Dagur - 15.03.1994, Page 11
HER OG ÞAR
Þriðjudagur 15. mars 1993 - DAGUR - 11
Tilgangurinn helgar meðalið, eða hvað?
Nancy Kemgan er ekki fyrsta fórnarlambið
Það er kannski að bera í bakkafull-
an lækinn að skrifa um þær „stöll-
ur“ ög skautadrottningar, Nancy
Kerrigan og Tonyu Harding og
árás fyrrvcrandi bónda Harding og
lífvarðar á Kerrigan til þcss að
setja hana úr leik á Olympíuleik-
unum í Lillehammer og þar meö,
væntanlega, auka ntöguleika Hard-
ing á verðlaunasæti. Það gekk ckki
eftir, báðar voru meðal keppenda
og lenti Kerrigan í 2. sæti en Hard-
ing í því 8. En árásin á Kcrrigan er
ekki sú eina sent skautadansarar
hafa orðið fyrir þcgar nær dregur
Olympíuleikum.
Skautahlauparinn Dorothy
Hamill, sem varó nánast þjóð-
sagnapersóna í Bandaríkjunum,
varð næstum fyrir bíl eins keppi-
nautarins skömntu fyrir Olympíu-
leikana í Innsbruck 1976, þar sem
hún vann til gullverðlauna. Til
allrar hamingju tókst þjálfaranum
að hrinda henni út af veginum í
tæka tíð. Dorothy vissi hvcr átti í
hlut en neitaði að kæra.
Eftir að þýska stúlkan Katarina
Witt varð Olympíumeistari árið
1988 fckk hún í pósti kassa með
brúnkökum, en þær höfðu verið
fylltar með laxerolíu. Katarína var
viss um að afbrýðissamur keppi-
nautur heföi sent kökurnar og gaf
þær. Þeir sem sntökkuðu þær
fengu heiftarlegan niðurgang og
miklar magakvalir.
A heimsmeistaramótinu í
Stokkhólmi árið 1926 var rcynt að
cyðilcggja sýningaratriði olympíu-
mcistarans Herrna von Szabo-
Planck mcð því að losa unt sólann
á skautunum hennar. Hefði sólinn
Harding og Kerrigan aðcins þremur dögum eftir árásina á Kerrigan 6.
janúar sl. Kerrigan brosti fyrir ljósmyndarann þrátt fyrir kvalir í fætin-
um. Þá var ekki vitað um um mcint afskipti Harding af árásinni.
losnað hefi það getað orsakað I enn verra ef það heföi gerst í
beinbrot eða jafnvel eitthvað I cinhverju snúningsstökkinu.
Vá, maður!
Eitt af best varóveittu
leyndarmálum heimsins er
þaó hverju Skotar klæóast
undir pilsunum, eöa hvort
þeir yfirleitt klæóast
einhverju. Þeir Breffni O
Mullane og Jamie Drumm-
ond höndluðu nýlega stóra
sannleikann í málinu þegar
sekkjapípuleikarinn Hector
Maclellan var nýlega aö
leika fyrir gesti og
gangandi í Hyde-Park garó-
inum í London. Af svip
piltanna má ráóa aó þaó
hafi verió...ja, hvaó?
Þeir sem vilja fá andlitsmálun fyrir
leik mæti tímanlega
Nú mæta allir gulklæddir
á síðasta heimaleik fyrir úrslitakeppni
adidas^
FYRIRTÆKI, EINSTAKLINGAR
OG FÉLAGASAMTÖK Á AKUREYRI
Styrkir til nýrra
verkefna
1. Atvinnumálanefnd Akureyrar auglýsir hér með eftir
hugmyndum að nýjum verkefnum einstaklinga,
fyrirtækja og félagasamtaka, sem Atvinnu-
leysistryggingasjóóur væri reiðubúinn til að styrkja,
sbr. reglur um úthlutun styrkja úr
Atvinnuleysistryggingasjóði árið 1994.
77/ að verkefnið teljist styrkhæft þarf það að vera:
a) unnið af fólki á atvinnuleysisskrá á Akureyri,
b) líklegt til að fjölga eða viðhalda störfum á Akureyri,
c) skýrt afmarkaó og tímabundið, hámark 6 mánuóir,
d) nýtt viðfangsefni, sem er ekki í samkeppni vió aðra
starfsemi.
Upphæð styrks er jafnhá atvinnuleysisbótum sem ella
hefðu verið greiddar þessum einstaklingum.
2. Ennfremur er heimilt að styrkja atvinnulaust fólk til
að hleypa af stokkunum eigin viðskiptahugmynd og
heldur það atvinnuleysisbótum í 6 mánuði meðan látið
er á það reyna hvort hugmyndin er framkvæmanleg,
enda sé starfsemin ekki í beinni samkeppni við annan
atvinnurekstur.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
atvinnumálanefndar í síma 21701.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslunni aó
Strandgötu 29,1. hæð.
Umsóknir skuiu sendar:
Atvinnumálanefnd Akureyrar
Strandgötu 29
Pósthólf 240
602 Akureyri