Dagur - 08.04.1994, Qupperneq 12
Akureyri, föstudagur 8. apríl 1994
AMERISKIR VORDAGAR
á hlaðhorði Bautans
föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld
Aðeins kr. 1.290
Ferðamálaráð opnar skrifstofu á Akureyri
Fcrðamálaráð íslands opnar í dag nýja skrifstofu að Strandgötu 29 á Akureyri, á efstu hæð í húsnæði Byggðastofn-
unar. Þar hefur verið innréttuð glæsileg aðstaða og þegar Ijósmyndari Dags leit þar við í gær, var Helga Haralds-
dóttir, forstöðumaður skrifstofunnar, að koma sér fyrir á nýja vinnustaðnum. Mynd: Robyn.
Andrésar Andarleikarnir framundan:
Enn stefnir í metþátttöku
- um 800 keppendur skráðir til leiks
Andrésar Andarleikarnir á
skíðum, hinir 19. í röðinni, fara
fram á Akureyri dagana 20.-23.
apríl nk. Enn stefnir í metþátt-
töku og um 800 keppendur frá
16 héruðum landsins eru skráð-
ir til leiks. Leikarnir eru stærsta
skíðamót landsins á hverju ári
og hafa stækkað ár frá ári. Á
fyrsta mótinu voru keppendur
114.
Andrésar Andarleikarnir verða
settir mióvikudaginn 20. apríl en
keppni hefst í Hlíðarfjalli daginn
eftir og stendur í þrjá daga. Keppt
verður í 6 aldursflokkum 7-12 ára,
í svigi, stórsvigi, göngu og stökki.
Að loknum hverjum keppnisdegi
fer fram verðlaunaafhending og
skemmtidagskrá í íþróttahöllinni.
Undirbúningur fyrir leikana er
nú á lokastigi en gífurleg vinna
liggur aó baki við framkvæmd
móts sem þessa. Á næsta ári veröa
leikarnir haldnir í 20. sinn og þá
verður meira lagt í þá en nokkru
sinni fyrr. KK
Vegleg dagskrá í tilefni af 20
ára afmæli Dalvfktubæjar
Dalvíkingar minnast þess um
helgina að 20 ár eru liðin frá því
að Dalvíkurbær fékk kaupstað-
arréttindi. Þann 5. apríl fyrir
réttum 20 árum afgreiddi Al-
þingi Iög um kaupstaðarréttindi
bæjarins og þau voru síðan
staðfest af forseta íslands þann
10. apríl 1974.
Dalvíkingar ætla að minnast
þessara tímamóta með veglegum
hætti. Á morgun, laugardag kl. 14,
verður opnuð yfirlitssýning á
verkum Jóns Stefáns Brimars Sig-
urjónssonar, listmálara, í Tónlist-
arskóla Dalvíkur (Gamla skóla).
Einnig verður opnuð sýning á
munum safnara á Dalvík. Við
VEÐRIÐ
Hann verður á norðan
næsta sólarhringinn þótt
ekki verði um hret að ræða.
í dag er búist við allhvassri
norðanátt um vestanvert
Norðurland með éljum en
Norðaustanlands verði
hægara og einhver él fram-
an af degi en bjartara síð-
degis.
þetta tækifæri heldur Trausti Þor-
steinsson, forseti bæjarstjórnar,
ávarp. Þessar tvær sýningar veróa
opnar kl. 14-19 á morgun og
sunnudag.
Á sunnudag kl. 9 verða fánar
dregnir að húni í bænum og
klukkan 10.30 verður hátíðar-
messa í Dalvíkurkirkju. Sr. Svavar
Alfreð Jónsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Um tónlistarflutning
sér Kór Dalvíkurkirkju ásamt
nemendum og kennurum Tónlist-
arskóla Dalvíkur. Stjórnandi er
Hlín Torfadóttir.
Klukkan 13 verður efnt til sér-
staks hátíðarfundar í bæjarstjórn
Dalvíkur í Safnaðarhcimli Dalvík-
urkirkju. Að honum loknum, kl.
15-18, veröa kaffiveitingar í Vík-
urröst í boði Dalvíkurbæjar. Þar
verður tónlistarflutningur sem
nemendur Tónlistarskólans sjá
um. Klukkan 17 á sunnudag verð-
ur síðan ókeypis kvikmyndasýn-
ing fyrir börn í Ungó. óþh
Menntasmiðja kvenna:
Mælt með Guðrúnu Pálínu
í stöðu verkeftiisfrejju
- 9 umsóknir bárust um stöðuna
Jafnréttisnefnd Akureyrarbæj-
ar mælir með Guðrúnu Pálínu
Guðmundsdóttur í stöðu verk-
efnisfreyju við Menntasmiðju
kvenna sem komið verður á fót í
bænum. Bæjarstjórn Akureyrar
mun staðfesta ráðninguna í
fundi nk. þriðjudag. Alls bárust
9 umsóknir um stöðuna.
Að sögn Valgerðar Bjarndótt-
ur, jafnréttisfulltrúa Akureyrar-
bæjar, verður eitt fyrsta verkefni
nýráðinnar verkefnisfreyju aö út-
vega húsnæöi fyrir Menntasmiðj-
una, auk þess að skipuleggja starf-
ið.
I Menntasmiðju kvenna veróur
boðið upp á fjögurra mánaða nám-
skeið fyrir atvinnulausar konur
með þaó að markmiði að útskrifa
þær til virkni í atvinnulífinu og
frekara námi. Bæói verður um aó
ræóa hagnýt fræði og persónulega
ráðgjöf, sjálfsstyrkingu o.fl.
Gcrt er ráð fyrir 2'A-3 föstum
stöðugildum við smiðjuna og þar
af veróur verkefnisfreyjan í 'A
stöðu. Stundakennarar vcróa
fengnir til starfa og samstarf haft
Akureyri:
Þriggja manna
nefnd í
flotkvíarmálið
Bæjarráð Akureyrar staðfesti í
gær tillögu hafnarstjórnar um
skipan þriggja manna nefndar
til þess að skoða allar hliðar
þess að koma upp flotkví á Ak-
ureyri. I nefndina voru skipaðir
þeir Halldór Jónsson, bæjar-
stjóri, Guðmundur Sigurbjörns-
son, hafnarstjóri, og Jónas Þor-
stcinsson, formaður hafnar-
stjórnar.
Starfshópur var fenginn til þess
að gera úttekt á hugsanlegri bygg-
ingu flotkvíar á Akureyri. Starfs-
hópurinn hefur lokið störfum og
var niðurstaða hans jákvæð.
Þeim Halldóri Jónssyni, Guð-
mundi Sigurbjörnssyni og Jónasi
Þorstcinssyni er falið aó mcta
þessa hugmynd „í botn“ og sagði
Jónas í samtali við Dag að þeirri
vinnu yrði flýtt eins og kostur er.
óþh
Akureyrskur bar á Torremolinos:
Andri í 30 stíga hita dag hvern
„Hér er þrjátíu stiga hiti og
þannig hefur veðrið verið frá
því ég kom hingað út,“ sagði
Andri Gylfason, veitingamaður
frá Akureyri, en hann hefur
tekið við rekstri veitingastaðar-
ins Pink Elephant (Bleiki fíllinn)
á Torremolinos á Spáni.
Eins og fram hefur komið hafa
nokkrir einstaklingar á Akureyri,
sem tengjast rekstri veitingastað-
arins Greifans, tekið nefndan veit-
ingastað á Torremolinos á leigu í
eitt ár frá og með 1. apríl sl. Andri
sagði í samtali
vió Dag í gær að
mikið hafi verió
að gera um
páskana. „Mér
líst bara mjög
vel á þetta. Síð-
astlióið laugar-
dagskvöld var
hjá okkur stór hópur Malagabúa
og við stóðum vaktina til klukkan
níu um morguninn.“
Andri sagði aö nú þegar væri
töluvert komið af ferðamönnum,
einkum eldra fólki, og mjög vel
liti út með sumarið. „Það er öll
hótel hér fullbókuð í sumar, cn
svo hefur ekki verið síöustu þrjú
til fjögur árin. Eg kann ekki skýr-
ingar á þessari auknu aósókn, en
svo virðist sem öll Norður-Evrópa
streymi hingað niöureftir.“
Auk Andra starfar eiginkona
hans á Bleika fílnum svo og kokk-
ur frá Reykjavík. Þá segist hann
vænta þcss aó nokkrir starfsmenn
Greifans vinni á veitingastaðnum í
sumarafleysingum á komandi
sumari. óþh
við aðrar stofnanir á sviði fullorð-
insfræðslu. Þess má geta að
Menntasmiója kvenna á Akureyri
var af Islands háll'u tilnefnd í sam-
norrænt verkefni um nýjar leiðir í
fullorðinsfræðslu. SS
Grýtubakkahreppur:
Vílja koma upp
hreinlætisaðstöðu
/ ip* •• X
i Fjorðum
Grýtubakkahreppur hefur sótt
um 300 þúsund króna fjárstyrk
frá Ferðamálaráði til þess að
koma upp hreinlætis- og salern-
isaðstöðu á fyrirhuguðu tjald-
stæði í Fjörðum.
Guðný Sverrisdóttir, sveitar-
stjóri Grýtubakkahrepps, segir
menn hafa hug á því aó koma upp
tjaldsvæði í landi Kaðalsstaða í
Fjörðum og hugmyndin sé að þar
verði vörður á vegum sveitarfé-
lagsins í sumar sem myndi rukka
gjald fyrir að tjalda.
Guðný segir að þessi náttúru-
perla sé afar vinsæll áningarstaður
feróamanna, en vandamálið sé að
þar skorti aðstöðu auk þess sem
vegurinn út í Fjörður sé crfiður
yfirferðar. óþh
FERMINGARTILBOÐ
PFAFF
SAUMAVEL 6085
HEIMILISVÉL 20 SPOR
VERÐ KR. 39.995,-
0 KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
Við
tökum vel á
móti ykkur
alla daga
til kl. 22.00
Byggðavegi 98