Dagur - 21.12.1993, Side 7
Þriðjudagur 21. desember 1993 - DAGUR - 7
Tjamarkvartettínn
Tjamarkvartettinn er skipaður tveím konum,
Rósu Baldursdóttur, sópran og Kristjönu Am-
gímsdóttur, alt, og tveim körlum, Hjörleifi Hjart-
arsyni, tenór, og Kristjáni Hjartarsyni, bassa. Öll
búa þau á Tjörn í Svarf-
aðardal og nefna sig eftir
heimavelli sínum.
Kvartettinn á sér þeg-
ar nokkurra ára sögu, þó
að ekki hafi hátt farið í
allra eyrum. Hann hefur
komið fram í bland víð
annað efni og einnig efnt tíl tónleíka. Smám
saman hefur vegur hans farið vaxandi, enda
unnið af metnaöi, eins og áheyrendur máttu
heyra á tónleikum Tjarnarkvartettsíns í Deiglunni
á Akureyri sunnudaginn 19. desember.
Söngskrá tónleikanna var afar blönduð. Þaö
kom sér vel, þar sem fyrir vikiö var unnt að
meta nokkuð, hvar söngflokkurinn stendur á ferli
sínum. Óhætt er að fullyrða þegar í stað, aö um-
talsverðar framfarir hafa orðið á flutningi kvart-
ettsins frá því að undirritaður heyrði hann síðast
að frátöldum þeím örfáu lögum, sem hann flutti
á hínni blönduðu dagskrá, sem efnt var til í
Deiglunni 10. desember síðastliöinn. Raddir féllu
betur hver að annarri en fyrr og kom þaö víöa
fram. Sem dæmi má nefna Uti í mó, sænskt
þjóðlag með texta eftír Hjörleif Hjartarson, sem
kvartettinn flutti líflega og af ánægjulegu öryggi í
beitingu blæbrigða í styrk; Muse/Plant no Trees
eftir Spilverk þjóðanna, sem birti gott vald á fjöl-
breyttrí raddbeitingu og hóglegurn takti; Lag úr
SkoIIaleik Böðvars Guömundssonar eftir Jón
Hlöðver Áskelsson, þar sem geta söngflokksins
til leikræns flutnings kom vel fram; og A jólunum
er gleöi og gaman, jólalag frá Katalóníu, sem
kvartettinn flutti af léttleika og öryggi.
Fleíra mætti til tína, sem einnig var vel gert þó
að ekki næði því, sem nefnt hefur verið, að
minnsta kosti ekki í eyrum undirritaðs. Þannig
var flutníngur fimm
negrasálma ekkí svo
góður sem hefði mátt
vera. Þá tílfinningu, sem
þeirri tónlist heyrir, skorti
talsvert. Best tókst í
hinní rólegu túlkun á
sálminum Every Níght,
en þar var flutningur kvartettsins sérlega ljúfur og
yfirvegaður.
Greinilegt var á öllum flutningi, að unnið hefur
verið af natni viö æfingar. Innkomur voru svo til
ætíö feyrulausar og hljómar vel hreinir. Jafnvel
þar sem hraöast og flóknast var sungiö, var tæp-
lega misfellu aö finna.
Lítils háttar gallar voru á flutningi hér og þar
og í einstökum lögum. Þannig brá fyrir örlitlum
titringi á röddum, líkt og fyrir spennu, einkum
framan af, og í nokkur skipti gætti dálítið flárrar
raddbeitingar, sem spilltí áferð. í nokkrum tilfell-
um hefði Iíka mátt vera heldur meíra líf í flutn-
ingí, einkum í Iögum svo sem Some of These
Days og negrasálmunum. í heild séð var flutn-
ingur hins vegar góður og öll frammistaöa á
greinilegri framfarabraut. Þar skiptir án efa máli,
að kvartettinn hefur fengið tíl liðs við sig Gerrit
Schuil, en honum færa félagarnir í kvartettinum
sérstakar þakkir í söngskrá.
Tjarnarkvartettinum var mjög vel tekið á tón-
leikunum í Deiglunni og flutti hann mörg auka-
lög. Það er tæplega vafi á því, aö haldí þessi
söngflokkur fram sem horfir, má af honum
vænta mjög góðra hluta í framtíö.
TONLIST
Haukur Ágústsson
skrífar
Jólaleikrit Þjóðleikhússins:
íslenskur angórufatnaður
ÍÁGJQFIN SEMVERMR
Undirfót, sokkar, hlífðar- og
heilsufatnaður úrfinull.
Fœst í apótekinu
Fyrirtæki og
félög athugið!
Erum að taka nióur pantanir á dagbókum fyrir
árið 1994 með merkingum fyrirtækja eða félaga.
Margar geróir og litir.
Hafió samband í síma 96-21745.
Bókaútgáfan Varmá,
Ey-Mark sf., Glerárgötu 20, 2. hæð.
Auglýsendur
takið eftir!
Síðasta blað
„Mávurinn“
- eftir Anton Tsjekhof
Baltasar Kormákur, Anna Kristín Arngrímsdóttir og Iírlingur Gíslason í
Ljósmynd: Grímur/Þjóðlcikhúsió.
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins
að þessu sinni verður „Mávur-
inn“, eitt af nieistaraverkum
rússneska leikskáldsins Antons
Tsjekhofs, í nýrri þýðingu Ingi-
bjargar Haraldsdóttur.
Þrír af færustu leikhúslista-
mönnum Litháens eru gestir Þjóð-
lcikhússins um þessar mundir og
standa að þessari uppfærslu. Það
cru leikstjórinn Rimas Tuminas,
scm jafnframt er listrænn stjórn-
andi hins virta Litla lcikhúss í
Vilnius; Icikmynda- og búninga-
hönnuðurinn Vytautas Narbutas
og tónskáldió Faustas Latcnas.
Þremenningarnir starfa að jafnaði
saman við uppsetningar leiksýn-
inga í hcimalandi sínu og hafa
sýningar þeirra vakið mikla at-
hygli langt út fyrir landamæri Lit-
háens. Þcir þremenningar hafa auk
þess unnið saman að uppsctningu
á „Vanja frænda“ í Finnlandi.
„Mávurinn“ fjallar um lífió
sjáll't, cn þó einkum um líf í list-
um; og þetta leikrit fjallar cinnig
um rcynslu andspænis rcynslu-
lcysi, hæfileika andspænis hæfi-
leikaleysi og ást andspænis ást-
leysi. Leiklléttan er einföld en það
sem gerist á milli leikpersónanna
birtir ógleymanlega, ljúfsára
mynd af manneskjunni.
Tsjekhof sjálfur kallaði lcikrit-
ið gamanlcik og óhætt er að segja
að leikstjórinn fari mjög óhefö-
bundnar leiðir í uppfærslu sinni.
hlutverkum smum i „Mávinum“.
Þetta er í fyrsta sinn sem „Mávur-
inn“ er sýndur á fjölum Þjóóleik-
hússins en áður hefur leikhúsið
sýnt „Kirsuberjagaröinn" og
„Villihunang“, leikgerð Michael
Frayns á leikritinu „Platonof
Meö helstu hlutverk í sýningu
Þjóðleikhússins á „Mávinum“ fara
Anna Kristín Arngrímsdóttir,
Baltasar Kormákur, Jóhann Sig-
urðarson, Halldóra Björnsdóttir,
Erlingur Gíslason, Hjalti Rögn-
valdsson, Gunnar Eyjólfsson, Ró-
bert Arnllnnsson, Edda Arnljóts-
dóttir og Guðrún Gísladóttir. Aö-
stoðarleikstjóri er Asdís Þórhalls-
dóttir, en Páll Ragnarsson annast
lýsingu.
Frumsýning verður á Stóra
sviói Þjóðleikhússins að kvöldi
annars dags jóla og er uppselt á þá
sýningu, cn önnur sýning verður
þriðjudaginn 28. desembcr og
þriðja sýning 30. desember.
Síðasta blað fyrir jól kemur út
fimmtudaginn 23. desember.
Skilafrestur auglýsinga er til kl.
11.00 miðvikudaginn 22. des-
ember.
Milli jóla og nýárs
Milli jóla og nýárs koma út þrjú
blöð, þriðjudaginn 28., miðviku-
daginn 29. og fimmtudaginn 30.
desember.
Skilafrestur
Skilafrestur auglýsinga í þriðju-
dagsblaðið er til kl. 11.00 mánu-
daginn 27. desember, fyrir mið-
vikudagsblaðið er skilafrestur
til kl. 11.00 þriðjudaginn 28.
desember og fyrir fimmtudags-
blaðið er skilafrestur til kl. 11
miðvikudaginn 29. desember.
Fyrsta blað
Fyrsta blað á nýju ári kemur út
þriðjudaginn 4. janúar.
auglýsingadeild,
sími 24222.
i________________________________________i
0PID MIPVIKUDACINN22. DESEMBER KL. 9-22
KAUPMANNAFÉLAd AKUREYRAR