Dagur - 21.10.1994, Blaðsíða 3

Dagur - 21.10.1994, Blaðsíða 3
FRETTIR Föstudagur 21. október 1994 - DAGUR - 3 Framkvæmdir viö 1. áfanga Sundiaugar Akureyrar: Heildarkostnaður um 62 milljónir króna Á fundi bæjarráðs Akureyrar í gær, var lögð fram greinargerð frá byggingadeiid um framkvæmdir við 1. áfanga við Sundlaug Akur- eyrar og yfirlit um heildarkostnað verksins, sem reyndist vera tæpar 62 milljónir króna. Einnig fylgdi greinargerð frá hönnuðum um stöðu þeirrar vinnu þann 16. októ- ber sl. Gunnar Jónsson, formaöur sam- starfshóps um framkvæmdir við 1. áfanga sundlaugarinnar, sagöi í sam- tali við Dag, að kostnaðaráætlun verksins, sem bókuð var hjá sam- starfshópnum, eftir útboð, hafi hljóðað upp á 55 milljónir króna. „Það eru ýmsar ástæður fyrir því að kostnaður við verkió var meiri en upphaflega var áætlað. Þegar fram- kvæmdir hófust kom eitt og annað ófyrirséó í ljós, sem bæði tafði verk- ið og þýddi aukinn kostnað. Einnig hefur í einstaka tilfellum, eins og t.d. í pípulögnum verið unnið fram í tím- ann, sem aftur nýtist í næsta áfanga. Inni í þessari tölu er leiga á gámn- um, sem notaóur var sem heitur pottur á meðan framkvæmdir stóðu yfir og þá er í þessum tölum hönn- unarkostnaður fyrir næsta áfanga, sem unnið verður við fram að ára- mótum.“ Gunnar segir, að allra mati sé vinna við 1. áfanga flóknasti hluti þessara nýframkvæmda og því sé erfiðara að segja nákvæmlega til um hvað hlutimir kosti. Samkvæmt útboði átti fram- kvæmdum við þennan áfanga að ljúka þann 15. júní sl. en verkinu lauk í kringum 1. september. „Það má segja að gætt hafi óhóflegrar nú lokió störfum en auk Gunnars bjartsýni varðandi tímasetningu áttu þar sæti þau Þórarinn E. Sveins- verkloka.“ Samstarfshópurinn hefur son og Sigríður Stefánsdóttir. KK Þórshöfn: ITC Hnota stofnsett Stofnskráfundur ITC Hnotu á Þórshöfn verður haldinn með viðhöfn í félagsheimilinu nk. laugardagskvöld. Stofnfélagar verða 14 og fyrsti forseti félags- ins verður Bjarnveig Skaftfeld. Á laugardaginn verður ráðs- fundur nokkurra ITC-félaga á Þórshöfn, en það er ekki oft sem félagar úr félagasamtökum víða að af landinu koma þangað til fundarhalda. ITC-félagar koma til Þórshafnar á föstudagskvöld. Milli ráðsfundar og stofnfundar á laugardag gefst þeim tækifæri til að skreppa á sjó ef veður leyfir eða gera eitthvað annað skemmti- legt, að sögn Kristínar Kjartans- dóttur, sem er ein af nýju ITC-fé- lögunum. IM Nýr þáttur í Útvarpi Norðurlands: Norðurljós í loftið á laugardögum A morgun, fyrsta vetrardag, verður hleypt af stokkunum nýj- um þætti í Utvarpi Norðurlands, sem hlotið hefur nafnið Norður- Ijós. Þátturinn hefst kl. 11 og lýkur fyrir hádegisfréttir. Út- varpað verður á dreifikerfi Rás- ar 2. Umsjónarmaður Norður- ljóss verður Arnar Páll Hauks- son og aðrir starfsmenn Útvarps Norðurlands. Amar Páll segir að í upphafi þessa nýja þáttar verði fréttir vik- unnar teknar saman, síðan verði sest á rökstóla með tveimur eða þremur Norðlendingum og mál- efni sem varöa þennan landshluta rædd og í lokin leikin lög og send- ar út auglýsingar. Arnar segir að Útvarp Norðurlands hafi áður ver- ið með helgarþátt, Sunnudags- blönduna, sem var þá sendur út á landsvísu. Lengi hafi veriö ætlun- in að byrja aftur með útvarp um helgar og Norðurljós hafi orðið niöurstaðan. óþh Akureyri: Aukinn áhugi á kappróðri - stofnuð hafa verið félög bæði í MA og VMA Áhugi á kappróðri hefur verið að aukast á Akureyri síðustu misseri. Bæði í Menntaskólan- um og Verkmenntaskólanum, hafa verið stofnuð sérstök róðr- arfélög, sem m.a. hafa att kappi á róðrabátunum sem til eru í bænum. Hugmyndin er að félög- in verði rekin innan vébanda siglingaklúbbsins Nökkva í framtíðinni. Nú hafa skólafélögin sameinast um kaup á róðrarbáti, þar sem í áhöfn eru fjórir ræðarar og einn stjómandi. Báturinn er keyptur er- lendis frá og kemur til Akureyrar innan tíðar. Slíkur bátur kostar um hálfa milljón króna en skólafélög- in fengu styrk frá Alþjóðlega róðr- arsambandinu og þurfa því „að- eins“ að leggja út um 130 þús. krónur. Einnig er stefnt að því að kaupa sérstakar róðrarvélar, sem reknar yrðu í samvinnu við Vaxt- arræktina í Höllinni. í vikunni var haldinn fundur í Möðruvallakjall- ara, þar sem áhugamenn um kapp- róður komu saman og ræddu mál- in. Tveir róðrarþjálfarar úr Reykjavík komu á fundinn og kynntu þessa íþróttagrein fyrir áhugasömum Norólendingum. I Kvennaskólanum í Reykjavík er starfrækt róðrarfélag og vitað er um áhuga margra á þessari íþróttagrein og því gæti farið svo að fleiri félög yrðu stofnuð áður en langt um líður. Fyrir einhverjum árum síðan var mikill áhugi á kappróðri á Ak- ureyri og hafa skólafélögin verið að leita þeirra rnanna sem þar fóru fremstir í flokki. Áhugasömum er bent á aö setja sig í samband við nemendaráð skólanna. KK vikunni héldu áhugamenn um kappróður fund í Menntaskólanum á Akureýri. Mynd: Robyn Tilboð frá 20. okt. til 23. okt. Góa Æðibitar 250 g kr. 119,- Lernm Aprikósu/Ferskju 700 g kr. 97,- Ostamltur m/hvittauk oq steinsetju, Coniac oq hnetum, Bacon oq papriku kr.119,- Hoítur Kastati kr. 129,- pr. stk. Rjómamysuostur kr. 160,- Kymtinq Fimmtud., föstud. og laugard. Paut NeWman’s Ou/n Spaqhettisósa 737 g kr. 175,- Barnasmekkir 7 í pk kr. 298,- AJauta Príme ríbs kr. 948 pr. kg $ Opið mánudaga til föstudaga kl. 12-18.30 Laugardaga kl. 10-16 Sunnudaga kl. 13-17 Þegar verslað er ódýrt

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.