Dagur - 08.04.1994, Page 7
Föstudagur 8. apríl 1994 - DAGUR - 7
Hrísey:
LeikklubbuiTnn Krafla
vaknar af þyrnirósarsveftii
Leikklúbburinn Krafla í Hrísey
er að vakna af dvala eftir 9 ára
svefn. Klúbburinn sýnir annað
kvöld kabarett sem samanstend-
ur af þremur einþáttungum í
léttum dúr. Kirkjukór Hríseyj-
ar tekur höndum saman við
leiklistarfólkið og mun skemmta
milli þátta. Sóley Björgvinsdótt-
ir, formaður Leikklúbbsins
Sögu, segir að ef vel tekst til þá
komi til greina að ráðast í
stærra verkefni á næsta starfs-
ári.
„Leikklúbburinn svaf þyrnirós-
arsvefni eins og sum mál sem eru
lengi að ganga í gegnum kertið.
Við ætlum að vona að núna sé
Krafla að „gjósa“ því við tókum
okkur 10 saman um að endurrcisa
klúbbinn og vonum að framhald
Hans Peder Pedersen
Fæddur 12. desember 1908 - Dáinn 31. mars 1994
að njóta þess svo og bömin í nágrenn-
inu og þau sem heimsóttu hann að
Grísabóli.
Eitt sinn kom lítill snáði heim til
þeirrar Rósu í Þingvallastrætið og
bankaði uppá. Þegar Rósa kom til
dyra spurði sá stutti, hvort maðurinn
mætti ekki koma út aó lcika scr. Þcssi
saga ber vott um þann hug scm börnin
sem kynntust honum báru til hans.
Það cru margir, trúi ég, scm citt sinn
kynntust honum er muna eftir uppá-
tækjum og gríni hans.
Eftir fyrsta sumarið á Islandi hugð-
ist hann fara heim um haustið en
ákvað síðan aó hafa vetursetu og
fresta heimferðinni fram að næsta
vori. Arin hans uróu sextíu og tvö á
Islandi en nú lagói hann upp í sína
hinstu för þetta vorið.
Eg vil aó lokum kveðja tengdaföó-
ur og kæran vin. Rósu tengdamóður
minni, svo og öðrum ástvinum, votta
ég samúð mína.
Guðmundur Armann
Sigurjónsson.
Vinarkveðja
A kveójustund cr margs að minn-
ast. Petti, eins og við kölluóum hann,
var sannkallaður vinur fjölskyldunnar
til áratuga. Otal minningar_ hrannast
upp og allar gleóilegar. I hugann
koma sífellt sömu orðin; vinátta -
gleði - spaug - söngur - trygglyndi.
Við viljum þakka Petta áratuga trygga
vináttu og hjálpsemi hvenær sem þörf
var á. Vió þökkum glcðina sem fylgdi
honum alla tíó. Hvenær sem fjöl-
skyldan kom saman á hátíðarstund
spuróu bömin cl'tir því hvort Petti og
Rósa kæmu ekki örugglega. Pctti var
alltaf hrókur alls fagnaðar og sagði
sínar einstæóu sögur svo allir gátu
hlegió að. Börn voru menn í hans aug-
um og glettnin aldrei langt undan þeg-
ar þau voru annars vegar. Fyrir einu
og hálfu ári þegar fjölskyldan gladdist
vegna stórafmælis var Petti aö sjálf-
sögðu þar, söng og jafnvcl dansaði og
þá ekki síst við yngstu gestina. Svona
var Petti í okkar augum, alltaf glaður
og alltaf tilbúinn aó gefa af sér.
Fyrir slíkan vin þökkum við nú af
alhug.
Elsku Rósa, Ragna, Didda og aðrir
ástvinir. Við færum ykkur samúðar-
kveðjur, ekki síst til bamanna sem
sakna afa svo sárt. Þau barna okkar
sem ekki geta fylgt Petta síóustu spor-
in senda kveðjur með þakklæti fyrir
ógleymanlegar samverustundir.
Far í friði kæri vinur.
Ari og Sigga Dóra.
í dag, föstudaginn 8. apríl, veróur
tengdafaðir minn Hans Peder Peder-
sen jarðsunginn frá Akureyrarkirkju.
Hann var fæddur á Norður-Jótlandi
12. desember árið 1908, sonur hjón-
anna Kristen Peder Blichsted og
Maríu Jakobsen. Þau voru bændur en
faðirinn var einnig smiður og vann
hann oft vió það á öðrum bæjum.
Hann átti fimmtán systkini en þrettán
lifðu. Foreldrunum tókst að ala upp
allan hópinn og koma til manns án
þcss að þiggja af svcit. Sá dugnaður,
þrautseigja og útsjónarsemi foreldr-
anna sem hefur þurft til, svo hópurinn
kæmist af, voru eiginleikar sem
prýddu Pedersen svo ríkulega.
Einn úr þessum stóra systkinahópi
lifir bróóur sinn, hcitir Henry og cr
yngstur af systkinunum. Hann býr í
Oóinsvéum.
Lífsbaráttan hófst snemma. Scm
vinnumaður á dönskum búgörðum
kynntist Pcdersen líl'inu, margbreyti-
leika þess, mótlætinu cn einnig gleó-
inni. Gáskinn, spaugsemin og eigin-
leikar hans til að sjá spaugilegu hlióar
lífsins voru einmitt svo ríkur þáttur í
fari hans sem og sá eiginlciki hans að
taka málstað lítilmagnans.
Pedersen setti markið ætíð hátt.
Hann vildi verða smióur eins og faðir-
inn, hann vildi læra á fiðlu, hann vildi
komast út í heirn og skoða sig um. At-
vikin höguðu því þannig aó ekkcrt
varð úr smíóanáminu en á fiðlu lærði
hann og út í heim fór hann til Islands.
Fyrst heyrði hann um Island í bréfi
frá frænda sínum sem var háseti á
dönsku eftirlitsskipi vió Islandsstrend-
ur. Það var svo í búnaöarskóla í Vest-
urdal á Jótlandi sem Pederscn hitti
Rassmusen, sem var kennari þar.
Hann hafði unniö á Gróórarstöðinni
við Akureyri og lét vel af. Þetta
kveikti ævintýralöngunina hjá þessum
unga Dana sem vildi rcyna citthvað
annað en að vcróa kotbóndi.
Hingaó koma hann árió 1932 með
tuttugu og fimm aura uppá vasann,
ráóinn vinnumaður vió Gróðrarstöö-
ina.
Störfin hér urðu margvísleg; vctr-
armaður hjá séra Sigurði Stefánssyni á
Möðruvöllum í Hörgárdal, búskap hóf
hann á Fornhaga, síóar að Osi en báð-
ir bæimir eru í Hörgárdal og þar er
ekki lengur búskapur. Um tíma stund-
aði hann sjó, var mjólkurpóstur hjá
KEA, sautján ár vann hann við skó-
smíðar hjá Skógcróinni Iðunni. Síð-
ustu starfsárin var Pedcrscn svínahirö-
ir, fyrst aó Lundi svo á Grísabóli og
aó síðustu á Rangárvöllum við Akur-
cyri. Auk þessa vann hann sumar-
vinnu, í síld, vió virkjanir svo citthvað
sé nefnt.
Það var að Osi í Hörgárdal sem
hann kynntist lífsförunaut sínum Rósu
Rögnvaldsdóttur og þar hól'u þau bú-
skap. Arió 1944 giftust þau. Dætumar
eru Ragna Guðný sem er gift Sveini
Þorbergssyni og Hildur María, gift
Guómundi Armanni Sigurjónssyni.
Barnabörnin eru sjö og bamabama-
börnin fjögur.
Rósa og Hans byggðu sér heimili
að Þingvallastræti 42 á Akureyri og
fluttust í það hús í maí 1952.
Þaó var mikil gæfa að kynnast svo
góðum manni sem var alþýðumaður í
bestu nterkingu orðsins. Margar sögur
sagði hann mér um atburði sem áttu
sér stað og báru þcir atburóir ckki allt-
af vott um miskunnscmi í garð fátæks
vinnumanns en ætíð var stutt í gaman-
semina í frásögninni.
Pedersen var víölesinn, mannkyns-
sagan var honurn hugleikin hann
fylgdist vel með heimsmálunum. Mér
eru minnisstæðar þær stundir sem ég
naut þess að hlusta á hann spjalla um
þau málefni. Hann hafði unun al' tón-
list, sótti gjarnan tónleika.
Fiðlu átti Hans sem hann tók fram
á hátíðarstundum og lék á hana. Hann
lærði á fiðlu einn vctur þegar hann var
vinnumaóur á dönskum búgarói. Eitt
sinn dreymdi hann um það að verða
fiðluleikari, ekki skorti hann hæfileik-
ana, cn annaó kom í veg fyrir það. Sú
saga sem hann sagói um þann atburó
var ein af hans mörgu spaugsömu
sögum, laus vió beiskju þó sá draumur
hans rættist ekki.
Pedersen var bamgóóur og fengu
barnabörnin, einnig bamabamabömin
Bóndinn heldur snautlegur á svip. Bjarni Árnason og Þórunn Arnórsdóttir.
MINNIN Cm
Lcikcndurnir fjórir í „Illt til afspurnar“. Athyglisvert er að þau eru öll ný-
liðar í lciklistinni í Hríscy og þrjú þcirra aðflutt. Frá vinstri: Þórunn Arn-
órsdóttir, Jóhanna Friðgcirsdóttir, Bjarni Árnason og Hrannar Friðbjörns-
son. Dagsmyndir: Páll Björgvinsson.
verði á starfinu,“ sagði Sóley í
samtali við Dag í gær.
„Við erum með kabarett með
þremur cinþáttungum. Einn þátt-
anna cr sínu lcngstur og heitir „Illt
til afspurnar" þar sem gert er grín
aö sumurn mönnum sem koma
seint heim til sín og þurfa að ljúga
sig út úr hlutunum.“
Sóley segir að ef vel gangi á
iaugardagskvöld sé hugsanlegt að
sýna kabarettinn á nýjan leik. JOH
Útlendingafélag Eyjaflarðar:
Þjóðarkvöld haldið 23. apríl
Útiendingafélag Eyjafjarðar var
fornilega stofnað 24. niars sl.
Tilgangur félagsins er að aðlaga
útlendinga að íslenskuni háttum
og siðum. Félagið er opið öllum,
bæði útlendingum og Islending-
um sem hafa áhuga á að kynn-
ast öðrum þjóðum.
Félagió cr með aðsetur í Lax-
dalshúsi á Akureyri. Opið hús er
tvisvar í viku, á flmmtudögum kl.
20 og 22.30 og á sunnudögum kl.
15-18. Þar cru ýmsar uppákomur
s.s. fyrirlestrar, bingó, spilavist
o.fl. Þaó cr alltaf hcitt á könnunni.
Ymislegt cr framundan í starfi fé-
lagsins. Fyrirhugað cr að halda
þjóðarkvöld annan hvcrn mánuó,
þar scm íclagar kynna landið sitt.
Fyrsta þjóðarkvöldið vcrður
haldið 23. apríl nk. og mun fólk
frá Filippseyjum sjá um það. Þátt-
taka tilkynnist fyrir 12. apríl nk.
Nánari upplýsingar er að fá í Lax-
dalshúsi á opnunartíma félagsins
og hjá formanni félagsins, Lise
Heiðarson, í síma 25324 eftir kl.
\i.
Nánar verður tjallað um Út-
lendingafélagið í Degi í næstu
viku. óþh
Leiðrétting
í Degi í gær var birt fréttatilkynn-
ing frá Karlakórnunt Heimi í
Skagafírði. Þar var ranglega sagt
að kórinn myndi halda tónleika í
Bifröst á Sauðárkróki föstudaginn
21. apríl. Hió rétta er að tónlcik-
arnir verða þriðjudaginn 12. apríl
nk.
Aöalfundur
Veiöifélags Hörgár og vatnasvæð-
is hennar
Aðalfundur verður haldinn sunnudaginn 10. apríl
kl. 13.30 áMelum.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram annar útdráttur húsbréfa
í 4. flokki 1992.
Koma þessi bréf til innlausnar 15. júní 1994.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði og
í Alþýðublaðinu föstudaginn 8. apríl. Auk þess
liggja upplýsingar frammi í Húsnæðisstofnun
ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í
bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
cSg HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 69 69 00