Dagur - 06.08.1994, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 6. ágúst 1994
FRÉTTIR
Misjöfn laun bæjar- og sveitarstjóra
Við framlagningu álagningarskrár ár hvert vaknar æv-
inlega áhugi almennings á því hvað þeir sem áberandi
eru í þjóðfélaginu eða gegna ábyrgðarstöðum í þjóðfé-
laginu, greiða í opinber gjöld. Starf bæjar- eða sveitar-
stjóra eru mjög eftirsótt hér á landi sem raunar þarf
ekki að koma á óvart þegar álagningarskrár eru skoð-
aðar og fundið út samkvæmt þeim hvað áðurnefndir
forsvarsmenn sveitarfélaganna bera í laun.
Þess ber aö geta að upplýsingarnar eru byggóar á álagn-
ingarstofni sem hugsanlega kann að hafa tekið breytingum
til hækkunar vegna söluhagnaðar eóa arðs af hlutafjáreign
cða rekstri og til lækkunar vegna kostnaðar vegna
skólagöngu barna, veikinda eða annarra ótilgreindra
ástæðna. I kjölfar sveitarstjórnarkosninganna sl. vor hættu
nokkrir bæjar- og sveitarstjórar störfum og einn mun llytja
sig um set frá Raufarhöfn til Hvammstanga.
Samkvæmt álagningarskránni voru mánaðarlaun bæjar-
og sveitarstjóra á Noróurlandi eftirtalin á árinu 1993:
1. Halldór Jónsson, Akureyri kr. 452.000
2. Kristján Þór Júlíusson, Dalvík kr. 437.000
3. Bjarni Þór Einarsson, Hvammstanga kr. 436.000
4. Einar Njálsson, Húsavík kr. 399.000
5. Snorri Björn Sigurósson, Sauóárkróki kr. 372.000
6. Hálfdán Kristjánsson, Ólafsfirði kr. 360.000
7. Björn Valdimarsson, Siglufirði kr. 346.000
8. Ófeigur Gestsson, Blönduósi kr. 315.000
9. Magnús B. Jónsson, Skagaströnd kr. 278.000
10. Guðmundur Guðmundsson, Raufarhöfn kr. 276.000
11. Guðný Sverrisdóttir, Grenivík kr. 265.000
12. Jónas Vigfússon, Hrísey kr. 253.000
13. Reinhard Reynisson, Þórshöfn kr. 230.000
14. Sigurður Rúnar Ragnarsson, Mývatnssveit kr. 209.000
15. Steinar Haróarson, Kópaskeri kr. 217.000
16. Pétur Þór Jónasson, Eyjafjarðarsveit kr. 202.000
17. Jón Guðmundsson, Hofsósi kr. 158.000
18. Ingunn St. Svavarsdóttir, Kópaskeri kr. 80.000 (193.000)
Ingunn Svavarsdóttir, sveitarstjóri á Kópaskeri, kom
aftur til starfa 1. ágúst 1993 eftir ársleyfi frá störfum og er
talan í sviga laun hennar miðað við 5 mánaða starfstíma.
Steinar Harðarson, sem gegndi störfum sveitarstjóra á
meðan, fór í önnur störf á vegum sveitarfélagsins og var
því starfsmaður þess allt síóasta ár. GG
Halldór Jónsson. Kristján Þór Bjarni Þór Ein- Einar Njálsson. Snorri Björn Hálfdán Krist- Björn Valdi- Guðný Sverris- Reinhard Reyn- Jón Guðmunds-
Júlíusson. arsson. Sigurðsson. jánsson. marsson. dóttir. isson. són.
452 437
436 399
372 360 346
265
230 158
Laun forsvarsmanna norölensks sjávarútsvegs:
Framkvæmdastjórar
frystiskipaútgerðanna
með hæstu launin
Sjávarútvegur er undirstöðuat-
vinnuvegur landsmanna og í
smærri byggðarlögum er útgerð og
fiskvinnsla lífakkeri byggðarlag-
anna og nánast öll atvinnutæki-
færi á þessum stöðum byggjast á
eða tengjast útgerð og fiskvinnslu
með einum eða öðrum hætti.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Stöðupróf
í framhaldsskólum
Stöðupróf í framhaldsskólum í byrjun
haustannar 1994 verða sem hér segir:
Enska mánudaginn 22. ágúst kl. 18.00
Þýska, spænska þriðjudaginn 23. ágúst kl. 18.00
Norska, sænska mióvikudaginn 24. ágúst kl. 18.00
Franska, ítalska, stærðfræði fimmtudaginn 25. ágúst
kl. 18.00
Stöðuprófin eru opin öllum framhaldsskólanemendum
sem orðið hafa sér úti um einhverja þekkingu umfram
grunnskóla. Tilkynna skal þátttöku símleiðis til skrif-
stofu Menntaskólans við Hamrahlíð fyrir 20. ágúst í
síma 685140.
Framkvæmda-
stjórar útgerðar
og fiskvinnsiu
bera mikla ábyrgð
en hvað skyldu
þeir bera úr být-
um fyrir þá
ábyrgð? A
meófylgjandi lista
rná sjá hvaö þeir
hafa haft í mánaó-
arlaun samkvæmt
álagningarskrá
1994.
Guðmundur
Tr. Sigurðsson,
Meleyri hf.
Hvammstanga kr.
298.000
Sveinn Ing-
ólfsson, Skag-
Sveinn Ingólfs- strendingur hl.
SOn. Skagaströnd kr.
700.000
7fín Einar Svans-
* son, Fiskiðjan -
Skagfirðingur hf. Sauðárkróki kr.
404.000
Olafur Marteinsson, Þormóður
rammi hf. Siglufiröi kr. 283.000
Gunnar Þór Sigvaldason, Sæberg
hf. Ólafsfirói kr. 186.000
Svavar Magnússon, Magnús
Gamalíelsson hf. Ólafsfirði kr.
554.000
Gunnar Aðalbjörnsson, Frystihús
KEA, Dalvík kr. 321.000
Valdimar Bragason, Utgerðarfé-
lag Dalvíkinga hf. Dalvík kr. 229.000
Gunnar Ragnars, Utgerðarfélag
Akureyringa hf. Akureyri kr. 534.000
Þorsteinn Már Baldvinsson, Sam-
herji hf. Akureyri kr. 830.000
Tryggvi Finnsson, Fiskiðjusamlag
Húsavíkur hf. Húsavík kr. 287.000
Kristján Asgeirsson, Höfói hf. og
íshaf hf. Húsavík kr. 292.000
Kristján Þ. Halldórsson, Geflu hf.
Kópaskeri kr. 217.000
Þorsteinn Óli Sigurðsson, Fiskiðja
Raufarhafnar hf. og Jökull hf. Rauf-
arhöfn kr. 298.000
Jóhann A. Jónsson, Hraðfrystihús
Þórshafnar hf. kr. 283.000 GG
Magnús Gauti launa-
hæstur kaupfélags*
stjóra á Norðurlandi
Laun norðlenskra kaupfélags-
stjóra voru ærið misjöfn á sl.
ári samkvæmt álagningarskrá
1994. Það þarf þó ekki að
koma á óvart því umfang
þeirra er mjög mismunandi.
Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri Kaupfélags Ey-
firðinga á Akureyri ber höfuð og
herðar yilr kollega sína enda
KEA eitt af stærstu fyrirtækjum
landsins. Mánaðarlaun Magnús-
ar Gauta voru kr. 821.000.
Þorgeir Hlöðversson, Kaup-
félagi Þingeyinga á Húsavík var
meó kr. 456.000; Garóar Hall-
dórsson, Kaupfélagi Langnes-
inga á Þórshöfn með kr.
288.000; Gunnar V. Sigurðsson,
Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga
á Hvammstanga kr. 184.000;
Guðsteinn Einarsson, Kaupfé-
lagi Húnvetninga og Sölufélagi
Austur- Húnvetninga á Blöndu-
ósi kr. 313.000 og Þórólfur
Gíslason, Kaupfélagi Skagfirð-
inga Sauðárkróki kr. 458.000.
Rckstur útbús KEA á Dalvík
er mjög umfangsmikill en úti-
bússtjórinn, Rögnvaldur Skíði
Frióbjörnsson, nú bæjarstjóri á
Dalvík, bar kr. 271.000 í mánað-
arlaun á árinu 1993. GG
Magnús Gauti Garðar Halldórsson. Guðstcinn Einarsson.
Gautason.
821 288 313
Minjasafnið á Akureyri:
Efnir til handverks-
dags á morgun
Á morgun, sunnudaginn 7.
ágúst, stendur Minjasafnið á
Akureyri fyrir handverksdegi.
Þaó hefur fengió til liós við sig
handverksfólk frá Akureyri, úr
Eyjafirói og frá Húsavík og mun
þaó sýna margvíslegt handverk,
t.d. útskurð, vinnu við horn og
bein, vefnað, orkeringu og gimb,
balderingu, spuna og hnýtingu
hrosshársgjarða. Handverksfólkið
veróur aðallega staðsett í Noróur-
húsi safnsins bæði á efri og neóri
hæð og reynt verður að tengja
handverkið við sýningarnar sem
þar eru. Safngestum ætti því að
gefast gott tækifæri á aó sjá
hvernig handverk sem lifað hefur
með þjóðinni í aldir hefur þróast í
tímans rás.
Minjasafnið er opnaó kl. 11 en
handverksfólkið hefur störf sín kl.
13 og verður við iðju sína til kl.
17. Aðgangseyrir er 200 krónur.
(Fréltulilkynning)