Dagur - 22.09.1994, Side 9

Dagur - 22.09.1994, Side 9
Fimmtudagur 22. september 1994 - DAGUR - 9 TSTA - segir Þórunn Magnea Magnúsdóttir, leikstjóri Þórunn Magnea Magnúsdóttir leikstýrir uppfærslu Leikfélags Akureyrar á Karamellukvörn- inni. Hún segir að þetta sé skemmtilegt leikrit og gaman hafi verið að fást við þessa upp- færslu. Þannig lýsir hún þræði Karamellukvarnarinnar í stór- um dráttum: „Þetta leikrit gerist í leikhúsi og þegar málararnir, sern mála leikmyndina, koma í leikhúsið, uppgötva þeir að salurinn er fullur af börnum sem halda að ætlunin sé að leika Karamellukvörnina. Hins vegar er ckki á dagskrá að sýna hana fyrr en næsta dag. Mál- ararnir kalla á Ola smið, Onnu saumakonu, gjaldkerann og skúr- ingakonuna og gera sér lítið fyrir og leika Karamellukvörnina. Karamellukvörnin fjallar síðan um ungan mann, sem Oli leikur, sem rcynir aó ná sér í unga stúlku, sem Anna saumakona leikur. Til þess að það geti gengió veröur Oli að smíða sér hús og fresturinn sem hann hefur til þess er einungis ein vika. Gjaldkerinn, sem heitir Jóa- kim í lcikritinu, vill líka ná í stúlk- una og Karamcllukvörnina og hann reynir að gera Ola allt til bölvunar.“ Fyrir alla fjölskylduna Þórunn Magnea segist líta svo á að Karamcllukvörnin sé leikrit fyrir alla fjölskylduna. „Eg held að allir geti skemmt sér vel, þetta er mikið grín og gaman. Ég skal segja þér að vió höfum verið að fást við verkiö í fimm vikur og við hlæjum cnnþá.“ - Ertu aó setja þetta leikrit upp í fyrsta skipti? „Já, það er ég. Karamellu- kvömin var leikin hjá Leikfélagi Akureyrar árið 1967 og síðan held ég svei mér þá að þetta hafi ekki verið leikió annars staðar. Það er mikil synd, því þetta er bráð- skemmtilegt leikrit.“ - Er eitthvað að þínu mati sem einkennir þessa sýningu? „Það er nú það. Jú, kannski frekast það að miðaö við undir- tektir þeirra sem hafa séó æfingar, þá virðist mér sem þessi sýning höfði til ótrúlega breiðs hóps. Þctta er barnasýning, sem er líka fyrir fullorðna. Við höfurn kosið að segja aó sýningin sé fyrir fjög- urra ára til níutíu og fjögurra ára. Það er nokkuð stór og breióur ald- urshópur!" Önnur sýning Þórunnar hjá LA Þetta er í annað skipti sem Þórunn Magnea leikstýrir hjá Leikfélagi Akureyrar. Hún stýrði uppfærsl- unni á Stálblómum árið 1991. Á síðasta ári setti Þórunn upp Hafið hjá Leikfélagi Dalvíkur og Blómarósir hjá Leikfélagi Olafs- fjaróar. „Mér finnst yndislegt að vinna hérna fyrir norðan,“ sagði Þórunn. - Hvernig er líf farandleikstjór- ans. Þetta hlýtur að vera þreyt- andi? „Ég er auðvitað óskaplega vin- sæl þegar ég kem heim! Nei, veistu að það er bara gaman að þessu flakki. Ég starfaði í þrjátíu ár hjá Þjóðleikhúsinu, bæði sem aðstoðarleikstjóri og leikari, og þá komst maður aldrei neitt. Þegar ég fór að leikstýra úti á landi, þá fannst mér ég allt í cinu uppgötva Island. Það er allt önnur þjóð sem býr úti á landi; skemmti- legri, gestrisnari, afslappaðri og með húmor. Meira að segja litlu krakkarnir segja „halló“ við mann úti á götu, eins og ckkert sé eöli- lcgra." - Hvað tekur við hjá þér þcgar þessari vinnu hjá LÁ lýkur um helgina? „Ég cr í hópi scm kallar sig „Bandamenn" og viö höfum vcrið að lcika Bandamanna sögu úti um allar trissur í sumar. Á mánudag- inn förum vió til Árósa í Dan- mörku og sýnum Bandamanna sögu. Sýningin er hluti af ýmsum menningaruppákomum í tengslum við einhvers konar Islandsviku," sagði Þórunn Magnea Magnús- dóttir, og þar með kallaði hún leikarana á svið og framundan var „rennsli" á Karamellukvörninni. Leikhúsgestir sjá síðan árangur strangra æfinga nk. laugardag. óþh Karamellukvörnin sýnd hjá LA árið 1967: Frumsýnmgin var hátíð bamanna - segir m.a. í umsögn Dags um sýninguna Leikstjórinn Þórunn Magnea Magnúsdóttir hefur einu sinni áður leikstýrt lijá LA. Það var árið 1991 þegar félagið setti upp Stálblóm. Mynd: Robyn. Leikfélag Akureyrar hefur einu sinni áður sýnt Karamellu- kvörnina. Það var í febrúar 1967 og þá fékk verkið afar góð- ar viðtökur. Þá fór Páll Snorrason með hlut- vcrk Ola smíðanema, Anna saumastúlka var leikin af Sögu Jónsdóttur, Kjartan Olafsson brá sér í gcrvi Frissa málara og Þráinn Karlsson lék kollega hans, Pálma málara. Emil Andersen fór með hlutverk gjaldkerans, Helga Unn- stcinsdóttir lék þvottakonuna og Guðmundur Gunnarsson, sem jafnframt var leikstjóri, lék leik- hússtjórann. í Degi þann 18. febrúar 1967 skrifaöi Erlingur Davíðsson, þá- verandi ritstjóri blaðsins, aó virðulegir borgarar Akureyrar af L iónlcUiurtaa „Karamellukvön>la“ v'.r tmauýnaur i «-r. | FfcLAG AJCUREYRAR ■ umtýnin«u á barualuik- L K*r»ni«llukvoiiiiimi »t. I igikvóld. Ilótundui' !>»»» J in Evert Lundvliiun, cn lógin livtur Jun f uimið. Arni Júnuion búka hcfur þýtl nuelt mil II Kiisljin skild Lipulœk lieíur hýtl »ungv- I lelginoii sóngkcnnurí " nið (Jógur Jreirra »óng- tungin eru i teiknum. eru 7 tatein* og lcik- nundur Gunnarsion. L <lr borgarar Akureyr i kynalóðinni (ylltu »ki i miðju leikhúí- a aldrinum 6 Ul 12 <f daama i (ýninguna ■ irtektum |reirra og frá 1 ónarhúli, og ág velt ) t bnnur sjónarinið eru _ |>euum vettvangl. |>á * ningln prýðilega. Ekki akilja, b5 hinlr etdrt u »ér ekki sæn.ilega, at frum fúr á .viðinu, en jt »ú ikemmtun aukin tri Innlifum og mikilll u hinna ungu lclkhús- inna í leikhúsi bi o« Saga JónsdótUr og voru þau Im'úi hin hressileguslu og unnu liylli áliorfendanna. Mábtana uuk leiks Frissa og Pálma léku |>eir KJart armn A5 an Ólafsson og Þráinn Karls- IJÓsameis son og skemmtu bömunum Vlggóssor. ágœtlcga. l-vollskonuns. sem á uðust bi. þutta undiaverkfaeti, karamellu kvórnina, lék Helga Unnsteins- Finnur Júníusso. dóttir. Hún mun vera nýliðl á Frum leiksviðinu, en var eins og húll bu lioima hjá sér. Emil Andorsen lék vonda manninn, IJólan og hár i b áhrifamikinn. — Leikstjórinn, c, »5 , Guðmundur Gunnarsson, kom br». En r sem snoggvast lnn i siðaila upp lelk' þætti, i hlutverki leikhússtjór- lelkrit e ans. i þeirri LeikriUð gerist i leikhúsí og Leikí.lr á auðu .leiluviði, »n þó er þvi Skiðanáimkei 5 í H A SUNNUDAGINN fer fram mót", h. slórsvigakeppni AkureyrarmóU inu hér. ins, sem fresUð var ð. febrúur. Gagnf Hefst keppnin kl. 1 e. h. Nsfna- stondu- kall i óllum flokkum verður fólk a<' Sktðahólellnu kL 10.30 f. h. Þ.6 . Þessa dagana stendur yfir inn að , eldri kynslóðinni hafi fyllt nokkra bekki í niiðju leikhúsinu, en ann- ars hafi áhorfendur verið flestir á aldrinum 6-12 ára. „Og ef dæma á sýninguna af undirtekum þeirra og frá þeirra sjónarhóli, og ég veit ekki hvort önnur sjónarmið eru gildari á þessum vcttvangi, þá tókst sýningin prýöilega. Ekki svo að skilja, að hinir eldri skemmtu sér ekki sæmilega, af því cr frani fór á sviöinu, cn mjög var sú skemmtun aukin af ágætri innlifun og mikilli þátttöku hinna ungu leikhúsgesta í framvindu sýning- arinnar,“ sagði Erlingur m.a. Og í lok umsagnar sinnar sagði hann: „Frumsýningin í Samkomuhúsi bæjarins var hátíð barnanna. Minnt hefur verið á það hér í blað- inu, hvc nauðsynlegt er aó ala upp Ieikara í þessum bæ. En líka er þess þörf að ala upp leikhúsgesti og þetta barnaleikrit er hinn merk- asti þáttur í þeirri viölcitni og þökk sé Leikfélagi Akureyrar fyrir það." Svo mörg voru þau oró Erlings Davíðssonar í Degi 18. fcbrúar 1967. óþh Gleráreijrum Opifl virHa daga hl. 13-18 Bestu jeppakaupin! Jeep Cherokee Jamboree Hlaðinn búnaði Skálafell sf. Draupnisgötu 4 Sími 22255. SAMLÆSINGAR með fjarstýringu, rafstilltir speglar, RAFKNÚNAR RÚÐUVINDUR, RAFMAGNSLOFTNET, FJÓRIR HÁ- TALARAR, LEDURKLÆTT VÖKVA- OG VELTISTÝRI, FIMM ÁLF- ELGUR, STILLANLEG TOPPGRIND OG FLEIRA FYLGIR HVERJUM EINASTA JEEP CHEROKEE. & Jeep

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.