Dagur - 21.12.1993, Síða 20

Dagur - 21.12.1993, Síða 20
Akureyri, þriðjudagur 21. desember 1993 Úrval af Canon myndavélum Tilvalið í jólapakkann Verð frá kr. 5.990.- cPedt6myndir7 Skipagata 16 Sími 23520 Húsavík: Óökufærir árekstur Tveir bílar skullu saman rétt norðan við Húsavíkurbæ á sunnudagskvöld. Báðir bíl- arnir voru óökufærir eftir áreksturinn, en ekki urðu al- varleg slys á fólki. Fjórir voru fluttir til skoðunar á sjúkrahús, en meiðsl þeirra reyndust minniháttar. Aðfaranótt sunnudags var bíl ekið á kyrrstæða bifreið á Garðarsbraut. Engin slys urðu á fólki og skcmmdir á bílunum minni háttar. Mikil hálka var um helgina. IM Deila um ráðningu í embætti byggingafulltrúa EyjaQarðar: Sáttatfllaga fékk ekkí ein- róma stuðning sveitarstjómanna - rekstur byggingafulltrúaembættisins og ráðning í starfið hefði færst frá Héraðsráði EyjaQarðar hefðu allar sveitarstjórnir samþykkt Héraðsráð EyjaQarðar mun á næstu dögum ganga frá ráðn- ingu á nýjum byggingafulltrúa Eyjaljarðar. Héraðsráðið aug- lýsti fyrr í haust eftir manni í starfið og fékk 39 umsóknir en töf hefur orðið á ráðningunni vegna ágreinings milli Héraðs- ráðs og bygginganefndanna í Eyjafirði sem telja það skýrt í byggingalögum að þær skuli ráða byggingafulltrúa. Héraðs- ráð taldi það hins vegar sitt hlutverk, út frá samningi sveit- arfélaganna sem njóta þjónustu byggingafulltrúaembættisins, að ráða í starf byggingafulltrúa. Eftir umfjöllun í sveitarstjórn- um þessara sveitarfélaga í síð- ustu viku var ljóst að ráðningin yrði áfram á borði Héraðsráðs og í samræmi við það verður væntanlega ráðið í starfíð innan tíðar. Oll dreifbýlissveitarfélögin viö Eyjafjörð njóta þjónustu embættis Hvítir kollar settir upp á jólaföstu í VMA en nemendur voru af heilbrigðissviði, viðskiptasviði, uppeldissviði og tæknisviði. A bls. 18 er sagt nánar frá útskriftinni og ræðu Bernharðs Haraldssonar, skólameistara. OG/Myml: Robyn Tuttugu og sex nemendur Vcrkamenntaskólans á Ak- ureyri útskrifuðust frá skólanum sl. laugardag að við- stöddum kennurum, foreldrum og öðrum gestum. Þetta eru m.a. sjúkralióar, iðnaðarmenn og vélstjórar Eyjafjarðarsvæðið: Flokkun sorps hefst á næsta ári Áformað er að heQa flokkun sorps á Eyjafjarðarsvæðinu á næsta ári með það fyrir augum að flokka spilliefni frá öðru sorpi. Flokkunin mun fara fram á vegum Sorpsamlags Eyja- fjarðar og miðast við Eyjafjarð- arsvæðið. Endurvinnslan hf. á Akureyri mun veita spilliefnum VEÐRIÐ Veðurstofan spáir að í dag verði hæg norðvestlæg átt um norðanvert landið með éljum hér og þar og líklegt er að veðrið verði á svipuðum nótum á morgun. Á Þorláksmessu bendir ýmislegt til nokkuð stífr- ar norðaustanáttar,_ éljagangi og 5-7 stiga frosti. Á aðfanga- dag jóla má síðan gera ráð fyr- ir hægri norðlægri átt og 3-5 gráðu frosti. viðtöku en Eimskip hefur ann- ast viðtöku rafgeyma af Eyja- fjarðarsvæðinu og notað til þess sérstakan spilliefnagám, sem staðsettur er á Akureyri og hafa um 35 tonn af rafgeymum verið flutt burt á þessu ári. Samkvæmt fjárhagsáætlun Ak- ureyrar fyrir næsta ár er framlag til hreinlætismála áætlað rúmar 50 milljónir en var 47,7 milljónir króna á áætlun þessa árs. Nokkrar breytingar hafa oróið varðandi rekstur sorphauga, þar sem stofn- að hefur verið sérstakt sorpsamlag sveitarfélaganna á Eyjafjarðar- svæðinu. Gert er ráð fyrir að rekstrarframlag Akureyrarbæjar vegna sorpsamlagsins veröi rúmar 9,3 milljónir króna auk þess sem sérstakt rekstrarframlag til sorp- samlagsins vegna spilliefna og brotamálma verði 4,2 milljónir. Akureyrarbær hefur tekið aó sér að annast rekstur og þjónustu sorpsamlagsins. Guðmundur Guðlaugsson, verkfræðingur hjá Akureyrarbæ, sagði í samtali við Dag að með stofnun sorpsamlagsins hafi opn- ast mögulcikar til að hefja flokkun sorps með tilliti til spilliefna af öllu Eyjafjarðarsvæðinu. Samið hafi verið við Endurvinnsluna við Réttarhvamm um að veita þessum efnum viðtöku en Eimskip hafi annast viðtöku og brottflutning á rafgeymum um nokkurt skeið. Vandi væri hins vegar enn varó- andi brotajárnió - hvað við það ætti að gera en Akureyrarbær hafi verið í samstarfi við Sindra og síðar Hringrás hvaö það varðar. Engin framtíðarlausn væri að geyma brotajárn við sorphaugana á Glerárdal og því væri búið aó skipuleggja framtíóarlóð fyrir það í landi Krossaness. Sú staösetning væri mun hentugri vegna nálægð- ar við hafnarsvæðið. ÞI byggingafulltrúa ef frá er talinn Svarfaðardalshreppur. Við austan- veróan fjöróinn tilheyra Sval- barðsstrandarhreppur, Grýtu- bakkahreppur og Hálshreppur einnig þessu samstarfi. í framhaldi af áðurnefndum deilum Héraðs- ráðs Eyjafjarðar og bygginga- nefndanna fengu þessi sveitarfé- lög erindi til umfjöllunar í síðustu viku frá sérstakri sáttanend í deil- unni. Tillaga hennar innihélt að Héraósráð hyrfi frá rekstri bygg- ingafulltrúaembættisins og sveit- arstjórnirnar tækju við ef það mætti verða til aó leysa deiluna. Væntanlega hefðu sveitarlélögin þá stofnað sérstakt byggöasamlag um embættið. Þessari útgönguleið úr niálinu fylgdi þó aö sveitar- stjórnirnar þyrftu að vera á einu máli um þessa niðurstöðu. Svo reyndist ekki vera og þar með verður málió áfram á borði Hér- aðsráðs. Meirihluti sveitarfélag- anna samþykkti þó sáttatillöguna en tvær sveitarstjórnir, þ.e. Eyja- fjarðarsveitar og Svalbarðsstrand- arhrepps, vildu halda embætti byggingafulltrúans áfram innan verksviðs Héraðsnefndar. Að fengnum þessum niðurstöð- urn fjölluðu bygginganefndirnar urn umsóknirnar fyrir helgi og gerðu sína tillögu um ráðningu byggingalulltrúa til Héraðsráðs. Eins og áður segir mun ráðið því væntanlega taka ákvörðun á allra næstu dögum, enda var ráð fyrir því gert í haust að byggingafull- trúi tæki við um áramót. JOH Félagsmálastofnun Akureyrar: Gífurleg fjölgun um- sókna um fjárhagsaðstoð Slæmt atvinnuástand á Akur- eyri hefur leitt af sér urntals- verðan tekjusamdrátt hjá stór- um hópi fólks og atvinnulausum hefur fjölgað til muna. I kjölfar- ið fjölgar umsóknum um fjár- hagsaðstoð til Félagsmálastofn- unar Akureyrar jafnt og þétt og sl. föstudag voru umsóknirnar orðnar fleiri en þær hafa nokkru sinni verið í einum mán- uði. Samkvæmt upplýsingum frá Valgcrði Magnúsdóttur, deildar- stjóra hjá Félagsmálastofnun, voru umsóknir um fjárhagsaðstoð í nóvember um 50% fleiri en í sama mánuði á síðasta ári og samþykkt upphæó næstum tvöfalt hærri en í fyrra. Föstudaginn 17. desember voru umsóknir orönar nálægt 50% fleiri en allan mánuöinn í fyrra og vitaó er að þeim á eftir að fjölga nokkuð. Eftir þessu að dæma er greinilegt að skjólstæóingum Fé- lagsmálastofnunar fjölgar jafnt og þétt og tekjur fjölda fólks hrökkva ekki fyrir nauðþurftum. „I hverjum mánuði kemur nokkur hópur af fólki sem ekki hefur leitað hingað áður. Einnig virðast tekjur fólks dragast saman. Við fáum sömu upplýsingar frá öórum aóilum hér í bænum, svo sem bönkum og stórum fyrirtækj- um. Fólki gengur mun verr en nokkru sinni áóur aó standa við skuldbindingar sínar og stöðugur straumur atvinnulausra kemur að leita að vinnu," segir Valgerður. Lokasprettur jólaverslunarinnar er hafinn, en í ljósi þessara upp- lýsingar má telja víst að margir taka ekki þátt í kapphlaupinu. Eins og undanfarin ár veita Mæðrastyrksnefnd og Hjálpræðis- herinn bágstöddum Akureyringum einnig aðstoð og þá sérstaklega hvað varðar föt og matvæli. Búast má við að fleiri snúi sér þangað cn oftast áður. Hjálpræóishcrinn verður með opið hús á aðfanga- dagskvökl þar sem fólk gctur komió saman og borðað hátíðar- mat. SS - íslenskt og gott Byggðavegi 98 Opið tíl kl. 22.00 alla daga Vandaðir djúpsteikingar- pottar Frá kr. 6.480,- R KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.