Dagur - 22.09.1994, Blaðsíða 11
MINNINC
Fimmtudagur 22. september 1994 - DAGUR -11
'TJ* Dagrúu Pálsdóttir
'J Fædd 15. september 1905 - Dáin 30. júlí 1994
Mig langaði að minnast meó örfá-
um orðum Dagrúnar Pálsdóttur frá
Stóruvöllum í Bárðardal, sem lést
á sjúkrahúsinu á Húsavík í lok júlí
sl„ 89 ára að aldri.
Atvikin höguðu því svo að ég,
ungur togarasjómaður sem var
langtímum saman til sjós, kom að
Stóruvöllum á sumrin milli sjó-
ferða. Þar var Dagrún þá á miðj-
um aldri innan stokks og tókst hin
besta vinátta með okkur því að
Dagrún átti stórt hjarta.
Hún var umburðarlynd og sút-
aði ekki smámuni, var aldrei með
neina tilætlunarsemi og blöskraði
ekki þótt sjómaðurinn væri lítt
hneigður til heyskapar og annarra
búverka en sótti meira á heiðamar
eftir fiskifangi, í Svartá og svo í
Fljótið sjálft, þar sem fáum hafði
dottið í hug að leyndust ætir fisk-
ar.
Ætíð fagnaði hún mér ef ég
kom heim með væna fiskkippu og
hafði þá á orði að kveikja þyrfti
upp í reykkofanum. Hún tók fisk-
ana og hnakkaflatti eins og æfður
aðgeróarmaður og hengdi upp og
það rauk oft glatt úr litla kofanum
úti á túninu. Ekki þótti heyskapar-
fólkinu lakara aó fá reykta reyð út
á engjarnar.
Dagrún var hæglát og ekki
margorð en kunni að kveða að ef
með þurfti. Hún lét sér gjarnan
annt um annarra hag. Aldrei fór ég
svo frá Stóruvöllum aö hún styngi
ekki að mér einhverju ullarplaggi
eins og hún sagði „svo þér verði
ekki kalt á sjónum, blessaður
drengurinn.“
Það er ómögulegt annað en að
vera hlýtt til þessarar góðu konu
sem ekki eignaðist börn sjálf en
mér hefði hún ekki verið betri þótt
ég heföi verió sonur hennar.
Aldrei fór ég norður í land síð-
ar á ævinni eftir að hún og Baldur
mágur hennar voru komin á Elli-
hcimilið Hvamm á Húsavík án
þess aó koma þar við og heim-
sækja þau. Þá var viökvæðið hjá
%
Ólína Bjamey Pétursdóttir
Fædd 25. desember 1907 - Dáin 8. september 1994
Með örfáum orðum vil ég minnast
góðrar konu, sem ég þekkti í alltof
stuttan tíma. Þessi góða kona hét
Olína Bjarney Pétursdóttir og var
fyrrum húsfreyja að Daðastöðum í
Öxarfirði.
Línu kynntist ég þegar ég hóf
störf við heimilishjálp í ágúst árið
1993 þar sem ég starfaði þar til í
maí 1994 en þá fór ég í fæóingar-
orlof. Þennan stutta tíma töluðum
vió mikið saman og Lína sagði
mér margt um garnla daga, hún
talaði oft um börnin, barnabörn og
barnabarnabörn, sem henni þótti
mjög vænt um.
Línu hitti ég síðast daginn áður
en hún fór á sjúkrahúsió og var
hún sjálfri sér lík og óvenju brött
en hún var búin að vera veik í
mest allt sumar. Ekki grunaði mig
að ég ætti ekki eftir að sjá Línu
altur en enginn veit sína ævi fyrr
en öll cr.
Lína var háöldruð en lcit alltaf
vel út og var glæsileg kona. Eg
kveð hana með söknuði og bið
góðan Guð að taka vel á móti
henni.
Pétri, Stcina, Völu og öðrum
aðstandendum votta ég samúð
mína.
Erla S. Kristinsdóttir.
Katrín Jósepsdóttir
Fædd 28. febrúar 1914 - Dáin 9. maí 1994
Fyrstu vorblómin voru
að vakna í þínum garði
er œvinfékk skjótan endi
áður en nokkurn varði.
Áttrœð og enn svo glaðvœr,
ennþá svo létt í spori
annaðist blómin ungu
á œfinnar hinsta vori.
Pú lifðir litríkri œfi
listrœn í hönd og anda,
ferðaðist frjáls um heiminn
til fjarlœgra margra landa.
Sjálfstœð og djörfog dugleg,
dróst ekki verk úr hömlu.
Aðstoð þú ýmsum veittir
ungu fólki og gömlu.
En þú áttir samt þínar sorgir
og söknuð er lífinu breytti,
misstir ástríkan maka
er mesta hamingju veitti.
Söknuði angist og einsemd
í þínu dapra hjarta
veittir þú viðnám í trúnni.
Þér var ekki gjarnt að kvarta.
Það er svo margs að minnast
er mannanna leiðir skilja.
Söknuð og sáran trega
síst er mér þörfað dylja.
Þökk fyrir alúð alla
frá œsku til hinstu stundar.
Veitist þér vœrð ogfriður
í von og trú, er þú blundar.
Jóhannes Jósepsson.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins:
Með námskeið um siðfræði og
samskipti í starfi með börnum
„Fósturgreining-fóstureyðing?“,
„Greining og meðferð - nei
takk!“, „Að stjórna lífi ann-
arra“, „Siðfræði þjálfunar - er
meira alltaf betra?“ „Höfum við
rétt til að velja líf?“, „Þegar barn
deyr“, „Álag í starfi-kulnun.“
Þetta eru heiti nokkurra þeirra
sextán fyrirlestra sem verða á
námskeiði Greiningar- og ráð-
gjafarstöðvar ríkisins í Háskóla-
bíói 7. og 8. október nk.
Námskeiðið ber hcitið: „Sið-
fræði og samskipti í starfi meö
börnum.“ Auk ofangreindra efna
veróur m.a. varpað siðferðilegu
ljósi á læknisfræðilega meóferð
fyrirbura og alvarlega fatlaðra
barna, sem og umönnun barna
með langvinna sjúkdóma og
barnaverndarmál. Ennfremur
verður fjallað um viðbrögð við
áföllum, samskipti fagfólks inn-
byrðis og samskipti foreldra og
fagfólks, frá sjónarhóli beggja.
Fyrirlesarar verða einkum úr
hópi barnalækna og sálfræðinga,
auk þess sem heimspekingur, fé-
lagsráðgjafi, geðlæknir, sjúkra-
húsprcstur, foreldri fatlaðs barns,
félagsmálastjóri og franikvæmda-
stjóri svæðisskrifstofu leggja sitt
til málanna.
Þátttaka tilkynnist í Greiningar-
og ráðgjafarstöðina í síma 91-
641744 í síðasta lagi 30. septem-
ber nk. (Úrfrcllalilkynníngu)
gömlu konunni: „Fórstu nokkuð í
dalinn græna að reyna að veiða,
vinur?“
Megi Dagrún Pálsdóttir hvíla í
friói með þökk fyrir allt og allt.
Bjarni Veturliðason.
Vinir Dóra í
kveðjuhljóm-
leikaferð
Vinir Dóra eru um þessar
mundir að hefja tónleikaferða-
lag um landið undir yfirskrift-
inni „Dóri í síðasta sinn á ís-
landi“.
Halldór Bragason (Dóri) hef-
ur ákveðið að kveðja íslendinga
að tónlcikafcróinni lokinni um
ókomin ár. Feróinni er heitið til
Kanada. Dóri mun ásamt ís-
landsvininum Chicaco Beu sigla
undir sama flaggi á tónleikum
víðs vegar um heiminn.
Tónleikar Vina Dóra á Norð-
urlandi vcrða sem hér segir:
Sun. 25. sept. kl. 23-01
Hótel Norðurljós á Raufarhöfn.
Mán. 26. sept. kl. 20-21.30
Framhaldssk. á Laugum í S-Þing.
Þri. 27. sept. kl. 21-22.30
Verkmenntaskólinn á Akureyri.
Mió. 5. okt kl. 20-21.30
Fjölbraut Sauðárkróki.
Fim. 6. okt. kl. 23-01
Brekka í Hrísey.
Fös. 7. okt. kl. 24-03
Hótel Mælifell á Sauöárkróki.
Lau. 8. okt.
Kántrýbær á Skagaströnd.
Athugasemd
í Veiðiklónni sl. þriðjudag var
sagt að 150 laxar hefóu verið
komnir á land í Mýrarkvísl
þegar síðast fréttist. Þar skeik-
ar reyndar 11 fiskum en 139
laxar komu úr ánni á þessu
sumri. Aðeins einu sinni síóan
1974 hafa færri laxar komið á
land, árið 1976, þegar þeir
voru 121 en meðaltalsveiói er
nálægt 250 löxum. HA
Auglýsendur!
ISkilafrestur auglýsinga í helgarblaðið okkar er
til kl. 14.00 á fimmtudögum,
- já 14.00 á fimmtudögum.
Hl
Dagur auglýsingadeild, sími 24222.
Opiö frá kl. 8.00-17.00.
Aðalfundur
Gilfélagsins
verður haldinn í Deiglunni, Kaupvangsstræti 23,
laugardaginn 24. september nk. og hefst kl. 15.00.
Dagskrá:
Venjuleg aóalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Tilboð óskast
í bifreiðarnar Toyota Corolla 1987 árgerö og Lada
Samara 1988 árgerð, sem eru skemmdar eftir um-
ferðaróhöpp.
Bifreiðarnar verða til sýnis hjá Tjónaskoðunarstöðinni,
Fjölnisgötu 6 frá kl. 13-17 föstudaginn 23. september
nk. og tilboóum óskast skilað fyrir kl. 17 sama dag.
TRYGGING HF
Glerárgötu 36, Akureyri.