólinni, hvert á sín- um tröppum. Þau sáu hvert til annars og nutu hvers annars úr fjarlægð. Þannig haföi gamla fólk- ió þaö. Já, nú eru þau öll horfin sjón- um okkar. Blessuð sé minning þeirra. Ragnheiður Stefánsdóttir. Bókaklúbburinn Lestrarhesturinn: Lestrarefni fyrir böm og unglinga - til varnar minnkandi bókalestri og ólæsi Þorbjörn Broddason, dósent við Háskóla íslands, hefur staðið fyrir könnun á lestrarvenjum barna og unglinga hér á landi og kemur þar frani að á tímabil- inu 1985 til 1991 hefur bókalest- ur barna dregist saman um 40%. Þorbjörn telur að hrun bókalesturs sé raunverulegur og brýnt áhyggjuefni og geti vel verið undanfari þess að hér spretti upp ólæsi eða hálflæs minnihluti hjá bókaþjóðinni. Niðurstöður þessarar könnunar urðu bókaútgáfunni Skjaldborg hvatning til þcss aö gefa út vand- aö fræósluefni fyrir þennan ald- urshóp og hefur verið gefinn út fræóslubókaflokkur, sem fcngið helur nafnið Lífió og tilveran. Ut munu koma 17 bækur sem heita: Plöntur og gróóur jarðar, Dýrarík- ió, Risacðlur, Hallö, Jörðin, Upp- götvanir, Himinninn og stjörnurn- ar, Mannslíkaminn, Sagan, Hús- dýrin, Dýrin í náttúrunni, Fcröa- lög, Listir, Tónlist, Matrciösla, Mannasiðir og Þjóósögur og þjóó- trú. Bækurnar eru boönar í áskrift- arflokki sem heitir Lestrarhestur- inn og er búið að gefa út fyrstu bókina, Risaeólur. GG Hvað voru vitringamir, sem fœrðu Jesúbaminu gjafir, margir? □ Þrír □ Sjö □ ÞRETTÁN Veitt verða tíu glœsileg verðlaun fyrir rétt svör. Um er að rceða vömúttekt í KEA Hrísaiundi fyrir alls kr. 90.000 1. verðlaun: Vöruúttekt að verðmæti kr. 30.000 2. verðlaun: Vöruúttekt að verðmæti kr. 15.000 3. verðlaun: Vöruúttekt að verðmæti kr. 10.000 4.-10. verðlaun: Vöruúttekt að verðmæti kr. 5.000 Við hleypum nú af stokkunum laufléttri jólagetraun fyrir alla fjölskylduna Getraunin er í tíu hlutum. Þegar þú hefur svarað spurningunni hér að neðan skaltu klippa seðilinn út og geyma hann á vísum stað þar til allir hlutarnir tíu hafa birst 2. hluti jólagetraunarinnar birtist í blaðinu á morgun Munið að senda skal inn seðlana tíu í einu umslagi í loldn Mil á 7* Hrísalundi - þar sem fjölbreytni o g lágt verð lara saman

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.