Dagur - 30.11.1993, Page 16

Dagur - 30.11.1993, Page 16
Akureyri, þriðjudagur 30. nóvember 1993 Kópasker: Ný vatnsveita að komast í Ma notkun - orka frá heimarafstöð nýtt til dælingar - rafallinn smíðaður í Árteigi Nú um mánaöamótin er reiknað með að ný vatnsveita á Kópa- skeri verði komin í fulla notkun. Nýtt vatnsból í landi Katastaða er virkjað og vatninu dælt um 4,4 km leiðslu til þorpsins. Við dælinguna er notað rafmagn frá rafstöð við uppistöðulón í landi Katastaða. Vatnið sem notað hefur verið á Kópaskeri er mjög steinefnaríkt, en það er úr lind skammt frá þorp- inu. Mikil tæring varó á vatns- ieióslum og einnig miklar úrfell- ingar, pípur og hitatankar stífluð- ust vegna efnasamsetningar vatns- ins. Vatnið var drykkjarhæft og nothæft, ncma við vissa matvæla- framleiðslu og vegna skemmda sem það olli á vcitukerfi var notk- un þess ekki heppileg. Vatniö í nýju vatnsveituna er fcngið úr lind í landi Katastaóa. Heimarafstöð var við Katastaði, scm ekki hefur vcrið notuð síðan í jaróskjálftunum. Stíílan viö raf- stöóina var lagfæró og nýr rafall smíóaður í verkstæðinu í Arteigi í Kinn. Nú cr vatninu úr lindinni dælt með vatnsorku úr lóninu. „Rannsóknir sýna að vatnið er nijög hreint, nánast sterilt. Þetta er fyrsta kaldavatnsveita sem ég veit til að sé nýtt á þennan hátt. Það er verulegur ávinningur af því aö vera sjálfum sér nægur með raf- magn til dælingarinnar. Reynslan af gömlu heimarafstöðinni var sú að þar varó aldrei gangtruflun, rennslið úr lóninu er jafnt og ork- an því örugg. Vió erum mjög ánægóir með að hafa örugga orku til dælingar á vatninu,“ sagði Steinar Harðarson á Kópaskeri. IM Það var mikið blásið í KA-húsinu um heigina en þar fór fram Norðurlandsmót skólalúðrasvcita. Ungt tónlistarfólk úr öllum fjórðungnum kom saman, spilaði og skemmti sér. Mótinu iauk mcð heilmiklum tónlcikum á sunnudaginn. Mynd: Robyn Sauðárkróksbær: Gerist hluthafl í íslensku ferskvatni hf. - nýju undirbúningsfyrirtæki um vatnsútflutning í dag mun bæjarráð Sauðár- króksbæjar leggja til við bæjar- SkagaQörður: Nokkrir teknir fyrir ölvunar- og hraðakstur Helgin var róleg hjá lögreglu á Norðurlandi vestra. I>ó tók lög- reglan á Sauðárkróki tvo öku- menn vegna gruns um ölvunar- akstur og einn fyrir hraðakstur. Sá sem tckinn var fyrir of hrað- an akstur hafði einungis haft próf- skírteiniö sitt í þrjá daga og byrj- unin því ekki glæsileg. Fyrir utan það sem að framan er talið gisti einn fangageymslur lögreglunnar á Sauðárkróki um helgina. Ekkert var um að vera hjá lögreglu á Blönduósi og segjast menn þar á bæ ekki muna önnur eins rólegheit og undanfarið, sem betur fer mætti sennilega segja. sþ Þrotabú Hótel Norðurlands: Hótelið enn óselt - hugsanlega rekið fram yfir mánaðamót Hreinn Pálsson, skiptastjóri í þrotabúi Ilótei Norðurlands á Akureyri, segir veðhafa ekki hafa tekið afstöðu til tilboða í hótelið. Ilótel Norðurland er enn í rekstri á vegum þrotabús- VEÐRIÐ Loksins, loksins. Það lítur út fyrir að 1. desember muni marka upphaf vetrar á Norð- urlandi. I dag fer vindur smám saman að snúast til norðurs og á morgun og fimmtudag veróur norðan og noróvestan kaldi og fremur svalt. Éljagangur verður um norðanvert landið og á föstu- dag er síðan spáð hvassri norðan átt og snjókomu. ins og var upphaflega ætlunin að reka hótelið tii mánaðamóta en Hreinn segir mögulegt að lengja þurfi þann frest um ein- hverja daga. Eins og fram kom á sínum tíma gerðu fjórir aðilar tilboð í eignir þrotabús Hótel Norðurlands, bæði aðilar á Akureyri og utan bæjar- ins. Síðan þá hafa vcðhafar haft tilboðin til skoðunar og þannig stcndur málið enn. Hreinn sagðist í gær ekki úrkula vonar um að eitthvaó gerist í málinu fyrir mán- aðamót þó skammur tími sé til stefnu. Aðspurður hvað gerist varöandi reksturinn cf ekki hafi verið samið um sölu sagói Hreinn að mögulegt sé aö reka það fram í næsta mánuð og taka þá hel'ð- bundið „jólafrí" hótelsins fyrr en vcnjulega. JÓH stjórn að bærinn gerist hluthafi í nýstofnuðu undirbúningsfélagi um markaðskönnun og útflutn- ing á vatni, Islcnsku ferskvatni hf. Jafnframt verður gengið frá samningi um að bærinn verði einn þriggja stofnaðila félagsins. Mun bæjarráð leggja til að bær- inn eignist 20% hlut í fyrirtæk- inu. I>etta er ekki í fyrsta sinn sem hugmynd um slíkan út- flutning er á borði bæjarstjórn- ar, en fyrir ári síðan var stofnað annað undirbúningsfélag, ís- lenskt lindarvatn hf. • Fyrir um ári síóan stofnuðu þeir Hreinn Sigurðsson, Þorsteinn Guðnason og Stefán Pálsson fé- lagið Islenskt lindarvatn hf. í þeim tilgangi að byggja vatnspökkunar- verksmiðju á Sauðárkróki. Grunn- ur að húsinu var rcyndar þcgar fyrir hendi, reistur af Hreini l'yrir mörgum árum síðan. Grunnurinn er nú í eigu bæjarins. Islcnskt lindarvatn var búið að l'á loforð fyrir láni frá Lánasjóði V-Norður- landa upp á eina milljón dollara, cða rúmar 62 millj. ísl. kr. á þá- verandi gengi. Jafnframt fengu þeir vilyrði fyrir 67 millj. kr. láni frá Byggðastofnun og ætlaði Sauðárkróksbær þá að ganga í ábyrgð gagnvart Byggðastofnun, en aó uppfylltum vissum skilyrð- um. Ekki hefur heyrst mcira frá Islensku lindarvatni hf. og því ekki að sjá að tekist hall að upp- fylla skilyrði fyrir lánum né ábyrgðum. Nú hafa aórir aðilar stofnað undirbúningsfélag urn markaðs- könnun og útflutning vatns frá Sauðárkróki. Það eru Sauðár- króksbær, Gunnar G. Schram og Dr. Paul H. Muellcr, scm er fyrr- um stjórnarformaður Isals. Skv. frcttatilkynningu frá Sauðárkróks- bæ var gerð jarðfræðilcg könnun sl. sumar á lindum og gæöum vatnsins og félagiö var stofnað í framhaldi af því. Skv. heimildum blaðsins fékk Vatnsveita bæjarins gæðastimpil frá EB á vatnið, þaö stcnst kröfur urn sölu á fcrskvatni í löndum EB. I fréttatilkynning- unni scgir jafnframt að cf mark- aóskannanir gefi jákvæðar niöur- stöður verði lcitað eftir samvinnu vió nýja fjárfestingaraðila, innan- lands og utan. Bæjarráð leggur til að bærinn verði hluthafi að 20%, eða 672.000,- kr. og að bærinn láni ís- lcnsku fcrskvatni 100.000 dollara á þessu og næsta ári (rúmar 7 millj. ísl. kr.). Málið vcrður af- grcitt á l'undi bæjarstjórnar í dag og jafnframt að bærinn vcrði stofnaðili að hinu nýja félagi. sþ Rússarnir koma: Tfsn Maríu líklega siglt til Murmansk - í lok næstu viku Von er á forsvarsmönnum rúss- neska útgerðarfyrirtækisins Sovrybflot til Ólafsfjarðar í lok vikunnar til að ganga frá kaup- um á línuveiðiskipinu Lísu Maríu ÓF-26. Söluverð skipsins eru 4 milljónir dollara, eða um 290 milljónir íslenskra króna. Með í för verður áhöfn sem sigla mun skipinu austur til Rúss- Iands en skipiö mun eiga að fara á línuveiðar við Shakalineyjar. Varðandi sölu á Sigurfara ÓF- 30, sem cinnig cr í cigu Sædísar hf„ sagði Gunnar Þór Magnússon framkvæmdastjóri aðeins: „Það cr allt falt ef vel cr boðið og það er ekki ólíklcgra en hvað annað að ráðist verði í frystitogarakaup cf hann vcrður seldur líka. Það streyma hér inn tilboö eftir aö þaö varö Ijóst að selja ætti L.ísu Maríu, og eru boöin allt frá 30 metra upp í 80 metra löng flskiskip og þcssi tilboð koma víöa að úr heimin- um.“ Sigurfari ÓF-30 er 176 brl. að stærð, smíöaður í Norcgi 1988, og er skipiö mcö tæplega 800 lcsta þorskígildiskvóta auk síldarkvóta. Áður hafði útgerðin sclt Snarfara ÓF-25 til Hafnarfjarðar en hann cr 236 brl. að stæró, smíðaöur í Nor- egi 1964. Sigurfari ÓF cr á rækjuvciöum, og cr aflinn frystur um borð. Gunnar Þór scgir að erfltt sé orðiö aó kcppa viö stóru skipin sem eru á rækjuvciöum því samkvæmt landhclgislögum l'ái þau að fara upp allan Eyjatjarðarál cl’ veður vcrsnar. Þaö sc einnig varhugavcrt aó slcngja öllum skipum á rækju- veiðar þótt samdráttur vcröi í þorskveiðunum. GG <Wf$ ..íslenskt og gott Byggðavegi 98 Opið til kl. 22.00 alla daga 20-40% AFSLATTUR ^Peátomyndir? SKIPAGATA 16 SÍMI: 23520

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.