Dagur - 23.07.1994, Síða 11
Föstudagur 23. júlí 1994 - DAGUR - 11
Vaka Jónsdóttir segist vonast til að gestir á sýninguna komi víða að
en fyrst og frcmst sé horft til Norðurlands og Austurlands.
Hrafnagil í Eyjafjarðarsveit:
Umfangsmikil landbúnaðar
sýníng Kefst eftir mánuð
Eftir réttan mánuð hefst á Hrafna-
gili í Eyjafjarðarsveit landbúnað-
arsýning sem standa mun í heila
viku. Aö sýningunni stendur
hlutafélag heimamanna, Lifandi
land hf., og hefur undirbúningur
staóið frá því um síðustu áramót.
Vaka Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Lifandi lands hf., segir ljóst
að sýnendur á sýningunni skipti
nokkrum tugum en í tengslum við
sýninguna verða fjölmargar uppá-
komur á sýningarsvæðimi. I raun
verður um fjölskylduhátíð að ræða
í heila viku, jafnt fyrir þá scm búa
í dreifbýlinu og tengjast landbún-
aði sem og fyrir þá sem búa í þétt-
býlinu.
Nokkrir tugir sýnenda
„Það stefnir allt í að sýningin
veröi umfangsmikil. Þátttakendur
skipta nokkrum tugum og enn er
að bætast við,“ segir Vaka að-
spurð um þátttakendafjöldann.
Hún segir að umgjörð sýningar-
innar hafi tekið nokkrum breyt-
inguin frá því byrjað var að undir-
búa hana og að fjölbreytnin hafi
aukist.
„Upphaflega var sýningin fyrst
og fremst hugsuð sem sýning á
landbúnaðarafurðum en síðan hafa
bæst við aðilar scm sýna aðföng
til landbúnaðar. Þessu til viðbótar
eru nýir liðir sem tengjast listum
og menningu. Þarna verður til
dæmis sýnt gamalt og nýtt hand-
verk, myndlist og fleira,“ segir
Vaka.
Sýnt á inni- og útisvæðum
Sýningin hefst laugardaginn 20.
ágúst og henni lýkur réttri viku
síðar, laugardaginn 27. ágúst. Að-
al sýningarsvæðið verður íþrótta-
húsið á Hrafnagili þar sem vcrður
aó finna fjölbreytta sýningu á
landbúnaðarafuróum en á úti-
svæöum verður m.a. sýning á vél-
um og tækjum, gömlum og nýjum
bílum, sýnireitum með grænfóð-
urs- og korntcgundum og margt
fleira.
Sýnendur koma víöa að þó
flestir þeirra séu af Reykjavíkur-
og Akureyrarsvæðunum. Þó fyrst
og fremst sé horft til þess að
áhorfendur komi af Norður- og
Austurlandi segist Vaka vonast til
þcss að áhorfcndur komi einnig af
Reykjavíkursvæðinu. En hvers er
vænst hvað varðar áhorf-
endatjölda?
„I raun horfum við til bænda-
fólks alls staðar að af landinu en
auðvitaó væntum við þess cinnig
að njóta góðs af nábýlinu við Ak-
urcyri. En vió horfum jú fyrst og
fremst til norðausturhorns lands-
ins þar sem íbúar telja um 40 þús-
und manns. Með áhorf-
endafjöldann rennum við algcr-
lcga blint í sjóinn en búast má við
eins og með margt annað hér á
landi, að þá spili vcórið stórt hlut-
verk um það. Við erum þó búin aö
gera samninga við veðurguðina
um aö þeir hafi sig hæga þessa
vikuna og væntum þess að þeir
standi við það,“ segir Vaka.
Menningarviðburðir, dagur
aldraðra og jeppaleikur
I undirbúningi sýningarinnar hefur
vcrió miðað við að þcir gestir sem
koma langt að geti dvalist á sýn-
ingarsvæóinu í nokkra daga og
notið þess að skoða sýninguna á
lengri tíma og fylgst með þeim
viðburðum sem tengjast munu
henni. Fyrirkomulag miðasölu
verður með þeini hætti að hver
miði gildir allan sýningartímann.
Eins og áóur segir munu rnenn-
ingarvióburðir koma við sögu á
sýningartímanum. Nokkur söngat-
riði verða, bæði við setningu og á
kvöldvökum í tengslum við veit-
ingasölu. Þá má nefna aó ætlunin
er að cinn dagur verði hclgaður
öldruðum og mun þá eldra fólk sjá
urn fjölbreytt dagskráratriði á
kvöldvöku. Einnig má nefna af-
þreyingu fyrir börn og þeir sem
áhuga hafa á jeppum geta tekió
þátt í léttum jeppalcik Jeppa-
klúbbsins 4x4 og Bílabúðar
Bcnna. Þcssu til viðbótar má svo
nefna að cinn sýningardaginn
vcróur haldin ráöstefna um land-
búnaó og feróaþjónustu, einn dag-
inn verður útimarkaður, annar
dagur helgaður börnum, enn annar
harmóníkuunnendum o.s.frv.
Vaka segir aö á þcim mánuöi sem
til stcfnu cr fram aö sýningu verði
lokaundirbúningur sýningarinnar
en óneitanlega sé mikið starf nú
þegar að baki cnda þurfi rnikinn
undirbúning að sýningu sem þess-
ari. JÓH
Sýningarsvœðið
Á þcssu svæði verður mikið uni að vcra síðustu vikuna í ágúst þcgar landbúnaðarsýning vcrður haldin.