Dagur


Dagur - 06.08.1994, Qupperneq 4

Dagur - 06.08.1994, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 6. ágúst 1994 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ■ SÍMFAX: 96-27639 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1400 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLADAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,(lþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. 0£beldi á tölvuöld í grein í nýjasta tölublaði tímaritsins Uppeldi er vakin athygli á því að niður í skúffu í menntamálaráðuneyt- inu hafi lengi verið drög að frumvarpi til laga um skoðun kvikmynda og bann við ofbeldismyndum. Á sama tíma fjölgar þeim börnum sem verja drjúgum tíma við sjónvarpsgláp eða sitja lon og don við heimil- istölvuna og kynna sér tölvuleiki með grófu ofbeldi sem oftast gengur út á ofbeldi og morð. Þetta er heim- ur barnanna í dag og löggjafinn leggur blessun sína yfir hann. Auður Eydal, forstöðumaður Kvikmyndaeftirlitsins, segir í nefndri grein í Uppeldi að hvergi sé minnst á tölvuleiki í núgildandi lögum og því sé ekkert eftirlit haft með þessum hlutum. Auður telur að eftirlit með tölvuleikjum væri best komið hjá Kvikmyndaeftirlitinu. „Ég hef þrýst á um að sérstök grein um tölvuleiki verði sett inn í hin nýju lög um skoðun kvikmynda og bann við ofbeldismyndum. Það er alls ekki fjarstæðu- kennt að hugsa sér að kvikmyndaeftirlitið kæmi ein- hvern veginn þarna inn og sæi um skráningu leikja og aldursmerkingar. Þannig hefur það verið í öðrum lönd- um," segir Auður Eydal. Það er vitað mál að börn og unglingar hafa aðgang að hrottafengnum tölvuleikjum í einkatölvum inni á heimilum. Foreldrarnir hafa jafnvel ekki hugmynd um hvað börn þeirra eru að horfa á vegna þess einfald- lega að þeir hafa ekki sömu þekkingu á tölvuheimin- um og börnin. Slíkir tölvuleikir eru nú til dags orðnir ótrúlega vel gerðir, í augum barnanna jafnast þeir á við kvikmyndir og áhrif þeirra á börnin eru síst minni en ef um ofbeldiskvikmyndir er að ræða. í viðtali við Auði Eydal í greininni í Uppeldi kemur fram að dreifingaraðilar tölvuleikja hafi lýst yfir áhuga á einhvers konar leiðbeiningum eða merkingum til að fara eftir, ekki ósvipað því sem er á myndböndum. „Þeir hafa sjálfir séð að það er óæskilegt að selja ung- um börnum eitthvað sem engan veginn hæfir þeirra aldri og vilja leiðbeinandi reglur og aldursmerkingar," segir Auður. Það er löngu tímabært að hæstvirtir alþingismenn vakni af værum blundi og geri sér grein fyrir að hér er um alvarlegt mál að ræða sem brýnt er að tekið verði á. Eftirliti í einhverri mynd verður að koma á. Eftirfar- andi orð Auðar Eydal vitna um afskiptaleysi opinberra aðila af þessu máli: „Staðan er því miður sú í dag að það veit enginn neitt um þessi mál né nennir að setja sig inn í þau.“ I UPPAHALDI Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir, þjóðgarðsvörður: Drekkur nýmjólk og hlustar á Edith Piaf Sigþrúður Stella Jó- hannsdóttir er þjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum. Hún býr að Ási og fylgist með þjóð- garðinum sumar sem vetur, vor og haust, þó sumarið sé að vonum háannatíminn. Þetta er áttunda sumarið sem Stella starfar í þjóð- garðinum, en það var í vet- ur sem Össur Skarphéðins- son, umhverfisráðherra, skipaði hana í embætti þjóðgarðsvarðar. Stella er frá Víkingavatni í Keldu- hverfi, svo hún starfar ekki svo langt frá sínu æsku- heimili. Stella ætlar í dag að segja okkur hvað er heíst í uppáhaldi hjá henni. Hvaðgerirðu heht ífrístundum? Ég slappa bara af. Hvaða matur er í mestu uppáhaldi hjá þér? Grillaó lambakjöt. Uppáhaldsdrykkur? Nýmjólk. Ertu hamlileypa tilallra verka á heimilinu? Ég tek heimilisstörfin í skorp- um. Er heilsusamlegt líferni ofarlega á baugi hjá þér? Sigþrúður Stella JóliannsdóUir. Já, alltaf. Ég lifi ágætlega heilsusamlegu lífi. Hvaða blöð og tímarit kaupir þú? Ég er nýbyrjuð að kaupa Moggann, annars hef ég ekki keypt nein blöð. Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér? Engin eins og er. Síöast las ég sögu eftir Agöthu Christie. Hvaða tónlistarmaður/hljómsveit er í mestu uppáhaldi hjá þér? Þetta er erfið spurning. Þessa dagana hlusta ég mest á Edith Piaf. Uppálialdsíþróttamaður? Ég fylgist ekki nógu vel með íþróttum. Hvað horfir þú mest á í sjónvarpi? Fréttir. A hvaða stjórnmálamanni hefurþú mest álit? No comment. Hvar á landinu vildir þú helst búa ef þú þyrftir að flytja búferlum nú? Einhversstaðar á Norðaustur- landi. Hvaða hlut eða fasteign langarþig mest að eignast um þessar mundir? Ég ætla að kaupa mér sjón- varp í haust. Hvernig œtlur þú að verja sumar- leyfinu? Sumarleyfið verður ekki tekið fyrr en í vetur og það er óákvcðiö hvernig því verður varið. Hvað œtlarþú að gera um helgina? Vinna. Ég geri engan greinar- mun á helgum og virkum dögum í þessu starfi, og þaó er allt í lagi mín vegna. IM A\Et> MOROUN KAFFI NU OLAFUR ÞORÐARSON Þá er hún búin Enn einu sinni er hún búin, blessuó verslunarmannahelgin. Þessi árlega martröð Umferöarráðs, lögreglu, Land- verndar og síðast en ekki síst, foreldra. Aó þessu sinni var mottóið að vísu dálítið á skjön við markaðsöflin, þ.e.a.s. burt með unglinga. Utrýmum unglingum, enga unglinga hingað, takk. Þrátt fyrir að þessi söngur hafi nú staðið, að því er talið er, frá upphafi vega, eru unglingar enn í fullu fjöri og hegð- an þeirra alltaf jafn hneykslanleg, sem betur fer liggur mér við að segja. Eöa hvar væri komið þessari þjóð ef ekki væru unglingar, ég spyr? Þrátt fyrir að ég sé farinn að eldast og hættur að láta Jör- und féfletta mig, hvað þá aðra minni spámenn í þjónust- unni, þá datt mér nú samt í hug að renna út á Siglufjörð á Síldarævintýri 1994 á sunnudagsmorguninn síðastliðinn. í framhaldi af því ákvað ég aó hringja þangað og forvitnast um auglýsta dagskrá fyrir þann ágæta dag. En nú var úr vöndu aö ráða. Hvern skyldi nú helst að tala við? Eftir vandlega íhugun ákvaó ég aó hafa samband vió Hótel Læk þar á staðnum. Þeir hljóta að hafa þetta á hreinu, staósettir í hjarta bæjarins. Á kafi í þjónustu við gesti og gangandi auk þess aó eiga verulegra hagsmuna að gæta varðandi þessa samkomu, hugsaði ég um leið og ég valdi símanúmerið. „Hótel Lækur, góóan daginn," var svaraó. - Já, góðan dag. Olafur heiti ég og bý á Akureyri. Mig langar til aó fá upplýsingar um hvað veróur um aó vera þarna hjá ykkur frá hádegi í dag. Sem sagt; hvernig hljóóar auglýst dagskrá fyrir daginn í dag? „Það er heilmikió um að vera. Stanslaus músík á torginu og mikið fjör og veðrið al- veg prýðilegt. Þú skalt bara skella þér.“ - Jú, alveg er það nú Ijómandi, en hvað með aöra dag- skrárliði? „Ja, það er svo margt; sjóstangveiði, skemmtisigling og fleira og fleira.“ - En hvað með málverkasýningu, síldarsöltun og Síldar- minjasafnið? Hvenær opna þessir staðir og hvað er opið lengi? „Söltunin byrjar klukkan tvö eða fjögur og hitt er opið til klukkan sex eða sjö, kannski lengur, en veðrið er fint og geysilegur mannfjöldi, svo þú ættir bara aó drífa þig á stað- inn í hvelli.“ - Þú ert sem sagt ekki meö auglýsta dagskrá við hend- ina? „Nei, því miður, en reyndu aö tala við þær á bensínstöð- inni.“ „ESSO, góóan daginn.“ - Já, góðan daginn. Olafur heiti ég og bý á Akureyri. Mig langaði til aö fá upplýsingar um tímasetningar á auglýstri dagskrá í dag, þarna hjá ykkur í fjörinu. „Ja, þeir eru til dæmis akkúrat núna að koma að úr sjó- stangveiðinni og svo verður svaka partý hjá þeim í kvöld.“ - Ágætt. En hvað með aðra dagskrárliði? „Þú meinar síldarsöltun og allt það. Það er engin söltun í dag. Þaó var bara í gær og fyrradag, en það er stanslaus músík á torginu og fullt af fólki og mikió fjör og fínasta veður.“ - Fínt er, en hvað með safnið og sýninguna? „Það er opið í allan dag, til tíu í kvöld aó minnsta kosti, eöa eitthvað soleiðis, held ég.“ - Akkúrat. Þakka þér fyrir. „Það var ekkert.“ - Satt segirðu og vertu blessuð. „HA?“ I næsta númeri var svarað eftir langa stund. „Lögreglan.“ - Getið þið frætt mig um auglýsta dagskrá þarna hjá ykk- ur í dag? „Hringdu í upplýsingar í ráóhúsinu.“ - Takk. „Upplýsingar góóan daginn.“ - Getur þú gefió mér upplýsingar um auglýsta dagskrá í dag? „Já, já. Þaó er stanslaus músík á torginu, geysilegur mannfjöldi, fínasta veður og allt fullt af fólki og þér er al- veg óhætt að láta sjá þig.“ - Klukkan hvaó? „Klukkan hvað? Bara strax eða bara hvenær sem þér sjálfum sýnist.“ - Ég var að spyrja um tímasetta og auglýsta dagskrá. Hvenær er veðrið til dæmis? „Ertu að grínast eða hvað?“ - Nei. Og hvernig mælió þið fjörið? í mannfjölda á fer- metra eða í desibelum eða meðalhitastigi. Og hver samdi dagskrána? Mér dettur helst í hug Eiríkur nokkur Fjalar, getur þaó verió? Smellur. Og þá datt mér í hug gömul vísa, sem vel gæti átt við þessa mestu annríkishelgi íslenskra verslunarmanna: Týndur faimst, en fundinn hvarf. Að fundnum týndur leita þarf Svo týnist sá, semfundinnfer, að finna þann, sem týndur er.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.