Dagur - 30.09.1994, Page 2
2 - DAGUR - Föstudagur 30. september 1994
FRÉTTIR
Siglufjörður:
Kaupfélag Eyfirðinga hyggst
stækka húsnæði matvörudeildar
félagsins á Siglufirði. Erindi
þessa efnis er nú á borði skipu-
lagsyfirvalda á Siglufirði.
Hugmyndin er aó KEA byggi
Lionsmenn
selja penna
Lionsmenn í Eyjafirði og Þing-
eyjarsýslu gangast fyrir penna-
sölu í dag og á næstunni, til
styrktar framkvæmdum við
sundlaugina að Kristnesi.
Lionsmenn verða vió verslanir,
stórmarkaði og útsölur ATVR og
bjóða sérmerkta penna til sölu. Er
það von þeirra er að sölunni
standa að almenningur taki þeim
vel og styrki gott málefni.
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri Sími
96-26900
Uppboð
Framhald uppboðs á eftlrtöldum
eignum verður háð á þeim sjálfum
sem hér segir:
Fiskverkunarhús Efri-Sandvík,
Grímsey, þingl. eig. Haraldur Jó-
hannsson, gerðarbeiðandi Sýslu-
maóurinn á Akureyri, 4. október
1994 kL 10.00.
Skáldalækur, Svarfaðardalshreppi,
þingl. eig. Hallur Steingrimsson,
geróarbeiðendur Byggingasjóður
rikisins, Búland h.f. áður Jötunn
h.f., Landsbanki íslands, Lífeyris-
sjóóurinn Sameining, Stofnlána-
deild landbúnaðarins og Vátrygg-
ingafélag íslands, 4. október 1994
kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Akureyri
28. september 1994.
Akureyringar her-
taka Bingólóttó
við útibúió við Suðurgötu til norð-
urs og þá yrði gamalt hús sem þar
er rifið. Fyrst og fremst er verió
að horfa til stækkunar húsnæöis
matvöruverslunar KEA.
Ekki er hægt að segja annað en
líflegt hafi verið í byggingariðn-
aðinum á Siglufirði á undanförn-
um mánuðum og miöað við áform
KEA um stækkun er ljóst að stór
verkefni verða í bænum á næst-
unni.
Meðal stórra verkefna í bygg-
ingariónaðinum í bænum á liónu
sumri má nefna nýbyggingu RA-
RIK og nýjan frystiklefa Ingi-
mundar hf., en hann veróur form-
lega tekinn í notkun á morgun. Þá
eru hafnar framkvæmdir við
byggingu vörulagers-, skrifstofu
og verslunarhúsnæðis Olíss. Sú
bygging rís sunnan við bensín-
stöðina. óþh
Húsavík:
Björg landar
18tonnum
Björg Jónsdóttir ÞH-321 landaði
18 tonnum af rækju á Húsavík
fyrri part vikunnar eftir fimm
daga veiðiferð.
Bjarni Aðalgeirsson, útgerðar-
maður, sagði að skipið færi síðan
á síld síðari hluta október ef ekki
fyndist loðna fyrir þann tíma, en
annars færi skipið væntanlega til
loðnuveiða aftur. Þrjá daga tók að
skipta um veiðarfæri á skipinu,
búa það til rækjuveiða í stað
loðnuveiða. IM
Hjálpartækjabankinn í Reykjavík efndi til sýningar í Þjónustumiðstöðinni
Víðilundi 22 á Akureyri í vikunni. Til sýnis var fjölbreytt úrval hjálpar-
tækja fyrir fatlaða og hreyfihamlaða og auk þess voru sýndar ýmsar nýj-
ungar á þessu sviði. Ljósmyndari Dags leit við á sýningunni og tók þessa
rnynd. Mynd: Robyn
Rækjuveiðar í Skjálfandaflóa
byrja síðan í október. Litlar birgð-
ir eru til af unninni rækju því vel
gengur að selja. Gunnar sagði að
verðin væru á uppleið en þó ekk-
ert til að hrópa húrra fyrir, þar
sem þau hefðu verið farin svo
langt niður. IM
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Gott hljóð úr
rækjuvinnslunni
Unnið hefur verið á tveimur
vöktum í Rækjuvinnslu Fisk-
iðjusamlags Húsavíkur að und-
anförnu, en þar hefur verið
heldur rólegra í september en í
sumar þegar yfirleitt var unnið á
þremur vöktum og um helgar,
að sögn Gunnars Bergsteinsson-
ar, verkstjóra.
„Við vonum að þetta sé að
glæðast aftur,“ sagði Gunnar.
Hann er meó 6-7 báta í viðskipt-
um, auk togarans Júlíusar Havs-
teen, sem heilfrystir stórrækjuna
fyrir Japansmarkað en selur FH
smærri rækjuna til vinnslu. Báðir
bátar Langaness, Bjargirnar,
leggja upp rækju hjá FH, einnig
Sigþór, Kristbjörg, Aldey og
Kristey. Aron hefur lagt upp
rækju hjá FH en er í slipp eins og
er.
KEA hyggst stækka
matvöruverslunina
Uppboð
Framhald uppboðs á Bryndísi EA-
165, þingl. eig. Halldór Jóhanns-
son, fer fram á skrifstofu embættis-
ins, Hafnarstræti 107, Akureyri,
mióvikudaginn 5. október 1994, kl.
10.00. Gerðarbeiðendur eru: Bún-
aðarbanki íslands og Sýslumaður-
inn á Akureyri.
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum veröur háð á þeim sjálfum
sem hér segir:
Hafnarstræti 79, efsta hæð, Akur-
eyri, þingl. eig. samkvæmt kaup-
samningi, Baldvin Arngrímsson,
geróarbeiðendur Byggingarsjóóur
ríkisins og íslandsbanki h.f., 5.
október 1994 kl. 11.00.
Smáratún 6, neðri hæð, Svalbarðs-
eyri, þingl. eig. Kristján Óskarsson
og Margrét Kristinsdóttir, gerðar-
beiðendur Byggingasjóður rikisins,
Búnaðarbanki Islands og íslands-
banki h.f., 5. október 1994 kl.
16.00.
Stórholt 9, neðri hæð, Akureyri,
þingl. eig. Birgir Antonsson, gerðar-
beiðendur Davíð Gíslason og
Sýslumaðurinn á Akureyri, 5. októ-
ber 1994 kl. 14.30. ______________
Sunnuhlíð 2, Akureyri, þinglýstur
eig. Fjölnir Sigurjónsson, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður ríkisins,
Samvinnulífeyrissjóðurinn, Vá-
tryggingafélag Islands og íslands-
banki h.f., 5. október 1994 kl.
15.00.
Sýslumaðurinn á Akureyri
29. september 1994.
- sex ára drengur mun spreyta sig í Píramítanum
Tvo síðustu laugardaga hafa
sjónvarpsáhorfendur getað
fylgst með nýjum sjónvarpsleik
á Stöð 2 og hefur miðasala og
áhorfun farið fram úr björtustu
vonum Happdrættis DAS, sem
er leyfishafi Bingólottós á ís-
landi. Spilaðar eru þrjár bingó-
umferðir og gefst fólki sem situr
heima í stofu kostur á að hringja
inn í þáttinn ef það fær bingó og
velja sér hólf í svokölluðum Pír-
amíta, þar sem verðmæti vinn-
inga er allt frá myndavél upp í
bfl.
I hverjum þætti koma tveir
þátttakendur og taka þátt í Lukku-
hjólinu og Bílastiganum þar sem
sá heppni getur hlotið bíl. I
hverjum þætti er dregnir út þrír
innsendir miðar og handhafar
þeirra koma í næsta þátt og
spreyta sig í Lukkuhjólinu, Bíla-
Gunnar Grétar Sverrisson, sem
áhorfendur Bingólottós munu sjá
freista gæfunnar nk. laugardag.
Mynd: Robyn
stiganum og Píramítanum.
Akureyringar hafa hertekið
næsta þátt, því þá mun Gunnar
Grétar Svenisson, sem aðeins er
sex ára, velja sér hólf í Píramítan-
um; Aðalheiður Stefánsdóttir snýr
Lukkuhjólinu og Kristjana Ivars-
dóttir mun freista gæfunnar í Bíla-
stiganum.
Þátttakendur ásamt maka (eða
fylgdarmanni) munu fljúga suóur
nteð Flugleiðunt í boði Bingól-
ottós, gista tvær nætur á Scandic-
hótelum Flugleiða og á flugvellin-
um er tckió á móti þeint og þeim
ekið á hótel og í þáttinn á eðal-
vagni.
Stefán Steinsen, markaðsstjóri
Bingólottós, segir söluna á Akur-
eyri hafa verió mjög góða og allir
niióar selst upp fyrir síðustu helgi.
A Akureyri eru miðarnir seldir í
ýmsum verslunum og hjá Iþrótta-
félaginu Þór. GG
tForeldrafélag KA
AÐALFUNDUR
Aðalfundur foreldrafélags KA verður haldinn laugardag-
inn þann 1. október kl. 14.00 í KA-heimilinu.
Efni fundarins:
1. Ræóa formanns.
2. Ræða gjaldkera.
3. Kosning nýrrar stjórnar.
4. Önnur mál.
Allir þeir foreldrar sem eiga börn er stunda íþróttir á
vegum félagsins eru hvattir til að mæta.
Stjórn foreldrafélags KA.
Akureyri:
Höldur sýnir
Fiat Punto
Höldur hf. á Akureyri verður
með bflasýningu um helgina að
Tryggvabraut 10.
Að þessu sinni verða sýndar
tvær gerðir af Fiat Punto og gefst
fólki kostur á að grípá í gæðing-
ana.
Opið verður á morgun kl. 12-
17 og sunndag kl. 13-17.
Sauðárkrókur:
■ Á fundi bæjarráðs nýlega
var farið yfir þau fimm tilboð
sem bárust i viöbyggingu og
breytingar á leikskólanum
Glaöheimum. Kostnaðaráætlun
hljóöaöi uppá rúmar 30 millj-
ónir og voru öll tilboóin undir
þcirri áætlun. Friórik Jónsson
sf. átti lægsta tilboöið, rétt tæp-
ar 22 milljónir og samþykkti
bæjarráö að ganga til samninga
við Friðrik Jónsson sf. á grund-
vclli tilboðs hans.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá Skagfirðingi hf., þar sem
boðin eru lram veð vegna ein-
faldrar ábyrgðar Sauöárkróks-
bæjar á skuldabréfum, útgefn-
um af Skagfirðingi hf., samtals
að upphæó 50 millj. króna.
Veöin eru eignarhlutir og
stofnfjársjóðir í Sölumiöstöö
hraðfrystihúsanna og hlutabréf
í Fiskiðju Sauðárkróks og ís-
lcnskum sjávarafurðum. Veöin
cru talin aðgengilcg og var
bæjarstjóra falið aö undirrita
ábyrgðaryfirlýsingu.
■ Hafnarstjórn hefur samþykkt
að sótt verði um fjárveitingar
1995 í samræmi við l'ram-
kvæmdaáætlun hafnarstjórnar
frá því í mars sl. Einnig sam-
þykkti stjórnin aö taka upp um-
ræður um framtíöaruppbygg-
ingu Sauðárkrókshafnar.
■ Hafnarstjórn hcfur borist
bréf frá Hafnasambandi sveit-
arfélaga, varóandi útgáfu bæk-
lings fyrir rússnesk flsfciskip.
Kostnaður hverrar hafnar, sem
þátt tæki í útgáfunni verður 30-
35 þúsund og var samþykkt að
Sauðárkrókshöl'n taki þátt í út-
gáfu bæklingsins.
■ Bygginganefnd hefur borist
erindi frá skólastjóra Gagn-
fræðaskólans, þar sem lram
kcmur ósk frá skólanefnd
Grunnskólans um að kannaður
veröi möguleiki á gangbraut og
hraðahindrun á Sæmundarhlíð,
milli Gagnfræðaskólans og
.Verknámshúss FNV. Bygg-
inganefnd frestaði afgreiðslu.
■ Byggingancfnd hcfur cinnig
borist ósk um lcyfi til aö reisa
giröingu á lóöarmörkum skól-
ans að sunnan, sömu geröar og
sú sem fyrir er sunnan körfu-
boltavallar. Girðingin nái allt
vcstur að innkcyrslu inn á bíla-
stæói íþróttahúss. Bygginga-
nefnd samþykkti erindið.
■ Á fundi bygginganefndar
var kynnt umræðutillaga Árna
Ragnarssonar, arkitckts, að aö-
alskipulagi á íbúðasvæði fyrir
aldraóa, sunnan og vestan
sjúkrahúss. Bygginganefnd
gerir ekki athugasemd við til-
löguna og óskar eftir að hún
vcröi fullunnin.
■ Félagsmálaráó hcfur lýst sig
samþykkt tillögum Héraðsráðs
um skipan barnavemdarnefnd-
ar á vegum Héraösnefndar.
■ Félagsmálaráð hefur sant-
þykkt að auglýsa eftir lcik-
skólakennurum til starfa á leik-
skólum bæjarins. Deildarstjóra
vantar á báða leikskólana.
■ Félagsmálaráöi hefur borist
bréf frá foreldrum tvíbura, þar
sem þau fara fram á að leik-
skólagjöld tvíbura vcrði lækk-
uö. Leikskólancfnd telur aó
tviburar eigi ekki aö njóta for-
réttinda umfram önnur systkini
á leikskóla. Samþykkt var að
vísa bréfinu til gcrðar fjárhags-
áætlunar.