Dagur - 21.10.1994, Blaðsíða 6

Dagur - 21.10.1994, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 21. október 1994 Þjóðverjar leiddir í allan sann- leika um íslenskt góðgæti Snæbjöm Kristjánsson, matreiðslu- meistari á veitingastaðnum Fiðlar- anum á Akureyri, stýrir þessa dag- ana matreiðslunni í eldhúsi hótels í miðborg Kölnar í Þýskalandi. Astæðan er sú að þar stendur nú yf- ir tveggja vikna íslandskynning, þar sem Þjóðverjum er gefin innsýn í íslenskan mat eins og þeir geta vænst að fá á veitingahúsum á Is- landi. Hér cr því ekki um þessa hefðbundu Víkingakynningu að ræða þar sem hákarl, hangikjöt, svið og harðfiskur eru í öndvegi heldur er það íslenski fiskurinn og íslenska fjallalambið sem er í aðal- hlutverkunum á Islandskynningunni í Köln. Ohætt er að segja að kynn- ingin hafi vakið nú þegar mikla at- hygli í Þýskalandi, skrifaðar hafa verið margar greinar í þýsk blöð og birtar myndir og í kjölfarið fylgir ágæt aðsókn, bæði forvitinna Þjóð- verja og einnig sækja kynninguna íslendingar sem búsettir eru á Köln- arsvæðinu. Fjölmargir undirbúningsaðilar „Þessi íslandskynning hér á Pul- mann Mondeal hótelinu í Köln er á vegum Ferðamálaráðs, Flugleiða og Hjálmars V. Hannessonar, sendi- herra í Þýskalandi. Raunar er þetta tilkomið í gegnum Hermann Reyn- isson, sem er flugstjóri Cargolux í Luxemburg, en hann á hugmyndina og er aðal driffjöðrin í þessu,“ sagði Snæbjöm þegar Dagur náði sam- bandi við hann í eldhúsinu á Pul- mann hótelinu í fyrrakvöld. Þrír íslenskir matreiðslumenn fóru til Þýskalands vegna kynning- arinnar, þ.e. Snæbjöm, Þórarinn í Meistaranum, sem er þjálfari lands- liðs matreiðslumeistara, og síðan þriðji meistarinn. Snæbjöm tekur fram að hér sé ekki um neina æf- ingaferð að ræða af hálfu þeirra landsliðsmanna en þetta sé góð til- breyting og dýrmæt reynsla. Fyrri viku kynningarinnar voru mat- reiðslumennirnir allir þrír í mat- reiðslunni á Pulmann hótelinu en seinni vikuna er Snæbjörn einn og hefur yfirumsjón með matreiðslu þýsku matreiðslumannanna á ís- lenska hráefninu. Islenskur matseðill í hálfan mánuð Eins og áður segir hefur íslenski matseðillinn á hótelinu og heim- sókn íslensku matreiðslumannanna vakið mikla athygli ytra. Komið hafa greinar og myndir í fimm helstu dagblöðum Þýskalands en Is- landskynningin hófst með sérstakri móttöku fyrir 30 þýska blaðamenn og í kjölfarið fylgdi um 200 manna matarboð sem í kom m.a. fólk sem vinnur að ferðaþjónustu í Þýska- landi. Allt þetta virðist hafa ýtt und- ir þá athygli sem kynningin hefur fengið. Snæbjörn segir að Þjóðverj- amir taki vel á móti þessum erlendu gestum og geri allt til að kynningin megi takast sem best. „Og ég reikna með að forsvarsmenn hótelsins séu ánægðir með hversu mikla athygli þetta hefur fengið hér,“ sagði Snæ- bjöm. Mikill fiskáhugi I upphafi var það ætlun Snæbjörns og félaga að leggja mesta áherslu á lambakjötið á þessari kynningu. Með það í huga var matseðillinn settur upp en þegar hann var borinn undir Þjóðverjana á undirbúnings- tímanum kom í Ijós að áhuginn á Snæbjörn Kristjánsson, matreiðslu- meistari á Fiðlaranum á Akureyri, kynnir s- lenskan mat í Þýskalandi fiskmetinu var þyngri á metunum og út frá því var unnið. Þegar kem- ur að lýsingum Snæbjöms á mat- seðlinum er ekki laust við að vatn komi í munn því hann telur upp gratíneraða sjávarréttaforrétti, hum- ar- og laxarétti, gufusoðna lúðu, tvo lambakjötsrétti, hreindýrafillet, skyrtertu með rabbarbarasultu og rjóma, íslenskar pönnukökur og bláberjaís. Og ekki er hér látið stað- ar numið því með í för var líka ís- lenskur bjór frá Viking Brugg á Ak- ureyri, konfekt frá Nóa-Síríus, ís- lenskur „black death“ sem framleiddur er í Luxemburg og hið sanna íslenska brennivín. Ánægðir Þjóðverjar Snæbjörn segir að áhugi matargest- anna beinist fyrst og fremst að fisk- réttunum, t.d. lúðunni og humrinum en Þjóðverjar noti sjálfir einhverjar tegundir í sinni matreiðslu sem séu þó langt frá að vera eins. Reykta lambakjötið segir hann kannski fá einna minnsta athygli en skýring á því sé einfaldlega sú hversu líkt það kjöt sé þýska svínakjötinu sem Þjóðverjar séu vanir. „En í heild líkar Þjóðverjunum þetta mjög vel,“ segir Snæbjöm og bætir við að að- sóknin frá því Islandskynningin hófst hafi verið nokkuð jöfn en náð hámarki um síðustu helgi og reikna megi með annarri holskeflu um þessa helgi. Spyrja um landið Lítið virðist vanta á áhuga Þjóð- verja á öllu sem viðkemur Islandi. Snæbjöm segist mikið vera spuróur og einna helst sakni hann þess að hafa ekki tekið nóg af landakortum og upplýsingabókum með í ferðina. „Eg fór inn í stóra bókabúð hér sem er með bækur og landakort frá löndum víðs vegar um heim og þar fannst ekkert um Island. Svipað er að segja af upplýsingamiðstöðvum. Þetta er svona dæmigert atriði sem sést yfir en það er erfitt að ná Þjóð- verjum til íslands nema halda að þeim upplýsingum um landið." Spurningarnar sem Snæbjörn hefur fengið eru nokkuö dæmigerð- ar um kunnáttuna, sumir vissu eitt- hvað um landið en aðrir báru fram spurningar eins og þær hvort hægt væri að fá mjólk á Islandi! íslendingarnir koma í íslenska matinn Islandskynningunni lýkur næstkom- andi sunnudag og miðað við bókan- ir fyrir helgina þá ætla margir að fá nasaþef af íslenskri matreiðslu og íslenskum mat áður en kynningunni lýkur. Snæbjöm reiknar með að margir Islendingar, búsettir á Köln- arsvæðinu, komi um helgina, líkt og þá síðustu. Þá komu starfsmenn íslenska sendiráðsins og handbolta- kappinn Kristján Arason, svo ein- hverjir séu nefndir. En hvernig skyldi ganga að fá þýsku mat- reiðslumennina til að glíma við ís- lenska matargerðarlist. „Þeirra matseld er allt önnur en við þekkjum. Hér er ekki verið að spá í smáatriðin, að minnsta kosti ekki á þessum stað. A meðan ég raóa matnum á diskana, vel úr grænmetinu og hugsa um að réttirn- ir fari sem best hugsa þeir um að af- greiða sem mest. Þetta kemur kannski til af því að hér er um að ræða eldhús fyrir nærri 300 her- bergja hótel. Síðan eru þeir vanir öðruvísi hráefni en við, t.d. eru hér til lambahryggir en þeir hafa allt annað bragð en við þekkjum og eru ólíkir okkar hráefni,“ sagói Snæ- björn um leið og hann sendi kveöju heim og sneri sér á ný að félögum sínum í eldhúsi Pulmann hótelsins. JÓH Hef ekki undan að framleiða - segir Birgir Gudnason, verkstæðiseigandi í Ólafsfirði, sem sólar hjólbarða „Ástæóan fyrir því að ég fór út í þetta var einfaldlega sú að ég vildi breikka starfsemi fyrirtækisins og fjölga atvinnutækifærum. Mér bauðst þessi verksmiðja til kaups Sýslumaöurinn á Akureyri, Hafnarstræti 107,600 Akureyri, sími 96-26900. Uppboð Framhald uppboðs á neðangreindri eign verður háð á henni sjálfri sem hér segir: Háilundur 10, Akureyri, þingl. eig. Valdimar Pétursson, gerðarbeið- endur Byggingarsjóður ríkisins, Landsbanki Islands, Lífeyrissjóður starfsm. Ak.bæjar, Vátryggingafé- lag íslands og íslandsbanki hf„ 26. október 1994 kl. 10.30. Sýslumaðurinn á Akureyri. 20. október 1994. austur í Fellabæ og ég sló til,“ segir Birgir Guðnason á Bílaverk- stæði Birgis, en hann hefur hafið framleiðslu á sóluðum hjólbörðum undir vöruheitinu BB-dekk. Harður og óvæginn „bransi“ - Hvaó felst í því að sóla hjól- barða? „Þetta felst í því að raspa niður gömul dekk og sóla þau upp á nýtt.“ - Fellur til nóg af dekkjum hér innanlands? „Nei, því fer víós fjarri. Eg kaupi lang mest af dekkjunum frá Hollandi og Þýskalandi og fæ þau hingað í gámum." - En hvaó verður um öll þau dekk sem til falla hér á landi? „Verkstæðin fyrir sunnan skera þau niður og láta eyöa þeim. Fyrir þaö borga þau ákveóiö gjald. Verkstæðin syðra vilja ekki selja imm Vinn ngstölur , miövikudaginn: 19.10.1994 VINNINGAR 6 af 6 0 5 af 6 +bónus 0 5 af 6 4 af 6 0 .3 af 6 ■ +bónus FJÖLDI VINNINGA 2 0 204 841 UPPHÆÐ Á HVERN VINNING 24.180.000 1.440.181 63.677 1.986 206 Aðaltölur: BÓNUSTÖLUR Heildarupphæð þessa viku 50.633.279 áísi : 2.273.279 JJf Uinningur: fór til Noregs og Sviþjóðar UPPLVSINQAR, SlMSVARI68 15 1, LUKKULfNA 99 ,0 00 - TEXTAVARP 45, BIRT MEÐ FTRIRVARA UM PREHTVILLUR mér dekkin þrátt fyrir að ég hafi ítrekað farió fram á það. Og það virðist engu máli skipta hvað ég er tilbúinn að borga fyrir dekkin." - Hver er skýringin á þvi? „Ég hef engar skýringar feng- ið.“ - Eru ekki aðilar fyrir sunnan í samkeppni við þig á þessum markaði? „Jú, bæði Sólning hf. og Gúmmívinnustofan eru líka í þessu og svo flytja mörg bifreiða- verkstæði fyrir sunnan inn dekk og selja. I sumar viðraöi ég þá hugmynd við forsvarsmenn nokkurra bif- reiðaverkstæða fyrir sunnan aó þeir söfnuóu fyrir mig gömlum, slitnum hjólböróum og ég myndi síðan sækja þá og borga ákveðiö fyrir. I fyrstu var tekið mjög vel í þetta, en skyndilega fór allt í bak- lás. Ég veit ekki af hverju.“ Rífandi gangur - Hvernig hefur þér þá gengið að fá bifreiðaverkstæðin til að selja sóluðu dekkin frá þér? „Það hefur ekki gengið vel, hvorki fyrir sunnan né á Akureyri. Gúmmívinnslan hf. á Akureyri hefur aó vísu tekið frá mér dekk til sölu og sama gildir um Bíla- þjónustuna á Akureyri. Ég hef heyrt að mikill þrýstingur sé á dekkjaverkstæðin á Akureyri frá sólningaframleiðendum fyrir sunnan að taka dekk frá sér og sniðganga mig.“ - Er þá svo að skilja að þú eigir Birgir Guðnason við stæðu af sóluð- um BB- hjólbörðum. Mynd: Óþh. í erfiðleikum meó að selja þína framleiðslu? „Nei, alls ekki. Þeir aðilar sem hafa BB-dekkin á boðstólum selja mjög grimmt og ég hef ekki haft undan að framleiða. Ég á sáralítið á lager eins og er, enda er þetta aðal vertíóin í vetrarhjólbörðun- um. Ég reikna með að framleiða þá fram að áramótum en þá sný ég mér að sumardekkjunum.“ - Þetta hefur þá aukið veltuna í fyrirtækinu? „Já, það er óhætt að segja þaó. Að undanförnu hafa sex manns unnið einungis við sólunina, sum- ir þeirra voru atvinnulausir áður en þessi atvinnurekstur kom til. Hann hefur með öðrum orðum skapað hér ný störf.“ Birgir sagði aó hann hafi byrj- aó með sólninguna í maí sl. og reynsla af sumardekkjum sem hann framleiddi þá þegar sé mjög góð. Birgir sagði að gífurleg sam- keppni væri á hjólbarðamarkaðn- um og verð þeirra væri lágt um þessar mundir. „Þetta er dýr fram- leiðsla og sveigjanleikinn er lítill,“ sagði Birgir. Hann sagöist gæla við að ársframleiðslan verði 12-14 þúsund dekk. Vertíðin ekki hafin á dekkjaverkstæðunum GM-bílaverkstæði í Reykjavík er eitt þeirra dekkjaverkstæöa á höf- uóborgarsvæóinu sem selja BB- dekk. Þær upplýsingar fengust þar að mikió væri búið að spyrjast fyrir um þessa framleiðslu, ekki síst í kjölfarið á grein um hana í DV á dögunum. „Vertíðin er reyndar ekki byrjuð hjá okkur en við merkjum mikinn áhuga. Við munum auglýsa þessi dekk betur þegar menn fara aö skipta yfir á vetrarhjólbarðana," sagði starfs- maóur á GM-bílaverkstæði. Þar eru BB-dekkin nú boðin með 15% kynningarafslætti og sem dæmi kostar 155-13 dekkió meó nöglum kr. 3.605 og stærðin 185- 70-13 kostar meó nöglum 4.141 krónur. Hjá Bíiaþjónustunni á Akureyri fengust þær upplýsingar að salan væri fremur róleg, en þetta væri „rétt að komast í gang. Þar kostar eitt stykki BB-dekk 155-13 með nöglum kr. 3.805 og 185-70-13 með nöglum kostar kr. 4.444. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.