Dagur - 21.12.1993, Page 4

Dagur - 21.12.1993, Page 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 21. nóvember 1993 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (iþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Kaupmáttur fer minnkandi í nýútkomnu fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar kemur fram að greitt tímakaup í dagvinnu landverka- fólks hafi hækkað um 1,4% frá þriðja ársfjórðungi 1992 til sama tímabils á þessu ári. Þá kemur fram í sama fréttabréfi að vísitala framfærslukostnaðar hafi hækkað um allt að 5% þannig að kaupmáttur greidds tímakaups í dagvinnu hafi minnkað um 3,4% þrátt fyrir að kauptaxtar flestra starfshópa hafi verið óbreyttir á umræddu tímabili. Þótt þessar tölur séu ekki tæmandi um almenna launaþróun í landinu und- anfarna tólf mánuði gefa þær ákveðna vísbendingu um hvert stefnir þegar laun almenns verkafólks eru annars vegar. Með þjóðarsáttarsamningunum svonefndu tóku launþegar ákveðnar byrðar á sínar herðar til að auð- velda ríkisvaldinu og atvinnulífinu að takast á við ákveðinn efnahagsvanda, sem farinn var að gera vart við sig. Með þessum samningum lagði vinnandi fólk í landinu fram ákveðinn skerf til lausnar aðsteðjandi vanda og til almennrar eflingar atvinnulífsins. Við gerð kjarasamninga fyrr á þessu ári voru þau sömu sjónarmið og lágu til grundvallar þjóðarsáttarsamn- ingnum í heiðri höfð og varast að efna til útgjalda sem framleiðsla atvinnuveganna gæti ekki staðið undir. Ljóst er að sú skynsamlega samningsgerð, sem þjóðarsáttarsamningarnir og síðar núgildandi kjara- samningar byggja á, er undirstaða þess að tekist hef- ur að halda verðbólgunni í skefjum á erfiðum tímum. Að því leyti hafa þau markmið er sett voru með hinni nýju samningsleið náðst. En þessir samningar hafa einnig kostað launafólk mun meiri fórnir en í upphafi var ætlast til. Laun hafa ekki hækkað til jafns við ann- að verðlag í landinu eins og nýir útreikningar Kjara- rannsóknarnefndar sýna. Við hina óhagstæðu þróun kaupmáttar bætist að atvinnuleysi fer stöðugt vax- andi. Atvinnulausum hefur fjölgað um 40% á einu ári og trúlega hafa aldrei fleiri einstaklingar verið án at- vinnu hér á landi en nú í þessum jólamánuði. Margt hefur lagst á eitt um að skapa þann efna- hagsvanda sem minnkandi kaupmáttur og atvinnu- leysi eru afleiðingar af. Má þar nefna meiri samdrátt í aflaheimildum og lægra verð á útflutningsmörkuðum fiskafurða en gert var ráð fyrir. Uppbygging iðnaðar hefur stöðvast og fremur verið stigin skref afturábak í þeim efnum að undanförnu. Öll nýsköpun í atvinnulíf- inu hefur verið í lágmarki og stjórnvöld engar leiðir séð aðrar en samdrátt á öllum sviðum. Við svo búið má ekki standa. Stjórnvöld og raunar þjóðin öll verður að hrista af sér slenið og hefja sókn til bættra lífskjara. Nýta verður þann efnahagsbata er hugsanlega kemur fram á næstu mánuðum til að hefja áframhaldandi uppbyggingu atvinnu- og efna- hagslífs. Áfram verður að sækja á fjarlæg fiskimið eft- ir því sem aðstæður leyfa meðan fiskistofnar við land- ið þola ekki meiri veiði en raun ber vitni. Iðnaðinn í landinu þarf að endurvekja áður það verður um sein- an. Með öðrum hætti verður tæpast snúið af þeirri braut sem nú er farin. Braut rýrnandi kaupmáttar og vaxandi atvinnuleysis. ÞI „ítalskt stjómmálasiðferði“ í málefnum Akureyrarbæjar Þegar ég síðastliðió haust, í greinum mínum um „Ungmenni í klóm fast- eignasala og Islandsbanka" kafaði niður í meint hagsmunatengsl og siðspillingu, var mér bent á að þau vafasömu viðskipti, sem áttu sér stað á milli Islandsbanka og Aðal- geirs Finnssonar hf. annars vegar og viðskipta“vina“ Islandsbanka hins vegar, væru ekki það eina sem ekki þyldi dagsbirtuna. Mér var tjáð, að þá þegar væri búið, á bakvið tjöldin, að taka um það „pólitíska“ ákvörð- un að Húsnæðisnefnd Akureyrar yrði látin kaupa hinar umdeildu íbúðir í Drekagili 28, af A. Finns- syni hf. til þess að bjarga fyrirtæk- inu úr fjárhagsörðugleikum og aó almenningur á Akureyri yrði látinn greiða fyrir björgunina. Ég skrifaði grein í dagblaðið Dag þann 8. október sl. þar sem fram voru bomar sjö tölusettar spurningar undir yfirskriftinni „Húsnæðisnefnd á villigötum?". Mér var boðið á fund Húsnæðisnefndar, þar sem meirihlutinn reyndi að drepa málinu Vilhjálmur Ingi Árnason. á dreif með því að fullyrða að þær upplýsingar sem ég hefði, væru bara marklausar sögusagnir. Fundinum lauk án niðurstöðu og þessum sjö spurningum var aldrei svarað opin- bcrlega. Nú eru þessar „marklausu sögu- sagnir“ orðnar að veruleika, hinir pólitísku fulltrúar hafa sniðgengið reglugerðir og hundsað vióvörunar- orð embættismanna um að íbúðimar myndu trúlega ekki seljast og bæjar- sjóður því sitja uppi með um 40 milljóna króna skuldbindingar. Ég skora á þá bæjarfulltrúa og húnæðisnefndarmenn, sem sátu hjá eða andmæltu þessu makalausa sjónarspili, að útskýra og gera opin- berlega grein fyrir afstöðu sinni. Þeir sem veittu þessu máli brautar- gengi mættu líka koma fram á sjón- arsviðió. Ég mun síðar, ef þörf krefur, fylgja þessum línum eftir með teikningum og nánari gögnum en fyrst er best að gefa þeim, sem að málinu standa, tækifæri til að tjá sig. Það eru nefnilega kosningar í vor og miklu skiptir að vita hverjir hafa hreint mjöl í pokahorninu. Vilhjálmur Ingi Árnason. Höfundur er formaóur Neytendafélags Akureyrar og nágrennis. í framhaldi af fyrri grein: Hönnimarfúsk í þessari grein vil cg aftur vísa til grein- argerðar Ama Olafssonar, skipulags- stjóra Akureyrarbæjar, dags. 9. ágúst 1993, en þar segir orórétt m.a.: „Mér virðist nær undantekningar- laust að íbúóir hannaðar af ákveðnum húsateiknurum hér í bænum beri vott um þekkingarskort þeirra á híbýlahátt- um. Rekst þar hvaó á annars hom þegar koma á fyrir venjulegum innanstokks- munum, setja hurðir fyrir íbúðarrými íbúðanna, klæóa loft og leggja gólfefni. Jafnvel er herbergjum stundum svo illa fyrir komið og þau svo illa löguó að það stangast á vió almennar lágmarkskröfur eóa umgengnisvenjur. I slíkum vinnu- brögðum felst virðingarleysi gagnvart væntanlegum notendum húsanna eða eigendum, sem leggja afrakstur lífs- starfsins í húsnæóið." Hörð orð en allt of sönn Þetta eru hörð orð en því miður alltof sönn. I þessum bæ em til mýmörg dæmi um íbúóir þar sem bamaherbergi em höfó svo lítil og illa löguó að ekki er unnt aó koma fyrir einföldustu húsgögn- um sem skólabömum em nauðsynleg. Þá finnst ýmsum hönnuðum þeir endi- lega þurfa að hafa fataskápa í öllum her- bergjum íbúða. Slíkt er auðvitað firra - góður skápur í hjónaherbergi er í flest- um tilvikum nauósynlegur - en í fjög- urra herbergja íbúðum er ekki úr vegi aó hafa skáp á svefngangi annað hvort fyrir alla fjölskyldumeðlimi eða þá minni skáp fyrir böm. Hins vegar viróast lausir fataskápar vera nokkuó sem flestum hönnuðum dettur ekki í hug að hafa. Tilgangsleysi og klúður Borðkrókur í eldhúsi þarf að hæfa öóm rými íbúðarinnar þ.e. vera nógu stór fyr- ir fjölskylduna. Alltof mörg dæmi em um að borðkrókur sé of þröngur. - Hönnun glugga er sums staðar ábóta- vant. - Þvottavél á baði í 3ja-4ra her- bergja íbúðum hefur vafalítið verið sett þar aó kröfu byggingaraðila. Þaó cr nefnilega snöggtum ódýrara en aó hafa sér þvottahús, t.d. inn af eldhúsi eða annars staóar til hliðar eða í sameign. Sameiginlegt rými á hverri hæð í stiga- gangi gæti þjónað 3-4 íbúóum. Víóa fer alltof mikió rými í stóran skála í algjöru tilgangsleysi en í sömu íbúð, sem e.t.v. er allt að 90 fermetrum, er kannski 6-7 fermetra bamaherbergi. Fjölmörg dæmi em um það í fjölbýlis- húsum að sameign á jaróhæð hafi verið tekin undir íbúð eða jafnvel tvær íbúðir. í þeim tilvikum hafa hönnuðir látió und- - fyrirkomulag íbúða Pétur Jósefsson. an gróóafíkn byggingaraðila. í sumum tilvikum er um slíkt klúóur aó ræða aó engu tali tekur. - Þá má tilgreina fjöl- mörg dæmi um 3ja-4ra herbcrgja raóhús þar sem bamaherbergi er forstofuher- bergi sem þýðir í flestum tilfellum að ekki er unnt aó nota það fyrir bam fyrr en það er orðió stálpað. Ég býst við aö flestir foreldrar skilji hvaó átt er við. Skortur á geymslurými Að síðustu er rétt aó geta þess að í fjöl- mörgum raðhúsum hér í bæ hafa hönn- uðir tæpast gert ráó fyrir geymslurými og þá alls ekki fyrir grófari hluti eins og reióhjól, hjólbaróa eóa því um líkt. Sums staóar hafa útigeymslur þó veriö teiknaóar við húsin en ekki byggðar (þaó á að byggja þær seinna er manni sagt). Hlutverk byggingarnefndar Hér er í raun ekki aðeins vió bygginga- meistara og hönnuði aó sakast - heldur einnig byggingamefnd Akureyrar. Hún virðist hafa hleypt í gegn aftur og aftur og aftur þvílíku klúóri og vanhönnun að dæmalaust er. Hvers vegna? Ámi Ólafs- son skrifar í greinargerð sinni: „Byggingamefnd hefur litla stoó í byggingarreglugeró fyrir því að skipta sér af innra skipulagi íbúóa ef stærðar- ákvæói og örfá atriði um tillit til fatlaðra em uppfyllt og salemi er ekki inn af borðstofu eða stofu.“ I framhaldi af þessu skyldi maóur ætla aó byggingamefnd sitji þarna og geti ekki annað og eigi þess ekki kost að hafa áhrif á geró og útlit bygginga. Að mínu viti er þetta alls ekki svo. í fyrsta lagi hcfur byggingamefndin byggingar- reglugerð þar sem segir m.a.: „Vanda skal til útlitshönnunar allra bygginga. Byggingamefnd skal meta útlitshönnun bygginga hvaó varóar form, hlutföll, efni, liti o.ll" I öðm lagi segir: „Ibúðir skulu þannig hannaðar að þær snúi vel vió sól og henti sem best til íbúðar...“ Ámi ritar í greinargerð sinni að byggingamefnd þurfi í starfí sínu að hafa sér til aðstoðar sérmenntaðan mann t.d. arkitekt sem yfirfari og meti þau hönnunarverk sem nefndinni berist. Ekki sé unnt að ætlast til þess af bygg- ingarfulltrúa vegna anna hans í um- fangsmiklu starfí. Hér vil ég bæta við að byggingamefnd þarf að vera skipuð fólki sem hefur lifandi áhuga á viðfangs- efninu sem cr vissulega mikilvægt og heillandi - að hafa áhrif á mótun um- hverfísins sem bæjarbúar hafa fyrir aug- unum í framtíðinni. Vilji og metnaður Pólitísku flokkamir skipa í nefndina sitt fólk - e.t.v. þá sem duglegastir hafa ver- ið í erindrekstri fyrir flokkana og nú þurfi aó umbuna þeim. Einnig hata flokkamir ímyndaö sér að best sé að skipa í nefndina sem allra flesta bygg- ingamenn og þar með getur nefndin orð- ið þrýstihópur ákveðinna starfsstétta. Undirrituðum er nákvæmlega sama hvar í flokki byggingamefndarmenn standa. Þcir geta allir vcrið úr sama flokknum mín vegna. En þeir verða aó hafa áhuga á hönnun og byggingalist og vera óhræddir við aó hafa skoðanir, jafnvel óþægilegar skoðanir, og láta þær í Ijós. Umfram allt þurfa þeir að hafa vilja til þess aó gera vel og metnað fyrir hönd Akureyringa og samstöðu um aó láta aldrci undan lágkúmnni. Fyrirspurn til byggingarfulltrúa Aó síðustu: Ein spuming til byggingar- fulltrúa. Hvaó líður störfum nefndar eöa starfshóps sem ætlað var að kanna or- sakir gífurlegra steypuskemmda á fjöl- býlishúsum hér í bænum og bæjarbúar hafa fylgst með undanfarin ár? Fólk veltir fyrir sér hvers vegna sum fjölbýl- ishús hafa skemmst meir en önnur. Heyrst hafa tölur um gífurlegan kostnað hjá sumum eigendum þessara húsa en minni hjá öðram án þess að unnt sé að gera sér grein fyrir hvers vegna. Pétur Jósefsson. Höfundur er sölustjóri Fasteigna- og skipasölu Norður- lands. Millifyrirsagnir eru blaðsins.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.