Dagur - 30.09.1994, Page 15

Dagur - 30.09.1994, Page 15
IÞROTTIR Föstudagur 30 september 1994 - DAGUR - 15 SÆVAR HREIÐARSSON Urvalsdeildin í körfuknattleik: Óheppnir Þórsarar Reynsluleysi Þórsara sagði til sín á lokasekúndunum þegar þeir mættu íslandsmeisturum Njarðvíkur í spennandi leik í gærkvöld á Akureyri. Staðan var jöfn, 89:89, þegar fjórar sek- úndur voru til leiksloka en þá brutu heimamenn af sér undir körfunni og gestirnir tryggðu sér sigur úr vítaskotum, 89:91. Jafnræði var með liðunum framan af leiknum en Þórsarar voru þó lengst af einu til tveimur stigum yiir. Konráó Oskarsson var drjúgur og skoraði grimmt framan af. Seinni hluta hálfleiksins var sent öll lukka yfirgæfi liðið og Is- landsmeistaramir sigldu framúr. Sandy Anderson var lánlaus í sóknarleiknum en skilaði vel sínu hlutverki í varnarleiknum. Þá var Kristinn Friðriksson heillum horf- inn en Konráó hélt liðinu á floti með fallegum körfum. Gestirnir héldu þó forustunni fram að hléi og höfðu yfir 44:48. Njarðvík virtist hafa öll völd í upphafi síðari hálfleiks og komst í 47:58 en þá fór Kristinn að hitta meó þriggja stiga körfum og setti þrjár slíkar í röð og breytti stöð- unni í 57:59. Anderson lék einnig mun betur í sóknarleiknum auk þess sem hann hirti sín fráköst í vörninni. Eftir þetta var jafnt á flestum tölum en Þórsarar þó ávallt einu skrefi á undan. Þegar tvær mínútur voru til leiksloka misstu Njarðvíkingar Ronday Ro- binson útaf með 5 villur og falleg karfa frá Orvari Erlendssyni kom Þór í 89:87. Jóhannes Kristbjörns- son jafnaði strax fyrir gestina. Staöan því 89:89 og 1,02 mínútur til leiksloka. Tvö þriggja stiga skot frá Kristni fóru í körfuhring- inn og Njarðvíkingar nýttu sér það. Þórsarar brutu á Jóhannesi þegar 4 sekúndur voru eftir og hann tryggði sigur íslandsmeistar- anna, 89:91. Þetta er mjög góó byrjun á Is- landsmótinu hjá Þórsurum og þeir voru óheppnir með að sigra ekki í leiknum. Konráð var besti maður liðsins í leiknum en Birgir Orn Birgisson og Einar Valbergsson stóðu einnig vel fyrir sínu.Greini- legt var að reynslan haföi mikið að segja hjá Njarvíkingum sem virtust ekki vera með sterkara lið en nýliðar Þórs. Stig Þórs: Konráó Óskarsson 20, Krist- inn Frióriksson 17, Einar Valbcrgsson 14, Birgir Öm Birgisson 11, Sandy And- erson I 1, Bjöm Sveinsson 8, Hafsteinn Lúóvíksson 6, Örvar Erlendsson 2. Stig Njarðvíkur: Teitur Örlygsson 20, Valur Ingimundarson 17, Rondey Robin- son 16, Jóhannes Kristbjömsson 12, Kristinn Einarsson 9, ísak Tómasson 6, Astþór Ingason 6, Friórik Ragnarson 4. Oómarar: Einar Einarsson og Árni Freyr Sigurðsson og voru þeir mistækir. Urvalsdeildin í körfuknattleik: Frábær byrjun hjá Stólunum „Þetta var geysilega mikilvæg- ur sigur. Ég tek ekkert rnark á spádómunum og við ætlum okkur að vera áfram í úrvals- deildinni,“ sagði Páll Kol- beinsson, kampakátur þjálfari og leikmaður Tindastóls á Sauðárkróki, eftir frækilcgan sigur Stólanna á KR á Sauðár- króki f gærkvöld, 82-72. Óhætt cr að segja að þcssi sigur Tindastóls hafi koniið skemmtilega á óvart og stemmningin meðal 600 áhorf- enda á Króknum í gærkvöld var ótrúleg. Fyrri hálflcikur cinkcnndist af taugatitringi og var jafnræöi með liðunum. KR-ingar leiddu lengst af cn Tindastóll komst yf- ir þcgar 5 mínútur voru til lcik- hlés. KR-ingar komust aftur yfir og þeir höfðu betur í hálfleik, 36-32. Tindastólsmenn snéru síðan dæntinu við þegar um 10 ntín. voru liðnar af síðari hálf- leik og hcldu forystunni allt til leiksloka og má segja að Páll Kolbeinsson hafi gulltryggt sig- ur heimamanna með þriggja stiga körfu þcgar 54 sek. voru eftir. I heild komu Stólamir skemmtilega á óvart. John Torr- ey átti góöan leik í síðari hálf- leik og einnig spiluðu þeir Hin- rik Gunnarsson og Sigurvin Pálsson mjög vel. Ingvar Ormarsson og Hennann Hauks- son voru bestir í liði KR. Dómarar voru Kristján Möll- er og Kristinn Óskarsson og dæntdu þcir vcl. GBS/óþh Liðin: Tindastóll: John Torrey 28. Páll Kol- beinsson 6, Hinrik Gunnarsson 18, Amar Kárason 2, Ómar Sigmarsson 11 og Sigurvin Pálsson 17. KR: Ólafur Ormsson 10, Ósvaldur Knudsen 10, Falur Haróarson 11, Ing- var Ormarsson 11, Hcrmann Hauksson 24, Friórik Stefánsson 2 og Brynjar Haróarson 4. Handknattleikur - deilur um félagaskipti Rúnars Sigtryggssonar: „Þetta er skandair - segir Rúnar Sigtryggsson og er óhress með gang mála Teitur Örlygsson og Sandy Ander- son takast á undir körfunni. Mynd: Robyn. „Það er andskoti skítt að Ienda í þessu og vera úti í kuldanum á meðan einhver félög eru að kíta sín á milli um samninga,“ sagði Rúnar Sigtryggsson í samtali við Dag í gær en hann hefur ekkert getað leikið handknattleik á þessu tímabili vegna deilna um samninga milli Þórs og Vals. Eins og fiestum ætti aö vera kunnugt þá hugóist Rúnar skipta úr Val í sitt gamla félag, Þór, fyrir þetta tímabil og fara þaöan til Víkings. Ekkcrt hclúr þó cnn orö- ið al' þcim skiptum, þar scm Vals- menn neituðu að skrifa undir fé- lagsskiptin. Þeir vilja meina að þaó sé verið aó svíkja þá um lé- lagsskiptagjald og aö Þórsarar séu einungis „lcppur“ í að koma hon- um í raðir Víkinga. Þegar Rúnar gekk til liós við Valsmcnn fyrir Blak: Mótið byrjar í kvöld - KA meö nýjan þjálfara fslandsmótið í blaki 1994-1995 hefst í kvöld í KA- heimilinu. Fyrsti leikur mótsins er viður- eign KA og Þróttar frá Nes- kaupstað kl. 20.00 í karlaflokki og kl. 21.30 leika sömu lið í kvennaflokki. KA er með nýjan þjálfara á þessu tímabili, en það er Bandaríkjamaðurinn Mike Whitcomb og mun hann einnig leika með liðinu. Mike Whitcomb er 26 ára miöjusmassari frá Los Angeles í Bandaríkjunum. Hann stundaði nám við UCLA háskólann, sem er þckktur fyrir aó ala upp afreksfólk í fiestum íþróttagreinum og hann var þrisvar valinn í úrvalslió há- skóla, svokallað All Amcrican-lið. Whitcomb er rúmlega 2 metrar á hæð og mjög sterkur lcikmaður. Blaðamaður Dags hitti hann að máli og byrjaði á að spyrja hvcrn- ig honum líkaði dvölin á Islandi en hann kom til landsins í síðustu viku. „Mér líkar vel hér. Landió er mjög áhugavert og algjör and- stæða þcss staðar sem ég kem frá. Eg vissi að þetta yrði mikil breyt- ing cn ég vissi ckki við hverju ég átti að búast þannig að það er gaman að sjá þetta loks,“ sagði Whitcomb. Eins og áður sagði kom hann til landsins í síðustu viku og tók þátt í móti með liói Mike Whitcomb. sínu um síðustu helgi. Þrátt fyrir að úrslit lcikjanna hafi ekki verió eins og hann heföi kosið telur hann möguleika KA í deildinni góða. „Ég hef ekki séð mörg liö, aðeins þau tvö sem við höfum leikið við. Við töpuðum fyrir þeim cn ég held að við ættum al- veg örugglega að geta sigrað þau. Við höföum aðeins æft tvisvar saman áður en keppnin hófst og ég er enn aó aðlaga mig breyttum aðstæöum. Auk þess vantaói leik- menn í okkar hóp og ég tel að við munum standa okkur vel í vetur.“ Aóspurður um hvernig íslenska blakið stæði í samanburði við það sem spilað er í Bandaríkjunum taldi hann enn vanta mikið upp á. „Gæðin cru sennilega svipuð því sem gerist í menntaskólum (Junior College) í Bandaríkjunum. Ég held að blakiö hér sé í þcim gæða- fokki af því að það er ekki vinsæl- asta íþróttin í landinu og þetta er lítil þjóð þannig að þátttakcndur eru ekki mjög margir. Kannski eru bestu íþróttamennirnir líka í öðr- um íþróttagreinum eins og hand- bolta og fótbolta sem eru vinsælli. Það eru heldur ekki eins margir þjálfarar, en ég tel aö það sé traustur hópur krakka scm vill lcika blaka og læra. Þaó er mjög gott,“ segir Whitcomb sem einnig þjálfar yngri fiokka KA. Sjálfur segist hann vera að komast í leikæfingu að nýju cn hann hcfur ekki spilað eftir sömu reglum undanfarin ár. „Ég lck síð- ast í háskóla árió 1991 og síðan hef cg lcikið mikió á ströndinni í Kaliforníu og einnig hcf ég mikið fengist við þjálfun. Ég hef ekki leikið í sex manna liði í nokkurn tíma, en það er mikið at' keppnum á ströndinni. Aður lék ég mjög mikið með sex manna liði í sum- ardeildum og þar er hart barist og mikið af leikjum,“ sagði Whit- comb að lokum. einu ári var ákvæði í samningnum um að hann gæti farið aftur í Þór án skuldbindinga af hálfu Vals- manna. Þcir eru ekki tilbúnir til að viróa þctta ákvæöi og málið fór fyrir félagsskiptanefnd, sem úr- skurðaói í málinu í síðustu viku. Þar sagði að Þórsarar gætu fengið Rúnar aftur í sínar raðir mcð því aó greióa 450 þúsund krónur inn á geymslurcikning og ef hann væri enn í Þór þcgar lokafrestur félags- skipta rcnnur út, 1. nóvember, myndi Þór la peningana aftur cn annars rynnu þeir til Valsmanna. Máliö cr þó ckki svo einfalt að Þórsarar séu aðeins „leppur“ í fé- lagsskiptum Rúnars í Víking. Að- ur höfðu Þórsarar fengið Finn Jó- hanncsson lánaðan frá Val gegn greiðslu. Þcir höfðu ekki getað borgað þá upphæó og var því samið um að Rúnar færi til Vals og skuldin þar með greidd aö fullu. Þess vegna var haft ákvæði um að hann gæti komið aftur í Þór og litu þeir þannig á málið að hér væri um lcigu að ræða. Valsmenn eru ckki á sama máli og vilja hafa sem mest út úr þessum viðskipt- um. Rúnar cr uppalinn í Þór og einn besti handknattleiksmaður Akureyrar í seinni tíð. Hann var varamaður hjá Val lengst af síð- asta tímabils og því eðlilegt að hann vilji reyna fyrir sér annars staðar. Rúnar cr ckki mjög bjartsýnn á að lausn finnist í málinu. „Samn- ingar eru ekki virtir sem samning- ar. Allt brotiö um þverbak,“ sagði Rúnar og bætti því við að hann teldi ekki líklegt aó Víkingar væru tilbúnir að koma inn í málið með Rúnar Sigtryggsson íhugar nú að hætta í handknattleik. peningaupphæð. Rúnar hyggur á nám erlendis næsta vetur og þeim finnst of mikið að borga þessa upphæð fyrir einn vetur. „Ég er fastur í Þór eða Val,“ sagði Rúnar en hann taldi ekki miklar líkur á aó hann spilaði aft- ur fyrir Val. „Manni er efst í huga að hætta þessu öllu saman. Það er þá kannski að maður mundi spila með Þór en ckkert æfa með þeim. Það mundi þó ekki ganga mjög lengi,“ sagði Rúnar sem nú er við nám í Tækniskólanum í Reykjavík og greinilcga ekki sáttur við gang mála. Hann hefur æft af fullum krafti meó Víkingum en hætti því á mánudag. Rúnar vildi einnig taka þaó fram að hann ætti ekki í neinum útistöðum við sína gömlu félaga í Valsliðinu og þeir standi með honum í þessu máli. Iþróttir Blak: Föstudag: KA-Þróttur Nes. karlar kl. 20.00 KA-Þróttur Ncs. konur kl. 21.30 Handknattleikur: Sunnudag: Haukar-KA kl. 20.00 Körfuknattleikur: Sunnudag: Þór-Haukar kl. 20.00 Tindastóll-Njarövík kl. 20.00 Golf: Laugardag: Bændaglíma Jaðarsvelli kl. 10.00 , □□ '□' □□ *□" □• Ný námskeið hefjast mánudaginn 3. október Skráning hafin Líkamsrœktin Hamri, sími 12080.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.