Dagur - 13.04.1994, Page 6
6 - DAGUR - Mióvikudagur 13. apríl 1994
MANNLÍF
Friðrik G. Bjarnason, málarameistari og poppari fimmtugur:
Allir helstu popparar bæjarins
tróðu upp í afmælisveislunni
Friðrik G. Bjarnason, málara-
meistari og fyrrum stórpoppari
á Akureyri, varð fimmtugur
þann 7. apríl si. og vegna þeirra
tímamóta, bauð hann gestum til
veislu í Alþýðuhúsinu sl. fóstu-
dagskvöld. Um 120 manns á
aldrinum 14 til 80 ára komu í
afmælisfagnaðinn, sem stóð
langt fram á nótt og þar á meðal
helstu poppgoð bæjarins.
Hljómlistarmenn voru beðnir
að taka með sér viðeigandi
handverkfæri og stóð ekki á við-
brögðum.
Tónlistarfólkið tróó upp í veisl-
unni, bæði starfandi hljómsveitir í
dag og svo aftur aðrir sem hafa
lagt spilamennskuna á hilluna í
bili að minnsta kosti. Þama voru
settar saman hljómsveitir á staðn-
um og var stemmningin í húsinu
hreint með ólíkindum. Helena
Eyjólfsdóttir og Erla Stefánsdóttir
tóku lagið og Finnur Eydal, sem
ekki hafði saxófóninn meðferðis,
söng saxófónsóló í einu lagi, svo
eitthvað sé nefnt.
Afmælisbarninu bárust margar
góðar gjafir í tilefni dagsins og
sagðist Friðrik aldrei hafa séð
annað eins. Sumar gjafirnar voru
svo stórar aö þær voru fluttar
beint heim til hans og sagði hann
aó íbúðin sín væri eins og blóma-
búð. Þá voru fluttar fjölmargar
ræður. Kristján Benediktsson,
kollegi Friðriks, fiutti æviágrip
hans í bundnu máli, Ingólfur Ing-
ólfsson flutti Friðriki kveóju frá
bróóur sínum Birni, skólastjóra á
Grenivík og Ásta Sigurðardóttir,
ekkja Ingimars Eydal, rakti sögur
úr hljómsveitarferðum, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Friðrik, sem þykir liðtækur gít-
arleikari, spilaói meó hljómsveit
Ingimars Eydal í fjögur ár, 1966-
70. Hann tók sér síðan hlé í 17 ár
en steig aftur á sviö í „showi“
Ingimars Eydal árið 1987. Eftir
það spilaði hann með hljómsveit
Bigga Mar. og nú síóast rneð
hljómsveitinni Harmoní. Hann er
hins vegar í hvíld frá spila-
mennskunni sem stcndur.
Vegna þess hversu stemmning-
in var góð í afmæli Friðriks, sagði
hann að komió hefði til tals að
vera með svipaða uppákomu í
sumar, þar sem hclstu popparar
kæmu saman og spiluðu. Friórik
sagói að þó samkeppnin á meðal
poppara væri mikil, hcfði komið
vel í Ijós í veislunni hversu rniklir
mátar þeir væru og það væri það
jákvæðasta. KK
Feðgarnir Rúnar Örn og Friðrik glaðbeittir á svip. í baksýn eru frændur
Friðriks, þcir Haukur Ingólfsson og bræðurnir Bcncdikt og Ingi Sigur-
björnssynir.
Gamlir spilafclagar, hjónin Finnur Eydal og Hclcna Eyjólfsdóttir, Hjalti
Hjaltason (Dolli), Leibbi trommari, kona hans Ellen og Davíð Valsson, eig-
inmaður Ingu Eydal.
Frændiólk og makar, t.h. Ingólfur Ingólfsson og kona hans Steinunn Sigurð-
ardóttir, Hcncdikt Sigurbjörnsson og fyrir aftan hann stendur sonur Frið-
riks, Sigurður Aðils. T.v. hjónin Sigríður Arnþórsdóttir og Jón Þorstcins-
son. Myndir: Robyn
Gamlir spilafclagar úr hljómsveit Bigga Mar., Stcfán. Kjartansson og afmæl-
isbarnið.
Adalfiundur Félags aldradra á Akureyri:
Bújörð til sölu
Jörðin Dagverðartunga í Hörgárdal, Eyjafjarðar-
sýslu, er til sölu.
Á jörðinni eru: 35 hektarar ræktað land, íbúðarhús byggt
1938, fjós fyrir 14 kýr, fjárhús fyrir 250 kindur, aðstaða fyrir
25 geldneyti og heyhlöður við fjárhús og fjós.
Framleiðsluréttur er 58 þús. Iftrar af mjólk, og 2.700 kg. af
kindakjöti.
Bústofn: 14 kýr, 15 geldneyti og 100 kindur.
Selst í einni heild, eða í fleiri einingum.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öll-
um.
Tilboð leggist inn hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, pósthólf
120, merkt „Bújörð", fyrir 1. maí n.k.
Nánari upplýsingar eru veittar í símum 96-27150 og 96-
24446.
Akureyringar og
nærsveitarmenn
Tökum á móti fötum í Gránufélagsgötu 5.
e.h.
Opið verður á mánudögum frá kl. 4-6, svo
eru til föt á vægu verði.
Komið í heimsókn, það verður tekið vel á
móti ykkur.
Með þökk fyrir góðan stuðning.
MÆÐRASTYRKSNEFND.
Mikill áhugi á félagsstarfínu
Félag aldraðra á Akureyri hélt
aðalfund sinn laugardaginn 19.
mars í Lundargötu 7. Vel var
mætt á fundinn og var Aðal-
steinn Óskarsson, endurkjörinn
formaður.
Upplýsingakver
um Suðurland
komið út
Fyrir stuttu kom út hjá At-
vinnuþróunarsjóði Suðurlands
lítið kver ætlað þeim sem hyggja
á skipulagningu ættar- og fjöl-
skyldumóta alls konar á Suður-
landi. í kverinu er að finna upp-
lýsingar um félagsheimili á Suð-
urlandi, stærð þeirra og þá
þjónustu sem boðið er upp á,
ásamt símanúmerum fram-
kvæmdastjóra þeirra.
Auk þess er yfirlit yfir nokkur
svæói á Suðurlandi sem henta
einkar vel til þess að halda ættar-
mót. Bent er á gisti- og aíþrcying-
armögulcika í næsta nágrenni svo
og einnig almenna þjónustu sem
mótshaldarar geta nýtt sér.
Kver þetta nýtist vel þcim ein-
staklingum, fyrirtækjum og starfs-
mannafélögum sem hyggja á ein-
hvers konar mannfagnaói, lundi
eða ráðstefnur á Suðurlandi. Það
er hægt að nálgast hjá Ferðamála-
fulltrúa Suöurlands í síma 98-
21088 og á upplýsingamiðstöðv-
um á Suöurlandi og víðar.
Fundarstjóri var Björg Finn-
bogadóttir og ritarar Helga Torfa-
dóttir og Alfrcð Jónsson.
Tekin voru fyrir almcnn aóal-
fundarmál, kosningar og ficira.
Kór aldraðra söng í fundarbyrjun,
veitt var kaffi og dansað í fundar-
lok.
Fundurinn var fjölsóttur því um
150 manns mættu og var samhug-
ur og starfsgleói ríkjandi og mikill
áhugi varóandi félagsstarfið.
Miðstöð fólks í atvinnulcit verð-
ur með „opið hús“ í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju í dag,
miövikudaginn 13. apríl, kl. 15-
18. Gestur á þessari samveru
verður Ilelga Haraidsdóttir, ný-
ráðinn forstöðumaður skrifstofu
Ferðamálaráðs á Akureyri.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur Ferðamálaráó ný-
lega ílutt hluta starfsemi sinnar til
Akureyrar. Astæða er til að fagna
þessari ákvöróun og bjóða þcssa
framtíðarstofnun og starfsfólk
hennar velkomin til bæjarins. A
samverustundinni mun Helga
kynna hlutverk og störf skrifstof-
Stjórn lélagsins skipa nú aó
loknum kosningum þau Aðal-
steinn Oskarsson, formaður, Björg
Finnbogadóttir, varaformaður,
Helga Torfadóttir, ritari, Guð-
mundur Stcfánsson, gjaldkeri og
Vilborg Pálmadóttir, varagjald-
keri. í varastjórn voru kosin Jónat-
an Olafsson, Dýrlcif Jónsdóttir,
Siguróur Sigmarsson, Alfrcó
Jónsson og Jón Hclgason.
(Úr fréttutilkynningu)
unnar og hugleiða ýmsar nýjungar
í ferðaþjónustu. Einnig mun hún
svara fyrirspurnum um framtíð
feróaþjónustunnar almennt, en
miklar vonir eru bundnar viö þá
atvinnugrein, eins og kunnugt cr.
Kaffi og brauó verður aó vanda
á boðstólum þátttakendum aö
kostnaóarlausu og dagblöðin
liggja frammi. Þá veröa ýmsar til-
kynningar einnig á dagskrá og ný
námskeið kynnt.
Nánari upplýsingar um starf
Miöstöóvarinnar eru gcfnar í síma
27700 milli kl. 15 og 17 á þriðju-
dögum og föstudögum.
(Úr fréttutilkynningu)
Miðstöd fólks í atvinnuleit:
Helga Haraldsdóttir
ræðir um ferðamál