Dagur


Dagur - 13.04.1994, Qupperneq 2

Dagur - 13.04.1994, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 13. apríl 1994 FRÉTTIR Hestamenn - Hrossaræktendur Fræðslufundur um hrossarækt veröur í Hafralækjarskóla laugardaginn 16. apríl kl. 14.00. Frummælandi Þorkell Bjarnason, hrossaræktar- ráöunautur. Hrossaræktarfélag Þingeyinga og Hrossaræktarsamband Þingeyinga og Eyfirðinga. Frábærir tímar fyrir hressa krakka á aldrinum 12-15 ára hefjast fimmtudaginn 14. apríl Fjölmargt í boði svo sem: Pallar, erobik, pallahringur, þrekhringur, vaxtarmótun o.fl. J ^PULS 180^. HEILSURÆKT KA-heimilinu • Sími 96-26211 Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.: Loðnu- og síldar- aflinn 65 þús. tonn Um 65 þúsund tonn af loðnu og síld bárust loðnuverksmiðju Hraðfrystistöðvar Þórshafnar Hesthús Dalvíkinga: Allharður árekstur Allharður árekstur varð skömmu eftir hádegið í gær við hesthús Dalvíkinga við Hring- holt er tvær bifreiðar skullu saman og varð að fjarlægja þær með dráttarbíl. Ekkert slys varð á fólki. Orsök óhappsins er aö skyggni var nán- ast ekkert vegna blindbyls. Lögreglan er víða farin að klippa af bílnúmer vegna van- greiddra bifreiðagjalda. Sam- kvæmt nýjum reglum eru bifreiða- gjöld bundin kennitölu eigenda en ekki bifreió og því eru eigendur ekki lausir allra mála þótt bifreið- in hafi verið seld. GG hf. á vertíðinni sem er umtals- verð aukning frá vertíðinni 1992 til 1993. Vertíðin hófst óvenju snemma, eða um miðjan júlí- mánuð. Um 700 tonn voru unnin og fryst af loðnuhrognum fyrir Jap- ansmarkaó á móti 120 tonnum ár- ið áður og um 350 tonn voru fryst af loðnu en nánast ekkert á vertíð- inni þar á undan, eða aöeins 10 tonn. Þokkalegur afli hefur verió hjá netabátunum Geir, Þorsteini og Faldi og hefur það nægt til þess að halda uppi vinnu í frystihúsinu. Verulega rólegra er þó yfir öllu hjá Hraófrystistöð Þórshafnar hf. nú en var fyrr í vetur er unnið var á vöktum allan sólarhringinn. Fyrirhugað er að bæta við af- köst eimingartækja loðnuverk- smiðjunnar og verður þeim fram- kvæmdum lokið áður en næsta vertíð hefst. Gera má ráó fyrir að það verði eftir um 3 mánuði, eða um miðjan júlímánuð. GG Úr vélasal loðnuverksmiðjunnar á Þórshöfn. Mynd: GG Ferðamál: Umhverfisátak á ferðamannastöðum Sigurður Jónsson, bygginga- fræðingur á Akureyri og for- maður Ferðafélags Akureyrar, hefur verið ráðinn starfsmaður verkefnisstjórnar vegna átaks í umhverfísmálum og hcfur hann skrifstofu í húsi Byggðastofnun- ar við Strandgötu á Akureyri. Eftirtaldir skipa verkefnisstjórn vegna átaks í umhverfísmálum: Olafur Thoroddsen, kennari Akur- eyri, formaður, tilefndur af samgönguráðherra, Halldór Jó- hannsson, landslagsarkitekt Akur- eyri, tilefndur af samgönguráð- herra, Arndrés Arnalds, gróður- verndarfulltrúi, tilnefndur af Landgræóslu ríkisins, Auður Birg- isdóttir, deildarstjóri, tilnefnd af Félagi íslenskra ferðaskrifstofa, Finnur Birgisson, arkitekt Akur- eyri, tilnefndur af umhverfisráðu- neyti, Birgir Þorgilsson, formaður Feróamálaráös, tilnefndur af Ferðamálaráði, og Helga Haralds- dóttir, forstöðumaður skrifstofu Ferðamálaráðs á Akureyri, til- nefnd af Feróamálaráði. Þessari verkefnisstjórn er ætlaö að gera tillögur um úrbætur í um- Uppsveifla í áfénginu - bjórsala jókst um 37% milli ára Sala áfengis hjá ÁTVR þrjá fyrstu mánuði ársins 1994 nam 1.911.598 lítrum eða 192.966 alkóhóllítrum. Sambærilegar tölur þrjá fyrstu mánuði ársins 1993 eru 1.500.888 lítrar eða 172.716 alkóhóllítrar. Aukning- in milli ára mælist 27,36% í Htr- um og 11,72% í alkóhóllítrum. Það að aukningin er ekki eins mikil í alkóhóllítrum, þ.e. lítrum af hreinum vínanda, bendir til þess að salan hafi aukist mest í bjór og léttvínum og það kemur á daginn þegar sölutölur ÁTVR eru skoðaðar. Sala á bjór nam rúmum 1,4 milljónum lítra þrjá fyrstu mánuði þessa árs á móti ríflega 1 milljón á sama tímabili í fyrra. Aukningin er 36,97% í lítrum. Þá jókst sala á rauðvíni um 22,11%, á hvítvíni unt 9,24% og sala á freyðivíni jókst um 6,69%. Sala á nokkrum sterkari tegundum jókst einnig, s.s. rornmi (11,70%), bitterum (11,74%), viskíi (8,42%) og lí- kjörum (8,45%). Á hinn bóginn heldur sala á brennivíni, vodka og sénever áfram að minnka. Leitt er getum að því að sú staðreynd aó dymbilvikan var í mars á þessu ári en apríl í fyrra skýri að mestu þessa aukningu milli ára, en einnig hefur verið bent á að áfengisneysla unglinga hefur aukist. Þegar tölur um tóbakssölu cru skoðaðar kemur í ljós að þar cr einnig urn aukningu að ræða. Sala á vindlum jókst um 3,74% milli áðurnefndra tímabila og sala á síg- arettum um 3,73%. Hins vegar dróst sala á nef- og munntóbaki saman um 5,73% og sala á reyktóbaki minnkaói um 0,83%. SS hverfismálum á ferðamannastöð- um jafnframt því að vera einstak- lingum, landeigendum og svcitar- stjórnum til aðstoðar á því sviði. óþh Vísitalan:: Verðbólga 1,4% Síðastliðna tólf niánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 2,4%, samkvæmt útreikningum Kauplagsnefndar. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,4%, sem jafngildir 1,4% verðbólgu á ári. Vísitala vöru og þjónustu hefur hækkað um 3,0% á síðustu tólf mánuðum og sambærileg þriggja mánaða breyting á lramfærsluvísi- tölunni, jafngildir cinnig 1,4% verðbólgu á ári. Vísitalan í apríl reyndist vera 169,9 stig og hækkaði um 0,1% frá mars. Vísitala vöru og þjón- ustu i apríl reyndist vera 174,1 stig og hækkaói einnig um 0,1% milli mánaóa. Helstu ástæður fyrir hækkun framfærsluvísitölunnar, er verðhækkun á mat- og drykkjar- vörum, sem að mcóaltali varó um 0,8%. KK ÓlafsQörður: Nýtt framboð Nýtt framboð fyrir bæjar- stjórnarkosningarnar í Ólafs- firði hefur verið ákveðið og mun það bjóða fram undir kjörorðinu „samtök um betri bæ“. Athygli vekur að Jónína B. Óskarsdóttir, núverandi bæjarfulltrúi Vinstri manna og óháðra skipar efsta sæti listans. Skipan annarra sæta frara- boðslistans cr cftirfarandi: 2. Ríkharður H. Sigurðsson, bif- reiðastjóri, 3. Kristín Adolfs- dóttir, húsmóðir, 4. Birgir Stef- ánsson, stýrimaður, 5. Snjólaug Ásta Sigurfinnsdóttir, bréfbcri, 6. Halldór Guómundsson, bif- vélavirki, 7. Auöur Traustadótt- ir, tryggingafulltrúi, 8. Ámi A. Sæmundsson, sjómaður, 9. Inga Sæland Ástvaldsdóttir, húsmóð- ir, 10. Sigríður Tómasdóttir, starfsstúlka, 11. Gunnar Ágústs- son, útgerðarmaöur, 12. Agúst K. Sigurlaugsson, skrifstofu- maður, 13. Rósa K. Óskarsdótt- ir, fiskmatsmaður, og 14. Sæ- mundur P. Jónsson, fv. útgerðar- maður. óþh

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.