Dagur - 22.09.1994, Síða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 22. september 1994
Sigurþór Albert Hcimisson, Viðar Eggertsson
og Aðalstcinn Bcrgdal í hlutvcrkum sínum.
Næstkomandi laugardag kl.
17 l'rumsýnir Leikfélag
Akureyrar Karamellu-
kvörnina eftir Evert
Lundström og Jan Moen.
Leikstjóri er Þórunn
Magnea Magnúsdóttir.
Karamellukvömin er ekta gam-
anleikur með söngvum fyrir unga
jafnt sem aldna. Þar segir frá því
er fólkió sem vinnur á bak við
tjöldin í leikhúsinu vaknar við
þann vonda draum að salurinn er
fullur af börnum sem eru komin
til að sjá hiö vinsæla leikrit Kara-
mellukvörnina. En þaó er bara
einn hængur á, nefnilega aö sýn-
ingin á ekki að vera fyrr en daginn
eftir. Það er enginn leikari í hús-
inu og hvaó er þá til ráða? Leik-
tjaldamálararnir, smiðurinn, skúr-
ingakonan, saumakonan og gjald-
kerinn eiga ekki önnur ráð en að
bjarga málunum og þau leika
Karamellukvörnina fyrir börnin
listarnám í Edinborg í Skotlandi
og lauk þaóan prófi í júlí sl. Hún
oróaði það svo í samtali við blaða-
mann að hún hafi ákveðið að
stunda nám utan landsteinanna til
þess að „prófa eitthvað nýtt og
kynna sér nýja strauma og stefn-
ur.“
- Er hlutverk Önnu sauma-
stúlku í Karamellukvörninni fyrsta
hlutverk Bergljótar eftir að hún
lauk námi?
„Já, þetta er fyrsta hlutverkið
mitt hérna heima á Islandi,“ sagði
Bergljót. Hún sagði að Karamellu-
kvömin væri líflegt og skemmti-
legt leikrit. „Þetta er einföld og
falleg saga og þaö er vissulega
kostur í barnaleikriti."
Þórhallur Gunnarsson útskrif-
aðist frá Leiklistarskóla íslands á
liðnu vori og því er hlutverk
gjaldkerans í Karamellukvörninni
hans fyrsta hlutverk í atvinnuleik-
húsi. „Eg leik gjaldkera leikfé-
Þegar leikhúsfólkið að
tjaldabaki bjargar málunum
eins og þau best kunna, hvert mcð
sínu nefi.
Karamcllukvörnin hefur verið
sýnd í yfir tuttugu leikhúsum á
Norðurlöndum og einnig í Þýska-
landi. Hér á landi hcfur verkió að-
eins einu sinni verið sýnt á sviði.
Það var hjá Leikfélagi Akureyrar
árið 1967 og naut það mikilla vin-
sælda. Einnig var Karamellu-
kvörnin flutt í útvarpi árið 1972.
Arni Jónsson þýddi leikritið og
Kristján frá Djúpalæk söngtexta.
Þórarinn Hjartarson hefur samið
nýjan lokasöng l'yrir þessa sýn-
ingu. Tónlist Birgis Helgasonar
frá fyrri uppsetningu LA er einnig
flutt aó þessu sinni. Auk þess hef-
ur tónlistarstjóri sýningarinnar,
Michael Jón Clarke, samið nokkur
ný lög í stað sænskra laga sem
voru áður í verkinu. Leikmynd og
búninga gerir Hallmundur Krist-
insson.
Meö hlutverk í sýningunni
fara: Dofri Hermannsson, Aðal-
steinn Bergdal, Sigurþór Albcrt
Hcimisson, Rósa Guöný Þórsdótt-
ir, Þórhallur Gunnarsson, Bcrgljót
Arnalds og Viðar Eggertsson.
Tveir nýliðar
Tveir af leikurunum sem fram
koma í sýningunni eru nú í fyrsta
skipti á fjölum Samkomuhússins.
Þetta eru þau Bergljót Arnalds og
Þórhallur Gunnarsson.
Bergljót Arnalds stundaói leik-
Viðar Eggertsson, lcikhússtjóri LA,
lcikur Icikhússtjórann í Karamcllu-
kvörninni.
lagsins sem bregður sér í hlutverk
Jóakims, sem dauðlangar að eign-
ast Karamellukvörnina og fær
hana næstum því. Eg á í baráttu
við Óla smió um að eignast þctta
apparat. Þetta er þrælskemmtilegt
stykki með góðri tónlist."
...og „gamlir refir“
Rósa Guðný Þórsdóttir túlkar
Selmu skúringakonu, sem fær
hlutverk Boggu gömlu, en hún er
eigandi Karamellukvarnarinnar.
„Allir vilja því vera vinir Boggu,“
sagði Rósa Guðný.
Aðalsteinn Bergdal fer með
hlutvcrk Frissa málara. „Frissi
vinnur í leikhúsinu og það má
segja að hann taki af skarió og
drífi starfsfólk leikhússins á svið
til þess að leika Karamcllukvörn-
ina fyrir börnin,“ sagði Aðal-
steinn.
Sigurþór Albert Hcimisson
leikur Pálma málara, sem ásamt
Frissa málara og Óla smið hvctur
til þess að starfsfólk leikhússins
drífi í því að leika Karamellu-
kvörnina fyrir börnin.
Óli smiður er túlkaður af Dofra
Hermannssyni og Vióar Eggerts-
son, leikhússtjóri, leikur leikhús-
stjórann í Karamellukvörninni.
Leikrit í leikritinu
- En hvað segja leikaramir - er
efnisþráðurinn í leikritinu að
einhverju leyti óvenjulegur?
„Hann er fyrst og fremst
skemmtilegur. Þetta gerist í leik-
húsi,“ svaraði Aðalsteinn. „Krakk-
arnir koma í leikhúsið og fylgjast
með því hvernig þessi vinna fer
fram; hvernig leikmyndin og bún-
ingarnir verða til,“ sagði Þórhall-
ur. „Já, kannski má segja að börn-
in komist að því þegar þau sjá
þcssa sýningu að það er mjög ein-
falt mál að búa til leikhús. Þau
geta farió heim, tekið fram föt úr
gamla fataskápnum og spunnið
sögu,“ sagði Rósa Guðný.
- Er þetta leikrit að einhverju
leyti frábrugðið öðrum barnaleik-
ritum sem þið hafió tekist á við?
„Nei, í rauninni ekki,“ svaraði
Sigurþór Albert. „Kannski er það
frábrugðið öðrum lcikritum að því
leyti að þetta er leikrit í leikrit-
inu,“ bætti Rósa Guðný við.
Öll „elementin“ til staðar
- Teljið þið að Karamcllukvörnin
njóti sömu vinsælda nú og árið
1967?
„Eg trúi ekki öóru,“ sagði Aó-
alsteinn Bergdal. „Já, þetta leikrit
hefur öll þau „element" sem leik-
rit þarf að hafa til þess aó öólast
vinsældir. Viófangsefnið er
skemmtilegt og tónlistin fjörleg,“
sagði Bergljót Arnalds.
- Nú tala lcikarar oft um að það
reyni töluvert á þá í barnaleikrit-
um. Er þaó svo?
„Já, alveg tvímælalaust,“ sagði
Aóalsteinn. „Barnaleikrit eru þau
erfiðustu fyrir leikarann, en jafn-
framt finnst mér ekkert jafnast á
við að leika fyrir börnin.“ „Við-
brögó barnanna koma beint frá
hjartanu. Þau eru ekta,“ sagði
Rósa Guðný
Eins og áður segir verður Kará-
mellukvörnin frumsýnd nk. laug-
ardag kl. 17. Önnur sýning veróur
á sunnudag kl. 14. óþh
Dofri Hermannsson, Þórhallur Gunnarsson og Sigurþór Albert Hcimisson í
hlutvcrkum sínum.
Lcikarar og aðstandcndur Karamcllukvarnarinnar, sem vcrður frumsýnd
nk. laugardag hjá Leikfclagi Akurcyrar. Myndir: Robyn.
Rósa Guðný Þórsdóttir fcr með hlutvcrk Sclmu skúringakonu scm bregður
sér í gervi Boggu gömlu.