Dagur - 26.03.1994, Blaðsíða 11
Alþjóða ólympiska
fræðslustofnunin:
Efnirtil
námskeiðs í
Grikklandi í
sumar
- tveimur íslendingum
gefst kostur á að taka þátt
„Alþjóða ólympiska fræðslu-
stofnunin, sem hefur aðalstöðv-
ar í Olympiu í Grikklandi, boð-
ar til 34. námskeiðs fyrir
íþróttafólk á aldrinum 20-35
ára, 18. júlí - 2. ágúst í sumar.
Hjón fá ekki leyfi til þátttöku
né sá, er fyrr hefur verió þátttak-
andi. Tveir þátttakcndur frá hverri
ólympiunefnd, sem starfrækir
fræðsluráö, fá fríar ferðir og uppi-
hald. Tveir til viðbótar geta fengið
að taka þátt í námskeiðinu, en þeir
verða að greiða allt sjálfir eða
þeir, sem standa að þátttöku
þeirra.
Fræösluráð hverrar þjóðar vel-
ur þátttakendur. Gert er að skil-
yrði, að umsækjendur tali góða
ensku eða frönsku, sem eru ásamt
grísku og arabísku opinber tungu-
mál námskeiðsins.
Aðalumræðuefnið vcrður
„01ympismi“ þ.e. Olympíuleik-
arnir og hugsjónin að baki þeirra,
stjórnkerfi, viðhorf og störf
Olympíuhreytlngarinnar. Einnig
verður stofnaó til umræðu um að
100 ár eru liðin frá stofnun Al-
þjóðaólympíunefndarinnar (IOC)
og um stuðning IOC við þjóðfélög
21. aldar.
Kristín Gísladóttir og Valdimar
Grímsson sóttu 33. námskeið Al-
þjóðafræðsluráðsins sl. sumar.
Þau kölluðu skýrslu sína um þátt-
tökuna: „Ævintýri í Olympíu".
Þau efuðust um að þarna niður frá
yrði skemmtilegt sumarfrí. „Ann-
að kom á daginn og við eigum
aldrci eftir aó sjá eftir því að hafa
tekið þátt í þessu námskeiói (ráó-
stefnu). Allt frá upphafi var hver
mínúta skipulögð. Alltaf nóg að
gcra. Mikil vinna en lærdómsríkt
og skemmtilegt".
Þeir, sem hafa hug á því að
njóta þessa „ævintýris“, þurfa að
senda umsókn til Fræðsluráðs O.
I., í Iþróttamiöstöðinni, Laugardal,
104 Reykjavík, fyrir 1. apríl nk.
Með umsókninni þurfa aö fylgja
upplýsingar um íþróttaiðkanir eða
störf í þágu íþrótta. Meðmæli eru
vel þegin.“
(Fréttatilkynning frá fræósluráói
Olympíunefndar Islands).
Æuglýslng
hjá okkur nær um
allt IMorðurland
wmm
©24222
Fm 27639
Ljósabekkir
Nuddpottur
Vatnsgufubab
Tækjasaiur
Tröppuþrek
Hamar, félaqsheimili Þórs
vib Skarbshlíb.
Sími 12080.
SITT HVORT VERÐIÐ!
SAMS KON AR
LYF,
SAMA VIRKA
EFNIÐ,
Merki læknir bókstafinn (g) við lyfjaheiti á lyfseðli, fær
sjúklingur eingöngu afgreitt tiltekið lyf. Merki læknir hins
vegar bókstafinn(S)við lyfjaheiti, fær sjúklingur afgreitt
ódýrasta samheitalyf í sama lyfjaflokki.
Það er ótrúlegt en satt að jafngild,
samskonar iyf eru ekki alitaf seld á
sama verði. Þau eru oft á markaði frá
fleirum en einum framleiðanda undir
sitt hvoru heitinu. Og verðmunurinn er
oft ótrúlegur.
í þessari auglýsingu er borið saman
tvennskonar verð á samheita hjarta- og
æðalyfi. Annarsvegar 4.526 kr.,
hinsvegar 10.327 kr. Þetta er algengt
lyf, sem notað er gegn háþrýstingi og oft
gefið sjúklingi í langan tíma.
Á markaði hérlendis eru tvö form lyfsins
frá fjórum framleiðendum. Dæmið sýnir
verðmun á venjulegum 100 daga
skammti af lyfinu. Hér er um jafngilt
samheitalyf að ræða, sama virka efnið;
annarsvegar frumlyf, merkt með (R) á
lyfseðli, en hinsvegar ódýrara
samheitalyf, merkt með(§) á lyfseðli.
Dæmið sem hér er tekið þarf ekki að
vera algilt um verðmun á lyfjum
merktum (D og ®.
Lyfið er oft gefið sjúklingum í langan
tíma, eins og að framan greinir. Hér
getur því verið um verulegar upphæðir
að ræða fýrir sjúklinga og samfélag.
Ekki er hægt að geta heitis lyfsins hér,
því samkvæmt íslenskum lyfjalögum, er
óheimilt að nefna nöfn lyfja í
auglýsingum, sem birtast almenningi.
Aðhald og sparnaður í rekstri
veitir aukið svigrúm til betri
heilbrigðisþjónustu.
HEILBRIGÐIS" OG
TRYGGINGAMÁLA'
RÁÐUNEYTIÐ
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS