Dagur - 06.08.1994, Síða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 6. ágúst 1994
POPP
KOMBÓ
Ellen Kristjánsdóttir hefur
um langt árabil verið ein
ástsælasta söngkona
landsins. Verður ekki ann-
að sagt en að hún hafi
komið víóa vió og reynt nánast
allt sem ein dægurlagasöng-
kona getur reynt. Sem dæmi
um hljómsveitir sem hún hefur
sungið með má nefna Ljósin í
bænum, þar sem diskóið var
við völd, Mannakorn og Tíbrá,
en auk þeirra og fleiri hefur hún
starfrækt eigin sveitir og söng-
flokka (Flokk mannsins hennar,
Borgardætur) sungið meó öðr-
um inn á plötur m.a. fyrir
Magnús Þór auk ýmislegs ann-
ars. Hún er síðan eins og sjálf-
sagt flestir vita gift öórum tón-
listarmanni, Eyþóri Gunnars-
syni hljómborðsleikara í
Mezzoforte og systir annars,
Kristjáns, KK hinum seinni.
Um nokkurt skeió hefur það
svo legið í loftinu að Ellen
sendi frá sér plötu undir eigin
nafni, en lög frá henni hafa allt-
af annaó slagió komió út á
safnplötum. Stóð slíkt til á síð-
asta ári, en í stað þess aó um
hennar eigin plötu yrði aó
ræða, varð nióurstaóan plata
með nýrri hljómsveit, Kombóið.
Komu þar til liðs við Ellen þeir
Þórður Högnason kontra-
bassaleikari, sem um langt
árabil hefur verið í fremstu röó
íslenskra jassara, Birgir Bald-
ursson, sem spilað hefur meó
ólíkum sveitum á borð við Sál-
ina og s/h draum og Eðvaró
Lárusson gítarleikari, sem m.a.
CÍTARLEIKARI
CENCUR BROTT
Hún var heldur betur stór
sprengjan sem féll í bresku
poppi í síðustu viku. Þá
fregnaóist nefnilega aó gítar-
leikari Suede, einnar mest
spennandi sveitar landsins,
Bernard Butler, hefði sagt skilið
við hana og það með látum.
Hefur Suede að undanförnu
unnið höróum höndum aó sinni
annarri plötu og var það
snemma í síðasta mánuði er
vinnan var aó komast á loka-
stig, sem upp úr sauð milli Butl-
ers og hinna þriggja meðlima
sem sagt ekki fyrr en í stóustu viku, aó fregnin spurðist út. Mun
það hafa verið ágreiningur um störf upptökustjórans Ed Buell-
er, sem olli brotthvarfi Butlers. Lenti hann víst nánar tiltekió í
miklu orðaskaki við félaga sína, sem endaði með því að hann
strunsaði út úr hljóöveri þar sem vinnan haföi farió fram og hef-
ur ekki snúið aftur síðan. Hefur þessi útganga Butlers kynt und-
ir sögusagnir að dagar Suede kunni senn vera taldir, en þær
hafa verið uppi um hríð vegna ýmissa smáerfiðleika sveitarinn-
ar. Forráðamenn hennar vísa hins vegar öllum slíkum sögum á
bug og segja þær út í hött. Nýja platan, sem enn er nafnlaus,
muni t.d. haldast á áætlun þrátt fyrir áfallið með Butler.
Bernard Butler. Hættur, íarinn.
hljómsveitarinnar. En það var
ENNMEIRAAF HENÞRIX
Meistari Hendrix hefur verið dáinn I rúm
tuttugu ár, en verk hans lila átram, bædi
góð og slæm.
að þarf líklega ekki að fræða
tónlistarunnendur á hversu
fallnar hetjur hafa reynst útgef-
endum happadrjúgar við að maka
krókinn. Svo mikið hefur borið á
endurútgáfum og ný/gömlum út-
gáfum með „uppgröfnu" eða
„týndu" efni á síðustu árum. (Hafa
sumar af þessum útgáfum hrein-
lega reynst falsaðar þegar til kast-
anna hefur komið) Er Jimi heitinn
Hendrix eitt besta dæmið um
þetta, en á þeim rúmu tuttugu ár-
um sem liðin eru frá andláti hans,
hafa komið út óteljandi plötur undir
hans nafni. Hefur þar oftar en ekki
verið um bágbornar eða hreinlega
falsaðar upptökur að ræða, en
sem betur fer líka hreina gullmola í
einstaka tilfellum. Dæmi um gull-
mola er einmitt safnplatan Blues,
sem kom út fyrr (sumar, en hún er
dýrmætur vitnisburður um feril
meistarans. Um þessar mundir er
svo að koma út önnur plata með
Hendrix, sem mörgum þykir ef-
laust mikill tengur f. Er þar um aó
ræða heildarupptöku á hlut Hendr-
ix á Woodstockhátíðinni fyrir 25
árum, sem áður hefur aðeins kom-
ið út í pörtum. Var að margra mati
löngu kominn timi til, því Hendrix
var tvímælalaust einn af hápunkt-
um þessarar frægustu tónlistarhá-
tiðar sögunnar.
Það virðist alltaf þurfa að henda
annars lagið að tónlistarunnendur
láti lifið á tónleikum. Var sagt frá
einu sllku dauðsfalli fyrir skömmu
hér I Poppi, sem átti sér stað á
Glastonburyhátíðinni. Var þar um
dauða vegna fíkniefnaneyslu að
ræða. Annað dauðsfall og ekki
síður skuggalegt átti sér svo stað
á svipuðum tíma, á tónleikum hjá
hinni margfrægu þungarokkssveit
til margra ára, Motorhead. Átti þar
í hlut 21 árs piltur, sem í fyrstu var
talinn hafa fallið i yfirlið í hita og
þunga tónleikanna, en síðar upp-
götvaðist að um dauðadá hefði
verið að ræða. Var hann útskurð-
aöur látinn um viku eftir atvikið. Er
taiið að nokkur tími hafi liðið áður
en í Ijós kom að ekki var allt með
feldu með piltinn. Kann það e.t.v.
að hafa skipt sköpum um að hægt
hefði veriö að bjarga lífi hans.
MAGNÚS GEIR GUÐMUNDSSON
- KLASSO
hefur spilað með Vinum Dóra
og ýmsum jasssveitum. Sem ----
sagt, allt fyrsta flokks tónlistar-
menn. Það kemur því ekki á
óvart aó vinnubrögóin við
plötuna og öll spilamennska er
fyrsta flokks. Að „klassi" sé yfir
henni eins og sagt er á vondu
máli.
Um innihaldió, 10 lög, öll
samin af hljómsveitinni eóa El-
len einni utan eins, Blue skies,
sem er eftir hinn einstaka Tom
Waits, gildir að mörgu leyti líka
það sama. Eru þarna innan um
góóar og vandaðar lagasmíó-
ar, sem heldur kemur ekki á
óvart að eru með djasskeimi.
Dæmi um það eru Gamall
maður, Sunny side, sem nokk-
uó hefur heyrst í útvarpi og All
in my mind. Þessi lög og önnur
einkenna þó ekki síóur rólynd-
islegt og draumkennt poppyfir-
bragð, þannig að í heild má
lýsa plötunni í einu orði sem
angurværri. Dettur manni helst
í hug samanburóur við sumt
sem Cowboy junkies hafa verið
að gera, en sá samanburóur er
þó án ábyrgðar.
Er óhætt að mæla með -----------------------------
plötunni, Sem þó auóvitað er Flnt erKombóið og faglegt.
ekki sú söluvænlegasta, en er
vönduð og allrar athygli veró.
HRYLLINC5R0KKARI
ENNAFERP
Hryllingshetjan Alice Cooþer er einkar gott
dæmi um tónlistarmann sem lifað hefur tím-
ana tvenna. Hefur þessi tæplega fimmtugi
garpur afrekað að ná allt til
hæstu hæóa á frægðar-
himninum, hrapa þaóan
með látum m.a. vegna
mikillar brennivíns-
drykkju, en ná sér
síðan aftur á strik
og öðlast gott
gengi að nýju. Var
þaó á fyrri hluta
og um miðjan átt-
unda áratuginn
Alice Cooper hefur enrt upp á ýmislegt aö bjóða þótt
inn sé orðinn langur og strangur.
sem Alice Cooper, hálfur maóur hálfur kona,
(rétt nafn Vincent Furnier) gerði hreinlega allt vit-
laust með sínum makalausu hryllingsuppákom-
um, sem jafn mikið minntu á leiksýningu eins og
rokktónleika. Stuóluóu þessar sýningar, sem
urðu æ meira blóóugri eftir því sem vinsældirnar
jukust, svo að því aó plöturnar sem komu út
reglulega á hverju ári rokseldust. Sú vinsælasta
og aó margra mati sú besta var Billion dollar ba-
bies frá 1973, en hún fór á toppinn bæði í
heimalandinu Bandaríkjunum og Bretlandi. Plat-
an þar á undan, School s out frá 1972, er reynd-
ar engu síðri og náði hún öðru sæti í Bandaríkj-
unum og því fjórða í Bretlandi. Samnefnt lag fór
líka á toppinn í Bretlandi og í sjöunda sæti í
Bandaríkjunum.
Þegar eins og fyrr sagði fór aö halla undan
fæti hjá Cooper vegna víndrykkjunnar á seinni
hluta áttunda áratugarins, hélt hann samt áfram
aó senda frá sér plötur með reglulegu millibili.
Þaó var hins vegar ekki fyrr en upp úr miðjum
síóasta áratug sem rofa fór til að nýju með
plötunni Constrictor. Hafói hann þá líka unnið
bug á áfengisvandanum. Svo vel gekk Cooper
með plötuna Trash árió 1989, að það jafnaóist
á vió þaó besta frá fyrri velgengnisdögunum.
Náði platan t.d. öóru sæti í Bretlandi og lagið
Poison af henni náði víóa miklum vinsældum.
Nýjasta plata Alice Cooper, The last temptation,
kom svo út fyrir skömmu, en á undan henni
hafói platan Hey stoopid litið dagsins Ijós árið
1992. Náði sú síðarnefnda ekki að fylgja ofur-
vinsældum Trash eftir, en seldist þó þokkalega.
Voru á henni líkt og á Trash margir frægir gestir,
en á þeirri nýju er aóeins um einn slíkan aó
., Chris Cornell söngvara Soundgarden. Er
höfundur tveggja laga á plötunni, þar af
eins í félagi vió Cooper og syngur hann auk
þess í öðru þeirra. Þykir platan aó uppbygg-
ingu líkjast eldri plötum Coopers og hefur hún
fengið hina bærilegustu dóma. Eru lög eins
og Lost in America, Nothing s free og Side
show dæmi um góðar rokklagasmíðar á
henni. Cooper lifir því ágætu lífi ennþá í
„bransanum“ nær þrjátíu árum eftir að hann
hóf ferilinn.