Dagur - 30.05.1994, Síða 7
Mánudagur 30. maí 1994 - DAGUR - 7
Sveitarstjórnarkosningarnar/Húsavík
Húsavík:
Sjálfstæðisílokkur og
Alþýðubandalag og óháðir
bættu við sig fylgi
Sjálfstæðisflokkurinn á Húsavík
bætti mestu fylgi við sig í bæjar-
stjórnarkosningunum á laugar-
dag, frá kosningunum árið 1990.
Flokkurinn bætti við 4,8% fylgi,
hlaut 340 atkvæði og heldur sín-
um tveimur mönnum í bæjar-
stjórn. Alþýðubandalag og óháð-
ir juku fylgi sitt um 1,3%, hlutu
420 atkvæði og bættu við sig
manni og eru nú með þrjá menn
í bæjarstjórn.
Framsóknarflokkurinn tapaði
einum manni frá síðustu kosning-
um. Er nú með þrjá menn í bæjar-
stjórn en hafði fjóra síðast. Flokk-
urinn hlaut 494 atkvæði, eða
33,8% og tapaói 4,6% fylgi frá
síðustu kosningum. Alþýöuilokk-
ur hlaut 209 atkvæði, eða 14,3%
og tapaði 1,5% frá síðustu kosn-
ingum en heldur sínum eina
manni í bæjarstjórn.
A kjörskrá á Húsavík voru
1726 manns, atkvæði greiddu
1497, eða 86,7%. Auðir og ógildir
seðlar voru 34.
A Húsavík eru 9 bæjarfulltrúar
og þeir eru: Fyrir A-lista Alþýðu-
flokks, Jón Ásberg Salómonsson,
fyrir B-lista Framsóknarflokks,
Stefán Haraldsson, Arnfríður Að-
Frá Húsavík.
alsteinsdóttir og Svcinbjörn Lund,
fyrir D-lista Sjálfstæðisflokks,
Sigurjón Benediktsson og Katrín
Eymundsdóttir og fyrir G-lista Al-
þýðubandalags og óháðra, Krist-
ján Ásgeirsson, Valgerður Gunn-
arsdóttir og Tryggvi Jóhannsson.
Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur mynduðu meirihluta
á síðasta kjörtímabili á Húsavík
og bæjarstjóri var Einar Njálsson.
KK
Jón Ásberg
Salómonsson:
Ég átti von á
betri útkomu
„Ég get nú ekki
verið með mikil
viðbrögð við
þessum úrslit-
um. Við töpum
12 atkvæðum
frá síðustu
kosningum og
erum áfram
með einn mann
í bæjarstjórn,“
sagði Jón Ásberg Salómonsson,
efsti maður á lista Alþýðuflokks.
„Ég átti von á betri útkomu en
var samt ekkert viss um að við
næðum inn tveimur mönnum. En
þetta er lýðræðið og það er fólkið
sem ræður. Vió getum ekki tekið
þátt í meirihlutasamstarfi með
neinurn einum öðrum flokki en
það geta hinir llokkarnir gert. Mér
llnnst líklegast aó hér verði áfram
sami meirihluti Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks á næsta
kjörtímabili en auðvitað vilja allir
komast í meirihluta.“ KK.
Stefán Haraldsson:
Vissulega
vonbrigði
„Það voru
vissulega von-
brigði að við
skildum tapa
einum manni
en hins vegar er
þetta annar
besti árangur í
sögu B-listans
hér á Húsavík,“
sagði Stefán
Haraldsson, efsti maður á lista
Framsóknarflokksins.
„Vió áttum ekkert frekar von á
því að þessi staða kærni upp en
hins vegar var þessi mikla upp-
sveifla llokksins í síðustu kosn-
ingum nokkuð óvcnjuleg og þaó
mátti allt eins búast viö því að
eitthvað sigi til baka nú. Menn
gengu óbundir til þessara kosn-
inga og því er ekki hægt aó segja
neitt um þaó á þessari stundu
hvert framhaldið veróur en það
eru nokkrir möguleikar í stöðunni,
varðandi meirihlutamyndun."
KK
Sigurjón Benediktsson:
Þessi úrslit
komu á óvart
„Þetta er stór-
sigur hjá Sjálf-
stæðisflokkn-
um. Við bætum
við okkur 82 at-
kvæðum frá
síðustu kosn-
ingum, eða
tæpum 5%, sem
verður að telj-
ast mikið á
okkar mælikvarða,“ sagði Sigur-
jón Benediktsson, efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokksins.
„Við vorum hóficga bjartsýn
fyrir kosningar en þessi úrslit
komu skemmtilega á óvart, ekki
síst í ljósi þess að fiokkurinn átti
víða undir högg að sækja. Þannig
að við erum mjög ánægó hér.
Framundan er myndun meiri-
hluta og mér finnst eólilegt að
samstarfsfiokkarnir frá síðasta
kjörtímabili, Sjálfstæðisfiokkur og
Framsóknarfiokkur ræðist fyrst
viö unr áframhaldandi samstarf."
KK
Kristján Ásgeirsson:
Viljum ræða við
Framsóknarmenn
„Við teljum
þetta mjög góða
útkomu fyrir
okkur. Við er-
um með ágætis-
hlutfali í þess-
um kosningum
og þriðji maður
fór nokkuð Iétt
inn,“ sagði
Kristján Ás-
geirsson, efsti maður á lista Al-
þýðubandalags og óháðra á
Húsavík.
„Það var dálítið erfitt að gera
sér grein fyrir stöðunni fyrir kosn-
ingar en ég gerði rnér vonir um
400 atkvæði og við fengum 20
atvkæðum bctur, eða tæp 29%.
Við höfum áhuga á því að starfa í
meirihluta næsta kjörtímabil og
höfum lýst yfir áhuga á því að
ræóa við Framsóknarmenn um
mcirihlutasamstarf. Það cr ekki
mikið sent skilur í milli hjá þess-
um flokkum og því tel ég eölilegt
aö við ræóum saman.“
KK
Námsstyrkir
Sjóvá-Almennra
Árlega veitir Sjóvá-Almennar
tryggingar hf. tvo námsmanna-
styrki að upphæð 100.000 kr.
hvor. Þann 4. maí sl. voru þessir
styrkir veittir í annað sinn. Þeir
sem hlutu styrkinn að þessu
sinni eru Katrín María Þormar
læknanemi við Háskóla íslands
og Ásta Bjarnadóttir nemi á
sviði vinnu- og skipulagssálfræði
við Minnesótaháskóla.
Meöfylgjandi mynd er tekin
við veitingu styrkjanna og á henni
eru talið frá vinstri Einar Sveins-
son framkvæmdastjóri Sjóvá-Al-
mennra, Katrín María Þormar,
Bjarni Olafsson faóir Ástu og Ól-
afur B. Thors framkvæmdastjóri
Sjóvá-Almennra.
Garðmarkaður
í Perlunni við Kaupland.
Sumarblóm • Garðáhöld • Sláttuvélar
Tilboð á garðslöngum 25 m 999,- kr.
Garðúðarar frá 350,- kr.
Opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 10.00-16.00.
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
Ráðhústorgi 5, 2. hæð
Gengið inn frá Skipagötu
Sími 11500
Á söluskrá
Marbakki, í landi Sól-
bergs á Svalbarösströnd:
5-6 herb. einbýlishús á einni hæd um 145
Im. Ekki alveg (ullgert. Mjög fallegur staður,
Mikil hagstæð lán áhvílandi.
Steinahlíð:
5 herb. raðhús á tveimur hæðum ásamt bíl-
skúrsamtals 170 tm.
Byggðavegur:
5 herb. íbúð á jarðhæð I þríbýli um 124 tm.
Alll sér. Eignin er I mjög góðu lagi.
Kjalarsíða:
3ja herb. ibúð á 1. hæð, gengið inn at svöl-
um, um 77 (m.
Heiðarlundur:
4ra herb. raðhús á tveimur hæðum um 140
fm. i góðu lagi. Laust eftir samkomulagi.
Skarðshlíð:
4-5 herb. endaibúð á 2. hæð um 116 fm. (
ágætu lagi. Laus strax.
Skálagerði:
Mjög fallegt einbýlishús ásamt bilskúr
samtals um 166 tm. Skipti á 3-4ra herb.
íbúð á Brekkunni koma til greina.
FASTEIGNA & IJ
skipasalaJSK
NORÐURLANDSÍI
Ráöhústorgi 5, 2. hæð
gengið inn frá Skipagótu
Opiö virka daga
frá kl. 9.30-11.30 og 13.15-17.
Sölustjóri:
Pétur Jósefsson
Lögmaður:
Benedikt Ólafsson hdl. ||
Utivistar-
fólk
Hötum margt til útiveru
Göngumenn ath.:
Hjálparsveitarmenn
velja skófatnaó frá
'3omon
Höfum ennfremur allt fyrir
gæludýriö, hestinn
og hestamanninn.
Eigum einnig til:
Sigáttur, kerabikur, ísaxir,
mannbrodda
og línur frá Charlet Moser.
Göngusokka, skó og margt fleira
fyrir fjalla- og klifurmenn.
Viking stígvélin vinsælu
til í mörgum stærðum.
Ilestasport
Kaupangi - Sími 11064.