Dagur - 21.01.1994, Page 10

Dagur - 21.01.1994, Page 10
10 - DAGUR - Föstudagur 21. janúar 1994 DACDVEUA Stjörnuspa efttr Athenu Lee Föstudagur 21. janúar Vatnsberi (80. jan.-18. feb.; Vertu viðbúinn óvæntri þróun mála sem neyba þig til ab breyta áætlunum þínum. Ábyrgb þín eykst, gegn vilja þínum. Happa- tölur eru 1,14 og 36. (! Fiskar (19. feb.-20. mars) ) Reyndu ab koma því þannig fyrir ab þú eigir rólega helgi. Þér veitir ekkert af hvíldinni því undanfarn- ar helgar hafa reynt mjög á lík amsþol þitt. Hrútur (21. mars-19. apríl) Þótt þú verðir fyrir gagnrýni skaltu halda höfbinu hátt því hún á ekki rétt á sér. Gættu þess ab vera ekki of gagnrýninn vib vib- kvæmt fólk. (W Naut (20. apríl-20. maí) 3 Þótt hlutirnir gangi ekki alveg eins og þú ætlabir verbur þetta nokk- ub góbur dagur. Þá mun þróun mála í einkalífinu hafa varanleg áhrif. (M Tvíburar (21. maí-20. júní) ) Framundan er rólegur dagur. Þú ert latur og ættir því ab láta vandasöm verk bíba betri tíma. Rábgerbu ab fara út ab skemmta þér um helgina. Krabbi (21. júni-22. júli) J Einbeittu þér ab hagsmunum fjöl- skyldunnar og ef einhver mál eru óleyst skaltu leysa þau nú á með- an samstarfsviljinn er ríkjandi. (lö’ón (23.júli-22. ágúst) y Kringumstæbur valda meb þér spennu í allan dag svo ekki hafna tilbobum um abstob. Ef þú kemur ábyrgb yfir á abra skaltu vera viss um ab þeir geti axlab hana. Meyja (23. ágúst-22. sept.) ) Einhver felur þér ab skipuleggja og undirbúa eitthvab. Vertu ekki smeykur því þér mun farnast þetta vel. Gættu þess ab Ijóstra ekki upp um leyndarmál. (85- sept.-22. okt.) J Fólk sem fætt er í þessu merki sér hlutina oft í nýju Ijósi; þab sér líka skemmtilega hlib á leibinlegum atburbum. (Ri€ Sporðdreki ) (23. okt.-21. nóv.) J Þú neybist til ab starfa meb öbr- um gegn löngun þinni. Mundu samt ab ef þú ætlar ab neita einhverju, skaltu vera ákvebinn. Happatölur: 8,19, 30. CBogmaður ^ (22. nóv.-21. des.) J Nú er komib ab þeim tímamótum í lífi þínu ab hlutirnir gerast hratt og stefna í óvæntar áttir. Ef þú ætlar ab notfæra þér þetta verbur þú ab bregbast skjótt vib. Steingeit 71 (22. des-19. jan.) J ö Tækifæri skjóta óvænt upp kollin- um svo reyndu ab bregbast skyn- samlega vib á meban þú getur. Ef þú ætlar ab gera eitthvab um helgina skaltu ganga frá því í dag. Á léttu nótunum Lítt gefin fyrir morgunmat! Nýja þernan var mætt í vinnu hjá hertogahjónunum í hinni stórkostlegu hertogahöll. „Eitt skiptir mjög miklu máli," sagði hertogaynjan meb þunga, „og þab er ab maburinn minn og ég borbum alltaf morgunverbinn á slaginu klukkan átta." Nýja þernan kinkabi kolli og sagbi: „Mér líst vel á þab, hertogaynja. En þib skulub ekkert vera ab bíba eftir mér ef ég skyldi sofa yfir mig. Byrjib þib bara, ég er hvort eb er ekkert mikib gefin fyrir morgunmat." Afmælísbarn dagsíns Orbtakib Vera langt í land Orbtakib merkir „vera langt fram undan". Orbtak þetta er kunnugt frá 19. öld og er hugsað á sama hátt og orbtakib „eiga langt í land". Lík- ingin er aubskilin. Framundan er líflegt og skemmti- legt ár hvab félagslífib snertir; sérstaklega ef þú tilheyrir hópi listamanna. í heild ganga sam- skiptin vib fjölskylduna og vini vel; hamingja ríkir meðal allra. Gættu þess samt ab ætla ekki ab ná of miklum árangri á skömm- um tíma. Þetta þarftu ab vita! Cott ráb til ab lengja lífib Þab er ab ganga 5-15 km eba skokka^ 1-2 klukkustundir dag- lega. Á þann hátt aukast líkur á því ab mabur lifi 2 árum lengur, segir í bandarískri rannsóknar- skýrslu. Spakmæli Vitrar konur Konur eru vitrari en karlmenn vegna þess ab þær vita minna en skilja fleira. (j. Stephen) &/ jTQRI • Cjaldþrotahrina Elns og öllum er kunnugt, sem fylgjast meb dægur- málunum frá degl til dags hér á landi, hefur mikil _________ gjaldþrota hrina gengib yfir þjóbfélagib ab undanförnu. Ekki hafa Akur- eyringar farib varhluta af gjald- þrotunum og mörg fyrirtæki hafa orbib ab'hætta rekstri eba rekstur verib endurreistur á ný af nýjum abilum. Sömu sögu er ab segja um almenning eins og fyrirtækin, ab margir hafa orb- ib ab sjá á eftir öllu sínu vegna fjárhagslegra erfibleika. Fólk spyr eblllega sjálft sig: Hvab hefur gerst á undanförnum ár- um, sem leibir til slíkra hörm- unga? Því er eflaust erfitt ab svara, en of mlkil bjartsýni, há- ir vextir, sjálfseignastefna í húsnæbismálum, verri afkoma þjóbarbúsins, sem leitt hefur til samdráttar og stóraukins og vibvarandi atvinnuleysis, eru trúlega miklír áhrifavaldar um hvernig komib er. • Margir eiga um sárt ab binda Ritari S&S hef- ur oft hugleitt þab þegar verib er ab skýra frá gjaldþrotum í þjóbfélaginu, hvort sem um fyrirtæki eba elnstaklinga er ab ræba, ab á bak vib flest gjaldþrotin er mikil barátta fjölda fólks, sem endar á þennan hörmulega hátt, ab menn sjá á eftlr öllum sínum eignum og í sumum til- fellum ævlstarfi. Þab er engin spurning ab fólk sem lendir í slíkum hremmfngum á um sárt ab binda. Þelr eru aftur á móti nokkub margir í þjóbfélaginu, sem standa meb pálmann í höndunum, hafa hagnast t.d. á háum vöxtum og alls kyns verbbréfum. • Fjölskyldubönd Þab er ekki óeðlilegt ab fólk spyrji: Hvab er til rába? Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör. Ritari Jt&S er þeirrar skobunar og hefur verlb nokk- ub lengi ab þab þurfi ab end- urskoba ýmislegt í bankakerf- inu hér á landi. Þjóbfélaglb er lítib og þar af leiðandi eru fjöl- skylduböndln mjög sterk. Af hverju t.d. helmta bankarnlr ábyrgbir vegna grelbslukorta- vlbskipta? Ef bankarnir treysta vlbskíptavinum sínum fyrlr tékkhefti, af hverju þarf þá ábyrgbarmenn ef sömu vib- sklptavinlr fá greibslukort? Þessari spurningu þarf ab svara og mörgum fleiri í sam- bandi vlb lánavibskipti bank- anna. Þab er ekki sjálfgefib ab fólk getl fengib abgang ab peningum svo til ótakmarkab. Umsjón: Svavar Ottesen.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.