Dagur - 31.12.1993, Page 14
14 - DAGUR - Föstudagur 31. desember 1993
POPPANNÁLL
MACNÚS GEIR CUÐMUNDSSON
Poppkrufning 1993
Nú þegar enn eitt árið, 1993, er rétt í þann mund að líða í
aldanna skaut, setjast menn niður og velta fyrir sér
hvernig árið hafi verið, hverju það hafi skilað o.s.frv. Um
þá sem meira og minna lifa og hrærast í íslensku rokk-
og popplífi, gildir það ekki síst, enda jafnan af mörgu að
taka í þeim efnum ár hvert. í þvi augnamiði að gefa ein-
hverja mynd af tónlistarárinu 1993, fékk ég fjóra ágæta
menn til að tjá sig um hvernig það hefði verið, hverju það
hafi skilað og fleira. Þetta eru þeir Pálmi Gunnarsson,
söngvari og veiðigarpur með meiru, Björn Jónsson, tón-
listaráhugamaður, sem starfar hjá Skinnaiðnaði hf. á Ak-
ureyri, Marinó Viborg Marinósson, sölustjóri hjá Spor hf.,
og Einar Örn Benediktsson, fyrrum söngvari Sykurmol-
anna, sem nú starfar hjá Japis.
Björn Jónsson:
„Vaxtarbroddurinn liggur
í ungu rokksveitunum"
Bjöm Jónsson hefur í um tutt-
ugu ár haft dægurtónlist í víö-
um skilningi að einu af sínu
helsta áhugamáli. Þar sem ís-
lensk tónlist hefur ekki hvaó
síst, og þá sérstaklega í seinni
tíð, skipað veglegan sess hjá
honum var við hæfi að fá álit
hans á tónlistarárinu 1993 og
má segja að hann sé fulltrúi fyr-
ir hinn almenna tónlistaráhuga-
mann og plötukaupanda í
þ^ssari poppkrufningu.
„Ég get ekki sagt aó nein
sérstök tónlistarafrek hafi verið
unnin á árinu á sviði innlendrar
dægurtónlistar, þótt mikió hafi
komið út af geislaplötum þetta
árið. Eftirtekja akureyrskra
hljómsveita var mjög rýr á
plötumarkaðnum nú sem
endranær og er mitt álit að þaó
sárvanti almennilegt hljóðver í
bæinn. Þaó eru nefnilega
nokkrar mjög frambærilegar
hljómsveitir og tónlistarmenn
starfandi í bænum, sem fullt er-
indi eiga í upptökur. Þrjár
hljómsveitanna, Kredit, Amma
dýrunn og Hún andar voru með
lög á safnplötum í sumar og
saknaói ég þess sárlega að sú
síðastnefnda skyldi ekki senda
frá sér geislaplötu, en það kem-
ur væntanlega að því innan tíð-
ar. Mér fannst þaó bagalegt aó
þeir „ömmudrengih' skyldu ekki
sjá sóma sinn í því að syngja
sitt lag á íslensku því það er
frekar hallærislegt aó heyra ís-
lenska poppara syngja eigin lög
á ensku fyrir landann og eigin-
lega móðgun við íslenska hlust-
endur. Þá gáfu Skriðjöklarnir út
plötu meó safni gamalla slag-
ara, eins og menn vita, en um
hana kæri ég mig ekki aó fjöl-
Listi Poppsíðunnar yfir bestu
íslensku plöturnar 1993:
1. Spillt.....................................Todmobile
(Einfaldlega kostagripur, full af fínum og faglegum lagasmíð-
um, sem vart eiga sinn líka. Mikil eftirsjá verður af Todmobile.)
2. Mér líður vel......................Vinir Dóra og gestir
(Fjölbreytt og á köflum hreint frábært heimildarverk um heim-
sókn bandarískra blúsmanna og kvenna til landsins á undan-
förnum árum. Meira af slíku, takk!)
3. Drög að heimkomu.......................Orri Harðarson
(Ungur maður á uppleið, á svo sannarlega vió um Orra. Hann
birtist ekki aðeins á þessari fyrstu plötu sinni sem mjög þrosk-
aður tónlistarmaður, heldur líka nú þegar sem mjög mótaóur.
Húrra fyrir honum.)
4. Undir hömrunum háu..............................Halli
(Líkt og Orri kemur Halli gríðarlega á óvart meó furðu góóu
byrjendaverki, svo eftir er tekið. Einkar smekkleg og góó plata
með metnaðarfullum textum.)
5. Lífið er Ijúft.......................Bubbi Morthens
(Hér þarf ekki margt að segja. Ekki allrabesta plata Bubba, en
tvímælalaust ein af þeim betri. Geymir glæsilög eins og Það
er gott aó elska og Sem aldrei fyrr. Bubbi stendur enn fyrir
sínu.)
6. Saga rokksins 1988-1993.........................Ham
(Ham er einfaldlega ein sérstæöasta og besta rokksveit ís-
lands á seinni árum. Góóur gripur, sem sannar að Ham er á
heimsmælikvaróa bæði fyrr og nú.)
7. Dúettinn Súkkat......................Dúettinn Súkkat
(Makalaust innlegg í poppflóruna frá tveimur „furðufuglum".
Ætti að vera til á hverju tónlistarheimili. Bætir, hressir, kætir!)
8. Hotel Föroyar................................KK band
(Enn er nóg púður í KK og félögum, Nýjabrumið reyndar að
mestu farið, en samt góð plata og ekki skemmir Björgvin Gísla
fyrir.)
9. Helgi og hljóðfæraieikararnir......Helgi og hljóðfæral.
(Góður eyfirskættaður glaðningur, sem ekki er hægt annaó en
að hrósa. Taka skal ofan fyrir Helga og hljóófæraleikurunum.)
10. Ef ég hefði vængi...............................Rabbi
(Poppplata í háum gæðaflokki frá Rafni Jónssyni trommuleik-
ara, sem nú verður senn að leggja kjuðana á hilluna vegna
MIG sjúkdómsins. Kom á óvart og er mun betri en fyrri platan
hans, Andartak.)
Björn Jónsson tónlistaráhugamaður við hluta plötusafns.
yrða frekar. Hins vegar finnst
mér platan meó Helga og hljóð-
færaleikurunum úr Eyjafirðin-
um, sem kom út fyrir skömmu,
allrar athygli verð,“ segir Björn í
sérstakri úttekt sinni á norð-
lenskri tónlist.
„En þær plötur sem höfóuóu
einna mest til mín á árinu voru
Fagra veröld, plata með lögum
við Ijóð borgarskáldsins Tóm-
asar Guðmundssonar, en hún
kom út í tilefni þess að sextíu
ár eru liðin frá útgáfu sam-
nefndrar Ijóðabókar. Þar syngja
þau Egill Ólafsson og Guðrún
Gunnarsdóttir Ijóð skáldsins á
einkar Ijúfan og rómantískan
hátt. Plata Dúettsins Súkkat
finnst mér bráóskemmtileg og
koma á óvart. Plötur trúbador-
anna ungu, Undir hömrunum
háu meö Haraldi Reynissyni og
Drög að heimkomu með Orra
Harðarsyni, komu mér sömu-
leiðis á óvart og vænti ég mikils
af þeim í framtíðinni.
Þar sem svo blústónlistin er í
geysilegu uppáhaldi hjá mér
var ég bara þokkalega ánægð-
ur meó plötuna sem Vinir Dóra
sendu frá sér. Er þaó virðingar-
vert hjá Dóra að flyta inn alla
þessa góðu blúsmenn og konur
og verður væntanlega áfram-
hald á því.
Hvaó varóar stóru nöfnin í
poppinu: Todmobile, Nýdönsk,
Stjórnina og SSSól þá mættu
þær allar taka sér frí, en mér
finnst Bubbi hins vegar ennþá
standa fyrir sínu. Annars tel ég
aó vaxtarbroddurinn í íslenskri
dægurtónlist nú liggi aóallega í
ungu rokksveitunum, sem verið
hafa að kveða sér hljóós í
seinni tíð. Þar á ég sérstaklega
við sveitir eins og Dos pilas en
lagið hennar Out of crack var
eitt þaó skemmtilegasta sem
fram kom á árinu. Þaó er að
vísu afleitt meó þá, eins og
strákana í Ömmu dýrunn, að
þeir skuli syngja á ensku en
lagið er engu að síður mjög
gott. Vænti ég því mjög mikils
af þeim í framtíóinni."
Marinó Viborg Marinósson:
„Stígandi í útgáfu ársins“
Marinó Viborg er borinn og
barnfæddur hér fyrir norðan en
hefur nú um nokkurt skeið
starfað hjá Steinari/Spor hf. í
Kópavogi, þar sem hann er nú
sölustjóri. Hann tók því vel og
Ijúfmannlega að eiga spjall um
tónlistarárió frá sínum bæjar-
dyrum séð.
„Ég held aó gott eitt sé um
útgáfuna á árinu að segja.
Margar góðar plötur hafa litió
dagsins Ijós og sýnist mér viss
stígandi vera í útgáfunni nú.
Hinn mikli fjöldi titla á markaðn-
um nú fyrir jólin bendir til þess
að gróska sé í tónlistarlífinu og
óþrjótandi vilji sé fyrir hendi hjá
mönnum að koma efni sínu frá
sér. Gæðin á plötunum eru líka
alltaf aó aukast og nýjar góðar
hljómsveitir koma í vaxandi
mæli fram á sjónarsvióið. Vil
ég af nýju sveitunum sérstak-
lega nefna Dos Pilas, en þeir
eru í miklu uppáhaldi hjá mér
og býst ég við miklu af þeim í
framtíðinni," sagði Marinó al-
mennt um útgáfuna á árinu.
Fyrir utan útgáfu Spors hf.,
sem hann var að sjálfsögðu
ánægóur með, t.d. Jet Black
Joe, sem ekki væru lengur
bara efnilegir, heldur góðir,
nefndi Marinó sérstaklega
plötur Bubba og Ný danskrar,
sem ánægjulegar útgáfur og
góóar. Þá þætti honum einnig
Marinó Viborg Marinósson á
skrifstofu sinni hjá Spor hf.
sumt athyglisvert í sjálfstæðu
útgáfunni, sem ekki væri nema
gott eitt um að segja. „Mitt mat
er það að slík útgáfa sé af hinu
góða. Það gefur auga leið aó
það geta ekki allir komist aó
hjá útgáfunum þannig að þeirra
eina ráð til að koma sér á fram-
færi er að gefa út sjálfir. Stund-
um er það líka svo að sumir
tónlistarmenn kjósa aó gefa
sjálfir út, eins og vitað er, í stað
þess að vera á mála hjá út-
gáfu. Þett er e.t.v. gert í von
um meiri hagnað en við því er
heldur ekki neitt að segja,“
svarar Marinó þeirri spurningu
hvort hin stóraukna sjálfstæða
útgáfa sé af hinu góða eður ei.
Um það hvort þessi mikla út-
gáfa í heildina nú fyrir jólin
muni hugsanlega draga á ný úr
útgáfunni á öðrum tíma ársins
sagói Marinó aó ekki væri mikil
hætta á því að hans mati.
Samkeppnin á sumrin á dans-
leikjamarkaðnum væri t.d. orð-
in þannig að plata væri nú
nauðsynlegur bakhjarl til að
auglýsa viðkomandi upp. Fá
um sig umfjöllun í blöðum
o.s.frv. Þaó væri Ijótt aó segja
frá þessu, en þannig væri nú
málum mikið til háttað með
sumarútgáfuna. Eins konar
„auglýsingaapparat" sé um aó
ræöa. Hins vegar sé ekki
ástæða til annars en að halda
henni áfram í Ijósi þess að fólk
kunni vel aó meta hana.
„Hjá okkur á Spor hefur þaó
í það minnsta verið raunin að
sumarútgáfan hefur komið vel
út á undanförnum árum,“ sagði
hann ennfremur. Þá kom það
fram hjá Marinó, líkt og heyrst
hefur frá öðrum í útgáfu, aó
þeir hjá Spor búist ekki við
samdrætti í sinni söluáætlun.
„Að vísu erum við með færri
titla í útgáfu fyrir þessi jól en oft
áóur, þar sem við mátum stöð-
una þannig aó það væri hyggi-
legra. En í staðinn eru plöturn-
ar sem koma út vonandi betri,"
sagði Marinó að lokum.