Dagur - 30.05.1994, Síða 12

Dagur - 30.05.1994, Síða 12
Sauðárkrókur: Obreyttur meirihluti og Snorri Björn endurráðinn Forystumenn D-lista Sjálf- stæðisflokks, A-lista Alþýðu- flokks og K-lista óháðra á Sauð- árkróki áttu fund í gær þar sem var ákveðið að þessir þrír listar haldi áfram meirihlutasamstarfi í bæjarstjóm Sauðárkróks næsta kjörtímabil. Meirihlutinn á Sauðárkróki hélt velli í kosningum sl. laugardag og strax aðfaranótt sunnudags var óformlega gengið frá áframhaldandi mcirihlutasam: starfi. Eftir fund forystumannanna í gær cr ljóst að Jónas Snæbjörns- son, oddviti D-lista, verður forseti bæjarstjórnar, Björn Sigurbjörns- son, oddviti A-lista, vcrður f'or- maður bæjarráðs og Hilmir Jó- hannesson, oddviti K-lista, verður fomaður veitustjórnar. Snorri Björn Sigurðsson hefur verið endurráðinn bæjarstjóri. Nánar á blaðsíöu 6. óþh Atök á Akureyri: Tveir á sjúkrahús Margt fólk var í miðbæ Ak- ureyrar sl. föstudagskvöld og ölvun og læti í bænum fram undir morgun. Tveir þurftu að fá aðhlynningu á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins eftir átök og árás. Að sögn lögregluvarðstjóra var maður sleginn með fiösku í höf- Langidalur: Vegurinn rofnaði í vatnsveðrinu Ausandi vatnsveður var í Húnavatnssýslum í gær og vegurinn við Auðólfsstaðaá í Langadal rofnaði. Þá féll skriða í Bólstaðarhlíðinni, að sögn lög- reglu. Þegar Dagur náöi sambandi vió lögregluna á Blönduósi í gær voru lögreglumenn staddir t Langadal aó vísa ökumönnum frá þar sem vegurinn var í sundur. „Slitlagið hangir enn uppi en það er ekkert undir því. Við erum að vísa fólki Svínvetningabraut upp frá Blönduósi og hjá Húna- veri yfir Svartá," sagði Arinbjörn Snorrason, lögregluþjónn. Allt var með kyrrum kjörum eftir kosningarnar á Blönduósi en á Sauðárkróki var eitthvað um það aó menn vildu gera út um málin með hnúum og hnefum aðfaranótt sunnudags. Þó þurfti ekki að stinga neinum í steininn og menn sluppu að mestu ósárir, a.m.k. á líkama. SS uðið í öðru tilvikinu og í hinu slasaðist maöur í slagsmálum. Þeir munu báðir hafa fengið að fara heim eftir viðeigandi meðferð á slysadeild en búist var við kærum í kjölfar þessara átaka. Lögreglan á Akureyri þurfti lít- il afskipti að hafa af kosningunum á laugardaginn og kosningagleði fór vel fram um kvöldið og nótt- ina. Umferð gekk vel fyrir sig í bænum. Þó varð bílvelta skammt frá sorphaugum bæjarins á föstu- daginn og skemmdist bíllinn tals- vert en ckki uróu slys á fólki. Einn ökumaður var gripinn vegna gruns um vínanda í blóöi. SS KEA Nettó 2ja ára I tilefni af tveggja ára afmæli KEA-Nettó á Akureyri bauð verslunin við- skiptavinum sínum upp á veglega afmæiistcrtu sl. (östudag. Fólk kunni vel að meta þctta og fjölmcnnti í afmæliskaffi. Mynd: Robyn. Merkjasala Landgræöslusjóös á kjördegi: Heildarsala nam allt að 12 milljónum króna Merkjasala Landsgræðslu- sjóðs á kjörstöðum víðast um land sl. laugardag fékk mjög góðar viðtökur. Afrakstur söl- unnar fer beint í Landgræðslu- sjóð þar sem fyrirhugað er að stofna trjáfræbanka sem á að kosta innkaup á eftirsóttu trjá- fræi, bæði nýju og fræi sem not- að hefur verið hér áður. Fræiö cr mjög dýrt, kostar um 100 þúsund krónur kílóið, en hug- myndin er að þeir fjármunir sem söfnuóust á kjördag verði vísir að fræbankanum. Kristinn Skæringsson, for- stöðumaður Landgræðslusjóðs, segir að hann hafi upplýsingar um aó um fjóröi hver kjósandi hafi kcypt skógræktarmerkið og það hafi farið um allt land. Miðað við kjörsókn í sveitarstjórnarkosning- unum má ætlað að brúttótekur söl- unnar hafi numið allt að 12 millj- ónum króna. GG Eyjafjarðarsveit: Hestur slo mann Kærður inn á kjörskrá á Blönduósi: Kaus einnig á Sauðárkróki aust eftir klukkan 17 í gær yvar sjúkrabifreið kvödd að VEÐRIÐ I nótt var búist við suðvest- an átt og rigningu á Noróur- landi en í dag er gert ráð fyrir vaxandi norðan átt meó skúrum austan til en slyddu- éljum vestan til. Á morgun spáir Veðurstofan áfram- haldandi norðan átt og rign- ingu á Noróurlandi. Veður fer kólnandi fyrir noróan. bænum Munkaþverá í Eyja- fjarðarsveit en þar hafði hestur slegið mann. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafði hesturinn sparkað í manninn með afturfótunum og kom höggið í læri mannsins. Hann komst heim og lagðist fyrir en var mjög marinn og aumur í báðum lærum og nára og þótti rétt að hringja eftir sjúkrabifreið sem flutti hann á Fjóróungssjúkrahúsió á Akureyri. Meiðslin virtust ekki alvarleg við fyrstu sýn en maðurinn var í rannsókn þegar Dagur leitaði upp- lýsinga í gær. SS FuIItrúi eins framboðslistanna á Blönduósi kærði innan til- skilins frests mann sem átt hefur lögheimili á Sauðárkróki inn á kjörskrá á Blönduósi og sam- þykkti bæjarstjórn Blönduós það á fundi 20. maí sl. Vegna mistaka var viðkomandi aðili ekki tekinn út af kjörskrá á Sauðárkróki en hann notfærði sér þau mistök, kaus fyrst á Blönduósi og síðan á Sauðár- króki. Gunnar Sigurósson, formaður kjörstjórnar á Blönduósi, segir að viðkomandi nafn hafii verið kært inn á kjörskrá með löglegum hætti en sér hafi borist til eyrna að sami maður hafi neitt atkvæóisréttar síns á Sauðárkróki. Bókanir voru geröar í kjörstjórn um málið, bæði fyrir og eftir talningu. Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Blöndu- ósi, segir að engin kæra hafi borist til embættisins vegna þessa máls. ______________________GG Öxnadalur: Skriða lokaði veginum í gær Um miðjan dag í gær féll aur- skriða á þjóðveginn í Öxna- dal, skammt frá Fremra-Koti, og lokaðist vegurinn um tíma. Talsvert var af grjóti í spýjunni sem féll yfir veginn og því tepptist hann. Gerðar voru ráðstafanir til að fá ruðningstæki á vettvang og mun vegurinn hafa opnast lljót- lega aftur. Mikió rigndi í Öxna- dalnum í gær. SS Ríkissijórnar- flokkarnir töpuðu Ef litið er til úrslita í sveit- arstjórnarkosningunum sl. laugardag á landsvísu má ljóst vera að ríkisstjómar- flokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur, töpuðu al- mcnnt töluverðu fylgi. Aftur á móti unnu bæði Framsókn- arflokkur og Alþýðubandalag umtalsverða kosningasigra víða. Niðurstaðan er því sveifla til vinstri. Stóru tíóindin í þessum kosningum voru þau að Reykj- avíkurlistinn með Ingibjörgu Sólrúnu í broddi fylkingar sigr- aði höfuðborgina af Sjálfstæð- isflokknuin sem hcfur stjómað þar samfellt í tólf ár. R-listinn fékk 53% atkvæóa en D-listinn 47%. Sjálfstæóisflokkurinn tapaói víða. Til dæmis tapaði hann manni á Seltjarnamesi og meirihlutinn féll í Mosfellsbæ. Aftur á móti vann flokkurinn sigur á ísafirói, Bolungarvík og Scyóisfirói. Alþýðullokkurinn átti víða í vök að verjast. Hæst ber að kratameirihlutinn í Hafnarfiröi féll og sömuleióis var útkoman slæm í Kópavogi, en flokkur- inn stóö á nokkrum stöðum í stað, t.d. á Akureyri, Siglufirði og Sauðárkróki. Framsóknarfiokkurinn fékk víóa góða kosningu. Hæst ber sigur flokksins á Akureyri og á Dalvík en cinnig fékk hann af- buróa kosningu í Borgarncsi. Alþýðubandalagið vann góöan sigur víða unt land. Nægir að nefna Akureyri, Sauóárkrók, Húsavík, Nes- kaupsstað, Suöurnesjabæ, Akranes og Hafnartjörð. Þá skal þcss gctið aó Kvennalistinn náói baejarlull- trúa í Kópavogi og á Isafirði. Hins vegar náói hann ekki full- trúa í bæjarstjóm Hafnarfjarðar cins og kannanir höfðu gefið til kynna. óþh Akureyri: Hestur sparkaði og hundur beit Húsdýr komu nokkuð við sögu á Akureyri á laug- ardaginn en þá meiddist stúlka sem var á hestbaki og hundur glefsaði í konu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var stúlka á hestbaki skammt frá golfvcllinum að Jaóri sl. laugardag þcgar þaó óhapp varð að hesturinn datt og fór kollhnís. Stúlkan datt af baki og er hesturinn brölti á fætur sparkaói hann í höfuó stúlkunnar. Það varð henni til happs að hún var með hjálm og l'ékk hún að fara fljótlega heim eftir skoóun á slysadeild. Full- víst er talið aó hjálmurinn hafi þarna komió í veg fyrir alvar- lcgt slys. Þá lckk kona scm var að fara með blómasendingu I hús óblíðar viðtökur hjá heimilis- hundi. Hann glefsaði í fótlegg konunnar, reif buxur hennar og var konan marin og aum á ökkla eftir þessi viðskipti. Hún fékk þó ekki bitsár,__SS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.