Dagur - 21.10.1994, Blaðsíða 16

Dagur - 21.10.1994, Blaðsíða 16
Hið vineæia villibráðarkvöl á Smiðjunnar fö&t-udsge- og iaugær- daqekvöid, kr. 2.350.- Þýskir saslkeradagar föetudags,- laugar- dage- og euuuudage- kvöid, kr. 1.250.- Síldarafli Arnþórs EA-16 fer allur til vinnslu: „Of lítill verðmunur á vinnslu- og bræðslusíld“ - segir Ingvar Guömundsson, skipstjóri Margir bíða án efa spenntir eftir að straumi verði hlcypt á nýju lýsinguna, sem starfsmenn Rafveitu Akureyrar vinna að þessa dagana, cnda leiðin norður úr bænum fjölfarin. Mynd: Robyn. Rafveita Akureyrar sér um lýsingu norður úr bænum: Urbóta þörf á fleiri stöðum - segir Svanbjörn Sigurðsson, rafveitustjóri Nú standa yfir framkvæmdir við uppsetningu á ljósa- staurum á leiðinni frá gatnamót- um Hlíðarbrautar og út fyrir Viðbúið að þaö snjói mikiö í vetur - segir Sigurlaug á Kárastöðum Eg hef trú á að þetta verði al- veg þokklegur meðalvetur en hann verður heldur leiðinleg- ur, seinni partinn, svona þegar fer að nálgast mars,“ segir Sig- urlaug Jónasdóttir á Kárastöð- um í Skagafirði. Hún hefur haft þaó fyrir sið að spá fyrir um veturinn í kindagarnir og oft hafa spár hennar staðist. Sigurlaug sagðist aóeins hafa kíkt í garnir í haust og hún á von á því að eitthvað eigi eftir að hlýna fram undir jól. „Það hefur rignt mikið í haust og því er alveg viðbúið aó það snjói mikið í vetur. Þetta hafa nú ekki verið miklir snjóavetur síð- ustu ár en það gæti orðið breyting á því nú. Enda er það ekki það versta þó snjói eitthvað, þaó hefur verri afleiðingar ef frýs á bera jörðina,“ sagði Sigurlaug. KK VEÐRIÐ I dag spá veðurfræðingar Veðurstofu íslands all- hvassri norðaustan átt og slyddu norðanlands. Helg- arspáin er heldur kuldaleg, stíf norðan- eða norðaust- anátt á morgun og áfram slydda en á sunnudaginn verða él, eða jafnvel snjó- koma. Hiti verður svipaður fram á sunnudag en þá kólnar heldur. Byggingavörudeild KEA á Lóns- bakka. Þetta er framkvæmd sem margir munu án efa fagna, enda Ieiðin fjölfarin. í rauninni er það Vegagerð ríkisins sem kostar þessa framkvæmd en hún var ekki á fjárhagsáætlun Vegagerð- arinnar á þessu ári og Rafveita Akureyrar lánar því til verksins og sér einnig um framkvæmdir. Svanbjörn Sigurðsson, rafveitu- stjóri á Akureyri, sagðist búast við því að nýja lýsingin kæmist í gagnið upp úr næstu mánaða- mótum. - Hvemig bar það til að Raf- veita Akureyrar tók verkið aó sér? „Það er vegna þess að við sáum nauðsyn þess að þetta yrði gert og höfum bent á það í mörg ár. Þessi kafli milli Hlíóarbrautar og Bygg- ingavörudeildar KEA er mikill hættupunktur í umferóinni. Eins og staóan er í dag byrjar lýsingin ekki fyrr en komið er verulega inn í byggð. Við sáum í blöðunum einhverjar tölur um hvað þetta myndi kosta og þær voru miklu hærri en þær rauntölur sem við er- um vanir að sjá hér hjá okkur og vió ákváðum því að gera tilboð í þetta á okkar kostnaðarverði,“ sagði Svanbjöm. Að hans sögn hafði jafnvel komið til greina að fara með lýs- inguna lengra. Glæsibæjarhreppur hafói raunar óskað eftir því, en hins vegar átti Rafveitan ekki meira efni. „Okkar tilboð mióaðist í upphafí við að farið yrði aö bæj- armörkum Akureyrar. Glæsibæj- arhreppur óskaði eftir því að lengra yrði farió og við urðum við þeirri ósk eins og efnisbirgðir okkar leyfðu.“ - Kemur jafnvel til greina að halda áfram lengra út eftir síðar? „Eg held að þeir í Glæsibæjar- hreppi hafi áhuga á að haldið verði áfram með lýsinguna. Við erum hins vegar komnir þama inn á svæði RARIK, með þeirra sam- þykki reyndar. Það er hins vegar tímabundið, þeir munu væntan- lega yfirtaka sölu á rafmagni á sínum hluta þegar þeir hafa að- stöðu til þess.“ Svanbjörn sagöi þess ekki langt að bíða aó hægt yrði að taka nýju lýsinguna í notkun. „Þetta er verk- efni sem bættist inn í hjá okkur, var ekki á áætlun og er því unnið dálítiö í hjáverkum, en upp úr næstu mánaðamótum ætti þetta að komast í gagnið. Við getum sagt aó fyrir mesta skammdegið verði ljósin komin í notkun.“ Eins og Svanbjörn benti á, eru fleiri staðir í útjaðri bæjarins sem þyrfti aó lýsa upp, t.d. frá flugvell- inum og fram að afleggjaranum í Kjamaskóg, þar sem oft er mikil umferð á kvöldin. HA Arnþór EA-16 frá Arskógs- sandi hefur verið á sfldveið- um að undanförnu og á miðviku- dag var skipið austur í BeruQarð- arál ásamt um 25 öðrum sfldar- bátum en bræla hafði verið tvo sólarhringa þar á undan. Sfldar- afli Arnþórs EA er kominn í tæp 800 tonn og hefur sfldin verið ísuð í kör og önnur lestin hefur einnig verið hólfúð af fyrir sjó og ís til kælingar fyrir sfldarfar- minn. Síldin stendur nokkuð gmnnt, og segir Ingvar Guómundsson, skipstjóri, að hún hafi farið allt upp á 15 faðma og niður á 50 faðma. Miðaó við undanfarin haust hefur síldin fengist grynnra en oft áður. „Amþór EA er að veiða kvóta tveggja báta, alls um 2.600 tonn og fer aflinn til vinnslu hjá Strandasíld á Seyðisfiröi en þaó sem fer til bræðslu fer til Vestdalsmjöls, en það er verksmiðja sem stofnuð var upp úr þrotabúi Hafsíldar á Seyðis- firói. Það er orðinn allt of lítill munur á verði vinnslusíldar og bræðslusíldar en miðaó við meðal- verð þess afla sem við höfum land- að eru það krónur 2,50 en fyrir bræðslusíldina fást 6,50. Þaó er þó eitthvað misjafnt eftir verksmiój- um. Söluhorfur á mörkuðum er- lendis em ekki of góðar því það er mikið framboð frá Norðmönnum, sem bjóða síldina niður fyrir keppi- nautunum. Menn reyna þrátt fyrir það að komast með síldina í vinnslu en þaö er ekki um svo marga aðila að ræða hér fyrir austan sem verka síld þannig að ekki er alltaf hægt að komast að. Björg Jónsdóttir ÞH frá Húsavík byrjaði á síldveiðum fyrir tveimur dögum og landar á Slökkviliðsmenn álykta um Ólafsfjarðargöng: Skýlaus krafa um nauðsynlegar úrbætur - Brunamálastofnun leitar til félagsmála- og samgönguráðherra Stjórn Landssambands slökkviliðsmanna Iýsir mikl- um áhyggjum sínum vegna þeirrar eldhættu er stafað getur af lofteinangrun í Ólafsfjarð- argöngum. Óryggi vegfarenda getur engan veginn talist tryggt við slíkar aðstæður, segir í álykt- un sem samþykkt var í vikunni. Það er mat Landssambands slökkviliðsmanna að hvenær sem er geti skapast alvarlegt hættu- ástand í Ólafsfjarðargöngum því eldur gerir ekki boð á undan sér. Stjórnin átelur Vegagerð ríkisins fyrir að taka ekki tillit til ítrekaðra viðvarana m.a. frá slökkviliðs- stjóra Ólafsfjarðar. Það er skýlaus krafa að Vega- gerö ríkisins láti þegar í stað fram- kvæma nauðsynlegar úrbætur á Ólafsfjarðargöngum. Landssam- band slökkviliðsmanna hvetur stjómvöld til að fyrirbyggja end- urtekningu slíkra mistaka, svo sem viö Vestfjaröagöng. Jafnframt hvetur stjórn Lands- sambandsins Brunamálastofnun ríkisins til aó beita sér fyrir breyt- ingum á lögum og reglunr í (ress- urn efnunr þannig að bygging jarðganga falli ótvírætt undir byggingareglugerðir og Iög um brunavamir og brunamál og þar nreð undir hin einu réttu bruna- málayfirvöld í landinu, eins og segir í ályktuninni. Stjórn Brunamálastofnunar hefur ítrekað fjallað urn Ólafs- fjarðargöng og hefur m.a. verið rituð skýrsla um afskipti stofnun- arinnar af Múlagöngum. Á fundi Brunamálastofnunar í byrjun október sl. var eftirfarandi bókun samþykkt: „Stjórn Brunamálastofnunar ríkisins beinir þeim tilmælum til félagsmálaráðherra og samgöngu- ráóherra aö þeir hlutist til um, nú þegar, að framkvæmd verði brunahönnun á Ólafsfjarð- argöngum, svo að ekki komi til þess að Brunamálastofnun ríkisins neyðist til að krefjast Iokunar ganganna vegna mikillar bruna- hættu.“ KK Homafirði. Aðrir norðlenskir bátar em ekki hér enn sem komið er,“ sagði Ingvar Guðmundsson, skip- stjóri. Allgóó veiði hefur verið þegar viórað hefur til þess og er heildar- aflinn orðinn um 14.000 tonn og hefur aflanum verið iandað á Þórs- höfn, Seyðisfirði, Neskaupstað, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Djúpa- vogi, Hornafirði, Vestmannaeyjum og Grindavík. GG Akureyri: Margir fengu kvef og hálsbólgu - slæm magakveisa nú í október Nokkuð hefur verið um kvef- og hálsbólgutilfelli á Akur- eyri í haust og í síðasta mánuði voru skráð 436 slík tilfelli, í skýrslu Heilsugæslustöðvarinnar um smitsjúkdóma. Magnús Ólafsson, yfirlæknir Heilsugæslustöðvarinnar, segir að hér sé um hefóbundinn haustfar- aldur að ræða en þó hafi hann ver- ið heldur aðgangsharðari nú en síð- ustu ár, m.a. vegna þess hversu kólnaði snögglega. Þá voru skráö um 70 maga- kveisutilfelli í síðasta mánuði en Magnús segir að nú í október hafi verið nokkuó slæm magakveisa í gangi en hún sé nú í rénum. Einnig kemur alltaf upp lungnabólga og í september voru skráð unr 20 slík tilfelli. KK RAFTÆKI í MIKLU ÚRVALI Vöfflujárn frá 4.880,- Straujárn frá 2.455,- 0 KAUPLAND HF. Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565 mmm • •••••••• •.*,•« • •••. • •

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.