Dagur - 23.12.1993, Side 3

Dagur - 23.12.1993, Side 3
FRETTIR Fimmtudagur 23. desember 1993 - DAGUR - 3 Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráð hefur samþykkt að« viðhaldsdeild leiksvæða á veg- um dagvistadeildar verði flutt til umhverfisdeildar og heyri stjömunarlega undir umhverfis- stjóra frá og með 1. janúar 1994. Gert er ráó fyrir að fast- ráðnir starfsmenn viðhalds- deildar vcrði starfsmenn um- hverfisdcildar eftir tilfærsluna og að umhverfisdeildin annist framvegis hirðingu og viðhald leiksvæða og lóða gæsluvalla og leikskóla. Bæjarráð fól um- hverfisstjóra og bæjarverkfræó- ingi í samráði við umhverfis- nefnd að gera tillögu til bæjar- ráðs um hvemig húsnæðismál og starfsaðstaða unisjónar- manns leiksvæða á umhverfis- dcild verði bcst leyst til skemmri tíma og til frambúðar. ■ Á bæjarráðsfundi 16. des. sl. var lagt fram uppkast að samn- ingi Akureyrarbæjar og Gilfé- lagsins um afnot félagsins af eignarhluta bæjarins í Kaup- vangsstræti 23 og kjallara og 1. hæð í Kaupvangsstræti 24 og framkvæmdir á þessum stöðum. Bæjarráð vísaði samningsupp- kastinu aftur til starfshópsins til frekari skoðunar. ■ Bæjarráð gerir ekki athuga- semd við útboð á loftræstikerfi í Samkomuhúsið. Jafnframt sam- þykkti bæjarráð að fjárveitingin á árinu 1993, kr. 700 þús., verði lögð fram sem framlag til Hús- friöunarsjóós, og gangi þaðan til umrædds loftræstikerfis. ■ Á bæjarráðsfundinum 16. desember sl. var lagt fram bréf frá Jóni Arnþórssyni þar sem hann leitar fjárstuönings frá Ak- ureyrarbæ til þess að hrinda í framkvæmd hugmynd um að koma á fót verksmiðjudeild við Minjasafnið eða jafnvel Verk- smiðjusafni íslands, sem deild úr Þjóðminjasafni íslands á Ak- ureyri. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar menningarmála- nefndar. ■ Á þessum sama fundi var lagt fram bréf frá Brunabótafélagi íslands/VÍS þar sem óskað cr eftír að ágreiningur vegna verk- trygginga um Helgamagrastræti 53 á Akureyri verði lagður fyrir gerðardóm, en ágreiningurinn snýst um greiðsluskyldu og fjár- hæð. Kynnt var bréf frá lög- manni Híbýlís hf. þar sem fram kemur sú skoðun að Híbýli hf. hafi verið leyst undan öllum skyldum sínum samkvæmt verksamningi og þar rneð hafi verkábyrgðimar fallið úr gildi. Einnig var grcint frá efni bréfs frá fyrrv. bæjarlögmanni þar sem hann lýsir þeirri skoðun sinni að ekki hafi verið ætlun bæjarsjóðs Akureyrar að falla frá kröfum í vcrktryggingamar vegna hugsanlegra galla á verk- um, sem unnin hefðu verið. í bókun bæjarráös segir að það telji sig ekki geta orðið við er- indi Bmnabótafélagsins/VIS um að leggja málið fyrir gcrðar- dóm. Jafnframt ítrekar bæjarráð þá skoðun sína aö verktrygging- amar séu í fullu gildi. Nokkrir Eikarfclagar ásamt formanni, forseta Kaldbaks og formanni styrktarnefndar. Mynd: GG Kiwanisklúbburinn Kaldbakur: Gaf íþróttafélaginu Eik 50 íþróttabwiinga I tilefni af 25 ára starfsafmælis Kiwanisklúbbsins Kaldbaks á Akureyri í septembermánuði sl. var ákveðið að færa íþróttafélaginu Eik 50 íþróttabúninga.Verð þeirra er um 250 þúsund krónur og eru búningarnir með fé- lagsmerki Eikar að framan en kiwanismerkinu á bakinu. GG Atvinnuleysi í nóvember: Jókst mest á Norðurlandi vestra Atvinnuleysið á landinu jókst hlutfallslega mest á Norðurlandi vestra í nóvember, samkvæmt yfirliti frá Vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins. Meðal- fjöldi atvinnulausra var 239 eða um 4,6% af áætluðum mannafla á Norðurlandi vestra en var 2,3% í október. Atvinnulausum fjölgaði um 117 að meðaltali milli mánaða. Atvinnuleysið jókst í heild um 94% frá í októ- ber og um 29% frá nóvember í fyrra. Atvinnuástandið versnar alls staðar á Norðurlandi vestra í nóv- ember. Á Sauðárkóki fjölgaði at- vinnulausum um 40, eða um 164% og þar voru að meðaltali 65 atvinnulausir í mánuðinum. Á Siglufirði fjölgaði um 21, eða um 122% og þar voru 39 atvinnulaus- ir að meðaltali í nóvember. Á Blönduósi fjölgaði um 9, eóa um 40% og þar voru 34 atvinnu- lausir að meóaltali. Hlutfallsleg aukning var mikil víða annars staóar, en á Hólmavík, Hofsósi og í Lýtingsstaðarhreppi fjölgaði at- vinnulausum um 5 að meðaltali. Um 27% atvinnulausra á svæðinu voru skráöir á Sauðárkróki, um 16% á Siglufirði og um 14% á Blönduósi. Atvinnuleysi karla mældist 3,9% í nóvember en atvinnuleysi kvenna mældist 5,7%. Atvinnu- lausum körlum fjölgaði um 63 aó meðaltali í mánuðinum cn at- vinnulausum konum um 54. KK íslandsbanki og BA: Opið tvíraennmgs- mót í bridds íslandsbanki og Bridgefélag Ak- ureyrar gangast fyrir opnu tví- menningsmóti í bridds sunnu- daginn 2. janúar nk. Spilað verður í Skipagötu 14, 4. hæð og hefst spilamennskan kl. 10.00. Skráningu lýkur kl. 9.40 á spilastað en einnig er hægt aó til- kynna þátttöku til Páls Jónssonar í síma 21695 eða Hermanns Tóm- assonar í síma 26196. Leiðrétting Rangt var farið með nafn eins hreppsins í Suður-Þingeyjarsýslu í frétt um atvinnuleysi á forsíðu Dags 21. des. sl. Þar er talað um Reykjahlíðarhrepp, en á að vera Rcykjahreppur í Reykjahverfi og eru lcsendur beðnir velvirðingar á misrituninni. IM Hjálparstofnun kirkjunnar: Söfnunarátak í göngugötunni á Akureyri í dag Hjálparstofnun kirkjunnar verður með söfnunarátak í göngugötunni á Akureyri í dag á Þorláksmessu. Mun söfnunar- bifreið verða staðsett í götunni eins og á undanförnum árum, þar sem tekið verður á móti framlögum. Tæpast hafa fleiri verið hjálpar þurfi en nú um þessi jól. Gildir þar einu um þá aðstoð sem Hjálp- arstofnunin lætur í té erlendis eða aðstoðar fólk hér á landi sem á í erfiðleikum. Eitt af verkefnum stofnunarinnar nú er að láta fram- leiða og dreifa kabyssum á stríðs- svæðum í Bosníu, þar sem vetrar- kuldar herja, meðal annars á fólk er litla björg getur veitt sér vegna styrjaldarástandsins. Þá hafa Hjálparstofnun kirkjunnar aldrei borist fleiri hjálparbeiðnir frá inn- lendum aðilum en nú á jólaföst- unni. Þar ber mest á fjölskyldum sem vegna atvinnumissis og þröngs efnahags eiga í erfiðleik- uni meó að gera sér dagamun yfir jólin. Hjálparstofnunin hefur því meðal annars fengið ýmis fyrir- tæki í lið með sér og látið útbúa sérstaka matarpakka til dreifingar innanlands. En allt byggist þetta starf á hinum frjálsu framlögum einstaklinga og því er stöðugt leit- að til þeirra um stuðning þótt þörlln sé meiri um jól en á öðrum árstímum. ÞI Jólatrés- skemmtun Hin árlega jólatrésskemmtun Þórs verður í Hamri miðvikudaginn 29. desember kl. 16.30 Allir velkomnir A uglýsing hjá okkur nær um allt INorðurland Vilhelm þorsteinsson, fyrrv. framkvæmdastjóri ÚA, látinn Vilhelm Vernhaður I»orsteins- son, fyrrv. framkvæmdastjóri Utgerðarfélags Akureyringa hf., lést á Akureyri í gær, 64 ára að aldri. Vilhclm V. Þorsteinsson fæddist að Hléskógum í Grýtu- bakkahreppi 4. september 1928. Foreldrar hans voru Margrét Baldvinsdóttir, ljósmóðir, og Þorsteinn Vilhjálmsson, fisk- matsmaður. Þau eignuðust tví- burabræðurna Vilhelm og Bald- vin, sem lést fyrir réttum 2 ár- um, 21. desember 1991. Vilhelm lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar árið 1946 og fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykja- vík 1950. Starfsferill Vilhelms var allur tengdur sjónum á einn cða ann- an hátt. Á árunum 1943-1947 var hann háseti á ýmsum bátum við Eyjafjöró. Frá árinu 1947 til 1965 var hann háseti, stýrimað- ur og skipstjóri á togurum Ut- gerðarfélags Akureyringa hf. Frá árinu 1965 til 1992 var Vil- helm annar tveggja fram- kvæmdastjóra Útgerðarfélags Akureyringa hf. Vilhelm V. Þorsteinsson tók virkan þátt í félagsmálum og gegndi fjölda trúnaðarstarfa. Hann átti sæti í stjórn Félags ís- lenskra botnvörpuskipaeigenda á árunum 1965-1989, þar af for: maður þess frá 1978 til 1989. í stjórn LIÚ sat hann frá 1968 og Lífeyrissjóðs sjómanna frá 1965. Vilhelm sat í hafnarstjórn Akurcyrarbæjar frá 1970, í vita- nefnd frá 1981 og í stjórn Fisk- eldis Eyjafjarðar frá 1988. Á sjómannadaginn 1961 var Vilhelm veittur afreksbikar Fé- lags íslenskra botnvörpuskipa- eigenda, heióursmerki sjó- mannadagsins á Akureyri hlaut hann árið 1989 og árið 1985 var hann sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu. Vilhelm V. Þorsteinsson læt- ur eftir sig eiginkonu, Onnu Kristjánsdóttur, og fimm upp- komin börn; Þorstein, Kristján, Margréti Jónu, Sigurlaugu og Valgerði Onnu. óþh Viðskiptavinir athugið! Afgreiðsla Dags verður lokuð frá kl. 13.00 í dag, Þorláksmessu. Við opnum aftur mánudaginn 27. desember kl. 8.00. Gleðileg jól! ism

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.