Dagur - 23.07.1994, Blaðsíða 3
FRETTIR
Laugardagur 23. júlí 1994 - DAGUR -3
Varðskipin Óðinn og Ægir við Slippstöðvarkantinn sl. fímmtudag. Óðinn var á lcið úr kiössun en Ægir hins vcgar á
leið í klössun. Á sama tíma var flugvéi Landhclgisgæslunnar, TF-SÝR, stödd á Akureyrarfíugvelli þannig að stór
hluti íslcnska „hersins“ var staðsettur í Eyjafírði þennan dag. MyndrGG
Slippstööin-Oddi hf.:
Góð viðhaldsverkefna-
staða fram eftir hausti
Langidalur:
Bifreið valt
Sendiferðabifreið fór út af vegin-
um við bæinn Geitaskarð í Langa-
dal og valt þar. Mikil mildi var að
ungur ökumaður og drengur með
honum slösuðust ekki.
Að sögn lögreglu fór bíllinn út
af vestan megin, beint meðfram
veginum fyrst, síðan á girðingu og
valt þar til hann staðnæmdist á ár-
bakkanum. Ain er hyldjúp á þessu
svæöi og því mesta mildi að bíll-
inn hélt ekki áfram út í ána. Öku-
maður og farþegi voru báðir í bíl-
beltum. Bílstjórinn var skrámaður
og marinn en mætti fljótlega aftur
á staðinn eftir skoðun á sjúkra-
húsi. ÞÞ
Kammermúsík
og ferðaþjónusta
Kammermúsíkkvöld var haldið að
gistiheimilinu Rauðuskriðu í Að-
aldal nýlega. Það voru hjónin Kol-
brún Ulfsdóttir og Jóhannes Har-
aldsson sem fitjuðu upp á þessari
nýbreytni, að bjóða gestum sínum
að hlýða á músík og síðan var bor-
ið fram kaffi og meðlæti. Það voru
enskir og þýskir ferðamenn sem
þessara óvæntu veitinga nutu og
voru þeir mjög ánægðir, að sögn
Kolbrúnar.
Það voru ungir tónlistarmenn
úr Aðaldal sem léku, fyrrverandi
nemendur við Hafralækjarskóla;
Örlygur Benediktsson á klarinett,
Þórarinn Már Baldursson á fiðlu
og Arnþrúður Dagsdóttir á píanó.
Stjómandi og undirleikari var
Juliet Faulkner. Flutt voru verk
eftir Bach, Donisetti og Þorkel
Sigurbjömsson. „Vonandi getur
orðið framhald á tónleikahaldi af
þessu tagi,“ sagði Kolbrún.
Aðspurð um ferðamannastraum
að Rauðuskriðu sagði Kolbrún að
júní hafi verið lélegri en í fyrra en
júlí betri. Hún sagði að meira væri
um bókanir en í fyrra í Rauðu-
skriðu en minni lausaumferð. Að-
spurð um hugsanlegar orsakir fyr-
ir daufum júnímánuði taldi Kol-
brún þær vera margar; HM í
knattspymu hafi dregið úr umferð
og landsmót hestamanna. Einnig
taldi hún að sameiginlega mark-
aóssetningu og ferðamálafulltrúa
vantaði fyrir Norðurland. IM
Verkefnastaða Slippstöðvarinn-
ar Odda hf. er nokkuð góð og
fyrirsjáanleg eru verkefni fram
eftir septembermánuði. Nær
eingöngu er um viðhaldsverk-
efni að ræða en margir útgerðar-
menn senda skipin í klössun nú í
lok kvótatímabilsins, m.a. vegna
þess að kvótinn er uppurinn.
Nýtt kvótatímabil hefst 1. sept-
ember nk.
Einnig hefur stööin fengist við
viðhald á skipum Landhelgisgæsl-
unnar en varðskipið Óðinn hefur
verið hér um nokkum tíma og Ægir
liggur nú við Slippstöðvarkantinn.
Eiríkur S. Jóhannsson, stjómar-
formaður stöðvarinnar, segir að
enginn stærri innlend verkefni séu
í sigtinu en þessa dagana er verið
að athuga möguleika á að bjóða í
smíði nótaskips fyrir útgeró í
Grindavík.
Togarinn Stakfell ÞH-360 frá
Þórshöfn hefur verið í slipp að
undanfömu en auk þess að mála
skipið er verið að öxuldraga það,
skipta um stimpla og slífar í aöal-
vél og verið er að skipta um spil-
rótara sem voru orðnir ónýtir.
Stakfellið fer væntanlega frá Ak-
ureyri í dag og verður stefnan tek-
in í Smuguna en þangaó halda
margir íslenskir togarar þessa dag-
ana, ekki síst vegna lélegrar kvóta-
stöðu. Nokkuð er enn eftir af
kvóta Stakfellsins en Magnús
Helgason útgeróarstjóri segir að
hann verði geymdur um sinn og
jafnvel fluttur á milli fiskveiðiára.
GG
Bygging stálþilsbakka í Hrísey:
Guölaugur bauö lægst
I vikunni voru opnuð tilboð í út-
boði vegna byggingar stálþils í
Hrísey. Guðlaugur Einarsson
bauðst til að framkvæma verkið
fyrir tæpar 16,3 milljónir króna
sem nemur um 83% af kostnað-
aráætlun sem var 19.563.333 kr.
Verkið felst í byggingu 64 m
langs stálþilsbakka í Hrísey, þ.e.
að reka nióur stálþil og steypa
kantbita, og moka um 4000 m1 úr
höfninni.
Næsta tilboð hljóðar upp á
rúmar 18,2 millj. kr. eða um 93%
af áætluðum kostnaði og kom þaó
frá Sjóverki hf. í Mosfellsbæ. Þá
bauð Hagvirki Klettur hf. tæpar
20 milljónir króna, þ.e. hærra verð
en áætlun gerir ráð fyrir. Næstu
boð voru mun hærri. Rúmlega
24,6 milljóna króna tilboð kom frá
Skipaviógerðum hf. í Vestmanna-
eyjum og tæplega 29,6 milljóna
króna boð kom frá Sveinbimi
Runólfssyni og Byggingarfélaginu
Stöpum í Reykjavík.
GT
Vaglaskógur:
Útidansleikur
um verslunar-
mannahelgina
Hljómsveitin Hunang frá Ak-
ureyri fékk nú fyrir hclgina
leyft til að halda útidansleik í
Vaglaskógi á Iaugardagskvöld
um verslunarmannahelgina.
Ætlunin er að þar komi nokkr-
ar hijómsveitir fram.
Hugmyndir voru uppi í vor
um skipulagða fjölskylduhátíó
í skóginum um verslunar-
mannahelgina en af því sam-
komuhaldi varð ckki. Jakob
Jónsson, einn liðsmanna Hun-
angs, segir ekki á ferðinni
skipulagöa útihátíö, eins og
þekktar eru frá verslunar-
mannahclgum síðustu ára,
heldur kannski fremur langa
tónlcika og dansleik því búast
megi við að dagskráin standi
frá kl. 18 og fram á kvöld og
nótt. “ JÓH
ODYRT
ÞAKJÁRN
Ódýrt þakjárn 03
vcggklædning.
Framleiöum þakjárn 03
fallesar vegsklaeöninsar,
á hagstaeðu verði.
Galvaniseraö,
rautt og hvítt.
Timbur 03
Stál h.f.
Smiðjuvegi 11, Kópavogi.
Símar 91-45544 og 42740,
fax 45607.
Ferðafólk á Norðurlandi
Fjölbreytt þjónusta við hringveginn - og víðar!
Útibú Kf. Skagfírðinga í Varmahlíð Bjóðum ferðafólki fjölbreytta þjónustu á fögrum stað við þjóðveg nr. 1: • Verslun með dagvöru og ferðavörur. • Rúmgóð veitingastofa með allar veitingar. • Oiíur og bensín. • Opið frá kl. 09.00-23.30. Útibú Kf. Skagfirðinga á Hofsósi og Ketilási í Fljótum Dagvöruverslanir, léttar veitingar, olfur og bensín • Opið frá kl. 09.00-20.45. Verslun og þjónusta á Sauðárkróki, þar sem athafnalífið blómstrar! Á Sauðárkróki býður Kf. Skagfirðinga þjónustu sína: • Skagfirðingabúð, stærsta alhliða vöruhús á Norðurlandi og ef til vill víðar! • Bifreiðaverkstæði, varahlutir og smur- þjónusta • Vélsmiðja, rafmagnsverkstæði, afurða- stöðvar o.fl. o.fl., bara að nefna það!