Dagur - 22.01.1994, Side 20
Akureyri, laugardagur 22. janúar 1994
Strætisvagnar Akureyrar:
Gjaldskráín hækkar frá og með næstu mánaðamótum
Gjaldskrá Strætisvagna Akur-
eyrar hækkar frá og með næstu
inánaðamótum. Hækkunin er
mismunandi mikil, en almennt
fargjald fullorðinna hækkar um
6,6%. Strætisvagnar Akureyrar
- breytt leiðakerfi í byrjun febrúar og nýr strætisvagn tekinn í notkun
aka eftir nýju Ieiðakerfi um
næstu mánaðamót og jafnframt
verður þá tekinn í notkun nýr
strætisvagn.
Bæjarráð Akureyrar samþykkti
tillögu að nýrri gjaldskrá fyrir
Framboðsmál í Ólafsfirði:
Skýrist á næstu dögum
hvemig staðið verður
að vali á listana
Ekkert bendir til annars en
vinstrimenn bjóði fram sameig-
inlegan lista við bæjarstjórnar-
kosningarnar í Olafsfirði í vor
líkt og var í síðustu kosningum.
Hjá Sjálfstæðisflokknum hefur
ekki verið tekin ákvörðun um
hvernig staðið verður að vali á
lista og sama er að segja um
vinstrimenn en hjá báðum aðil-
um er að vænta niðurstöðu á
næstu dögum.
Gunnar Þór Magnússon, for-
maður Sjálfstæðisfélagsins í Ol-
afsfirði, segir að það verði félags-
Norðurland:
Hvassviðri og
versnandi færð
A fimmtudagskvöldið brast á
hvöss suðvestan átt og snjókoma
á Norðurlandi og var víða slæmt
veður aðfaranótt föstudags.
Þannig komst vindur upp í 56
hnúta á Akureyri en þótt færð
spilltist ekki að ráði í bænum
lentu bílstjórar í erflðleikuin
rétt fyrir utan bæinn.
Siglfirðingar svál'u rótt en þar
getur suðvestan áttin orðið mjög
slæm. Hins vegar ættu þeir að
sleppa vel ef vindur er að vestan,
en Veðurslofan spáði einmitt vest-
an roki á Norðurlandi.
I gær var komin stórhríð á
Öxnadalsheiði og talið óráðlegt að
leggja á heiðina. Búist var við að
færð myndi spillast á flestum
þjóðvegum norðanlands. Mý-
vatnsheiðin var orðin þungfær.
A Norðurlandi vestra hafði
snjóað drjúgt en færð víðast
þokkaleg og tíðindalaust hjá lög-
reglu í gærmorgun. Samkvæml
veðurspánni í gær var þó óráðlegt
að leggjast í mikil ferðalög um
norðanvert landið. SS
HELGARVEÐRIÐ
Veðurstofan spáði vestan
stormi eða roki um norðanvert
landið í nótt og kólnandi veðri.
Veðurhæðin á að haldast fram
eftir laugardeginum og élja-
gangur fylgir með. Undir kvöld
lægir nokkuð. Á sunnudaginn
er gert ráð fyrir allhvassri norð-
an átt og og éljagangi á Norð-
austurlandi. Frostið á landinu
verður 4-10 stig og kaldast fyrir
norðan.
fundar að taka ákvörðun um fram-
boðsmálin. Slíkur félagsfundur
hefur verið boðaður í næstu viku.
Gunnar Þór vænti þess að eftir
hann liggi fyrir hvaða aðferð verði
viðhöfð við val á framboðslista.
Undangengnar kosningar hefur
framboðslista flokksins verið stillt
upp að undangenginni skoðana-
könnun en jafnvel er inni í mynd-
inni að hafa prófkjör nú.
Guðbjörn Amgrímsson, einn
þriggja bæjarfulltrúa vinstri-
manna, sagði í samtali við blaðið í
gær að skipuð hafi verið þriggja
manna nefnd til að gera tillögu um
hvemig staðið verði að vali á
framboðslista. Hún skili sínum til-
lögum fljótlega. Við síðustu kosn-
ingar fór fram opið prófkjör en
Guðbjörn vildi ekki tjá sig um
hvort sú aðferð sé líklegust nú.
JÓH
Fiskiðj an-Skagfírðingur:
Endurbætur í
samræmi við
kröfur EB
- vinnsla hefst eftir
helgi
Vinnsla hefst hjá Fiskiðjunni-
Skagfirðingi eftir helgina og
segist Einar Svansson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins,
reikna með að byrjað verði að
vinna svokallaðan Rússafisk.
Einar segir að þetta langa
vinnslustopp hafi verið nýtt lil
þess að gera lagfæringar á snyrli-
salnunt sem fyrst og fremst hafi
falist í því að „taka loftið niður“
og fela þannig allar lagnir og
leiðslur. Þetta sé gert í samræmi
við kröfur Evrópubandalagsins.
„Fyrir árið tvö þúsund mega engar
leiðslur vera í loftum matvæla-
framleiðslufyrirtækja á Evrópska
efnahagssvæðinu," sagði Einar.
Hann sagði að þessar kröl'ur hefðu
væntanlega í för með sér umtals-
verðar breytingar í frystihúsum
víða um land. Hjá Fiskiðjunni-
Skagfirðingi væri ætlunin að
skipta nauðsynlegum endurbótum
á nokkur ár.
Togarar fyrirtækisins seldu alla
á mörkuðum í Þýskalandi og Bret-
landi fyrr í jæssutn mánuði, en
þeir eru nú komnir aftur á veiðar
og þeir fyrstu eru væntanlegir inn
til löndunar í næstu viku. óþh
Strætisvagnana á fundi sínunt sl.
fimmtudag. Almennt fargjald full-
orðinna hækkar úr 75 krónum í 80
krónur, 20 miða kort fullorðinna
hækkar úr 1200 í 1280 krónur, 25
miða kort framhaldsskólanema
hækkar úr 1050 í 1100 krónur, 20
miða kort aldraðra hækkar úr 515
í 550 krónur, almennl fargjald
bama hækkar úr 28 í 30 krónur og
20 miða kort barna hækkar úr 380
í 400 krónur. Eins og áður segir
tekur ný gjaldskrá gildi frá og
með 1. febrúar nk.
Stefán Baldursson, forstöðu-
maður Strætisvagna Akureyrar,
segir að fargjöld hafi ekki hækkað
í um eitt ár. Á sama tíma hafi far-
gjöld strætisvagna í öðrum bæjar-
félögunt hækkað. „Kostnaður hjá
okkur hefur aukist. Við erum að fá
nýjan vagn og stækka leiðakerfið
og það hefur aukinn kostnað í för
með sér. Fargjöld hér á Akureyri
eru mun lægri en fargjöld annars
staðar. I Reykjavík er almennt far-
gjald fullorðinna 100 krónur og
110 krónur hjá Almenningsvögn-
um. Ég bendi líka á að grunn-
skólanemar, að 16 ára aldri, greiða
bamagjald. Fyrir sunnan greiða
böm 12 ára og eldri fullorðinsfar-
gjald. Við erum líka með afslátt
fyrir framhaldsskólanema sem
hvergi er annars staðar á landinu,"
sagði Stefán.
Strætisvagnar Akureyrar hafa
nú fengið nýjan og glæsilegan
strætisvagn af Volvo- gerð og
verður hann tekinn í notkun um
næstu mánaðamót þegar væntan-
lega verður byrjað að aka eftir
nýrri leiðaáætlun. Stefán segir að
um sé að ræða viðamiklar breyt-
ingar á leiðaáætluninni sem verði
kynntar rækilega á næstu dögum.
Stærsta breytingin á leiðakerfinu
felst í því að Giljahverfið verður
tekið inn í dæmið og Þorpið og
Nýi strætisvagninn er af gerðinni Volvo og er reiknað með því að hann sjáist
á götum bæjarins frá og með næstu mánaðamótum. Mynd: Robyn.
Brekkan tengd saman með akstri
eftir Hlíðarbraut. óþh
Við
tökum vel á
móti ykkur
alla daga
til kl. 22.00
Byggðavegi 98
TILBOÐ
PFAFF
SAUMAVÉL 6085
HEIMILISVÉL 20 SPOR
VERÐ KR. 39.805
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565
líiíAisiii.'in
FYRIR KONUR
Leikfimi
Þolfimi
•
Púl
Liðlcandi
•
Styrkjandi
Brennsla
Stigvélar
Tseki
Númskeið
og fleira
Magnús Seheving
kennir 25., 26. og 27. janúar
FYRIR ALLA
Þolfimi
Pallar
Tæki
Þrekhringir
Pallahringir
•
Brennsla
Þol
•
Styrkur
Morguntímar
Húdegistímar
Dagtímar
Kvöldtímar