Dagur - 06.08.1994, Side 20
Nemendur úr kennaradeild, sjávarútvcgsdeild og rekstrardeild sækja fyrirlestra í nýja Oddfellowhúsinu.
Mynd: GT
Akureyri:
Haskolinn fær kennslu-
lými í Oddfellowhúsinu
Háskólinn á Akureyri hefur
gert samning við Odd-
fellowreglu Akureyrar um
notkun á húsnæði þeirra í bæn-
um. Um er að ræða nýja bygg-
ingu, sem staðsett er gegnt lög-
reglustöðinni á Akureyri. Að
sögn Guðmundar H. Frí-
mannssonar, forstöðumanns
kennaradeildar Háskólans á
Akureyri, munu nemendur
fyrsta árs kennaradeildarinnar
sækja fyrirlestra í Oddfellow-
húsinu auk þeirra nemenda úr
sjávarútvegsdeild og rekstrar-
deild sem sækja kúrsa saman.
Endanleg tala nemendafjölda
í kennaradeild skólans er ekki
enn komin á hreint að sögn Guð-
mundar, en fjöldi nemenda verð-
ur að öllum líkindum yfir 45
manns á fyrsta ári, sem þýðir aö
fara verður með megnió af þeirri
kennslu í Oddfellowhúsið. Á
fyrsta ári í fyrra voru 74 nem-
endur, en fyrir 1. júní í ár höfðu
47 umsóknir borist og nokkrar
umsóknir bárust skólanum eftir
það og mun verða reynt að verða
viö öllum umsóknunt. I sal Odd-
fellowhússins geta 70-80 nem-
endur setið við borð og ætti því
aö vera rúmt um nemendur fyrsta
árs kennaradeildar.
ÞÞ
Urvinnslan hf.:
Há bilanatíðni gert
mönnum erfitt fyrir
Raufarhöfn:
Færri ferða-
menn á Hótel
Norðurljósi
Miðað við sumarið ’92 er
þetta miklu minna,“ sagði
Dóra Guðmundsdóttir hótel-
stjóri á Raufarhöfn, aðspurð um
ferðamannastraum á hótelinu í
sumar. Dóra sagðist ekki miða
við rigningarsumarið í fyrra.
Þetta er þriðja árið sem hún rek-
ur Hótel Norðurljós ásamt eigin-
manni sínum, Óla Hansmar, og
hótelið er opið allt árið.
Dóra sagði að hótclrcksturinn
byggðist ekki upp á hópum, þaö er
ferðamannahópar kæmu ekki á
hótelió, ncma þá íslenskir hópar
starfsmanna eða félaga. Hún sagði
að fjöldi ferðamanna væru á ferð,
en þeir kæmu ekki á hótelið í gist-
ingu eða mat. Fyrir tveim árum
hefði aftur á móti verið mikið um
að fólk kæmi við og fengi sér að
borða. Fólk virtist ferðast á ódýr-
ari hátt núna og fremur gista í
tjöldum eða tjaldvögnum, og tölu-
vert góð aðsókn hefði verið að
tjaldstæðunum.
„Það þýðir ekkert annað en aó
vera bjartsýn,“ sagði Dóra og
fannst ekki ólíklegt að fólk kæmi
frekar í gistingu á hótelið þegar
dimma tæki í ágúst. „Júní var
ágætur og mér finnst svolítið
skrítið hvað þessar stóru ferða-
skrifstofur stíla mikið upp á júlí
og ágúst, mér frnnst aó þær ættu
að beina útlendingunum hingað á
Norðurhjarann í júní, í þessa ein-
stöku birtu, hún hlýtur að vera
áhugaverð og fuglaskoðunarmenn
vilja auðvitað koma í júní. Þaö eru
fyrst og fremst náttúruunnendur
sem hingað koma,“ sagði Dóra.
Dóra og Óli fengu hótelið leigt
til fimm ára og hún gerir fastlega
ráð fyrir að þau haldi áfram
rekstrinum þau tvö ár sem eftir
eru af leigusamningnum. Á haust-
in breytist reksturinn, þá er boðið
upp á lifandi tónlist um helgar en
slíkt er erfitt á sumrin þar sem
gistiherbergin eru milli borðsalar
og bars.
Dóra sagði aó möguleiki væri
fyrir þau að hafa hótelið opió á
veturna með því að vinna
eingöngu sjálf við reksturinn, auk
þess sem hún hefði starfað sem
kennari.
„Við á Noróausturhorninu er-
um dálítið afskekkt, út úr þessari
túristamynd. Eg hef vcrið að
hugsa um hvort við gætum ckki
unnið saman og finnst vió ekki
eiga samleið með Akureyri og
jafnvel ekki Húsavík heldur. Hjar-
inn ætti að reyna að taka höndum
saman en ekki hver aó pukrast í
sínu horni, þá er auglýsingakostn-
aður svo hár,“ sagði Dóra. IM
Ágætis veður verður_ norð-
anlands um helgina. Á land-
inu öllu er gert ráð fyrir
hægri vestan- eða suð-
vestanátt, þó gæti heldur
bætt í vindinn þegar líður á
helgina. Það verður skýjað
og þokuslæðingur yfir nótt-
ina en birtir til á daginn. Hiti
verður á bilinu 10-17 stig,
hlýjast inn til landsins. Ekki
er búist við neinni úrkomu.
Aðalfundur Úrvinnslunnar
hf. var haldin á dögunum og
var þar ákveðið að halda áfram
starfsemi fyrirtækisins, en mikl-
ar bilanir í vélabúnaði hafa tafið
alla framleiðslu. Fyrirtækið hef-
ur sérhæft sig í framleiðslu á
kubbum undir vörubretti, en
þeir hafa verið unnir úr hráefni
svo sem gömlum dagblaðapapp-
ír og áburðarpokaplasti.
Vélar til framleióslunnar komu
til landsins síðasta haust og var
framleiðsla kubbanna halln í
febrúar sl., en að sögn Bjarna
Kristinssonar hjá Iðnþróunarfélagi
Eyjafjaróar helúr starfsemi fyrir-
tækisins gengið miklu hægar en
reiknað var meö vegna mikilla bil-
ana í framleiðslutækjum. Sagði
Bjarni að ein bilunin hefði tekið
vió af annarri og væri það nú fyrst
frá miðjum júlí sem framleiðsla
kubbanna hefði gengið snurðu-
laust fyrir sig.
Að hans sögn er um séríslenska
þróun að ræða og var alltaf mein-
ingin aó gera tilraunir meó aðra
framleiðslu úr sama hráefni, t.d.
„lektur“, en þaó eru timburstoðir
sem notaðar eru við klæðningu
húsa. Sagði Bjarni ýmsar fleiri
hugmyndir hafa verið í gangi sem
menn hafi viljað prófa sig áfram
meö, en engin tími hafi gefist í það
þar sem vélarnar hafi verið mcira
eða minna bilaðar frá því þær voru
keyptar. Forsvarsmenn Úrvinnsl-
unnar gera sér vonir um aó allir
helstu byrjunarerfióleikar fyrirtæk-
isins séu nú frá og auk framleiðslu
kubbanna gcti tilraunastarfsemi
varðandi nýjar framleiðsluvörur
hafist fyrir alvöru. ÞÞ
Á þessari mynd má sjá brettakubba þá sem Úrvinnslan framleiðir.
Þrír togarar frá Akureyri
í Barentshafiö:
Sólberg ÓF
með 170 tonn
af ísuðum fiski
úr Smugunni
Sólberg ÓF-12 frá Ólafsfirði
kom til heimahafnar í gær úr
Smugunni með 170 tonn af væn-
um þorski en innan um er þó
eitthvað af smælki, en í litlum
mæli. Skipstjóri var Benedikt
Sverrisson. Aðalvél togarans fer
nú í upptekt og reiknað með að
verkið taki hálfan mánuð og
verður það unnið í Ólafsfirði.
Aðrir togarar Sæbergs hf„ þ.e.
Mánabcrg og Múlaberg, eru
einnig við veióar í Smugunni og
hafa aflað vel, m.a. fckk ískfisk-
togarinn Múlaberg um 100 tonn
eftir tvo daga. Rauóinúpur ÞH
kemur til heimahafnar í kvöld
með um 200 kör af saltfiski, um
70 tonn, og um 30 tonn af ísfiski
sem fer til vinnslu hjá Fiskiðju
Raufarhafnar hf.
Aðrir norðlenskir togarar í
Smugunni eru Örvar HU, Bliki
EA, Stakfell ÞH, Siglfirðingur SI,
Drangey SK, Hegrancs SK og
Skagfirðingur SK og aóeins tvö
önnur skip af suðvesturhorninu er
þar aö veiðum.
Sl. miðvikudagskvöld hélt Ak-
ureyrin EA-110 til veiða í Smug-
unni, í gær hélt ÚA-togarinn Sól-
bakur EA-307 þangað einnig og er
Ragnar Elísson skipstjóri. I kvöld
fer „gamli“ Svalbakur EA-302
þangað og verður Árni Ingólfsson
skipstjóri, en hann hefur verið
með Arbak EA-308. GG
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
□
KAUPLAND
Kaupangi v/Myrarveg, simi 23565
C-634 XT
þvottavél
r/ I
18 þvottakerfi
5 kg þvottur
Hitabreytirofi
600 snúninga
Rústfrír pottur
Frábært verð 39.900,
[\4 KAUPLAND 8
Kaupangi v/Mýrarveg, slmi 235^J